Morgunblaðið - 21.06.2002, Qupperneq 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 19
LEIKSKÓLINN Barnaból á Skaga-
strönd varð 25 ára hinn 7. júní. Af
því tilefni var boðið til afmælisveislu
í skólanum á laugardag. Margir nú-
verandi og fyrrverandi nemendur
skólans mættu á staðinn og nutu
skemmtiatriða sem flutt voru af
krökkunum í leikskólanum. Að þeim
loknum var boðið upp á grillaðar
pylsur og skúffuköku í eftirrétt.
Það var árið 1974 sem Lions-
klúbbur Skagastrandar hóf bygg-
ingu leikskólans. Klúbburinn lagði
fram fé úr sjóðum sínum og fé-
lagarnir unnu við bygginguna end-
urgjaldslaust. Fleiri félög komu að
framkvæmdinni með framlögum og
gjöfum og sveitarfélagið lagði fram
veglega styrki. Leikskólinn var síð-
an tekinn í notkun 7. júní 1977 og þá
afhentur sveitarfélaginu til eignar
og rekstrar. Árið 1996 var síðan tek-
in í notkun viðbygging við skólann
og varð þá bylting á aðstöðunni á
Barnabóli.
Í dag er Barnaból deildaskiptur
leikskóli, sem starfar í þremur deild-
um, þar sem um 44 börn nema undir
handleiðslu tíu starfsmanna, sem
skipta með sér fimm og hálfu stöðu-
gildi. Núverandi leikskólastjóri á
Barnabóli er Helga Bergsdóttir en
aðstoðarleikskólastjóri Þórunn
Bernódusdóttir.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Nokkur barnanna á Barnabóli á Skagaströnd sungu fyrir gesti.
Leikskólinn
Barnaból 25 ára
Skagaströnd
Í DAG, 21. júní, eru liðin 170 ár síð-
an byrjað var að reisa Norska húsið
í Stykkishólmi. Það var Árni
Thorlacius kaupmaður sem keypti
viðinn tilhöggvinn í Noregi og lét
flytja til Stykkishólmi. Norska hús-
ið þótti mikil bygging á sínum tíma
og það er talið fyrsta tveggja hæða
húsið sem byggt var á Íslandi.
Norska húsið hefur verið í eigu
Héraðsnefnd Snæfellinga í mörg ár
og hýst byggðasafn Snæfellinga og
verið miðstöð safnastarfs í hér-
aðinu.
Afmælisins verður minnst á ýms-
an hátt í sumar með fjölbreyttum
sýningum og uppákomum. 29. júní
verður haldin afmælishátíð hússins.
Miklar endurbætur fara fram á
Norska húsinu í sumar. Verið er að
skipta um þakefni á húsinu og setja
á það timburþak með sama sniði og
var á húsinu þegar það var byggt
árið 1832. Einnig verður skipt um
klæðingu á suðurhlið hússins. Byrj-
að er að taka inn hitaveitu í Norska
húsið og einnig standa vonir til að
hægt verði að fara í þær fram-
kvæmdir innanhúss sem eru fyr-
irliggjandi. Það fer þó eftir því
hvað þaksetningin kemur til með að
kosta og hversu vel gengur að afla
fjár til verksins sem eftir er. Að
sögn Aldísar Sigurðardóttur for-
stöðumanns er vonast til að hægt
verði að ljúka framkvæmdum sem
eftir eru á næsta ári og klára þar
með endurgerð hússins sem nú hef-
ur tekið 31 ár.
Norska húsið er opið daglega frá
kl. 11 til 17. Þar eru sýningar stöð-
ugt í gangi, m.a. sýning á 19. aldar
heldra heimili Árna Thorlacius og
fjölskyldu.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Eins og sjá má fara fram miklar
endurbætur á húsinu. Á mynd-
inni eru starfsmenn Norska
hússins, Aldís Sigurðardóttir og
Linda María Jensen.
Norska hús-
ið 170 ára
Stykkishólmur
LANDSBANKI Íslands færði ný-
verið Grunnskóla Djúpavogs full-
komna PC-tölvu að gjöf ásamt blek-
sprautuprentara. Auk þess færði
Landsbankinn Ungmennafélaginu
Neista peningagjöf. Það var Frið-
geir M. Baldursson, svæðisstjóri
Landsbankans á Suðurlandi og
Reykjanesi, sem afhenti Gauta Jó-
hannessyni, skólastjóra Grunnskól-
ans, gjafirnar. Í samtali við fréttarit-
ara Morgunblaðsins sagði Friðgeir
að þær væru þakklætisvottur fyrir
samstarf liðinna ára, en Landsbank-
inn hefur í nær aldarfjórðung rekið
útibú á Djúpavogi. Bankaafgreiðslan
á Djúpavogi var fyrst opnuð í húsinu
Grýtu hinn 22. febrúar 1978 og var
sóknarpresturinn á staðnum þá af-
greiðslustjóri. Síðan þá hafa ýmsar
breytingar átt sér stað í bankanum
og segir Friðgeir þær fylgja kröfum
nútímans. Í dag vilji fólk ekki eyða
dýrmætum tíma sínum í að standa í
biðröð til að borga reikninga en noti
þess í stað þjónustu eins og Einka-
banka, útgjaldadreifingu, hraðbanka
og símafærslur. Afgreiðslutími á
Djúpavogi hafi vissulega verið stytt-
ur en fólk geti nýtt sér símaþjónustu
sem veitt er frá Hornafirði. Friðgeir
sagði að lokum að þátttaka bankans í
uppbyggingu staðarins í gegnum ár-
in hefði verið bankanum mikið
ánægjuefni og vonaði að gjafirnar
kæmu að góðum notum.
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Gauti Jóhannesson, skólastjóri Grunnskólans á Djúpavogi, og Friðgeir
M. Baldursson, svæðisstjóri Landsbankans á Suðurlandi og Reykjanesi.
Landsbank-
inn færir
Grunnskóla
Djúpavogs
gjöf
Djúpivogur
HJÓNIN Sigurborg Óskarsdóttir og
Svanur Lárusson, bændur á Hellis-
hólum í Fljótshlíð, stóðu frammi fyr-
ir þeirri ákvörðun á síðasta ári, þeg-
ar þau höfðu lagt kúabúskap á
jörðinni af og selt kvótann, hvort
flytja skyldi í burtu eða leita leiða til
að vera um kyrrt. Varð úr að fjöl-
skyldan fór út í stórtæka uppbygg-
ingu á jörðinni með áætlun um 30
smáhýsi, veitingasal, tjaldstæði með
húsbílaaðstöðu, baðhúsi, leiksvæði
og golfvelli.
Á síðasta ári voru þegar komin í
gagnið 11 smáhýsi og á þessu ári
munu 19 bætast við, en að sögn Sig-
urborgar er jafnframt verið að
vinna að byggingu baðhúss með
gufubaði og heitum pottum, frá-
gangi á golfvelli og leiksvæði. Í
gömlu fjósi á bænum hefur verið
innréttaður veitingasalur sem rúm-
ar 100 manns í sæti og mun hann
nýtast gestum smáhýsanna, auk
þess sem hann er leigður út til
veisluhalda. Þegar hafa verið haldn-
ar fermingarveislur, þorrablót, af-
mæli, óvissuferðir og alls konar
veislur og þarf varla að taka fram
að staðurinn hefur fullt vínveit-
ingaleyfi. Ferðaþjónustan í Hellis-
hólum er við Fljótshlíðarveg, um 10
kílómetra frá Hvolsvelli. Smáhýsin
30 eru heilsárshús og koma ósam-
ansett frá N-Svíþjóð, en þess má
geta að ferðaþjónustan er með um-
boðssölu á þessum húsum hér á
landi. Þau eru ýmist 20 fermetra
hús ætluð fyrir 4–6 gesti eða 15 fer-
metra ætluð fyrir 3–5. Í hverju húsi
er auk svefnherbergis stofa með
sjónvarpi, eldunaraðstaða og salerni
með sturtu. Að sögn Sigurborgar
líta bókanir sumarsins vel út, gestir
koma að utan ýmist á eigin vegum,
og hafa þá oft bókað í gegnum Net-
ið, eða á vegum erlendra ferðaskrif-
stofa. Einnig sækja Íslendingar
Hlíðina heim, enda staðsetningin
þægileg og miðsvæðis á Suðurlandi
og héraðið allt rómað fyrir fræga
sögustaði og náttúrufegurð.
Hellishólar í Fljótshlíð
Úr mjólkurframleiðslu
í ferðaþjónustu
Morgunblaðið/Aðalheiður
Sigurborg Óskarsdóttir við eitt smáhýsanna hjá Ferðaþjónustunni.
Hella
SÝNINGIN „Milli fjalls og fjöru“
var opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar
föstudaginn 14. júní. Sturla Böðvars-
son, samgönguráðherra og fyrsti
þingmaður Vesturlands, opnaði sýn-
inguna en opnunin var liður í Borg-
firðingahátíð sem stóð yfir dagana
14.–17. júní. Á sýningunni er fjallað
um skóga á Íslandi að fornu og nýju,
bæði frá sjónarmiði náttúrufars og
menningarsögu, og reynt að varpa
ljósi á mikilvægi skógarins í sögu
lands og þjóðar. Að sýningunni
standa Byggðasafn Borgfirðinga og
Náttúrugripasafn Borgarfjarðar, en
aðalhönnuður hennar er Jón Jóns-
son á Kirkjubóli og Sögusmiðjan,
fyrirtæki hans. Með opnun skóga-
sýningarinnar er Safnahús Borgar-
fjarðar að taka í notkun nýtt sýning-
arhúsnæði þar sem einnig verða
fastasýningar byggðasafns og nátt-
úrugripasafns.
Í tengslum við skógasýninguna er
haldin sýning á list og handverki úr
tré. Höfundar verka eru Hannes
Lárusson, Guðmundur Sigurðsson,
Páll Jónsson, Steinunn Eiríksdóttir,
Sverrir Vilbergsson, Þórir Ormsson
og Helgi Runólfsson. Sýningin verð-
ur opin í sumar kl. 13–18 alla daga.
Milli fjalls
og fjöru
Borgarnes
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Ísleifur sýnir eldsmíði.
ÞAÐ viðraði ekki vel til
vinnu hjá unglingunum í
Vinnuskólanum á Húsa-
vík í gærmorgun og í
stað þess að sinna venju-
bundinni vinnuskóla-
vinnu byrjuðu þau vinnu-
daginn á því að búa til
snjókarla í miðbæ Húsa-
víkur.
Snjó-
karlagerð
í mið-
bænum
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Snjókarlinn var farinn að láta á sjá síð-
degis í gær þegar fréttaritari hitti hann.