Morgunblaðið - 21.06.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.06.2002, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. RUT Gunnarsdóttir skrifar bréf til Morgunblaðsins föstudaginn 14. júlí sl. undir fyrirsögninni: „Nokkrar staðreyndir í Sólheimamálinu“. Þar sem fátt er um staðreyndir í bréfinu þykir undirrituðum rétt að benda á eftirfarandi: 1. Vitnað er til systrasamtaka Sól- heima Camphill-hreyfingarinnar og fullyrt að þar sé engin stjórn og eng- inn formaður. Staðreyndin er hins vegar sú að fyrir hvert og eitt Camphill-samfélag er stjórn skipuð utanaðkomandi ein- staklingum og þar af leiðandi for- maður. Þar er hins vegar ekki fjöl- skipað fulltrúaráð, eins og á Sól- heimum. 2. Í bréfi Rutar kemur fram að for- maður leggi fram lista yfir þá sem hann vilji hafa í fulltrúaráðinu og Prestastefna samþykki lista, að mestu án athugasemda að því er virð- ist. Þegar fulltrúaráð Sólheima var stofnað með nýrri skipulagsskrá var óskað eftir að biskup Íslands gerði tillögur um skipan fyrsta fulltrúaráðs Sólheima. Eftir það gerir fulltrúaráð- ið, sem skipað er 21 fulltrúa, tillögu til Prestastefnu um skipan nýs full- trúaráðsmanns sem staðfestir eða hafnar tillögunni. Rangt er því farið með þessa „staðreynd“. Þá er það rangt að stjórnin kjósi formann, það gerir fulltrúaráðið á aðalfundi Sól- heima. 3. Meirihluti núverandi fulltrúa- ráðsmanna hefur setið í stjórn Sól- heima og eða gegnt öðrum trúnaðar- störfum fyrir Sólheima sumir í áratugi. Það er því ekki rétt að þeir þekki ekki til starfa Sólheima. 4. Gerð er grein fyrir ráðstöfun fjármuna Sólheima í ársreikningum Sólheima. Þeir reikningar hafa verið samþykktir án athugasemda og sendir hlutaðeigandi yfirvöldum sem ekki hafa gert athugasemdir. Að þjófkenna fólk, eins og gert er með svo ósmekklegum hætti í bréfi Rutar, lýsir eingöngu hugarfari bréfritara. 5. Bréfritari telur að það skipti ekki sköpun fyrir fatlaða íbúa Sól- heima að þar sé rekið gistiheimili, sem skilar tapi ár eftir ár. Sem betur fer hefur rekstur þess verið jákvæður flest ár. Rekstur gistiheimilis hefur ómælda þýðingu fyrir alla íbúa Sólheima, eins og ann- ar atvinnurekstur á Sólheimum, m.a. hafa íbúar Sólheima átt þess kost að dvelja ókeypis erlendis vegna skipti- heimsókna erlendra hópa. 6. Bréfritari telur að það skipti fatlaða íbúa Sólheima litlu hvar vist- menningarhús rísi. Umhverfismál eru eitt af höfuð- viðfangsefnum Sólheima og hefur svo verið frá fyrstu tíð. Það skiptir því íbúa Sólheima miklu að vistmenn- ingarmiðstöð rísi á Sólheimum. Að byggja ekki vistmenningarhús að Sólheimum vegna þess að hluti íbú- anna er fatlaður eru fordómar og nið- urlægjandi ummæli um fatlaða íbúa Sólheima. Sesseljuhús hefur frá upp- hafi verið hugsað sem fjölnota bygg- ing með þarfir allra íbúa Sólheima í huga. 7. Í bréfinu er látið að því liggja að væntanlega kirkjubygging á Sól- heimum sé að stærð á við Skálholts- kirkju. Grunnflötur kirkjubyggingar eru 200 fm eða álíka og meðalstórt einbýlishús. Í flestum stærri sam- félögum, sem starfa að sömu málefn- um og Sólheimar, er litið á kirkju sem sjálfsagða þjónustubyggingu við íbúa viðkomandi staða. Oft eru þær ein fyrsta byggingin sem reist er og jafnan notuð fyrir margs konar starf- semi, svo sem tónlistarkennslu og tónleikahald. Bréf Rutar eru almennar hugleið- ingar, en þar er því miður fátt um staðreyndir, nema rétt er farið með nafn stjórnarformanns Sólheima. Íbúar Sólheima hafa ekki kynnst „Sólheimasamtökum“ né orðið varir við tilvist þeirra. Hins vegar er starf- andi Foreldra- og vinafélag Sólheima sem lagt hefur starfinu margt gott til, sem ástæða er til að þakka. Með kveðju frá Sólheimum. AGNAR GUÐLAUGSSON, starfsmaður á Sólheimum. Nokkrar stað- reyndir um „stað- reyndir“ í Sól- heimamálinu Frá Agnari Guðlaugssyni: Í KASTLJÓSI sjónvarpsins sl. mið- vikudagskvöld tjáði forsætisráð- herra Íslands sig loksins um heim- sókn kínverska forsætisráðherrans, sem mikill styr hefur staðið um. Á þessari ögurstund umræðunnar er hr. Davíð Oddsson, umbjóðandi ís- lensks almennings, spurður um yf- irlýsingu fjölmargra Íslendinga sem þá er væntanleg í „blað allra lands- manna“ þar sem þeir biðjast afsök- unar á framgöngu íslenskra stjórn- valda. Margir hafa túlkað orð for- sætisráðherra í mín eyru síðan og jafnvel sagt að orð hans beri vott um mikinn og jafnvel ólæknandi vald- hroka, sem gjarnan leggst á valds- menn sem eigi sjá útúr augunum fyr- ir eigin ágæti. Þessu vil ég ekki sæta. Ég bið því Morgunblaðið, sem ég treysti best, til að endurflytja orð forsætisráðherra hér á síðum blaðs- ins. Þá mun öllum vera ljóst hvernig í málinu liggur. Því ekki má það við- gangast að óprúttnir menn væni for- sætisráðherra okkar um valdhroka og miðstýringu hugsana eins og Sov- étríkin voru þekktust fyrir. VIÐAR EGGERTSSON, Þingholtsstræti 24, 101 Reykjavík. Orð forsætisráðherra Frá Viðari Eggertssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.