Morgunblaðið - 21.06.2002, Blaðsíða 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GEÐLYFIÐ cítalópram, sem dótt-
urfélag Delta setti á markað í Dan-
mörku í síðustu viku, hefur nú þegar
selst fyrir rúmlega 40 milljónir ís-
lenskra króna og er það framar
björtustu vonum, að því er segir í til-
kynningu frá Delta.
Delta keypti danska dótturfélagið
United Nordic Pharma (UNP), sem
markaðssetti geðlyfið, fyrr á árinu
og voru kaupin liður í þeirri stefnu
Delta að færa fyrirtækið framar á
markaðinn og fækka milliliðum.
Markmið Delta er að ná þannig sem
mestum virðisauka af sölu lyfja fyr-
irtækisins.
UNP er markaðsfyrirtæki sem
starfað hefur á dönskum lyfjamark-
aði frá árinu 1990. Fyrirtækið kaupir
lyf frá ýmsum framleiðendum sam-
heitalyfja, þar á meðal Delta, og sel-
ur undir eigin merkjum til apóteka í
Danmörku.
Björn Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs Delta,
segir danska fyrirtækið vera vel
kynnt á lyfjamarkaðnum í Dan-
mörku og að því hafi gengið vel með
sín lyf.
„Þess vegna var þessu lyfi okkar
strax vel tekið undir merkjum UNP
en cítalópram er eitt mest selda lyfið
á danska markaðnum. Við vorum
reyndar ekki fyrstir inn með nýtt
samheitalyf. Omega var fyrsta fyr-
irtækið í heiminum sem kom með
þetta samheitalyf á markað og þeir
voru búnir að selja það ýmsum áður
en við sameinuðumst Omega.“
Björn segir að þar sem starfsemi
Delta byggist á sölu eigin fram-
leiðslu til ýmissa samheitalyfjafyrir-
tækja sé Delta að sumu leyti farið að
keppa við viðskiptavini sína, í gegn-
um UNP. Ákveðið hafi verið að fara
þá leið að feta sig lengra inn á mark-
aðinn á svæðum þar sem það ylli ekki
árekstrum við helstu viðskiptavini
félagsins en í dag er Þýskaland mik-
ilvægasti markaður Delta.
„Okkar aðalstarfsemi er útflutn-
ingur á okkar eigin lyfjahugviti og
framleiðslu en með þessu fyrirtæki
okkar í Danmörku erum við að fara
einu skrefi lengra. Nú seljum við lyf
bæði til annarra markaðsfyrirtækja
og, í þessu tilfelli, beint undir okkar
eigin vörumerki, United Nordic
Pharma. Við erum með þessu að
stíga fyrstu skrefin alla leið inn á
markaðinn og það hefur tekist mjög
vel,“ segir Björn.
UNP hefur tryggt sér markaðs-
leyfi og sölu í Danmörku fyrir fjölda
nýrra samheitalyfja. Gert er ráð fyr-
ir að á árinu 2002 muni UNP setja
hátt í 20 ný lyf á markað í Dan-
mörku. „Mun þetta auðvelda Delta
að markaðssetja eigin lyf í Dan-
mörku og víðar undir merkjum UNP
í framtíðinni,“ segir í tilkynningu.
Velta UNP var um 240 milljónir
króna í fyrra en áætluð heildarvelta
árið 2002 er 617 milljónir íslenskra
króna og hagnaður ársins er áætl-
aður 90 milljónir króna.
Magalyf á íslenskan markað
Annað dótturfyrirtæki Delta,
Omega Farma, markaðssetti nýver-
ið magalyfið Lómex-T hér á landi.
Þetta er fyrsta samheitalyfið við
Losec MUPS, sem aðallega er notað
við magasári, en það mun vera mest
selda lyfið á Íslandi og hefur selst
fyrir um 230 milljónir króna á ári.
Björn segir að ekki sé áætlað að
flytja Lómex-T út sem stendur.
Dótturfélag Delta hf. í Danmörku markaðssetur nýtt lyf
Sala geðlyfs
framar björt-
ustu vonum
FORSTJÓRI Arcadia Group, Stuart
Rose, hefur selt rúman þriðjung
hlutabréfaeignar sinnar í félaginu,
en það er sem kunnugt er að fimmt-
ungi í eigu Baugs. Verð hlutabréfa í
félaginu hefur farið lækkandi á und-
anförnum vikum en hækkaði talsvert
í viðskiptum gærdagsins.
Alls seldi Rose 250 þúsund hluti í
Arcadia á verðinu 374,2 pens á hlut.
Söluverðmætið nemur því 935,5 þús-
und pundum eða sem samsvarar
tæplega 125 milljónum íslenskra
króna. Haft var eftir talsmanni fyr-
irtækisins á fréttavef Bloomberg, að
salan hefði ekkert með álit Rose á
framtíðarmöguleikum Arcadia að
gera. Hann hefði einungis þurft að
ganga frá persónulegum fjárhags-
legum skuldbindingum.
Eftir söluna á Rose rösklega 399
þúsund hluti í Arcadia eða 0,21%
eignarhlut. Ennfremur á hann kaup-
rétt að rúmlega 6,47 milljónum hluta
í félaginu á genginu 51 pens á hlut.
Miðað við lokaverð hlutabréfanna
í gær nemur virði kaupréttarsamn-
inganna, sem gerðir voru við Rose
þegar hann var ráðinn sem forstjóri
félagsins í nóvember 2000, um 22,5
milljónum punda eða tæpum 3 millj-
örðum íslenskra króna.
Gengið lækkað
Lokaverð hlutabréfa í Arcadia var
347 pens í kauphöllinni í London í
gær og hækkaði um 4,5% frá loka-
gengi miðvikudags. Í Morgunkorni
Íslandsbanka í gær segir að lækkun
síðustu vikna skýrist að hluta til af
greiðslu arðs á tímabilinu en félagið
hafi greitt út 3,5 pens á hlut í arð
vegna fyrri hluta rekstrarársins.
Rose selur
hlutabréf í
Arcadia HLUTHAFAFUNDUR var haldinní gær í SR-mjöli að beiðni Síldar-vinnslunnar, en Síldarvinnslan
keypti nýlega stóran hlut í félaginu.
Á dagskrá fundarins var einungis
stjórnarkjör, en áður en að því kom
ávarpaði Benedikt Sveinsson stjórn-
arformaður fundarmenn. Benedikt
rifjaði í stuttu máli upp sögu félags-
ins þau átta ár sem liðin eru frá
einkavæðingu þess og sagði meðal
annars að þá hefðu komið að félaginu
þrír hópar, útgerðarmenn, lífeyris-
sjóðir og almennir fjárfestar. Smám
saman hefði samsetning hluthafa
breyst og útgerðarmenn hefðu selt
sína hluti, sem hefði gert félaginu
erfiðara um afurðir og aukið kostnað
þess vegna. Nú hefði það gerst að
aftur væru komnir inn í félagið
kvótasterkar útgerðir og eðlilegt
væri að þá yrði um leið breyting á
stjórn þess.
Sagði Benedikt það ætlun sína að
láta af störfum á þessum tímapunkti,
eftir að hafa sinnt stjórnarfor-
mennsku allt frá einkavæðingu.
Hann sagði félagið bæði hafa gengið
í gegnum góða og slæma tíma þessi
ár og að afkoma þess réðist að veru-
legu leyti af ytri aðstæðum þó að
einnig réði miklu hvernig á væri
haldið. Sagði hann að SR-mjöl væri
nú allt annað félag en fyrir átta ár-
um, bæði betra og verðmætara.
Eftir að fundarmenn höfðu þakk-
að ræðu formanns var gengið til
stjórnarkjörs og skýrði fundarstjóri
frá því að fimm framboð hefðu borist
til aðalstjórnar og tvö til varastjórn-
ar. Fleiri framboð komu ekki fram
og voru því réttkjörnir í aðalstjórn
Björgólfur Jóhannsson, Finnbogi
Jónsson, Kristján Vilhelmsson, Guð-
brandur Sigurðsson og Heimir Har-
aldsson, en þeir tveir síðastnefndu
sátu einnig í fyrri stjórn sem kjörin
var á aðalfundi 24. maí síðastliðinn. Í
varastjórn voru kjörnir Bjarni Að-
algeirsson og Ingimundur Ingi-
mundarson. Á stjórnarfundi sem
haldinn var að loknum hluthafafundi
var Finnbogi kjörinn formaður
stjórnar og Björgólfur varaformað-
ur.
Vegna framvirkra samninga sem
gerðir hafa verið um kaup hlutafjár
er erfitt að sjá hver röð stærstu hlut-
hafa er eða hversu mikinn hlut hver
á eða ræður yfir. Af nýjasta hlut-
hafalista og tilkynntum viðskiptum
síðastliðinn mánuð má þó sjá að Síld-
arvinnslan ræður yfir stærstum hlut
í SR-mjöli, eða 28,96%, en þar af er
stór hluti í framvirkum samningum.
Samherji ræður nú yfir 12,86% og er
stór hluti þess einnig framvirk kaup.
Sjóvá-Almennar tryggingar eiga
10,22% hlut og Útgerðarfélag Akur-
eyringa 9,71%.
Ný stjórn í SR-mjöli
ÁLFRAMLEIÐANDINN Alba í
Barein á í viðræðum um samstarf
við bandaríska álframleiðandann
Alcoa sem gæti leitt til þess að
Alba verði þar með þriðji stærsti
álframleiðandi heims.
Samstarfið felur í sér 300 þús-
und tonna stækkun á álfram-
leiðslu Alba fyrir árið 2005 til við-
bótar við 800 þúsund tonna
stækkun sem þegar er áformuð.
Alba yrði þar með þriðji stærsti
álframleiðandi heims á eftir Alcoa
og Alcan í Kanada. Þetta kemur
fram í viðtali AFP-fréttastofunn-
ar við Bruce Hall, forstjóra Alba.
Hall segir að fyrirtækin vinni
saman að hagkvæmnisathugun
þessarar stækkunar. Alcoa hafi að
öðru leyti ekki skuldbundið sig
Alba á nokkurn hátt eða öfugt.
Hann gerir ráð fyrir að niðurstaða
um hvort af samstarfinu verði
liggi fyrir í lok árs.
Alcoa í viðræðum við Alba
ÞORMÓÐUR rammi – Sæberg hf.
keypti í gær af Afli fjárfestingar-
félagi hf. 10% í Þorbirni Fiskanesi
hf. að nafnverði hlutafjár 111.276.309
krónur. Bréfin voru seld á genginu
6,02 og er söluverð þeirra því tæpar
670 milljónir króna.
Eignarhlutur Afls fjárfestingar-
félags hf. er nú 10,52% eða kr.
117.049.530 krónur að nafnverði, en
var áður 20,52% eða kr. 228.325.839
krónur að nafnverði.
Þormóður rammi – Sæberg hf. átti
ekkert í Þorbirni Fiskanesi hf. fyrir
kaupin.
Afl selur í Þor-
birni Fiskanesi
TAP Hlutabréfasjóðsins Auðlindar
hf. á tímabilinu 1. maí 2001 til 30. apríl
2002 nam 481 milljónum króna. Á
tímabilinu 1. maí 2000 til 30. apríl 2001
nam tapið 494 milljónum króna.
Á nýliðnu rekstrarári var ávöxtun
sjóðsins neikvæð um 1,2% að teknu
tilliti til arðgreiðslna. Bókfært eigið fé
í lok tímabilsins nam 2.897 milljónum
króna og hlutafé í lok rekstrarársins
var 1.338 milljónir króna.
Greiddur var arður til hluthafa á
rekstrarárinu að fjárhæð 118 milljón-
ir króna.
Kaupþing banki hf. er rekstraraðili
Hlutabréfasjóðsins Auðlindar hf.
Auðlind
með 481
milljón í tap
HLUTABRÉFASJÓÐUR Búnaðar-
bankans hf. var rekinn með 34 millj-
óna króna hagnaði á síðasta rekstr-
arári, frá 1. maí 2001 til 30. apríl 2002.
Rekstrarárið á undan nam tap sjóðs-
ins 305 milljónum króna.
Hlutafé félagsins var 2.270 milljón-
ir króna í lok apríl 2002 en var 2.273
milljónir króna í lok apríl 2001. Eigið
fé var nú samtals 3.108 milljónir
króna, en 3.077 milljónir í lok apríl
2001. Félagið greiddi hluthöfum sín-
um ekki arð á reikningsárinu.
Verðmæti innlendra hlutabréfa í
eigu félagsins nam um 1.514 milljón-
um króna í lok apríl 2002 eða 47,9% af
heildareignum og verðmæti erlendra
hlutabréfa nam um 39 milljónum
króna eða 1,2% af heildareignum.
Verðmæti skuldabréfa og hlutdeild-
arskírteina í eigu félagsins nam um
1.551 milljón króna í lok apríl 2002 eða
49,1% af eignum.
Hluthafar í lok apríl 2002 voru
10.040 en voru 10.485 í lok apríl 2001.
Í tilkynningu til VÞÍ kemur fram
að enginn starfsmaður starfaði hjá fé-
laginu á reikningstímabilinu en Bún-
aðarbanki Íslands hf. sá um daglegan
rekstur þess.
Hagnaður
34 milljónir
Hlutabréfasjóður
Búnaðarbankans
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
NORRÆNA ráðherraráðið skorar á
banka á Norðurlöndunum að lækka
gjöld fyrir millifærslur á milli Norð-
urlandanna og stytta biðtímann.
Þannig geti bankageirinn lagt sitt af
mörkum til að ryðja ónauðsynlegum
landamærahindrunum úr vegi innan
Norðurlandanna. Þetta kemur fram
í fréttatilkynningu frá Norræna ráð-
herraráðinu.
Ráðherraráðið hefur fengið kvart-
anir og tillögur m.a. frá Norður-
landaráði og Sambandi norrænu fé-
laganna vegna mikils kostnaðar við
millifærslur á milli banka á Norður-
löndunum og Morgunblaðið greindi
frá í vetur. Ráðherrar norrænnar
samvinnu fengu reynslu af vanda-
málinu með því að millifæra um 200
danskar krónur á milli landa en það
tók á bilinu 2-7 daga og kostnaðurinn
var á bilinu 35-80% af upphæðinni
sem millifærð var, sem alltaf sam-
svaraði u.þ.b. 200 dönskum krónum.
Kostnaðurinn við millifærslur var
80% af upphæðinni þegar millifært
var frá Svíþjóð til Grænlands, 76%
frá Grænlandi til Íslands og 75% frá
Íslandi til Álandseyja.
Svein Ludvigsen, formaður nor-
ræna ráðherraráðsins og sjávarút-
vegsráðherra Noregs, leggur
áherslu á að það hafi mikla þýðingu
fyrir stóran hluta Norðurlandabúa
sem starfar eða stundar nám í öðru
landi en heimalandi sínu, að milli-
færslur gangi snurðulaust fyrir sig
og kostnaði við þær sé haldið í lág-
marki.
Norræna ráðherraráðið
Bankar lækki gjöld
fyrir millifærslur