Morgunblaðið - 06.06.2002, Blaðsíða 24
NEYTENDUR
24 FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
NÆSTKOMANDI föstudag opnar
Nóatún nýja verslun á Selfossi þar
sem áður var KÁ, að því er segir í til-
kynningu frá Nóatúni. Einnig verður
formleg opnun á íþróttavöruverslun
Intersport og bóka- og ritfangaversl-
un Eymundsson. „Árið 1999 tók
Kaupás yfir allan verslunarrekstur
KÁ. Kaupás rekur nú 41 matvöru-
verslun undir nöfnum Nóatúns, 11/11
og Krónunar. Félagið rekur einnig
Húsgagnahöllina og þrjár Intersport-
verslanir. Nú þegar Nóatún opnar á
Selfossi mun KÁ endanlega hverfa úr
verslunarrekstri,“ segir enn fremur.
Opnunarhátíð verður alla helgina í
Nóatúni á Selfossi þar sem gestum og
gangandi verður boðið upp á grillmat
og ís í eftirrétt. Leiktæki verða á
staðnum fyrir börn og þeim gefnar
blöðrur. „Auk þess verða ýmis opn-
unartilboð á boðstólum í tilefni tíma-
mótanna. Nóatún á Selfossi verður
stærsta Nóatúnsverslunin.“
KÁ Selfossi verður Nóatún
BÓNUS
Gildir frá 6.-9. júní nú kr. áður kr. mælie.
Sprite 0,5 l. .......................................... 59 79
Bónus rauðvínsl. svínalærissn................. 599 899 599 kg
Bónus rauðvínslegnar svínahnakkasn...... 599 899 599 kg
Bónus rauðvínslegnar svínakótilettur ....... 899 1.079 899 kg
Emmess boxari 6 x 0,5 lítrar ................... 499 nýtt
Prins Póló 30 st. .................................... 999 1.395 33 st.
Goða pylsur .......................................... 559 719 559 kg
Carlsberg HM léttbjór 0,5 l ..................... 79 nýtt
ESSÓ-stöðvarnar
Gildir til 30. júní nú kr. áður kr. mælie.
Anthon Berg marsipanbrauð 40 g ........... 99 115 2.475 kg
Anthon Berg kókósbrauð 40 ................... 99 115 2.475 kg
Anthon Berg Nödde knas 40 g................ 99 115 2.475 kg
Emmess toppís ..................................... 149 172 2.130 kg
Coke 1 lítri og Maarud 100 g poki ........... 299 360 299 st.
Mars tvö st. saman ................................ 129 150 1.090 kg
Snickers tvö st. saman ........................... 129 150 1.075 kg
Bon Bon hlauppoki 90 g ........................ 129 155 1.430 kg
Hersheys Reese Stick, 42 g .................... 99 125 2.357 kg
11-11-búðirnar og KJARVAL
Gildir 6.-12. júní nú kr. áður kr. mælie.
Emmess skafís Oreo .............................. 299 499 299 ltr
KS Íslandskex m/súkkulaði .................... 159 189 636 kg
Club saltkex .......................................... 59 78 393 kg
Frón vanillukremkex ............................... 189 229 630 kg
Frón súkkulaðikremkex........................... 189 229 630 kg
BKI kaffi Classic .................................... 329 383 658 kg
KEA þurrkryddað lambalæri .................... 1.042 1.389 1.042 kg
KRÓNAN
Gildir 6.-12. júní nú kr. áður kr. mælie.
Skyr.is 500 ml....................................... 169 193 338 kg
Skyr.is 170 ml....................................... 67 75 394 kg
Góu hraunbitar...................................... 169 179 845 kg
Lindu smárísbuff ................................... 169 187 994 kg
Emmess íssósa ..................................... 179 215 761 ltr
Emmess skafís banana og appelsínu ...... 429 655 214 ltr
Weetabix 50% extra ............................... 229 237 532 kg
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 6.-10. júní nú kr. áður kr. mælie.
Móna Buffalóbitar 170 g........................ 199 239 1.170 kg
Móna Rexbitar 200 g ............................. 189 219 945 kg
Kexsm. möffins m/súkkul.mol. 400 g...... 299 359 747 kg
Kexsm. skúffukökur 400 g ...................... 289 339 723 kg
GM Lucky Charms 396 g ........................ 295 375 745 kg
SELECT-verslanir
Gildir til 26. júní nú kr. áður mælie.
Sportlunsj 80 g ..................................... 95 118
Galaxy minstrels 115 g .......................... 155 195
Stjörnupopp venjulegt............................ 105 120
Stjörnupopp osta .................................. 115 135
Pik nik kartöflustrá 50 g ......................... 105 132
Pik nik kartöflustrá 113 g ....................... 230 278
Bíómjólk (jarðarberja, appelsínu, peru) ... 115 131
Always dömubindi ................................. 325 422
Allsorts lakkrískonfekt 300 g .................. 225 275
Pampers blautklútar .............................. 175 215
Prins Polo XXL ....................................... 75 nýtt
Lyons milk chocolate bars 7 st. pakkn. .... 135 nýtt 20 st.
Lyons mint 7 stykkja pakkn..................... 135 nýtt 20 st.
SPARVERSLUN, Bæjarlind
Gildir til 10. júní nú kr. áður mælie.
Lambagrillkótilettur, kryddl. .................... 929 1.399 929 kg
Kindavöðvi kryddleginn .......................... 929 1.298 929 kg
Grillsagaður lambaframpartur ................. 479 998 479 kg
Vatnsmelónur........................................ 99 229 99 kg
Kraft þvottaduft 1,75 kg ......................... 699 889 1.223 kg
Hellema kremkex 300 g 3 fyrir 1 ............. 149 447 149 st.
Lucky Charms morgunkorn 396 g............ 269 369 679 kg
Eldhúsrúllur 4 st. ................................... 187 219 47 st.
UPPGRIPS-verslanir OLÍS
Júnítilboð nú kr áður kr. mælie.
Pepsi, 0,5 ltr ......................................... 99 149
Sóma MS hyrna .................................... 209 295
Prins Póló stórt ...................................... 50 80
ÞÍN VERSLUN
Gildir 6.-12. júní nú kr. áður kr. mælie
Rauðvínslambalæri................................ 1.062 1.328 1.062 kg
Kryddlegnar lambakótilettur ................... 1.095 1.369 1.095 kg
Rauður Rúbínkaffi 500 g ........................ 389 459 778 kg
Pagens bruður 400 g ............................. 159 198 397 kg
Toro pastaréttir ...................................... 149 198 149 pk.
Nóakropp 150 g.................................... 159 198 1.049 kg
Bisca vanillukremkex 500 g.................... 198 248 396 kg
Sun Lolly 620 ml ................................... 199 287 318 ltr
Skafís á tilboðsverði
Helgartilboð
Verðupplýsingar sendar frá verslunum
SHELL vildarvinur er nýtt tryggða-
kerfi sem Skeljungur hf. mun bjóða
viðskiptavinum sínum að tengjast frá
og með 1. júlí næstkomandi, að því er
segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Skeljungur hefur samið um aðild að
Vildarklúbbi Flugleiða og munu af-
sláttarpunktar sem Shell vildarvinir
safna hjá Skeljungi leggjast inn á
reikning þeirra í Vildarklúbbi Flug-
leiða. „Skeljungur mun greiða sam-
bærilega upphæð til Vildarklúbbsins
og greidd hefur verið til Fríkortsins,
sem nú er að hætta starfsemi. Shell
vildarvinir, sem ekki njóta fyrir sér-
stakra afsláttarkjara hjá félaginu,
munu fá 1,5% af andvirði vörukaupa
sinna greidd inn á reikning þeirra hjá
Vildarklúbbi Flugleiða og er þá sama
hvort um er að ræða eldsneytiskaup
eða kaup á smávöru á Shellstöðvun-
um. Söfnun punkta á Shellstöðvunum
er óháð því hvort greitt er með
greiðslukortum, ávísunum eða pen-
ingum. Sem fyrr segir er miðað við að
punktasöfnun í hið nýja tryggðakerfi
Shell vildarvinur hefjist í byrjun júlí
og verða veittir tvöfaldir punktar
fyrsta mánuðinn,“ segir ennfremur.
Flestir vilja tryggðakerfi sem
býður upp á söfnun
Einnig kemur fram að þegar fyrir
hafi legið að Fríkortssamstarfinu yrði
hætt hafi verið farið að huga að nýjum
valkosti fyrir trygga viðskiptavini
Skeljungs. „Síðustu vikur hefur félag-
ið kannað hvers konar fyrirkomulag
tryggðasamstarfs hugnist viðskipta-
vinum best. Haft hefur verið sam-
band við stóran hóp viðskiptavina
bæði á fundum og með bréfaskiptum
og er niðurstaða þessara samskipta
ótvíræð. Það sem flestir biðja um er
tryggðakerfi sem býður upp á ein-
hvers konar söfnun og tiltölulega
frjálsan möguleika á innlausn. Aðild
að vildarklúbbi Flugleiða sem er
sterkasta vildarkerfið á markaðinum í
dag er því mjög ákjósanlegur kostur
að mati Skeljungs. Það flýtir mjög
fyrir punktasöfnun meðlima Vildar-
klúbbsins að fjölmörg fyrirtæki eru í
dag að greiða inn í klúbbinn.
Helga Þóra Eiðsdóttir, forstöðu-
maður Vildarklúbbs Flugleiða, býður
Shell vildarvini velkomna í Vildar-
klúbb Flugleiða og segir að samstarf
við Skeljung sé kærkomin viðbót sem
muni styrkja öflugan Vildarklúbb enn
frekar. Þeir aðilar sem hafa áhuga á
að gerast Shell vildarvinir þurfa að
sækja um það sérstaklega og munu
þeir þá fá sent nýtt kort sem framvísa
þarf á Shellstöðvunum þegar punkt-
um er safnað. Nánari upplýsingar um
nýja tryggðarkerfið Shell vildarvinur
verða birtar á næstunni á heimasíðu
Skeljungs hf. www.shell.is.“
Shell-punktar gilda í
Vildarklúbbi Flugleiða
MARKAÐSGÆSLUDEILD Lög-
gildingarstofu vill koma því á
framfæri við kaupendur barna-
vagna af tegundinni Capri Coll-
ection sem eru með stillanlegu
handfangi og rauðum hnappi, að
hluti af handfangi barnavagnsins
hefur verið endurhannaður þar
sem hann reyndist ekki uppfylla
kröfur, að því er segir í tilkynn-
ingu frá Löggildingarstofu.
„Komið hefur í ljós að hnapp-
urinn á handfangi barnavagns-
ins, sem notaður er til að stilla
hæð handfangsins, getur brotn-
að við ákveðnar aðstæður. Til
þess að fyrirbyggja slys við
notkun barnavagnsins er þeim
tilmælum beint til kaupenda
vagnsins að þeir hafi samband
við verslunina Barnahúsið ehf.
sem skiptir rauða hnappnum út
fyrir nýjan og endurhannaðan
stillihnapp endurgjaldslaust.
Allar frekari upplýsingar veit-
ir verslunin Barnahúsið ehf.
Hafnarstræti 99, Akureyri.“
Varað við handfangi
á barnavagni
Morgunblaðið/Kristján