Morgunblaðið - 21.06.2002, Qupperneq 22
ERLENT
22 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SMYGL á fólki milli landa er núorð-
ið algengara en eiturlyfjasmygl
enda talið mun áhættuminna. Slíkir
ólöglegir fólksflutningar hafa aukist
mjög á undanförnum árum og er
þessi starfsemi talin velta mörgum
milljörðum króna á ári hverju. Þetta
kom fram á ráðstefnu Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í
Bangkok í gær.
Á ráðstefnu ÖSE, þar sem rætt er
um hina mannlegu hlið öryggismála,
kom fram að smygl á fólki sé að fær-
ast í aukana þrátt fyrir tilraunir til
að berjast gegn þessum ólöglegu
viðskiptum. Bent var á að til að út-
rýma þessari plágu þurfi að grípa til
brýnna aðgerða, en ráðstefnunni nú
er þó einkum ætlað að koma með
hugmyndir að því hvernig hindra
megi slíka flutninga, fremur en
finna raunverulegar lausnir á vand-
anum.
„Á hverju ári eru milljónir karla,
kvenna og barna fluttir á milli landa
og búa eftir það við skilyrði sem
líkja má við þrældóm,“ sagði Tadeu
Soares, sendiherra Portúgals í Taí-
landi, á ráðstefnunni. „Svo virðist
sem þeir sem stunda þessi viðskipti
taki nú flutning á fólki fram yfir eit-
urlyfjasmygl enda er áhættan við að
smygl á fólki áhættuminni.“
Soares sagði ennfremur að hnatt-
væðingin hafi leitt til aukningar á
fjölþjóðlegri, skipulagðri glæpa-
starfsemi sem hindri félagslega,
efnahagslega og menningarlega
þróun ríkja. Stjórnvöld og yfirvöld
innflutningsmála í mörgum löndum
sniðgangi, greiði fyrir og græði jafn-
vel á slíkum viðskiptum. Á þetta
þurfi að varpa ljósi.
Starfsemi ÖSE nær til 55 ríkja í
Evrópu, Mið-Asíu og Norður-Amer-
íku, en á ráðstefnunni kom fram að
sérstakt áhyggjuefni sé hversu mik-
ið smygl á fólki hefur aukist á Balk-
ansskaga, þrátt fyrir mikla viðleitni
til að sporna við því.
Þá kom fram að mörg aðildarríki
ÖSE eigi hagsmuna að gæta í Asíu í
tengslum við ólöglega fólksflutn-
inga, sérstaklega í löndunum sem
tilheyra aðildarríkjum Suðaustur-
Asíuríkja (ASEAN). Flest lönd séu
áfanga-, upphafs- eða viðkomustað-
ur fyrir ólöglega fólksflutninga og
sum séu allt þrennt, svo sem Taí-
land og löndin á Balkanskaga.
Nauðsynlegt að ríki
vinni saman
Á ráðstefnunni kom fram gagn-
rýni á þær leiðir sem hingað til hafa
verið farnar til að reyna að hindra
ólöglega fólksflutninga og bent var á
að þær væru misheppnaðar. Rædd
var nauðsyn þess að samvinna eigi
sér stað milli þeirra landa sem eru
upphafs- eða áfangastaðir fyrir
smygl á fólki og bent á að til þess
þurfi pólitískur vilji ríkisstjórna að
vera fyrir hendi, en fram kom að
Taíland hefur frá árinu 2000 verið
samvinnuaðili ÖSE.
Á ráðstefnunni var bent á að
smygl á fólki hafi breyst töluvert frá
tímum kalda stríðsins og línurnar í
dag séu ekki eins skýrar. Áður fyrr
hafi flestar konur sem smyglað var
til Evrópu til að stunda vændi verið
asískar og hafi þær aðallega komið
frá Taílandi, en í dag séu fyrrum
Sovétlýðveldi algengur upphafs-
staður ólöglegra fólksflutninga.
Fyrr í þessum mánuði fordæmdu
bandarísk sjórnvöld verslun með
fólk í skýrslu þar sem fram kom að
allt að fjórar milljónir manna hefðu
gengið kaupum og sölum í þrælaiðn-
aðinum á síðasta ári.
Smygl á fólki orðið algeng-
ara en eiturlyfjasmygl
Bangkok. AFP
Stjórnvöld í mörgum löndum sögð
greiða fyrir slíkum viðskiptum
BANDARÍSKA flugfélagið South-
west Airlines sætir nú mikilli gagn-
rýni fyrir þá stefnu sína að láta feitt
fólk greiða fyrir tvö flugsæti taki
það meira pláss en góðu hófi gegnir.
Talsmenn flugfélagsins segja mark-
miðið hins vegar einungis það að
tryggja að sessunautar íturvaxinna
farþega geti notið flugsins.
„Við stundum sölu á flugsætum
og ef þú þarft á meira en einu sæti
að halda verðurðu að borga fyrir
það,“ sagði Beth Harbin, talsmaður
Southwest.
Fulltrúar Samtaka offitu-
sjúklinga í Bandaríkjunum eru hins
vegar yfir sig hneykslaðir. „Þessar
reglur mismuna fólki og þær bera
vott um illgirni,“ sagði Morgan
Downey, framkvæmdastjóri sam-
takanna. „Með þessu er verið að níð-
ast á fólki – sem hvort eð er má þola
fordóma – í stað þess að sinna þörf-
um þess með breytingum á farþega-
rýminu.“
Sagði Downey að flugfélög ættu
að hafa stærri sæti í vélum sínum
enda bendi allt til þess að Banda-
ríkjamenn séu sífellt að verða „um-
fangsmeiri“. Er áætlað að einn af
hverjum fjórum Bandaríkjamönn-
um þjáist af offitu.
Reglurnar eru að vísu afar mis-
munandi eftir flugfélögum en flest
eru þó á bandi Southwest. Sagði
Downey að samtök sín væru að hug-
leiða að fara fyrir dómstóla eða
biðja Bandaríkjaþing um að banna
þá reglu, að feitir séu neyddir til að
borga fyrir tvö flugsæti.
Tilkynnti George W. Bush Banda-
ríkjaforseti einmitt í gær að hann
teldi reglulega hreyfingu og heil-
brigt mataræði til marks um föð-
urlandsást fólks. Lýsti hann yfir
stríði á hendur offituvandamálinu,
sem rannsóknir sýna að færist í
aukana.
„Ef þú vilt stuðla að bættu sam-
félagi þá geturðu gert það með því
að hugsa vel um eigin líkama,“ sagði
Bush og bætti við: „Gögnin tala sínu
máli; aukin hreysti almennings
tryggir öflugri Bandaríki.“
Bush, sem æfir reglulega, hvatti
landa sína m.a. til að eyða hálftíma á
dag í líkamsæfingar, borða betra
fæði og hætta að reykja, auk þess
sem hann sagði að vel færi á því að
menn neyttu áfengis aðeins í hófi.
Offitusjúklingar gagn-
rýna bandarísk flugfélög
Dallas, Washington. AP, AFP.
Digrir farþegar
látnir greiða fyrir
tvö flugsæti
ÓTTAST er, að meira en 100
menn hafi farist í mikilli gas-
sprengingu í kolanámu í Heil-
ongjiang-héraði í Norðaustur-
Kína. Skýrði Xinhua-fréttastof-
an frá því í gær. Um 140 menn
voru við vinnu í námunni þegar
sprengingin varð og lokuðust
þá inni meira en 100 þeirra.
Tekist hafði í gær að bjarga 24
mönnum og voru sumir mikið
slasaðir. Er náman við borgina
Jixi en í sprengingum í tveimur
öðrum námum þar í apríl fórst
31 maður og 43 slösuðust.
Í Kína stendur til að loka
þúsundum smárra kolanáma á
þessu ári til að draga úr skelfi-
legum fjölda slysa og dauðs-
falla í þessum atvinnurekstri.
Samkvæmt opinberum tölum
farast um 10.000 námamenn við
vinnu sína á ári hverju en ýmsir
sérfræðingar segja, að sú tala
sé í raun hærri enda algengt, að
ekki sé skýrt frá námaslysum.
Stórslys í
kínverskri
námu
Peking. AFP.
MILLJÓNIR Spánverja lögðu niður
vinnu í gær, en boðað var til allsherj-
arverkfalls í landinu, til að mótmæla
nýrri stefnu stjórnvalda í málefnum
atvinnulausra. Tímasetning verk-
fallsins í gær var afar óheppileg fyrir
forsætisráðherra landsins, Jose
Maria Aznar, en fundur Evrópusam-
bandsins hefst í Sevilla í dag. Var að-
gerðunum ætlað að gera undirbún-
ing fundarins sem erfiðastan, en
vegna verkfallsins þurftu margir
Evrópuleiðtoganna að seinka komu
sinni til Sevilla.
Verkfallið hafði meðal annars þau
áhrif að verslanir og þjónustufyrir-
tæki voru víða lokuð og almennings-
samgöngur voru skertar verulega.
Hjá stærsta flugfélagi Spánar,
Iberia, var einungis flogið um 20% af
áætluðum ferðum. Að minnsta kosti
31 verkfallsmaður var handtekinn
eftir átök við lögreglu, flestir í Madr-
id að sögn spænska innanríkisráðu-
neytisins.
Stjórnvöld og forsvarsmenn
verkalýðsfélaga greinir á um áhrif
verkfallsins í gær. Verkalýðsfélög
héldu því fram að yfir 80% verka-
fólks hefðu tekið þátt í aðgerðunum
en stjórnvöld sögðu að þær væru
langt frá því að geta kallast allsherj-
arverkfall og hér væri á ferðinni
mesti ósigur stjórnarandstöðunnar í
20 ár.
Ný stefna stjórnvalda í atvinnu-
leysismálum sem fyrirskipuð var í
síðustu viku felur meðal annars í sér
að atvinnuleysisbætur verða lækk-
aðar og falla niður til atvinnulausra
einstaklinga sem hafa þrisvar sinn-
um hafnað tilboði um atvinnu. Breyt-
ingarnar fela einnig í sér að launa-
greiðslur til starfsmanna sem hefur
verið sagt upp störfum og hafa áfrýj-
að til dómstóla falla niður og
greiðslur til landbúnaðarverka-
manna sem ráðnir eru tímabundið
verða lækkaðar.
Atvinnuleysismál eru viðkvæmt
deiluefni á Spáni, en atvinnuleysis-
hlutfall þar í landi er 11,5% sem er
hið hæsta innan landa Evrópusam-
bandsins.
Allsherjarverkfallið í gær er hið
fyrsta síðan hægri stjórn Aznar tók
við völdum á Spáni árið 1996 og eru
þetta mestu verkalýðsátök sem Azn-
ar hefur tekist á við í forsætisráð-
herratíð sinni.
AP
Verkfallsvörður nær tökum á ónafngreindum snoðkolli sem hóf slags-
mál við röð verkfallsvarða í Valencia í allsherjarverkfallinu.
Allsherjarverkfall á Spáni í gær
Milljónir lögðu
niður vinnu
Madrid, Sevilla AP, AFP.
ENSKI fótboltaáhugamaðurinn
Michael Mime í York á Norður-
Englandi bjó sig í gær undir að
fylgjast með HM-viðureign Eng-
lendinga og Brasilíumanna nú í
morgunsárið. Gerði hann það með
því að kaupa 1.050 nagla í næstu
byggingavöruverslun og búa sér til
þessa skemmtilegu hvílu. Segist
hann hafa gert það vegna þess hve
mikið hann hafi þjáðst í fyrri leikj-
um enska landsliðsins og í þeirri von
að þjáningin á nöglunum upphefji
eða deyfi þá þjáningu sem er því
samfara að fylgjast með leikjunum.
AP
Krókur á móti bragði