Morgunblaðið - 21.06.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vegna styrkingar krónunnar
og lægra dollaraverðs
lækka
Viking fellihýsin um
100.000 kr.
Verð nú 759.000 með bremsum
• Tæki sem brenna gasi eiga að vera CE merkt •
Netsalan ehf.
Garðatorgi 3, 210 Garðabæ,
símar 565 6241 og 893 7333, Fax 544 4211, netfang: netsalan@itn.is
Opið
Virka daga frá kl. 10-18.
Laugardag frá kl. 10-16.
Lokað á sunnudögum
ÞESSA ljósmynd tók Roy Charlsen
slökkviliðsmaður klukkan 22 að
norskum tíma á þriðjudagskvöld,
um 8 klukkutímum áður en Guðrún
Gísladóttir KE-15 sökk. Hann var
kallaður út vegna yfirvofandi
mengunarhættu frá skipinu. Charl-
sen segir að skipstjóri Guðrúnar
Gísladóttur hafi ekki gefið drátt-
arbátnum leyfi til að draga fyrr en
rúmum hálftíma eftir að háflóði
var náð. Hefði leyfið verið gefið
fyrr hefði mátt bjarga skipinu.
Hann segir skipstjórann einnig
hafa gert mistök þegar hann fór
um borð til að dæla úr ballest
skipsins. Með því hafi skipið misst
jafnvægi og því hafi skipið sokkið
þegar næst varð háflóð klukkan 6
um morguninn.
Hann segir að enginn hafi tekið
ábyrgð á aðgerðunum og gefið fyr-
irskipanir um hvað ætti að gera.
Mengunarvarnir ríkisins og norska
siglingamálastofnunin hafi stjórn-
að aðgerðunum í sameiningu frá
Osló ásamt strandgæslunni um
borð í bátnum Søvejen. Því sé ekki
einungis við íslenska skipstjórann
að sakast.
Ljósmynd/Roy Charlsen
Segir engan hafa borið
ábyrgð á aðgerðum
TVEGGJA daga prestastefnu á
Egilsstöðum lauk í gær með
pílagrímagöngu og guðsþjónustu í
Selskógi um miðnæturbil. Stefnan
var haldin í Menntaskólanum á
Egilsstöðum og hana sóttu vel á
annað hundrað manns.
Við upphaf prestastefnu flutti
biskup Íslands, Karl Sigurbjörns-
son, setningarræðu og Sólveig
Pétursdóttir kirkjumálaráðherra
ávarpaði gesti. Fyrri deginum var
að miklu leyti varið í umræður og
greiningarvinnu vegna nýrrar
stefnumótunar fyrir þjóðkirkjuna.
Biskup sagði m.a. í ræðu sinni að
hið opna samtal milli kirkjunnar
og fólksins vildi vanta. Vígðum
þjónum kirkjunnar nægði ekki að
predika heldur þyrftu þeir að
hlusta á og tala við fólk. „Það þarf
nýja hugsun og nýja opnun og
endurnýjaða kristniboðsköllun
kirkjunnar allrar,“ sagði biskup.
„Kraftar kirkjunnar þurfa að
beinast frá viðhaldsverkefnum til
útrásar, frá varnarstöðu til sóknar
út í þjóðlífið með orð og áhrif Jesú
Krists.“ Þá ræddi hann m.a. nauð-
syn þess að færa kirkjuna nær
samtímanum og um símenntun
presta, ásamt starfsmann-
aumhyggju, sálgæslu og hand-
leiðslu fyrir presta, djákna, maka
þeirra og fjölskyldur.
Fyrir hádegi flutti Runólfur S.
Steinþórsson, dósent við Háskóla
Íslands, erindi um eðli og fram-
kvæmd stefnumótunar og eftir há-
degi voru vinnuhópar að störfum.
Styrkleikar og veikleikar í innra
starfi kirkjunnar og ógnanir og
tækifæri í ytra umhverfi voru við-
fangsefni þeirra. Í lok dagsins var
fjallað um starfsmannastefnu og
biskup ræddi stöðu prestastefn-
unnar. Að loknum kvöldbænum
bauð biskup svo til hátíð-
arkvöldverðar.
Að sjá tækifæri í
breyttum tímum
Í gær var stefnumótunarvinnu
fram haldið og skiluðu hópar nið-
urstöðum sínum eftir hádegi. Hall-
dór Reynisson, verkefnisstjóri
fræðslu- og upplýsingamála á
Biskupsstofu, sagði niðurstöður
hópanna einkar fróðlegar. Styrk-
leikar í innra starfi voru einkum
nefndir sjálfur boðskapur kirkj-
unnar, mannauður og að kirkjan
væri mjög opin og gæfi færi á fjöl-
breytilegum skoðunum og helgi-
haldi. Til veikleika var m.a. talið
að á samstarf skorti milli presta,
þeir væru í ímyndarkreppu og að
samkeppni, embættishyggja og
fjarlægð ríkti innan stéttarinnar.
Skipulag og stjórnsýsla væri ekki
oft markviss. Stjórnskipuleg staða
þjóðkirkjunnar gagnvart rík-
isvaldinu var ekki talin nægj-
anlega skýr og talið að yfirsýn
skorti á ráðstöfun fjármuna. Þá
var áhugaleysi almennings, mátt-
laust messuhald og dauflegt boð-
unar- og fjölmiðlastarf nefnt til
sögunnar.
Greining á ytra umhverfi m.t.t.
þjónustu kirkjunnar leiddi í ljós
margvíslegar ógnanir eða ögranir.
Talað var um aukna sjálfhverfu
fólks, siðferðisglundroða og tóma-
rúm í sambandi við gildismat.
Hefðarof í landinu væri ákveðin
ögrun og þar sem trúfélögum hef-
ur fjölgað mjög væri komin upp
samkeppnisstaða á markaðstorgi
trúarhugmynda. Landsbyggð-
arflótti og núningur við ríkis- og
löggjafarvaldið var einnig nefndur
til sögunnar. Helstu tækifæri fyrir
þjóðkirkjuna í samfélaginu voru
m.a. þörf fólks fyrir trúarþörf og
tímamót í lífinu þar sem þjónusta
væri sótt til kirkjunnar. Nýjar
samskiptaleiðir á tæknisviði, al-
þjóðahyggja og þörf fólks fyrir að
tilheyra nærhópi var talið til sókn-
arfæra.
„Þetta var eins og upptaktur að
stefnumótunarvinnu fyrir alla
þjóðkirkjuna,“ sagði Halldór, „sem
á að leggja fyrir Kirkjuþing í
haust. Samkvæmt þeirri tillögu á
að fá allar sóknir og stofnanir sem
tengjast þjóðkirkjunni til að fara í
gegnum stefnumótunarferli,
greina hvar kirkjan er stödd í
samtímanum, hvaða framtíðarsýn
menn hafa í framhaldi af því og
búa svo til einhvers konar að-
gerðaáætlun þar sem kirkjan set-
ur sér markmið til næstu ára.
Meðal annarra málefna dagsins
voru brauðamat, kynning á störf-
um nefndar um val á prestum og
kynning á samstarfi presta á
Fljótsdalshéraði.“
Synodusslit voru kl. 18 og í gær-
kvöld lauk svo prestastefnu með
pílagrímagöngu frá Egilsstaða-
kirkju og miðnæturguðsþjónustu í
Selskógi við Egilsstaði.
Stöðugreining kirkjunnar og stefnumótun efst á baugi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fjölmargir sátu prestastefnu sem haldin var í Menntaskólanum á Egils-
stöðum en henni lauk í gærkvöld með miðnæturguðsþjónustu.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
Frá varnarstöðu til
sóknar út í þjóðlífið
TVÖ norsk björgunarfyrirtæki og
eitt hollenskt hafa frest til klukkan
10 að íslenskum tíma í dag til að skila
inn tilboðum í olíuhreinsun úr Guð-
rúnu Gísladóttur KE-15 sem liggur á
40 metra dýpi undan ströndum
Lofoten eftir að skipið sökk aðfara-
nótt miðvikudags. Mengunarvarnir
norska ríkisins (SFT), sem hafa yf-
irumsjón með aðgerðum á strand-
stað, höfðu gefið íslensku útgerðinni
frest til hádegis í gær til að skila
áætlun um hvernig yrði staðið að
hreinsun olíu úr flakinu. 300 tonn af
dísilolíu og alls um 10 tonn af smur-
og vökvaþrýstiolíu eru um borð í
skipinu auk 870 tonna af frystri síld.
Í bréfi lögfræðifyrirtækis, sem fer
með málið fyrir hönd útgerðarinnar,
til SFT í gær lofar útgerðin að
hreinsa olíu úr flakinu eins fljótt og
kostur er. Þar er greint frá því að
leitað hafi verið tilboða frá þremur
björgunarfyrirtækjum og þeim hafi
verið gefinn frestur til klukkan 10 að
íslenskum tíma í dag til að skila inn
tilboðum. Þar skal koma fram
hversu langan tíma verkið mun taka,
hvenær það getur hafist og hvaða að-
ferðum verður beitt. Hollenska fyr-
irtækið Switzer Wijsmuller var einn-
ig beðið um tilboð í að lyfta skipinu
upp frá sjávarbotni.
Bjørn Dratfoss, vaktstjóri hjá
SFT, segir að óskað hafi verið eftir
fundi með fulltrúum útgerðarinnar á
laugardag til að ræða til hvaða að-
gerða verði gripið til að koma í veg
fyrir mengun á svæðinu. Hann segir
olíuna aðaláhyggjuefnið, en að einnig
verði rætt hvað skuli gera við aflann.
Ólíklegt að skipinu verði
lyft af hafsbotni
Sigmar Björnsson, einn eigandi
útgerðarfélagsins Festi, sagðist í
samtali við Morgunblaðið í gær telja
ólíklegt að skipinu yrði lyft frá hafs-
botni. Flakið væri í straumhörðu
sundi og það væri á mörkunum að
hægt væri að kafa að flakinu. Allt
væri þó að sjálfsögðu hægt, eins og
sæist af því að flaki kafbátsins Kursk
var lyft upp úr Barentshafi, en það
væri mjög dýrt og gæti verið hættu-
legt.
SFT hefur eftirlitsbát á strand-
staðnum til að fylgjast með olíuleka
frá skipinu og er þunn olíubrák um
100–150 metra frá strandstað skips-
ins. Dratfoss segir þetta ekki hafa
komið á óvart þar sem eitthvað af ol-
íu sé í kverkum og pípum víða á skip-
inu og líti út fyrir að vera dísilolía.
Hann segir að brákin hafi ekki verið
hreinsuð upp þar sem hún sé í mjög
litlu magni. SFT verður áfram með
vakt á staðnum.
Engar tölur varðandi hugsanlegan
kostnað hafa verið settar fram en til
samanburðar má nefna að flak El
Grillo liggur á 50 metra dýpi á Seyð-
isfirði og var 91 tonn af svartolíu
hreinsað úr því í fyrra, en hreins-
unaraðgerðum þar lauk síðasta
haust. Heildarkostnaðurinn af þeirri
framkvæmd var 120 milljónir króna.
Samkvæmt norskum lögum bera
eigendur skipsins og tryggjendur
þeirra allan kostnað af slíkum fram-
kvæmdum.
Sjópróf í Noregi vegna Guðrúnar Gísladóttur KE-15
Útgerðin lofar að hreinsa
olíu úr flakinu sem fyrst
ÁSBJÖRN Helgi Árnason, fram-
kvæmdastjóri útgerðarfélagsins
Festar hf., vísar ásökunum skip-
stjóra dráttarbátsins Nordbever á
hendur skipstjóra Guðrúnar Gísla-
dóttur KE-15 algjörlega á bug. Í
Morgunblaðinu í gær var sagt frá því
að Arnt Enebakk, skipstjóri drátt-
arbátsins, hefði staðhæft við norska
fjölmiðla að það hefði mátt bjarga ís-
lenska togaranum ef fyrr hefði verið
hafist handa á strandstað. Skipstjór-
inn og aðrir stjórnendur hafi komið í
veg fyrir að það væri mögulegt.
Ásbjörn segir þetta kolrangt.
Hann segir að dráttarbáturinn hafi
reynt að draga Guðrúnu, en það hafi
ekki tekist. Skipstjóri Nordbever
segir aftur á móti að hefði hann feng-
ið að hefjast handa fyrr hefði hann
getað bjargað skipinu. Ásbjörn
Helgi segir það mat útgerðarinnar
að rétt hafi verið staðið að björgun-
araðgerðunum af þeim aðilum sem
voru á staðnum. Ásbjörn vill að öðru
leyti ekki tjá sig um málið, þar sem
sjópróf fara fram síðar í dag. Þau
hefjast klukkan 7:30 að íslenskum
tíma í Svolvær á Lofoten.
Sigmar Björnsson, einn eigenda
Festar hf., segist ekki hafa heyrt
annað en að mjög gott samstarf hafi
verið milli Norðmanna og þess hluta
áhafnarinnar sem vann að björgun-
inni. Hann segir að Norðmenn hafi
haft yfirumsjón með björgunarað-
gerðunum og allar ákvarðanir hafi
verið teknar í samvinnu við þann
hluta áhafnarinnar sem var á staðn-
um.
Telur að rétt hafi
verið staðið að málum