Morgunblaðið - 21.06.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 9
„ÉG stefni ekki á doktorsnám en
mun þó halda ótrauður áfram að
sinna rannsóknarverkefnum á sviði
kirkjusögu og sagnfræði almennt,“
segir sr. Þórir Stephensen, fyrrver-
andi dómkirkjuprestur í Reykjavík
og staðarhaldari í Viðey, sem er að
útskrifast með masterspróf í
kirkjusögu frá guðfræðideild Há-
skóla Íslands á morgun.
Hann er fyrstur manna til ljúka
MA-prófi frá guðfræðideild HÍ en
hún bauð fyrst upp á slíkt nám fyrir
fjórum árum. Þórir, sem er á sjö-
tugasta og fyrsta aldursári, varð
einmitt á sínum tíma yngstur til að
hljóta prestvígslu hér á landi en það
var árið 1954. „Ég var einungis 22
ára þegar ég var settur prestur í
Staðarhólsþingum í Dölum. Til þess
þurfti forsetaleyfi því samkvæmt
lögum má ekki vígja prest fyrr en á
því ári sem hann nær 25 ára aldri.“
Hann segir það hafa verið mikla
reynslu fyrir sig en að hann hafi
verið helst til ungur til að taka við
slíku embætti. „Ég hafði ekki þá
lífsreynslu sem æskilegt er að menn
hafi en ég naut þess að eiga góða
konu sem var aðeins eldri en ég og
bóndadóttir, það hjálpaði mér heil-
mikið.“
Þórir, sem var dómkirkjuprestur
í Reykjavík á árunum 1971–1989 og
staðarhaldari í Viðey 1988–2001,
ritaði m.a. sögu Dómkirkjunnar í
Reykjavík og sögu Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma, auk
þess sem hann hefur skrifað fjölda
greina í blöð og tímarit.
Sagnfræðin í uppáhaldi
Þegar Þórir er spurður hvort
hann ætli ekkert að setjast í helgan
stein eins og algengt er að fólk geri
þegar það er komið á þennan aldur
neitar hann ákveðið. „Nei, það kem-
ur ekki til greina, ég hef brennandi
áhuga á svo mörgu. Sagnfræðin
hefur alltaf verið mitt uppáhald og
þar eru mörg viðfangsefnin sem
eftir er að skoða.“ Hann er nú að
vinna að skýringum á ferðadagbók
Magnúsar Stephensen, dómstjóra í
Viðey, auk þess sem hans bíður það
verkefni að skrifa sögu Sjávarborg-
arkirkju fyrir Þjóðminjasafnið. „Ég
þarf alltaf að vera að fást við eitt-
hvað sem tengist sögu. Eftir að ég
náði tökum á tölvutækninni var ég
reyndar búinn að ákveða að ég
myndi setjast niður og skrifa ævi-
sögu mína, þó alls ekki til að gefa út
heldur bara fyrir barnabörnin og til
að halda heilasellunum í gangi, en
svo var ég kominn á kaf í viðfangs-
efni sem mér finnst miklu meira
spennandi en ævisagan hefði orð-
ið,“ segir hann og hlær.
En hvernig stóð á því að hann
ákvað að hefja MA-nám í kringum
sjötugt? „Ég hafði skrifað stóra
rannsóknarritgerð 1992 þegar ég
var í svonefndu viðbótarnámi í
kirkjusögu en hún ber heitið
Menntasetur að Viðeyjarklaustri.
Leiðbeinandi minn, dr. Hjalti Huga-
son, hvatti mig til að láta meta hana
til MA-prófs ásamt námskeiði, sem
ég lauk um sama leyti, en þetta var
metið til 23 eininga.“ Með því að
bæta við tveggja eininga lesnám-
skeiði og lokaritgerð var markinu
náð. Dr. Hjalti Hugason var þar enn
leiðbeinandi og Gunnar F. Guð-
mundsson sagnfræðingur kom að
sem sérfræðingur.
Próventa í klaustrum og á bisk-
upsstólum á Íslandi á miðöldum er
nafn lokaritgerðarinnar en Þórir
segir próventuna hafa virkað dálít-
ið á svipaðan hátt og eignalífeyrinn
hjá Búnaðarbankanum. „Fólk gat
keypt próventu hjá kirkjustöðunum
og á biskupsstólum með eignum
sínum og þar með tryggt sér fæði,
klæði, húsnæði og þjónustu á efri
árum. Þaðan er einmitt komið orða-
sambandið að setjast í helgan stein
þegar farið er á eftirlaun, fólk flutt-
ist þá í klaustrin, sem erlendis voru
vígðar steinbyggingar.“ Hann
bendir á að próventan hafi verið
stöðutákn efnafólks, með henni
undirstrikaði það mátt sinn og þjóð-
félagsstöðu. „Þá kem ég með þá til-
gátu í ritgerðinni að hjón hafi
stundum notað próventuna til að
skilja að borði og sæng þar sem
kaþólska kirkjan leyfði ekki skiln-
að. Þá keyptu hjónin próventu, ann-
að þeirra flutti burt í klaustrið eða
á biskupssetrið og þannig gátu þau
búið hvort í sínu lagi.“
Þórir segir að nám manns um sjö-
tugt sé talsvert ólíkt því að stunda
nám um tvítugt. „Ég hef meira fyrir
því að læra utanbókar nú en þrosk-
inn skilar þó vonandi einhverju og
ég vona að ég sé færari um að
greina aðalatriði frá aukaatriðum.
Mér þykir afar vænt um að fá að
læra sem lengst, sagan er líf mitt og
yndi.“
Fyrsti mastersneminn lýkur prófi frá guðfræðideild HÍ
Útskrifast með MA-próf
á áttræðisaldri
Morgunblaðið/Arnaldur
Sr. Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur í Reykjavík og
staðarhaldari í Viðey, var aðeins 22 ára er hann tók við prestsembætti.
ÚTSALA ÚTSALA
Dæmi um verð: Áður: Nú:
Bómullarpeysa 4.900 2.900
Jakkapeysa 4.900 3.200
Blúndubolur 3.800 2.400
Bodybolur 2.800 1.900
Dömuskyrta 3.200 1.900
Gallajakki 4.900 2.900
Túnika 3.900 2.400
Sítt pils 3.900 2.500
Dömubuxur 3.000 1.900
Kjóll 4.500 2.900
...og margt margt fleira
Síðumúli 13, sími 568 2870
Opið frá kl.10.00-18.00
40—70% afsláttur
www.oo.is
Opið laugard. frá kl. 11-16
BRIO Kombi kerruvagn
62.950 - 59.800 stgr.
Teutonia Delta kerruvagn
66.300 - 62.990 stgr.
ORA Carletto kerruvagn
59.950 - 56.950 stgr.
BASSON Roma kerruvagn
49.900 - 47.400 stgr.
Ú
rv
al
ið
e
r
h
já
o
k
k
u
r
Glæsilegur sumarfatnaður
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
afsláttur af hörfatnaði;
kjólum, buxum, pilsum, jökkum og
skyrtum.
kvenfataverslun
Skólavörðustíg 14.
Sími 551 2509.
25%
Smart í sumar
Hörkjólar
Hörskyrtur
Hörbuxur
Hörjakkar
Laugavegi 54, sími 552 5201
20% afsláttur
BOÐIÐ verður upp á nám í japönsku
við heimspekideild Háskóla Íslands
haustið 2003 og verður það fyrsta
tungumálið frá Asíu sem kennt er á
háskólastigi hérlendis, að sögn Önnu
Agnarsdóttur, verðandi deildarfor-
seta heimspekideildar Háskóla Ís-
lands. Hún segir að japanskan verði
væntanlega kennd sem aukagrein til
30 eininga en undirbúningur námsins
hefur staðið yfir síðan haustið 1999.
„Á næsta vormisseri mun japansk-
ur gistiprófessor koma hingað til
lands til þess að undirbúa námið, auk
þess sem hann mun kenna á nokkr-
um námskeiðum, til dæmis um jap-
anskt þjóðfélag, menningu og
tungu.“ Hún bendir á að næsta skref-
ið sé nú að finna japanskan kennara
til að koma hingað.
Ástæðuna fyrir því að hefja
kennslu í japönsku við Háskóla Ís-
lands nú segir Anna vera gagnkvæm-
an áhuga þjóðanna á að kynnast bet-
ur menningu hvor annarrar og efla
samskiptin. „Þetta tengist því að
opnuð hafa verið sendiráð í báðum
löndunum. Þá hefur íslenska verið
kennd um árabil við að minnsta kosti
tvo háskóla í Japan.“
Anna bendir á að námið muni fyrst
og fremst hafa hagnýtt gildi og að
stefnt verði að því að japanska verði
einnig í boði fyrir nemendur í öðrum
deildum, meðal annars nemendur
viðskipta- og hagfræðideildar. „Slíkt
gæti verið áhugavert fyrir þá sem
hyggja á verslunarsamskipti við Jap-
ani.“
Heimspekideild hefur fengið
styrki úr tveimur japönskum sjóðum,
Sasakawa-sjóðnum og Japan Found-
ation, sem fjármagna námið, að sögn
Önnu. „Við undirbúninginn hefur
Háskóli Íslands síðan notið aðstoðar
frá sendiráði Japans, einkum frá
Ogazaki sendiráðsritara.“ Í nefnd-
inni sem vann að undirbúningi náms-
ins sátu Auður Hauksdóttir lektor,
Úlfar Bragason, forstöðumaður
Stofnunar Sigurðar Nordals, og Mar-
grét S. Björnsdóttir, framkvæmda-
stjóri þróunar- og kynningarsviðs
HÍ.
Japanska verður kennd
við Háskóla Íslands
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar
UNDRA-THAILANDSFERÐ
18. sept. Sími 56 20 400 - Tækifæri
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA