Morgunblaðið - 06.06.2002, Blaðsíða 1
MIKILL fögnuður ríkti meðal aðdá-
enda bandaríska knattspyrnulands-
liðsins í gær eftir að liðið hafði unn-
ið afar óvæntan sigur á Portúgölum
3-2 á Heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu. Tjáði George W. Bush
Bandaríkjaforseti sig jafnvel um
úrslitin og sagði þau gefa ástæðu til
bjartsýni, en Portúgalir höfðu verið
taldir líklegir til afreka í HM, sem
fram fer í Japan og S-Kóreu. Írar
fögnuðu einnig góðum árangri en
landslið þeirra tryggði sér 1–1 jafn-
tefli við Þjóðverja á elleftu stundu.
Eru nú góðar líkur á að Írum takist
að tryggja sér áframhaldandi þátt-
töku á HM að riðlakeppni lokinni.
Reuters
Óvænt
úrslit á HM
Sjá HM-umfjöllun/C1–C4
131. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 6. JÚNÍ 2002
MIKIL skothríð heyrðist við höfuð-
stöðvar Yassers Arafats, leiðtoga Pal-
estínumanna, í Ramallah seint í gær-
kvöld eftir að um fimmtíu ísraelskir
skriðdrekar réðust inn í borgina á
nýjan leik. Fyrr um daginn höfðu ísl-
ömsku öfgasamtökin Heilagt stríð
staðið fyrir sprengjutilræði í Ísrael
þar sem a.m.k. sextán manns biðu
bana. Eftir árásina höfðu fulltrúar
Bandaríkjastjórnar lýst efasemdum
sínum um heilindi Yassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna, og sögðust
þeir ætla að auka samskipti sín við þá
forystumenn Palestínumanna sem
líklegri væru til að ráða niðurlögum
palestínskra öfgamanna.
„Í augum forsetans [George W.
Bush] hefur Yasser Arafat aldrei
hagað sér eins og maður sem hægt
væri að treysta, eða sem næði tilætl-
uðum árangri,“ sagði Ari Fleischer,
talsmaður Hvíta hússins.
Sprengjutilræðið í gærmorgun átti
sér stað í bænum Megiddo í Norður-
Ísrael. Var haft eftir lögreglunni að
fólksbíl, sem fullur var af sprengiefni,
hefði verið ekið upp að troðfullum
strætisvagni og hann sprengdur í loft
upp. Flestir hinna látnu voru her-
menn, að sögn lögreglunnar, en
a.m.k. 37 manns til viðbótar særðust í
ódæðinu. Brást ísraelski herinn við
verknaðinum með því að ráðast þegar
inn í Jenin á Vesturbakkanum, en
borgin er sögð höfuðvígi Heilags
stríðs.
Kenna Arafat um ódæðið
Heimastjórn Palestínumanna for-
dæmdi sprengjutilræðið og lagði
áherslu á að hún hefði á engan hátt
komið nærri ódæðinu. Avi Pazner,
talsmaður Ísraelsstjórnar, sagði Ara-
fat hins vegar bera ábyrgð á ódæðinu.
Sagði hann að Arafat gerði hvaðeina
til að ýta undir frekari hryðjuverk ísl-
amskra öfgamanna.
Tilkynntu Ísraelar í gær að Ariel
Sharon forsætisráðherra hefði seink-
að heimsókn sinni til Bandaríkjanna
um einn dag en fullyrt er að Sharon
muni þar fara fram á að Bush Banda-
ríkjaforseti veiti „þegjandi sam-
þykki“ fyrir því að Ísraelar komi Ara-
fat frá völdum.
Ísraelsher ræðst inn í
Ramallah á nýjan leik
Yasser Arafat/22
16 fórust í sprengjutilræði í N-Ísrael
Reuters
Starfsfólk ísraelskra neyðarsveita á vettvangi ódæðisins í gær.
Ramallah, Meggido. AFP.
PAKISTANAR brugðust í gær fá-
lega við óvæntri tillögu Atals Beharis
Vajpayees, forsætisráðherra Ind-
lands, um að ríkin myndu sameinast
um landamæragæslu í hinu umdeilda
Kasmír-héraði. Sögðu stjórnvöld í
Islamabad að ekkert nýtt væri að
finna í tillögunni og að hugmyndin
um sameiginlega landamæragæslu
væri óraunhæf.
Vonast hafði verið til að sáttatil-
laga Vajpayees yrði til þess að kjarn-
orkuveldin tvö gætu slakað á spenn-
unni. Vajpayee hafði sagt að
Indverjar og Pakistanar ættu að
standa sameiginlega að landamæra-
gæslu og hindra að íslamskir víga-
menn kæmust inn í indverska hluta
Kasmírs til að gera árásir gegn ind-
verskum öryggissveitarmönnum og
óbreyttum borgurum í héraðinu.
Sagði indverski forsætisráð-
herrann, eftir að Pakistanar höfðu
skotið hugmynd hans í kaf, að við-
brögð þeirra sýndu að þeim væri ekki
alvara er þeir segðu að þeir vildu
koma í veg fyrir herferðir íslamskra
vígamanna inn í Kasmír. Ítrekaði
Vajpayee þá afstöðu sína að sann-
reyna yrði þær staðhæfingar Pervez
Musharrafs, forseta Pakistans, að
honum hefði tekist að stöðva ferðir
öfgamanna yfir landamærin.
Vajpayee hafði borið tillöguna
fram á blaðamannafundi í Almaty í
Kasakstan. „Við viljum beygja af leið
ögrana og snúa á braut samvinnu,“
sagði forsætisráðherrann áður en
hann hélt heim af ráðstefnu um ör-
yggi og samvinnu í Mið-Asíu.
Indverjar hafa þó fram að þessu
hafnað beinum friðarviðræðum við
Pakistana nema hinir síðarnefndu
ráði fyrst niðurlögum íslamskra öfga-
manna. Sagði Nisar Memon, upplýs-
ingamálaráðherra Pakistans, í gær
að Pakistanar væru tilbúnir til að
ræða tillögu Vajpayees sem hluta af
heildarviðræðum ríkjanna tveggja.
Fimmtán féllu í átökum
Fimmtán manns féllu í átökum í
indverska hluta Kasmírs í fyrrinótt
en þar af voru ellefu taldir vera ísl-
amskir öfgamenn. Höfðu skæru-
liðarnir lent í átökum við indverska
herinn í þeim hluta héraðsins sem
kallaður er Poonch. Hermenn
ríkjanna standa gráir fyrir járnum
við landamærin í Kasmír.
Sáttatillögu
Indverja fálega
tekið í Pakistan
Islamabad, Nýju-Delhí, Srinagar. AFP.
SVO mikið magn kvikasilfurs er að
finna í því hvalkjöti sem Japanar
leggja sér til munns að jafnvel hinn
minnsti munnbiti getur valdið fólki
heilaskaða. Þetta kemur fram í
grein sem senn verður birt í breska
vísindaritinu New Scientist.
Rannsóknir japanskra vísinda-
manna við háskólann í Hokkaido
benda til að magn kvikasilfurs í
hverju grammi hvallifrar sé 900-
falt yfir hættumörkum. Var ekkert
þeirra sýna, sem vísindamennirnir
skoðuðu, undir hættumörkum og
raunar voru tvö þeirra níu þúsund
sinnum yfir hættumörkunum.
Vísindamennirnir Tetsuya Endo,
Koichi Haraguchi og Masakatsu Sa-
kata segja að þetta þýði að 60 kg
einstaklingur sem gæði sér á einum
hvalkjötsbita hafi þar með innbyrt
meira magn kvikasilfurs en talið er
óhætt að innbyrða á heilli viku skv.
stöðlum Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar (WHO).
Það eru ekki ný tíðindi að kvika-
silfur sé að finna í hvölum og höfr-
ungum en það kemur á óvart
hversu mikið magnið er í raun og
veru. Hvetja þau Endo, Haraguchi
og Sakata japönsk stjórnvöld til að
herða mjög reglur um hvalkjötsát
og skora sérstaklega á þungaðar
konur að hætta ekki á fósturskaða
með því að gæða sér á hvalkjöti.
Munnbiti af
hvalkjöti er
hættulegur
París. AFP.
JOHN Ashcroft, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, kynnti í gær nýtt
fyrirkomulag vegabréfaeftirlits en
eftirlit með erlendum gestum til
landsins verður hert til muna. Er
þetta liður í tilraunum til að verjast
hættunni á frekari hryðjuverkum í
Bandaríkjunum.
Allir erlendir gestir, sem til
Bandaríkjanna koma, geta átt von á
því að lenda í ítarlegri vegabréfs-
skoðun skv. nýju reglunum. Stjórn-
arerindrekar viðurkenna þó, að fólk
frá Mið-Austurlöndum sé líklegra en
annað til að þurfa að gera ítarlega
grein fyrir sér.
Ashcroft margítrekaði hins vegar
á fundi með bandarískum frétta-
mönnum að hér væri um að ræða
kerfi sem notað væri í mörgum öðr-
um löndum, einkum í Evrópu, og
sem enginn kippti sér upp við þar.
Upplýsingar um erlenda gesti í
Bandaríkjunum verða eftir atvikum
bornar saman við gagnagrunna
vegabréfaeftirlitsins en það felur
m.a. í sér fingrafarasamanburð við
þá menn, sem taldir eru geta tengst
hryðjuverkasamtökum. Sagði Ash-
croft í gær að nauðsynlegt væri að
herða reglur með þessum hætti,
enda hefðu þeir sem stóðu fyrir
hryðjuverkaárásunum 11. septem-
ber sl. komið með löglegum hætti inn
í Bandaríkin.
Ýmis mannréttindasamtök hafa
þegar fordæmt reglurnar og segja
þær ala á fordómum, auk þess sem
óvíst sé um árangur af þeim.
Boðar hert
vegabréfa-
eftirlit
Washington. AFP.
LEVY Mwanawasa, forseti
Sambíu, fór með ráðherrum
sínum og embættismönnum í
69 manna fólksflutningabíl á
flugvöllinn í höfuðborginni á
þriðjudag, og var þetta gert til
þess að spara eldsneyti.
Mwanawasa, sem ferðast að
öllu jöfnu í langri bílalest,
kvaðst hafa ákveðið að grípa til
orkusparandi ferðamáta vegna
þess að miklir peningar færu í
að reka bílalest sína. Framveg-
is yrði sá háttur hafður á að
þeir ráðherrar og embættis-
menn sem fylgdu honum á flug-
völlinn tækju rútuna.
Ráðamenn
í rútu
Lusaka. AFP.