Morgunblaðið - 06.06.2002, Side 60
DAGBÓK
60 FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss og Marschen-
land koma í dag. Ás-
grímur Halldórsson,
Arnarfell, Goðafoss og
Hákon fara í dag. Hjalt-
eyrin kemur og fer í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Axios kom í gær. Ljósa-
foss kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9 og
kl. 13 vinnustofa, bað.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan. Bingó er 2.
og 4. hvern föstudag.
Púttvöllurinn er opinn
alla daga. Allar upplýs-
ingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 14–15
dans. Ekið um borgina
þriðjudaginn 11. júní og
nýju hverfin skoðuð.
Kaffi drukkið í Golf-
skála Reykjavíkur í
Grafarholti. Lagt af
stað kl. 13. Skráning í
síma 568-5052 fyrir kl.
12, mánudaginn 10. júní.
Allir velkomnir. Farið
verður á Hólmavík
fimmtud. 20. júní kl. 8.
Sr. Sigríður Óladóttur
tekur á móti okkur í
Hólmavíkurkirkju. Sýn-
ingin Galdrar á Strönd-
um og Sauðfé í sögu
þjóðar skoðaðar. Kaffi
og meðlæti í Sævangi.
Kvöldverður í Hreða-
vatnsskála. Leið-
sögumaður: Anna Þrúð-
ur Þorkelsdóttir.
Skráning í síma
568 5052
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9–13 handavinnu-
stofan opin, kl. 14.30
söngstund.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 11 leikfimi,
kl. 13 föndur og handa-
vinna.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Bingó kl.
13.30 Á morgun brids
kl. 13.30 og pútt á
Hrafnistuvelli kl. 14–16.
Dagsferð að Skógum
miðvikud. 19. júní, lagt
af stað frá Hraunseli kl.
10. Súpa og brauð á
Hvolseli, síðan ekið að
Skógum og umhverfið
skoðað. Kaffi drukkið í
Fossbúanum. Ekið til
baka um Fljótshlíð og
merkir staðir skoðaðir.
Allar upplýsingar í
Hraunseli, sími
555 0142. Vest-
mannaeyjaferð 2. til 4.
júlí Greiða skal farmið-
ana í ferðina 10., 11. eða
12. júní nk. kl. 13 í
Hraunseli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Dags-
ferð í Krísuvík, Þorláks-
höfn, Eyrarbakka og
Stokkseyri í dag. Brott-
för frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 10.
Fimmtudagur: Brids kl.
13.Vestmannaeyjar 11.–
13. júní 3 dagar, þátt-
takendur eru beðnir að
sækja farmiðann fyrir
helgi. Söguferð í Dali
25. júní, dagsferð, leið-
sögumaður Sigurður
Kristinsson, skráning
hafin. Silfurlínan er op-
in á mánu- og miðviku-
dögum frá kl. 10–12 í s.
588 2111. Skrifstofa fé-
lagsins er flutt í Faxa-
fen 12, sama símanúmer
og áður. Félagsstarfið
er áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 9–13
hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun, kl. 10 leikfimi,
kl. 15.15 dans. Opið
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Félag eldri borgara á
Suðurnesjum og tóm-
stundastarf eldri borg-
ara fara í sameiginlega
óvissuferð. Dagsferð
verður farin miðviku-
daginn 19. júní, farið
verður frá SBK kl. 9.30,
komið við í Hornbjargi,
Hvammi, Hlévangi og
Seli. Þátttaka tilkynnist
fyrir 15. júní. Ferða-
nefndin. Farin verður 4
daga ferð á Vestfirði,
Suðurfirðina, 22., 23.,
24. og 25. júlí, nánar
auglýst í Suðurnesja-
fréttum og dagbók
Morgunblaðsins.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund,
Frá hádegi vinnustofur
og spilasalur opinn.
Veitingar í Kaffi Bergi.
Upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
kl. 20–21 gömlu dans-
arnir, kl. 21–22 línu-
dans.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
hádegismatur alla virka
daga, heitt á könnunni
og heimabakað meðlæti.
Handavinnustofan er
opin kl. 9.15–16 á
þriðjudögum og
miðvikudögum kl. 13–16
og fimmtudögum kl.
9.15–16.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9.45
boccia, kl. 11 leikfimi,
kl. 14 félagsvist. Mið-
vikudaginn 10. júlí verð-
ur ekið um Kaldadal
upp á Geitlandsjökul á
Langjökli þar sem
snæddur er hádeg-
isverður, á heimleið
verður ekið um Húsafell
– Skorradal – Svínadal
og Hvalfjörð. Upplýs-
ingar og skráning í
síma: 587-2888.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, kl. 10 boccia, kl.
13 handavinna, kl. 14 fé-
lagsvist. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9
tréskurður og opin
vinnustofa, kl. 10–11
ganga, kl. 10–15
leirmunanámskeið. Allir
velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 10
boccia. Heilsdagsferð
verður farin 19. júní,
Byggðasafnið á Skógum
skoðað o.fl. Léttur há-
degisverður. Kvöldverð-
ur, dans. Nánar auglýst
síðar. Upplýsingar í
síma 562 7077.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 morgunstund og
handmennt, kl. 13 brids.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
ITC félagar: Farið
verður í ferð í Freyju-
lundinn í Heiðmörk
fimmtud. 6. júní kl. 18.
Hlúð verður að gróðri.
Félagar beðnir um að
taka fjölskylduna með.
Upplýsingar veitir Guð-
ríður Hannibalsdóttir, s.
566 6500.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma. Boðið
er upp á orlofsdvöl í
Skálholti í sumar. Í boði
eru þrír hópar sem rað-
ast þannig: 10.–14. júní,
18.–21. júní og 1.–5. júlí.
Skráning á skrifstofu
f.h. virka daga í síma
557 1666.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði.
Minningarkortin fást nú
í Lyf og heilsu, versl-
unarmiðstöðinni Firði í
Hafnarfirði. Kortið
kostar 500 kr.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar eru
afgreidd á bæjarskrif-
stofu Seltjarnarness hjá
Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir sem
hafa áhuga á að kaupa
minningarkort vinsam-
legast hringi í síma 552-
4994 eða síma 553-6697,
minningarkortin fást
líka í Háteigskirkju við
Háteigsveg.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju,
s. 520-1300 og í blóma-
búðinni Holtablóminu,
Langholtsvegi 126.
Gíróþjónusta er í kirkj-
unni.
Í dag er fimmtudagur 7. júní, 158.
dagur ársins 2002. Fardagar.
Orð dagsins: En hann, sem
hjörtun rannsakar, veit hver er
hyggja andans, að hann biður
fyrir heilögum eftir vilja Guðs.
(Rómv. 8, 27.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 gribba, 4 stubbur, 7
lundaunginn, 8 fim, 9
svar, 11 skökk, 13 makar
feiti á, 14 það sem veldur,
15 hrossahópur, 17 fisk-
ar, 20 hryggur, 22 víkka,
23 bárum, 24 mál, 25
týna.
LÓÐRÉTT:
1 vesældarbúskapur, 2
skottið, 3 fífls, 4 elds, 5
oft, 6 huglausir, 10 nirf-
ilsháttur, 12 guð, 13 tása,
15 fugl, 16 trylltan, 18
metta, 19 beiskt bragð,
20 stamp, 21 stöð.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 borubrött, 8 kunni, 9 fulla, 10 nes, 11 mærin,
13 aginn, 15 nafns, 18 safna, 21 kot, 22 grafa, 23 ógnar,
24 skuldlaus.
Lóðrétt: 2 ofnar, 3 urinn, 4 refsa, 5 telji, 6 skúm, 7 fann,
12 iðn, 13 góa, 15 naga, 16 flakk, 17 skafl, 18 stóll, 19
fundu, 20 arra.
William L. Goodwin –
ættingja leitað
HAFT var samband við
Velvakanda og beðið um
aðstoð við að hafa uppi á
ættingjum Williams L.
Goodwin frá Los Angeles
í Kaliforníu en talið er að
þeir séu búsettir á Ís-
landi. Þeir sem gætu gefið
upplýsingar eru vinsam-
lega beðnir að hafa sam-
band í síma 569 1318.
Bönnuð innan 10 ára?
ÉG sá nýlega á barnasíðu
Mbl. að auglýstur var
leikurinn Spiderman og
taldi að leikurinn væri
ætlaður eldri en 10 ára því
myndin er bönnuð innan
10 ára. Barnið mitt tæki
því ekki þátt. Síðan eru
birt nöfn vinningshafa
sem fá miða á myndina og
eru það alls 7 börn undir
10 ára (3–8 ára) sem fá
miða á myndina.
Er myndin bönnuð inn-
an 10 ára eða ekki?
Svar óskast!
Barnaafmæli með
bönnuðum myndböndum
eru líka farin að verða al-
geng. Á mínu heimili gilda
þær reglur að myndir á
RÚV sem mertar eru
gulu merki RÚV séu ætl-
aðar 12 ára og eldri, rauðu
séu fyrir 16 ára og eldri og
við það er staðið. Sl. vetur
hefur barnið mitt farið
tvisvar í afmæli þar sem
foreldrar hafa verið að
kaupa sér frið fyrir börn-
unum og í bæði skiptin
verið leyft að horfa á
bannaðar myndir innan
16 ára merktar rauðu á
bakhlið. Ég man ekki
hver fyrri myndin var en
sú seinni var Scream.
Sá stutti var voða
spenntur en svaf síðan
ekki vel næstu tvær næt-
ur enda 8 ára gamall og
myndin ætluð 16 ára og
eldri.
Foreldrar afmælis-
barnsins voru mjög hissa
á að ég skyldi hafa sam-
band við þá vegna þessa
afmælisboðs.
Foreldrar, látum í okk-
ur heyra og stöndum vörð
um æsku landsins.
Björk.
„Mexíkóar“
ÞEGAR Þorsteinn Gunn-
arsson og Atli Eðvaldsson
voru að lýsa leik Mexíkó
og Króatíu þá kölluðu þeir
Mexíkanana Mexíkóa og
virðist það gjaldgengt á
Sýn. Eftir því sem ég best
veit kallast þeir Mexíkan-
ar.
Helga
Guðmundsdóttir.
Góð þjónusta
ÉG er viðskiptavinur hjá
VÍS, er þar með bifreiða-
tryggingar, og vegna
þeirra þurfti ég að leita
aðstoðar 7. maí sl. hjá
þjónustufulltrúa fyrir-
tækisins, Ástu S. Leifs-
dóttur. Vil ég koma á
framfæri kærum þökkum
til hennar fyrir frábæra
þjónustu og alúðlegt við-
mót.
101156-3389.
Sjónvarpsþátturinn
Mæðgurnar
NÝLEGA hóf RÚV út-
sendingar á þættinum
Mæðgurnar (Gilmore
Girls) í stað Leiðarljóss.
Mér finnst þetta frábært,
tími til kominn á breyt-
ingar og vonast til að
RÚV haldi áfram að sýna
þessa skemmtilegu þætti.
Ásgeir.
Niðjar Hans
og Katrínar
ÆTTARMÓT niðja Hans
Jónatans og Katrínar
Antoníusardóttur verður
haldið á Djúpavogi og
Stöðvarfirði 15. og 16.
júní.
Ættingjar eru hvattir
til að kíkja á heimasíðuna
www.freewebz.com/hans-
jonatan
Dýrahald
Páfagaukur í óskilum
FUNDIST hefur gul-
grænn páfagaukur í Skip-
holti í Reykjavík. Upplýs-
ingar í síma 568 2690.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI bindur miklar vonirvið ferðaþættina Hvernig sem
viðrar, sem á að sýna á RÚV í sumar.
Umsjónarmennirnir, þau Rósa Björk
og Vilhelm Anton, taka sig ágætlega
út á skjánum en Víkverji vonar inni-
lega að ferðaþættirnir snúist þó ekki
upp í að verða einhver allsherjaryf-
irreið um landið þar sem kynnarnir
staldra við á þessum eða hinum
staðnum til að auglýsa ferðaþjónustu
heimamanna. Vonandi verða sjálf-
stæð og frumleg efnistök allsráðandi.
Upplýst hefur verið að Ferðamálaráð
styrki þættina og má vera að umsjón-
armenn þurfi að rækja einhverjar
skyldur gagnvart Ferðamálaráði en
hví ætti það að skerða frelsi þeirra?
Víkverji gerir í sjálfu sér engar
kröfur um að alltaf verði farið á áður
óþekkta staði í þáttunum. Það þarf
ekki að uppgötva hjólið til að búa til
gott sjónvarpsefni. Víkverji vill sjá
ferðamennsku og hvernig er tekist á
við vandamál í ferðalögum. Sem
dæmi má nefna tilraun til að tjalda í
hávaðaroki og rigningu. Einnig
óvæntar uppákomur á borð við bál-
reiðan landeigenda sem stendur
ferðafólk að því að kveikja varðeld á
bannsvæði, gleðskap með gítar úti í
guðsgrænni náttúrunni sem tekur
óvænta stefnu þegar Nicole Kidman,
sem kom til landsins með leynd, kem-
ur við. Einnig mætti nefna hestaferð
þar sem hrossin sleppa frá reiðmönn-
um og taka strikið heim á bæ, fjall-
gönguferð á Herðubreið sem reynist
svo erfið að fararstjórinn þarf að taka
skjólstæðinga sína á sálfræðinni svo
hópurinn sundrist ekki. Síðan mætti
mynda andlitssvipinn á fólki þegar
það fetar sig niður Illakamb við Jök-
ulsá í Lóni o.s.frv. Víkverji vill sjá
átök, svita og tár. Að sjálfsögðu líka
góða ferðastemningu og hlátur og
fliss. Það vill nú þannig til að ferðalög
eru oft svona og það gengur á ýmsu.
Víkverji telur að um þetta megi biðja
án þess að fara fram á að mynduð séu
einhver glæfraatriði með tilheyrandi
slysahættu.
x x x
EF VÍKVERJI væri ferðaþjón-ustuaðili myndi hann að sjálf-
sögðu reyna að komast í svona þátt
og fá að segja frá sér og sinni starf-
semi. Ætli margir hafi haft samband
við umsjónarmennina í þessu skyni
og hvernig ætli sé tekið á beiðnunum?
Fá allir að koma fram eða eru menn
valdir úr og þá með hvaða hætti? Vík-
verji er bara að velta þessu fyrir sér.
x x x
VÍKVERJI vill líka biðja um um-fjöllun um „ferðadót vikunnar“
s.s. ferðahnífaparasett, sjálfupp-
blásnar tjalddýnur og höfuðljós af
nýjustu gerð. Einnig eru til frábær-
lega skemmtilegar espresso-ferða-
kaffivélar og dúnfylltir tjaldsokkar
og eyrnatappar sem eru nauðsynlegir
í tjaldi í roki.
Víkverji vill að lokum leyfa sér að
fara fram á það við umsjónarmennina
að þeir láti vera að jáa og jæja hvor
framan í annan eins og oft er gert í
sjónvarpi með hörmulegum afleiðing-
um. Svona daður er vandræðalegt, en
þeim hefur víst aldrei verið bent á
það, blessuðum fréttaþulunum, sem
stunda þetta í hvað mestum mæli
þegar þeir eru að enda fréttatímana
og snúa sér með spurnirnar til
íþróttafréttamannsins í myndverinu.
ATHYGLISVERÐ umfjöll-
un um lífeyrissjóðina í
Mbl. í dag, 30. maí. Vakti
hjá manni hugmynd af
hverju ríkið láti ekki B-
deild Lífeyrissjóðs op-
inberra starfsmanna hafa
15% af hlutafé í Landssím-
anum, Landsbankanum og
Búnaðarbankanum til að
grynnka á skuldbind-
ingum sínum við deildina.
Slíkt myndi jafnframt
þýða að ríkið væri ekki
lengur eini stóri hluthafi
Landssímans og að ekki
væri dembt yfir mark-
aðinn allt of stórum hluta
hlutabréfa í bönkunum,
sem gæti þýtt verðfall
þeirra. Ríkið hyggst hvort
sem er nota hluta af sölu-
verði umræddra fyrir-
tækja til að lækka skuld-
bindinguna við LSR.
Jón Sigurðsson.
Athyglisverð umfjöllun
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16