Morgunblaðið - 06.06.2002, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 45
O
D
D
IH
F
H
63
81 Nóatúni 4 • 105 Reykjavík
Sími 520 3000
www.sminor.is
Ljós í miklu
úrvali fyrir
heimilið.
TILEFNI þessara skrifa er að þau
dapurlegu tíðindi bárust undirritaðri í
síðasta mánuði að Lestrarmiðstöð
KHÍ yrði lögð niður. Hér á síðum
Morgunblaðsins var ágæt grein þar
sem fjallað var um Lestrarmiðstöðina
sl. helgi. Kennaraháskóli Íslands hef-
ur rekið Lestrarmiðstöðina í um það
bil áratug. Meginhlutverk hennar
hefur verið að greina lestrarörðug-
leika nemenda í grunnskólum og
framhaldsskólum. Auk þess hefur
fólk utan skólakerfisins getað leitað
þangað til að fá greiningu. Á Lestr-
armiðstöðinni hefur og verið veitt
ráðgjöf, miðlað þekkingu og unnið að
rannsóknum á þessu sérsviði.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá
KHÍ hefur Lestrarmiðstöðin fengið
framlag á fjárlögum undanfarin ár til
að standa að hluta til straum af kostn-
aði við reksturinn. Á fjárlögum yfir-
standandi árs er ekki gert ráð fyrir
neinu framlagi til skólans vegna
Lestrarmiðstöðvar. KHÍ hefur leitað
eftir fjághagsstuðningi stjórnvalda til
reksturs miðstöðvarinnar en án ár-
angurs. Fjárveiting fyrir árið 2002
þyrfti að vera um 10 millj. króna til
þess að halda uppi óbreyttri starf-
semi.
Við flutning grunnskólans frá ríki
til sveitarfélaga fluttist m.a. sérfræði-
þjónusta skóla yfir til sveitarfélaga.
Þar af leiðandi eru skyldur ríkisins í
þessu efni ekki þær sömu og áður var.
Sveitarfélögin eiga því samkvæmt
þessu að bera ábyrgð á greiningu á
grunnskólanemendum og þar með
nemendum með lestrarörðugleika.
Foreldrafélag misþroska barna er
hagsmunafélag fjölskyldna barna
með ýmis þroskavandamál s.s. at-
hyglisbrest og einbeitingarörðug-
leika, ofvirkni, hvatvísi, eirðarleysi,
vanvirkni, skyntruflan-
ir, hreyfiörðugleika,
málþroskatruflanir,
námsörðugleika, þrá-
hyggju og hegðunar-
truflanir. Mjög mikil-
vægt er að börn fái sem
fyrst greiningu á
þroskafrávikum, til að
þau og fjölskyldur
þeirra fái í kjölfarið þá
fræðslu, stuðning og
þjónustu sem telst
nauðsynleg út frá
greiningu barnsins.
Hérlendis er góð fag-
þekking á vanda fjöl-
skyldna barna með
þroskafrávik en skortur hefur verið á
stuðningi stjórnvalda við þær stofn-
anir sem þjónusta þennan hóp s.s.
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins,
og Barna- og unglinga-
geðdeild.
Börn með þroska-
vandamál sem ekki fá
greiningu né viðeigandi
stuðning og þjónustu
eru mun líklegri en önn-
ur börn til að fara hall-
oka í námi og lenda í
áhættuhóp. Sterkt og
skilvirkt stuðningskerfi í
kringum þennan hóp
hefur mikið forvarnar-
gildi. Því er mikilvægt
að stjórnvöld skoði
þennan málaflokk út frá
langtímamarkmiðum
og stuðli að mjög mark-
vissu forvarnarstarfi m.a. í gegnum
skólakerfið og áðurtaldar þjónustu-
stofnanir.
Nú sem sagt er óvissa um framtíð
Lestrarmiðstöðvar KHÍ og skapast
þá ákveðin hætta á að reynsla og sér-
þekking nýtist ekki þeim sem á þurfa
að halda. Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá KHÍ er skólinn reiðubúinn til
samstarfs við aðra aðila um verkefni
Lestrarmiðstöðvar og vill stuðla að
því að sérþekking starfsmanna skól-
ans nýtist í þessu skyni. Nú veltur á
stjórnvöldum að sýna fjölskyldu-
stefnu í verki og stuðla að því að þessi
þjónusta sem Lestrarmiðstöðin hefur
veitt fái áfram fjármögnun og helst að
bæta um betur þ.e. að tryggja að-
gengi að fagfólki sem vinnur grein-
ingarvinnuna og jafnframt að stuðla
að vel skipulagðri þjónustu í kjölfar
greiningar samkvæmt mati fagaðila.
Lestrarmiðstöð
KHÍ lögð niður
Ingibjörg Karlsdóttir
Greining
Mikilvægt er, segir
Ingibjörg Karlsdóttir,
að stjórnvöld skoði
þennan málaflokk út frá
langtímamarkmiðum.
Höfundur er félagsráðgjafi og for-
maður Foreldrafélags misþroska
barna.