Morgunblaðið - 06.06.2002, Blaðsíða 63
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 63
Laugavegi 97 - Kringlunni - SmáralindLaugavegi 95 - Kringlunni - Smáralind
Frábær
helgartilboð
Frábær
helgartilboð
Kauphlaup í Smáralind
Í DAG hefst lista- og
menningarhátíðin Vor-
blót 2002 á öldurhúsinu
Grand Rokk við
Smiðjustíg. Hátíðin
stendur yfir í fjóra
daga og verður fjöl-
breytt dagskrá í boði
fram á kvöld fram yfir
helgi; kvikmyndasýn-
ingar, stuttmynda-
keppni, upplestur úr
skáldsögum, útimark-
aðir og grill auk þess
sem tónlist úr öllum
áttum skipar þar veiga-
mikinn sess, jafnt djass,
rokk, raftónlist og
rapp.
Að sögn Jóns Proppé, annars
skipuleggjenda hátíðarinnar, er
þetta í fyrsta sinn sem Vorblótið er
haldið: „En vonandi ekki það síð-
asta,“ bætir hann við.
„Hátíðin hefst í kvöld klukkan 18.
Það er Grand Rokk sem stendur
fyrir hátíðinni í samstarfi við óform-
legan hóp aðstoðarfólks sem er
bæði að troða upp og stússast annað
í kringum hana,“ upplýsir Jón.
„Hugmyndin á bak við þetta er að
halda svona miðbæjarhátíð fyrir
það fólk sem býr miðsvæðis og
stundar staðina hér. Einnig viljum
við sýna þverskurð af þeirri grósku
sem á sér stað í menningarlífi hér í
miðborginni.“
Jón þvertekur fyrir að Vorblótið
sé andsvar við nýafstaðinni Listahá-
tíð Reykjavíkur.
„Þetta er þó
kannski svolítið hin
hliðin á Reykjavík.
Fólkið sem er að spila
hér hjá okkur um
helgina er sama fókið
og er venjulega að
spila hér í Reykjavík.
Við erum ekki að
flytja inn neina stór-
viðburði frá útlöndum
heldur er þetta bara
þverskurður af því
sem er að gerast í
Reykjavík, safnað
saman í eina dag-
skrá,“ segir Jón.
Færri komust að en vildu
Tekið hefur nokkra mánuði að
skipuleggja hátíðina og segir Jón
það talsvert tímafrekt að safna sam-
an öllum þeim listamönnum sem
fram koma. Hann segist þó hafa
fundið fyrir miklum áhuga þeirra á
framtakinu og segir færri hafa
komist að en vildu í þetta sinn.
Þó að tónlist sé fyrirferðamikil á
hátíðinni segir Jón kvikmyndirnar
líka fá sitt veglega vægi.
„Eitt það áhugaverðasta á hátíð-
inni er stuttmyndakeppni sem hald-
in verður á laugardaginn klukkan
19. Þar keppa fimm stuttmyndir
sem allar eru gerðar sérstaklega
fyrir hátíðina og gerast allar inni á
Grand Rokk. Dómnefnd mun svo
velja bestu myndina og hlýtur leik-
stjóri hennar 150 þúsund krónur í
verðlaun. Það er því verið að reyna
að gera þetta á ansi „grand“ nótum.
Þrátt fyrir að dagskráin sé hin
fjölbreyttasta og fjöldi listamanna
komi þar fram er hátíðin öllum opin
endurgjaldslaust og því fátt sem
mælir gegn því að listelskandi fólk
bregði sér í miðbæ Reykjavíkur og
njóti helgarinnar á Grand Rokk.“
Þverskurður af menn-
ingarlífi miðborgarinnar
Morgunblaðið/Sverrir
Hljómsveitin Lúna er ein þeirra sveita sem koma munu fram á rokk-
veislu Grand Rokk annað kvöld.
Lista- og menningarhátíðin Vorblót 2002 haldin á Grand Rokk
Jón Proppé
birta@mbl.is
FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ
18.00 Opnunarhátíð, myndlistar-
sýning þar sem margir þekktir
listamenn sýna verk sín.
20.00 Richard & Co. Sinfónískt
rokk.
21.00 ÖR: Frumflutningur á nýju
tónverki með Helga Haukssyni,
Jóakim Karlssyni og Ragnari
Jónssyni.
22.00 FLÍS Ungir íslenskir djass-
istar spila nýjan íslenskan djass:
Davíð Þór Jónsson, Eiríkur Orri
Ólafsson, Helgi Svavar Helgason,
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson.
FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ
13.00 Djass og dægurlög í hádeg-
inu.
17.00 Ýmsar uppákomur og
kynningar.
20.00 Kvikmyndin Gudjon eftir
Þorfinn Guðnason sýnd 21.00.
ROKKVEISLA: Ensími, Fídel,
Fræbbblarnir, Pollock-bræður,
Miðnes, Ceres 4, Blökkumanna-
kvartettinn Rass, Exizt, Rúnk,
Lúna.
LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ
12.30 Djass og dægurlög í hádeg-
inu.
13.00 ÚTIMARKAÐUR: Sýning
á stórum mótorhjólum, grill og
veitingar, spádómar, skóburstun
og tónlist. Skemmtun fyrir alla
fjölskylduna.
17.00 Önnur sýning á myndinni
Gudjon eftir Þorfinn Guðnason
19.00 STUTTMYNDASAM-
KEPPNI: Fimm af áhugaverðustu
kvikmyndagerðarmönnum yngri
kynslóðarinnar sýna nýjar leiknar
myndir sem teknar voru á Grand
rokk.
21.00 RAFTÓNLIST OG RAPP:
Ampop, Sesar A., Mezzías, Móri,
Bæjarins bestu, Forgotten, Lores,
Diplomathics, Exos, Skurken,
Prins Valium, Svartfuglar, Kippi
Kanínus, Pondus, Worm Green.
SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ
12.30 Djass og dægurlög í hádeg-
inu.
14.00 Myndirnar úr stuttmynda-
samkeppni laugardagsins endur-
sýndar.
15.00 Bókauppboð. Nokkrir bók-
fróðir fastagestir velja bækur úr
Bókavörðunni og gera grein fyrir
þeim; bækurnar verða síðan boðn-
ar upp.
17.00 Djass og dægurlög.
21.00 Djass og upplestur glæpa-
sagna. Arnaldur Indriðason les úr
verkum sínum ásamt öðrum
glæpasagnahöfundum. Djasstón-
leikar: Unga kynslóðin treður upp
og dúettinn Súkkat spilar og syng-
ur.