Morgunblaðið - 06.06.2002, Blaðsíða 54
FRÉTTIR
54 FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
V e i › i t i l b o › v i k u n n a r
15% afsláttur
Glæsibæ
Simi 545 1500 og www.utilif.is
af flugustöngum, hjólum og línum.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
79
92
06
/2
00
2
Hofhundur var það…
Allt sem varðar fyrsta lax sum-
arsins skiptir miklu máli og því er
ljúft og skylt að leiðrétta það sem
stóð í frétt blaðsins á dögunum er
sagt var frá laxi Gylfa Gauts Pét-
urssonar í Norðurá að morgni 1.
júní sl. Þar stóð að laxinn hefði
tekið fluguna Snældu, en hið rétta
er að hann tók fluguna Temple
Dog, eða Hofhundinn. Ólafur Vig-
fússon í Veiðihorninu færði Gylfa
fluguna kvöldið fyrir veiðiskapinn
með þeim orðum að hann myndi
„örugglega“ ná laxi á hana. Og
það gekk eftir.
TVEIR laxar veiddust í Blöndu í
gærmorgun er áin var opnuð til
laxveiða. Þetta voru að sögn Stef-
áns Ágústssonar leiðsögumanns
um það bil 9 og 12 punda fiskar
sem veiddust á Breiðunni að norð-
anverðu á svæði 1, en löxunum var
báðum sleppt aftur „í tilefni dags-
ins“, eins og Stefán komst að orði.
Stefán sagði ennfremur, að
veiðimenn hefðu séð nokkurt líf,
áin væri dálítið vatnsmikil, en lit-
ur væri góður og skilyrði góð.
Smálíf í Norðurá
Fjórir laxar veiddust á aðal-
svæði Norðurár í gærmorgun og
þá var holl númer tvö í ánni komið
með átta stykki á land eftir tvo
daga. Var að sögn kominn einhver
reytingur af fiski í ána í gærmorg-
un, en fram að því voru menn vart
að sjá nema fiska á stangli. Það er
því dálítill bati í gangi.
Í Þverá hafði hins vegar ekkert
breyst, tveir komu þar á land
fyrstu vaktina á þriðjudagsmorg-
uninn eins og frá var greint, en á
hádegi í gær hafði enginn lax bæst
í aflann.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Lárus Sigvaldason er hér með
11 punda 83 cm urriða sem
hann veiddi á maðk í Þing-
vallavatni sl. sunnudag.
Tveir lax-
ar veidd-
ust í
Blöndu
MENNTASKÓLANUM á Ísafirði
var slitið í 32. sinn við hátíðlega at-
höfn í Ísafjarðarkirkju 25. maí síð-
astliðinn. 45 nemendur voru braut-
skráðir, þar af 24 stúdentar. Fjórir
stúdentar útskrifuðust af hag-
fræðibraut, níu af mála- og sam-
félagsbraut og ellefu af nátt-
úrufræðibraut.
Sandra Dís Steinþórsdóttir, nem-
andi á náttúrufræðibraut, hlaut
hæstu einkunn á stúdentsprófi,
9,16, og er því dúx skólans í ár.
Fimm iðnnemar, fimm vélaverðir
með 2. stigs vélstjórnarnám og tólf
nemendur af tveggja ára við-
skiptabraut voru meðal útskrift-
arnema.
Um síðustu áramót voru braut-
skráðir 16 nemendur frá skólanum,
þar af níu stúdentar, og hafa því 59
nemendur útskrifast frá skólanum í
vetur.
Ólína Þorvarðardóttir, skóla-
meistari Menntaskólans á Ísafirði,
kom meðal annars inn á sérstakt
stefnumótunarstarf innan skólans í
ræðu sinni og sagði frá því að skól-
anum hefði borist bréf frá nefnd um
val á ríkisstofnun til fyrirmyndar
2002, þar sem mikið lof hefði verið
borið á skólann fyrir innra starf og
stjórnunarhætti.
Alls stunduðu 350 nemendur nám
við Menntaskólann á Ísafirði í vet-
ur, þar af um 280 í dagskóla en 70 í
öldungadeild. Aðsókn að skólanum
hefur verið góð og betur horfir með
kennararáðningar en oftast áður,
því nú þegar hefur verið ráðið í
nánast allar kennarastöður fyrir
næsta vetur.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
45 nemendur brautskráðir frá
Menntaskólanum á Ísafirði
GUNNLAUGUR Ó. Ágústsson
mun halda fyrirlestur um verk-
efni sitt til meistaraprófs í véla-
og iðnaðarverkfræði fimmtudag-
inn 6. júní kl. 15 í stofu 157 í
VR-II.
„Verkefnið fjallar um jarð-
skjálftahönnun pípukerfa á há-
hitasvæðum og þá sérstaklega
safnæða sem leiða jarðhitavökva
frá borholum að skiljustöð. Slík-
ar lagnir eru ofanjarðar og
þurfa að vera sveigjanlegar til
að geta tekið upp hitaþenslu en
jafnframt nægilega skorðaðar af
til að þola jarðskjálftaálag. Sett
eru upp líkön fyrir dæmigerð
pípukerfi og þau greind með
mismunandi greiningaraðferð-
um undir jarðskjálftaálagi í
formi svörunarrófs. Rannsókn-
irnar sýna að stífni undirstaðna
hefur töluverð áhrif á sveiflu-
form og eigintíðnir pípukerfis en
leiðir ekki endilega til breytinga
á mestu álagsspennum. Þar
reynist fyrirkomulag undir-
staðna og stýringa mikilvægari
þáttur. Notkun á erfðaalgrími til
að finna bestu uppröðun stýr-
inga, miðað við ákveðnar for-
sendur, lofar góðu og kemur ef-
laust til með að auðvelda
hönnun safnæða gangvart jarð-
skjálftaálagi. Verkefnið er
styrkt af Orkuveitu Reykjavíkur
og Rannsóknarsjóði Háskólans,“
segir í fréttatilkynningu.
Leiðbeinendur Gunnlaugs eru
Fjóla Jónsdóttir, dósent við
véla- og iðnaðarverkfræðiskor,
og Magnús Þór Jónsson, pró-
fessor við véla- og iðnaðarverk-
fræðiskor. Prófdómari er Bjarni
Bessason, dósent við umhverfis-
og byggingarverkfræðiskor.
Ræðir jarðskjálfta-
hönnun pípukerfa
BJÖRN Marteinsson flytur meist-
arafyrirlestur sinn: Efnis- og orku-
notkun vegna fjölbýlis í Reykjavík,
við véla- og iðnaðarverkfræðiskor
Háskóla Íslands fimmtudaginn 6.
júní kl. 16 í stofu 158 í VR-II við
Hjarðarhaga 2–6.
Í MS-verkefni Björns er rannsök-
uð heildarnotkun efnis og orku
vegna efnisframleiðslu, flutninga og
byggingarstarfsemi vegna nýbygg-
ingar 8 íbúða fjölbýlis í Reykjavík,
og síðan viðhalds og rekstrar bygg-
ingarinnar í 50 ár.
Meginmarkmið rannsóknarinnar
er að skoða áhrif mannvirkjagerðar
og rekstrar bygginga í ljósi sjálf-
bærrar þróunar og heildarsýnar á
notkun auðlinda.
Greining á efnismagni byggingar-
innar er fengin út frá ítarlegum
gögnum sem liggja fyrir frá bygg-
ingu hússins. Viðhaldsþörf er áætluð
út frá viðmiðunartölum, en upplýs-
ingar um rekstrarorku byggja á
notkun yfir 10 ára tímabil. Gerður er
samanburður á reiknislegri orku-
notkun í rekstri og rauntölum og
reynist vera allgott samræmi þar á
milli, segir í tilkynningu.
Leiðbeinendur Björns voru þeir
Páll Valdimarsson, og Valdimar K.
Jónsson, báðir prófessorar við verk-
fræðideild Háskóla Íslands.
Ræðir orkunotkun
í fjölbýli