Morgunblaðið - 28.05.2002, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞETTA er mikill heiður fyrir mig
en þó ekki aðeins mig heldur einnig
pólsku þjóðina sem á stóran hluta í
myndinni,“ sagði hinn pólski Rom-
an Polanski, leikstjóri myndarinnar
Píanistinn, sem á sunnudagskvöld
var veittur Gullpálminn, æðstu
verðlaun aðalkeppni Kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes.
Þetta er í fyrsta sinn sem Pol-
anski, sem búsettur hefur verið í
Frakklandi undanfarna áratugi,
hlýtur þessi virtu verðlaun en hann
hefur einungis einu sinni áður átt
mynd í aðalkeppni á Cannes, það
var árið 1976 sem The Tenant varð
af verðlaununum. Í þakkarræðu
sinni þakkaði Polanski einum
manni framar öðrum fyrir að hafa
stuðlað að því að hann gerði Pían-
istann, manninum sem vakti athygli
hans á bókinni sem handrit Ronalds
Harwoods var byggt á, og á blaða-
mannafundinum á eftir upplýsti
Polanski að sá maður væri lögfræð-
ingur sinn til margra ára. Píanist-
inn gerist í seinni heimsstyrjöldinni
í Varsjá í Póllandi og segir sanna
sögu ungs gyðings, píanósnillings-
ins Wladislaws Szpilmans, sem
tekst með naumindum að fela sig í
borgarrústunum þegar nasistar
flytja gyðinga úr borginni í útrým-
ingarbúðir, og neyðist hann til þess
að vera þar í leynum og líða hungur
og örbirgð svo mánuðum og árum
skiptir. Með aðstoð góðviljaðs nas-
istaforingja tekst honum að halda
lífi. Píanistinn er leikinn af banda-
ríska leikaranum Adrien Brody
sem hlotið hefur lof fyrir frammi-
stöðu sína. Á blaðamannafundi sem
Polanski hélt á föstudag fyrir frum-
sýningu myndarinnar sagði hann
myndina vera þá mikilvægustu á
sínum ferli, mynd sem hann hefði
þurft að gera fyrr eða síðar, en Pol-
anski ólst upp í Varsjá og upplifði
sjálfur ofsóknir nasista.
Lífstíðarsamningur Watsons
Finninn Aki Kaurismäki fékk
næstæðstu Grand Prix-verðlaunin
fyrir mynd sína Mies Vailla Mennei-
syyttä eða Maður án fortíðar og var
þakkarræða hans stutt og einföld:
„Ég þakka þennan heiður aðeins
einum manni – mér – jú og reyndar
dómnefndinni líka.“ Á leið sinni út
af sviðinu gekk hann til dómnefnd-
arinnar, sem valdi sigurvegara
kvöldsins, tók í hönd formannsins,
Davids Lynch, og hvíslaði einhverju
í eyra hans. Kaurismäki var því
vitaskuld spurður á blaðamanna-
fundinum á eftir hvað hann hefði
sagt við Lynch og prakkaralegt
svarið kom um hæl: „Ég sagði það
sama og Hitchcock sagði einu sinni
við Connery: „Hver ert þú?“.“ Og
svo velti Kaurismäki upp spurningu
sem fékk flesta við-
stadda til að hlæja en um
leið klóra sér í höfðinu:
„Hvers vegna gera kvik-
myndagerðarmenn kvik-
myndir?“
Aðalleikkonan í mynd
Kaurismäkis, Kati Out-
inen, var valin besta leik-
konan á Cannes. Outinen
hefur leikið í fjölmörg-
um myndum finnska
leikstjórans og hún sagði
verðlaun sín honum fyrst
og síðast að þakka.
„Hann er sá eini sem ég
hika ekki við að leika
fyrir og ég segi já við
hann áður en hann er bú-
inn svo mikið sem skrifa
handritið.“ Belginn Oliv-
ier Gurmet var valinn
besti leikarinn fyrir
frammistöðu sína í Le
Fils eða Syninum eftir
bræðurna Luc og Jean-Pierre Dar-
denne sem hlutu Gullpálmann 1999
fyrir myndina Rosetta. Útnefningin
kom Gurmet í opna skjöldu en hann
notaði tækifærið til þess að kvarta
undan atvinnuskilyrðum belgískra
leikara og hversu lítinn áhuga
franskir kvikmyndagerðarmenn
hefðu á þeim.
Leikstjóraverðlaunin deildust á
milli Bandaríkjamannsins Pauls
Thomas Andersons fyrir léttrugl-
uðu rómantísku gamanmyndina
Punch-Drunk Love með Adam
Sandler og Emily Watson í aðal-
hlutverkum og Suður-Kóreumanns-
ins Im Kwon-Taek fyrir hina ljóð-
rænu Chihwaseon sem segir
goðsagnakennda sögu af sögufræg-
um kóreskum alþýðulistamanni.
Kwon-Taek er margreyndur leik-
stjóri og hefur gert nálægt hundrað
myndum en aldrei hlotið verðlaun í
Cannes áður en Anderson deildi
aftur á móti með honum verðlaun-
um fyrir þriðju mynd sína. Kwon-
Taek viðurkenndi fúslega að hann
öfundaði Anderson af að fá verð-
laun svo snemma á ferlinum. And-
erson sagðist djúpt snortinn yfir því
að geta tekið þátt í alþjóðlegri kvik-
myndaveislu á borð við Cannes og
hljóta viðurkenningu fyrir. Er hann
var spurður hvað tæki næst við
sagðist hann ekki alveg vita það.
„En Emily Watson verður að
minnsta kosti í henni,“ sagði hann
og endurtók nafn leikkonunnar
bresku þrisvar til þess að tjá að-
dáun sína á henni og sagðist vera
búinn að gera við hana lífstíð-
arsamning. Watson sat við hlið hans
og fór hjá sér við hólið. Hún var
heiðruð sérstaklega af Kvik-
myndahátíðinni í Cannes fyrir
framlag sitt til kvikmyndanna, og
það þrátt fyrir að hafa einungis
leikið í kvikmyndum í sex ár.
Vel heppnuð hátíð
Sérstök dómnefndarverðlaun
féllu í skaut palestínska kvik-
myndagerðarmanninum Elia Su-
leiman fyrir myndina Yadon Ila-
heyya eða Handleiðslu Guðs. Í
þessari gamansömu mynd bregður
hann upp hæðinni og í senn fárán-
legri mynd af baráttu Palest-
ínumanna fyrir tilverurétti sínum
og samskiptum þeirra við Ísr-
aelsmenn. Alþjóðasamtök gagnrýn-
enda höfðu fyrir verðlaunaathöfn-
ina útnefnt Handleiðslu Guðs bestu
mynd aðalkeppninnar. Suleiman,
sem búsettur hefur verið í New
York í 14 ár, sagðist vona að mynd-
in breytti á einhvern hátt viðhorfi
hins almenna Bandaríkjamanns í
garð Palestínumanna. „Í dag er ég
útlægur New York-búi, sem er
synd, því þar í borg býr frábært
fólk og frábærir áhorfendur. Ég
leit aldrei á mynd mína sem ein-
hverja kennslustund en hún sýnir
vonandi hversu fáránlegt ástandið
er í Ísrael og Palestínu.“
Verðlaun fyrir besta handritið
hlaut skoski lögfræðingurinn Paul
Laverty fyrir handrit sitt að mynd
Ken Loach Sweet Sixteen sem segir
harmþrungna sögu 15 ára drengs
sem reynir með eiturlyfjasölu að
búa móður sinni – sem er við að
losna úr fangelsi – og systur betra
líf. Laverty þakkaði fjölda manna í
ræðu sinni og skýrði frá því á eftir
að annað væri ekki hægt því gerð
kvikmyndar byggðist á hópvinnu.
Bowling for Columbine, umdeild
heimildamynd Bandaríkjamannsins
Michaels Moores um vopnaeign og
djúpstæða ofbeldismenningu í
Bandaríkjunum, hlaut sérstök verð-
laun sem veitt voru í tilefni af 55
ára afmæli Kvikmyndahátíðarinnar
í Cannes og var Moore hylltur áber-
andi mikið er hann tók við verð-
launum sínum. Suleiman, handhafi
dómnefndarverðlaunanna, benti á
að lokinni verðlaunaathöfn að hann
ætti í raun allt sitt Moore að þakka
því hann hefði aðstoðað sig við gerð
fyrstu myndar sinnar. „Ég vil síður
ræða þetta,“ sagði Moore, „en jú, ég
lét hann fá hluta af hagn-
aðinum sem fyrsta mynd
mín, Roger and Me, skil-
aði en ég varði honum
öllum í að aðstoða aðra
kvikmyndagerðarmenn
sem áttu í erfiðleikum
með að fjármagna mynd-
ir sínar vegna eldfims
viðfangsefnis.“ Er Moore
var spurður hvaða áhrif
hann héldi að mynd hans
hefði í Bandaríkjunum
sagðist hann ekki vita
það fyrir víst. Eitt þykist
hann þó vita og það er að
þrýst sé mjög á Charlton
Heston, formann Lands-
samtaka vopnaeigenda
(NRS), um að hann reki
hann úr samtökunum.
„En ég er að velta fyrir
mér að berjast fyrir því
að halda félagsskírteini
mínu og fara í framboð
gegn Heston og ef ég vinn legg ég
samtökin niður.“
Caméra D’or, verðlaun fyrir
fyrstu mynd, hlaut Julien Lopes-
Curval fyrir mynd sína Bord De
Mer og Mexíkómaðurinn Carlos
Reygadas var verðlaunaður sér-
staklega fyrir fyrstu mynd sína,
Japón. Fyrstu verðlaun í stutt-
myndakeppninni hlaut Ungverjinn
Péter Meszáros fyrir myndina Esó
Után og í skólamyndakeppninni
Cinéfondation féllu fyrstu verð-
launin í skaut Brasilíumanninum
Eduardo Valente fyrir myndina Um
Sol Alaranjado. Árni Ólafur Ás-
geirsson átti mynd í þeirri keppni
sem heitir P.S.
55. kvikmyndahátíðin í Cannes
var að flestra mati vel heppnuð,
óvenjumargar sterkar myndir í
boði og dómnefndin áréttaði hversu
erfitt hefði verið að þurfa að velja á
milli þeirra. Útnefning Polanskis
hefur mælst vel fyrir, var tilfinn-
ingaríkur viðburður í sögu hátíð-
arinnar og ekki síst á stormasöm-
um ferli þessa litríka Pólverja.
Gullpálminn í
greipar Polansk-
is og Píanistans
AP
Polanski fagnaði innilega.
AP
Finnski leikstjórinn Aki Kaur-
ismäki tók nett dansspor áður
en mynd hans, Maður án fortíð-
ar, var sýnd í Cannes.
Reuters
Paul T. Anderson ásamt Emily
Watson. Hann deildi leikstjóra-
verðlaununum með Suður-Kór-
eubúanum Im Kwon-Taek.
Cannes. Morgunblaðið.
skarpi@mbl.is
Cannes-hátíðinni að ljúka
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Kl. 4. Ísl tal. Vit 370
kvikmyndir.is
MBL
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 358Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12. Vit 375.
150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti
Sýnd kl. 4 og 6. Vit 379.
Hasartryllir ársins.
Sýnd kl. 8 og 10.10. B. i 16. Vit 377.
kvikmyndir.is
Sýnd á klukkustundarfresti.
Kl. 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 og 11. B.i. 12 ára Vit 382.
1/2
Kvikmyndir.is
Sánd
RadioX
/
i ir.i
i
Sýnd kl. 6 og 9. Vit 380.
Einnig sýnd í lúxussal VIP
Hvernig er hægt
að flýja fortíð
sem þú manst
ekki eftir?
FRÁ LEIKSTJÓRA
THE SHAWSHANK REDEMPTION OG THE GREEN MILE
Sýnd í lúxus kl. 7 og 10. B. i. 16. Vit nr. 380.
1/2kvikmyndir.is ÓHT Rás 2
Þ
ri
ð
ju
d
ag
sT
ilb
o
ð
á
v
ö
ld
u
m
m
yn
d
u
m
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
ÞriðjudagsTilboð kr. 400
ÞriðjudagsTilboð kr. 400 ÞriðjudagsTilboð kr. 400
J I M C A R R E Y
T H E M A J E S T I C
Sýnd kl. 7.30 og 10.15. Bi 16.
HK DV
HJ Mbl
JOHN Q.
Sýnd kl. 5.45 og 10.15.
ALI G INDAHOUSE
Hér er hinn nýkrýndi Óskarsverðlaunahafi Denzel Washington
kominn með nýjan smell. Hér leikur hann JOHN Q, föður sem
tekur málin í sínar hendur þegar sonur hans þarf á nýju hjarta
að halda og öll sund virðast lokuð.
Sýnd kl. 5.
MULLHOLLAND
DRIVE
Kvikmyndir.com
„Snilld“
HK DV
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
ÓHT Rás 2
1/2HK DV
HL Mbl
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Ó.H.T Rás2
Strik.is
SG. DV
Treystu mér
ÞriðjudagsT
ilboð
2 FYRIR 1
ÞriðjudagsT
ilboð
2 FYRIR 1
ÞriðjudagsT
ilboð
2 FYRIR 1
ÞriðjudagsT
ilboð
2 FYRIR 1
ÞriðjudagsT
ilboð
2 FYRIR 1
1/2
Kvikmyndir.is
Sánd
RadioX
/
i i i
i
Sýnd kl. 5 og 9. B. i. 16.