Morgunblaðið - 06.06.2002, Blaðsíða 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 57
SAAB 9-5
+ raki!
+ teygjanleiki!
NÝTT!
HYDRA FLEX
Útsölustaðir:
Höfuðborgarsvæðið: Andorra Hafnarfirði, Bylgjan Kópavogi, Fína Mosfellsbæ,
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi,
Hygea Smáralind, Lyf og heilsa Kringlunni, Lyf og heilsa Mjódd.
Landið: Bjarg Akranesi, Konur og menn Ísafirði.
SUMARTILBOÐ: 20% afsláttur á vörum sem
vinna gegn appelsínuhúð.
BIOTHERM NÝJUNG:
Elastex™ (sojatrefjar + ný
kynslóð strekkjandi fjölliðu)
fyrir styrkari og teygjanlegri
húð.
Seyði af Aloe vera með ein-
staklega öfluga rakagjöf.
Fljótandi húðmjólk
með ferskri áferð með
sítrusseyði. Á auga-
bragði er húðin flauelsmjúk og
rakanærð. Hún er styrk og öðl-
ast aukinn teygjanleika. Húðin
verður sem ný.
Fyrsta endurmótandi
húðmjólkin með Elastex ™
samsetningu.
KVENNASKÓLANUM í Reykjavík
var slitið í 128. sinn við hátíðlega
athöfn í Hallgrímskirkju 25. maí sl.
að viðstöddu fjölmenni. 124 nýstúd-
entar voru brautskráðir að þessu
sinni og hlaut Sigríður Birna Elías-
dóttir, nemandi á náttúrufræði-
braut, hæstu einkunn á stúdents-
prófinu, en hún útskrifaðist með
einkunnina 9,19. Dúx skólans á
bekkjarprófi var Hrönn Guðmunds-
dóttir, nemandi á náttúrufræði-
braut í 1. bekk, með einkunnina 9,8.
Verðlaun voru afhent fyrir góðan
námsárangur í ýmsum greinum á
stúdentsprófi. Baldvin Donald Pet-
ersson hlaut Stúdentspennann 2002
úr verðlaunasjóði dr. Guðrúnar P.
Helgadóttur fyrir bestu stúdents-
ritgerðina. Aðalverðlaun skólans,
verðlaun úr Minningarsjóði frú
Þóru Melsteð, stofnanda Kvenna-
skólans í Reykjavík, fyrir hæstu
meðaleinkunn og besta heildar-
árangur á stúdentsprófi 2002, hlaut
Sigríður Birna Elíasdóttir.
Í skólaslitaræðu sinni ræddi Ingi-
björg Guðmundsdóttir, skólameist-
ari, um húsnæðisvanda skólans og
aðbúnað framhaldsskólanna í
Reykjavík. Í máli hennar kom fram
að menntamálaráðuneytið hafi falið
arkitekt að vinna forsögn að nýju
skólahúsi fyrir Kvennaskólann en
lóðina vanti. Elín Ösp Gísladóttir
flutti ræðu fyrir hönd nýstúdenta.
Við útskriftina voru 12 konur sem
útskrifuðust frá skólanum fyrir 60
árum og afhenti Björg Einarsdóttir
söguverðlaun fyrir þeirra hönd til
minningar um sögukennarann frk.
Ragnheiði Jónsdóttur, þriðja skóla-
stjóra Kvennaskólans. Þessi verð-
laun hlaut Baldvin Donald Pet-
ersson.
Skólaslit Kvennaskólans
LANDSÞING Bindindissamtak-
anna IOGT á Íslandi var haldið laug-
ardaginn 1. júní síðastliðinn og voru
níu einstaklingar, auk samtakanna
Vímulaus æska, heiðraðir fyrir góð-
an stuðning við baráttuna fyrir
fögru og heilbrigðu mannlífi án
fíkniefna. Einstaklingarnir sem
heiðraðir voru eru Árni Gunnlaugs-
son hrl., Dögg Pálsdóttir hrl., Haf-
steinn Guðmundsson íþróttafrömuð-
ur, Jón Helgason fyrrverandi
ráðherra, Karl Sigurbjörnsson bisk-
up Íslands, Ólafur H. Oddsson lækn-
ir, Tryggvi Gíslason skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, Sig-
mundur Sigfússon læknir og Sólveig
Pétursdóttir dómsmálaráðherra. Að
sögn Karls Helgasonar starfsmanns
IOGT, hafa þessir einstaklingar
komið að baráttunni með ýmsum
hætti, meðal annars með greina-
skrifum, en allt er þetta starf utan
samtakanna.
Karl segir að landssamtökin hafi
verið stofnuð 1886, en fyrsta deildin
tveimur árum fyrr. „Þetta nefndist
lengi Stórstúka Íslands en haustið
2000 var breytt um form, þannig að
Bindindissamtökin IOGT tóku yfir
það sem var Stórstúka Íslands. Áður
voru þetta allt stúkur en nú getur
fjölbreytni starfsins verið meiri,“
segir hann.
Gunnar Þorláksson, nýkjörinn
formaður Bindindissamtakanna
IOGT, bendir á að þetta hafi verið
fyrsti landsfundurinn eftir breyt-
inguna og telur hann að það hafi
sýnt sig að breytingin sé af hinu
góða. „Við höfum fengið nokkra nýja
félaga, sem sætta sig betur við þetta
félagsform en hina svokölluðu
stúkusiði, sem hafa verið hjá hreyf-
ingunni í gegnum tíðina. Nýja breyt-
ingin gerir þó ráð fyrir að menn geti
starfað áfram í stúkum, þeir sem það
vilja. Nú eru meðal annars starfandi
um tíu stúkur í Reykjavík, ein í
Hafnarfirði og ein á Akureyri og eru
stúkurnar hluti af landssamtökun-
um.“
Karl lýsir hinni fjölbreyttu starf-
semi hreyfingarinnar og nefnir
starfið í Galtalækjarskógi, en þar sjá
samtökin um skóginn, tjaldstæðið og
ýmsa þjónustu við þá sem þangað
koma. „Það hefur verið unnið að
ýmsum verkefnum undanfarin ár, til
dæmis var gefin út bók sem að heitir
Skrefi á undan og fjallar um mis-
þroska börn og þá sérstöku hættu
sem að þau eru í að ánetjast fíkniefn-
um. Þessi bók var gefin öllum sem
eru í foreldrafélagi misþroska barna
og hefur svo verið dreift miklu víðar.
Þá má nefna bindindisdag fjölskyld-
unnar sem er á hverju hausti, þar
sem unnið er með öðrum samtökum,
ekki síst í forvarnaskyni. Þá er kvatt
til þess að áfengi sé ekki haft um
hönd um jól og áramót, enda eru
börn afar viðkvæm fyrir því,“ segir
hann. Að sögn Gunnars leggja Bind-
indissamtökin IOGT kapp á að
minnka heildarneyslu áfengis og
benda fólki jafnframt á að þó að
drykkur sé nauðsyn þá sé áfengi
óþarft.
Góður félagsmálaskóli
Gunnar segir, aðspurður hvernig
hafi gengið að fá ungt fólk til liðs við
hreyfinguna, að því miður hafi það
látið á sér standa. „Við rekum
barnahreyfingu þar sem krakkar á
aldrinum 6–13 ára starfa og eina litla
deild ungmenna 13–17 ára. Ég hef
heyrt marga segjast hafa haft gott af
þátttöku í barnastarfinu og minnast
þess líka vegna þess að í því starfi
fengu þau tækifæri til að koma fram
og taka þátt í fundarsiðum og stjórn
og þess háttar, svo ég tali nú ekki
um að koma með dagskráratriði. Við
höfum nú sagt að þetta starf sé góð-
ur félagsmálaskóli,“ segir hann. Karl
segir að félagsmenn séu nú vel á
annað þúsund og bendir á að í fram-
haldi af landsfundinum sé blásið til
sóknar og stefnt sé að frekari út-
breiðslu samtakanna.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Helgi Seljan, fráfarandi formaður IOGT, Árni Gunnlaugsson, Dögg Pálsdóttir, Hafsteinn Guðmundsson, Jón
Helgason, hr. Karl Sigurbjörnsson biskup, Ólafur Hergill Oddsson, Björn Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri í dóms-
málaráðuneytinu, tók við viðurkenningunni fyrir hönd Sólveigar Pétursdóttur, Fanný Kristín Tryggvadóttir,
dóttir Tryggva Gíslasonar og mætti fyrir hans hönd, Elísa Víum, fulltrúi Vímulausrar æsku, og Gunnar Þor-
láksson, nýkjörinn formaður IOGT.
Landsþing Bindindissamtakanna IOGT á Íslandi
Viðurkenningar fyrir
störf að forvarnamálum