Morgunblaðið - 06.06.2002, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI
sjávarafurða helst nær óbreytt á
milli fiskveiðiára en samkvæmt
ákvörðun sjávarútvegsráðherra um
leyfilegan heildarafla á næsta fisk-
veiðiári, sem kynnt var í gær,
eykst heildarkvótinn um 2,4%.
Ráðherrann fór að mestu að til-
lögum Hafrannsóknastofnunar
sem kynntar voru um síðustu
helgi.
Þorskkvóti næsta fiskveiðiárs
verður 179 þúsund tonn sam-
kvæmt aflareglu og tillögu Haf-
rannsóknastofnunarinnar, 11 þús-
und tonnum minni en á
yfirstandandi fiskveiðiári. Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
segir þó allt benda til þess að
þorskstofninn hafi nú náð botn-
inum og samkvæmt spá Hafrann-
sóknastofnunarinnar verði stofninn
árið 2004 orðinn stærri en hann
hafi verið frá árinu 1989. Þrátt fyr-
ir að stofninn hafi verið ofmetinn á
undanförnum árum hafi það ekki
leitt til efnahagslegrar dýfu og út-
gerðin ekki orðið fyrir verulegum
skakkaföllum vegna ofmatsins.
Ýsukvóti næsta fiskveiðiárs
verður aukinn um 14 þúsund tonn
á milli fiskveiðiára. Ákvörðunin um
leyfilegan heildarafla á næsta fisk-
veiðiári felur í sér liðlega 2,4%
aukningu aflamagns í þorskígildum
talið frá yfirstandandi fiskveiðiári
og er þá miðað við upphafsúthlut-
un í rækju bæði árin. Á síðasta ári
var upphafsúthlutun rækju 17 þús-
und tonn. Sé gert ráð fyrir að
heildarafli rækju verði sá sami á
komandi fiskveiðiári og á yfir-
standandi ári lætur nærri, miðað
við áætlað útflutningsverðmæti í
dag, að útflutningsverðmæti þeirra
tegunda sem ákvörðunin nær til
verði óbreytt á milli fiskveiðiár-
anna 2001/2002 og 2002/2003.
Sé litið til tillagna Hafrann-
sóknastofnunarinnar verða veittar
veiðiheimildir umfram tillögur í
ufsa, skarkola og steinbít. Því
verður heimilt að veiða 37.000 tonn
af ufsa í stað 35.000 tonna og 5.000
tonn af skarkola í stað 4.000 tonna.
Þá verður heildaraflamark í stein-
bít það sama og á yfirstandandi
fiskveiðiári eða 16.000 tonn í stað
15.000 tonna samkvæmt tillögum
Hafrannsóknastofnunarinnar.
Heildarafli eykst um 2,4% á milli fiskveiðiára samkvæmt ákvörðun ráðherra
Útflutningsverðmæti
sjávarafurða nær óbreytt
Að mestu farið/36
ÁRNI Johnsen, fyrrverandi alþing-
ismaður, segist hafa tekið við
650.000 krónum frá Gísla Hafliða
Guðmundssyni, sem þá var einn fyr-
irsvarsmanna Þjóðleikhúskjallar-
ans. Árni segir að þetta hafi verið
peningagjöf en þvertekur fyrir að
greiðslurnar hafi verið mútur. Þetta
var meðal þess sem kom fram í gær
við upphaf aðalmeðferðar máls
ákæruvaldsins gegn Árna og fjórum
öðrum mönnum.
Árni sagði aðdragandann að gjöf-
inni þann, að Gísli hugðist í árslok
2000 ganga frá reikningum vegna
ýmissa framkvæmda sem Þjóðleik-
húskjallarinn hefði greitt fyrir, en
áttu með réttu að greiðast af bygg-
ingarnefnd Þjóðleikhússins, samtals
um 3,2 milljónir. Árni sagðist hafa
sagt í glettni að það væri réttast
fyrir Gísla að rukka um leið vegna
vangoldinna launa til sín. Þetta
kynni Gísli að hafa misskilið.
Björn Leifsson og Gísli Hafliði
eru báðir ákærðir fyrir að hafa mút-
að Árna en þeir neita báðir sök.
Björn sagði fyrir dómi í gær að
hann hefði aldrei átt nein samskipti
við Árna og hefði á sínum tíma ekki
vitað að Gísli greiddi Árna þessa
upphæð. Fram kom að um það leyti
sem greiðslan var innt af hendi gaf
fyrirtæki Björns út tékka fyrir svip-
aðri upphæð sem stílaður var á
konu Gísla. Björn sagði að tékkinn
væri vegna uppgjörs við Gísla og
hann hefði ekki vitað að féð myndi
renna til Árna. Framburður Gísla
var á nokkuð annan veg en þeirra
Árna og Björns. Hann sagði að Árni
hefði beðið sig að útbúa aukareikn-
ing vegna starfa sem hann hefði
unnið fyrir Þjóðleikhúskjallarann.
Þetta hefði hann rætt við Björn og
niðurstaðan orðið sú að neita Árna
um þetta. Árni hefði síðar hringt í
sig og tilkynnt sér að reikningarnir
hefðu verið greiddir. Gísli sagði að
sér hefði fundist augljóst að Árni
vildi fá greiðslu og hann hefði metið
það svo að það væri best að láta
hann fá peninga. Kvaðst hann ekki
vilja „eiga neitt útistandandi við
hann“ en gaf ekki aðrar skýringar.
Mismunandi framburð-
ur um meintar mútur
Játar 12 atriði/12
RÚMLEGA tvítugur karlmaður
lést er fólksbifreið og jeppi skullu
saman um eittleytið í gær á veg-
inum á milli Strákaganga og Siglu-
fjarðar, rétt norðan við Selgil.
Maðurinn, sem lést, var einn í
fólksbifreiðinni og var hann fluttur
með sjúkraflugi á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri, en hann
lést á leiðinni.
Tveir menn voru í jeppanum.
Hlutu þeir lítilsháttar meiðsl og
voru fluttir á Sjúkrahúsið á Siglu-
firði. Mennirnir þrír voru í
reynsluakstri á sýningarbílum frá
Bílheimum. Lítið farsímasamband
er þar sem slysið varð og þurftu
ökumaður og farþegi í jeppanum
að hlaupa nokkurn spöl áður en
þeir gátu látið vita um atburðinn.
Veginum var lokað í um klukku-
tíma.
Ekki er unnt að segja frá nafni
hins látna að svo stöddu.
Morgunblaðið/Halldór Þ. Halldórs
Ungur maður lést í árekstri
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra hefur sent Theodóri
Bjarnasyni, forstjóra Byggðastofn-
unar á Sauðárkróki, bréf í níu tölu-
settum liðum þar sem gerðar eru að-
finnslur við starf forstjórans og
embættisfærslur hjá stofnuninni.
Bréfið barst Theodóri í hendur
fyrir röskum tveimur vikum þar sem
óskað er eftir skýringum á
ákveðnum þáttum er lúta að emb-
ættisstörfum hans. Theodór hefur
þegar sent ráðherra ítarlegt svar-
bréf og bíður frekari viðbragða frá
ráðuneytinu. Valgerður sagðist að-
spurð í gærkvöldi ekki vilja tjá sig
efnislega um bréfið sem hún sendi,
né bréfið sem Theodór sendi ráðu-
neytinu.
Biður um skýringar
„Ég bið um skýringar á ákveðnum
hlutum sem ég taldi rétt að gera og
sem varða hans stjórnsýslu,“ segir
hún. Hún segir ekki ljóst að svo
stöddu hvort svör forstjórans séu
fullnægjandi eða hvort óskað verði
eftir frekari skýringum.
Theodór sagðist í samtali við
Morgunblaðið telja að um aðför gegn
sér væri að ræða. Valgerður segir
ósanngjarnt af forstjóranum að
halda því fram.
„Það er auðvitað mjög ósann-
gjarnt að halda því fram því það er
skylda mín sem ráðherra, sem ber
ábyrgð á þessari stofnun, að óska
eftir skýringum hvað varðar
ákveðna þætti sem lúta að hans
stjórnun,“ sagði Valgerður Sverris-
dóttir þegar Morgunblaðið ræddi við
hana í gærkvöldi.
„Aðför til að bjarga Kristni
H. Gunnarssyni“
Theodór vill ekki tjá sig efnislega
um bréfið sem hann fékk frá ráð-
herra né svarbréf sitt til ráðuneyt-
isins. „Ég er furðu lostinn yfir þessu.
Það sem er að gerast þarna er klár
aðför til þess að bjarga Kristni H.
Gunnarssyni,“ segir Theodór.
Gerir aðfinnsl-
ur við störf
forstjórans
Viðskiptaráðherra sendir for-
stjóra Byggðastofnunar bréf
UM 600 umsækjendur um sum-
arvinnu eru enn á lista Vinnu-
miðlunar skólafólks í Reykja-
vík, að sögn Selmu Árnadóttur,
verkefnisstjóra vinnumiðlunar-
innar. Segir Selma ástandið
mun verra en síðasta sumar,
þegar allir sem vildu vinnu hafi
fengið vinnu. „Ástandið hefur
ekki verið svona slæmt í fjölda
ára. Það stoppar ekki síminn
frá áhyggjufullum foreldrum,“
segir hún.
Vinnumiðlun
skólafólks
600 bíða
eftir vinnu
Mikill fjöldi/6