Morgunblaðið - 06.06.2002, Qupperneq 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 47
Úrvalsbændaferðir 2002
(opnar fyrir alla, húsbændur sem og aðra bændur)
Sérhæfðir fararstjórar Úrvalsbændaferða, þeir Friðrik G. Friðriksson og Ferenc
Utassy, munu leiða ferðalanga um heillandi veröld sem er nánast við bæjardyrn-
ar hjá okkur, en þó svo gjörólík því sem við þekkjum. Ykkur gefst tækifæri til
að bera saman íslenskan veruleika og þann sem menningarþjóðir Evrópu búa
við og á rætur í sumum af mestu átökum sögunnar.
Verð ferðanna er mjög hagstætt miðað við allt það sem er innifalið
2. Ferð: Ítalía með viðkomu í Þýskalandi og Austurríki. 2. - 13. júlí (uppselt). Komið
verður við m.a. í þýsku og austurrísku Ölpunum, ítölsku Dólómítaölpunum, Feneyjum,
Róm, Pompei, Flórens, Pisa og flogið heim frá Mílanó að kvöldi síðasta dags. Verð 119
þúsund (innifaldir allir skattar, 9 kvöldverðir og 1 hádegisverður)
3. Ferð: Þýskaland með viðkomu í Frakklandi 16.-26. júlí (nokkur sæti laus). Í þessari
ferð gefst mönnum tækifæri til að kynnast menningu og skemmtun vínhéraða í Þýskalandi
og Frakklandi. Þegar hitinn fer að vera of mikill í Suður-Evrópu, þá er hitinn hér þægilegur.
Ekkert stress, aðeins gist á tveimur hótelum í ferðinni, veislumatur í 9 kvöld út um allar
sveitir. Sigling á Mósel og Bodenseevatni (blómaeyjan Mainau) og kvöldsigling með músík
og dansi og margt fleira. Verð kr. 115 þúsund (innifaldir allir skattar og 9 kvöldverðir
4. ferð: Austuríska-ungverska keisaradæmið 4.-13. september (laus sæti)
5. ferð: Austuríska-ungverska keisaradæmið 26. sept.-5. okt. Í þessari ferð verður flog-
ið til Frankfurt og ekið samdægurs til Regensborgar. Á næsta degi er ekið inn í Ungverja-
land og gist í gömlu herrasetri, áður en haldið
er áfram til Búdapest. Þar er farið í Ríkisóper-
una og listamannabærinn Szentendre heimsótt-
ur. Næst er gist við Balaton vatnið og þaðan
farið til Vínar þar sem gist er í miðborginni.
Þaðan liggur leiðin inn í „Frankísku Sviss“ á
leiðinni til Frankfurtflugvallar.
Verð kr 115 þúsund (innifaldir allir skattar,
7 kvöldverðir og 2 hádegisverðir)
Fararstjórinn
Friðrik G. Friðriksson
(Frissi) hefur undanfarin
23 ár áunnið sér vinsæld-
ir sem leiðsögumaður
víða um heim.
Ferenc Utassy, farastjóri
um Austuríska-ungverska
keisaradæmið.
Nánari upplýsingar veita Silja Rún og Helena í síma 585 4140
og taka þær einnig við pöntunum.
Ferðaávísun Mastercard gi ldir 5.000
ÚRVAL•ÚTSÝN
HINN 17. mars sl.
var ég að fræða börnin í
Víðistaðakirkju um
veganesti út í lífið. Ég
notaði samlíkingu við
það sem þau þekkja og
þau skildu vel muninn á
sælgæti og gosi annars
vegar og brauði með
osti og mjólkurglasi
hins vegar. Á sama hátt
útskýrði ég fyrir þeim
hvernig þau þyrftu að
velja „andlega fæðu“
forðast t.d. ofbeldis-
myndir í sjónvarpi og
vídeói þar sem slíkt
getur haft skaðleg áhrif
á börn (og fullorðna
líka, ef því er að skipta) en velja held-
ur það sem gerir þeim gott og byggir
þau upp. Í þessu tilfelli var ég að sýna
þeim fram á „næringargildi“ bænar-
innar, söngsins og samverunnar í
kirkjunni. Herdís Egilsdóttir, kenn-
ari með meiru, hafði notað þessa
samlíkingu varðandi námið hjá nem-
endum sínum og greip ég hugmynd-
ina fegins hendi.
Ég var sjálfboðaliði á námskynn-
ingu um andlega fæðu í guðfræði-
deild Háskóla Íslands, en þar er ég
nemandi. Það vildi svo skemmtilega
til að þessi kynning var sama dag og
ég var að fræða börnin í kirkjunni um
hollt veganesti. Á námskynninguna
kom fólk sem er að klára stúdents-
próf og einnig þau sem langar að
bæta við sig, sum eftir langa fjarveru
frá akademísku námi. Ég segi aka-
demísku, því alltaf erum við stödd í
þessum margumrædda skóla lífsins.
Það er mat flestra næringarfræð-
inga að hollast sé að fá fæðu úr sem
flestum fæðuflokkum. Það er reynsla
mín að nám í guðfræðideild bjóði upp
fjölbreyttan fróðleik úr ólíkum átt-
um, m.a.: siðfræði,
heimspeki, trúfræði,
trúarbragðafræði, upp-
eldisfræði, sögu, fé-
lagsfræði, söng, sál-
fræði, tungumál,
bókmenntum, mann-
fræði, kvennafræði o.fl.
o.fl.
Í raun eigum við öll
erindi í guðfræði! Sam-
setning nemendahóps-
ins er nám út af fyrir
sig. En allt erum við
leitandi fólk, fólk sem
hungrar í fróðleik. Sum
okkar hafa lesið Biblí-
una, önnur aldrei opnað
hana. Það er afskaplega
gefandi að vera í námi hvert með
öðru, karlar og konur, ung og aldin,
trúuð og vantrúuð og allt þar á milli.
Því við miðlum hvert öðru, m.a. eftir
reynslu okkar, aldri og kyni.
Það er gott að vera í guðfræðideild.
Þar er tekið vel á móti þér þegar þú
hefur nám í deildinni – með kaffi,
brauði og kökum. Þar mæta kenn-
arar, skrifstofustjóri og nemendur
saman. Deildin hefur einnig kaffi-
stofu þar sem við skiptumst á skoð-
unum og Félag guðfræðinema býður
upp á blómlegt félagslíf. Þá er bara
þitt að taka þátt.
Starf að loknu námi
Þú getur viljað starfa innan kirkj-
unnar, við fjölmiðla, kennslu, fræði-
mennsku, bókmenntarýni, ráðgjöf,
liðveislu, starfsmannahald og í raun
er menntun í guðfræðideild góð und-
irstöðumenntun eða hlekkur í mennt-
un fyrir svo margt.
„Hvað á ég að verða þegar ég er
orðin/n stór“ er stór spurning, og
undirliggjandi er alltaf önnur spurn-
ing: „Hver er ég núna?“ Erum við
ekki alltaf að leita að sjálfsmyndinni?
Verðum við einhvern tíma stór? Í
Biblíunni stendur að við séum sköpuð
í Guðs mynd, hver er Guð? Enn er
stórt spurt, en hver veit nema þú get-
ir nálgast svarið í námi við guðfræði-
deild Háskóla Íslands?
Verðum við ein-
hvern tíma stór?
Jóhanna
Magnúsdóttir
Höfundur er guðfræðinemi.
Guðfræði
Í raun, segir Jóhanna
Magnúsdóttir, eigum
við öll erindi í guðfræði!