Morgunblaðið - 21.06.2002, Side 27
LISTIR/KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 27
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
-
IT
M
9
01
6
Heilir
sturtuklefar
í horn
með öryggisgleri og
segullæsingu.
Innifalið í verði:
sturtubotn með
vatnslás,
blöndunartæki með
sturtusetti.
Tilboðsverð kantaðir:
70x70 cm kr. 48.950,- stgr
80x80 cm kr. 50.250,- stgr
Tilboðsverð rúnnaðir:
80x80 cm kr. 65.780,- stgr
90x90 cm kr. 67.450,- stgr
Baðkars-
sturtuhlífar
úr öryggis-
gleri
Verð frá:
14.900,-
Handlaugar í borð
Verð frá 8.950,- stgr
Handlaugar á vegg
Verð frá 3.950,- stgr
WC með stút
í vegg eða
gólf
Með setu-
festingum
Tvöföld
skolun
Verð frá
17.250,- stgr
Inn-
byggingar
WC
Verð sett
með öllu
kr. 43.800,-
stgr
E ldhússtá lvaskar í úrval i
sumartilboðDÚNDUR
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Ný vefsíða: www.i-t.is
Baðkör
Stærðir
160x70,
170x70,
160x75 form. m. handföngum
170x75 form. m. handföngum
170x83 form. m. handföngum
180x83 form. m. handföngum
Verð frá 12.350,- stgr.
Opið:
Mán - fös 9-18
Lau 10-14
Verð frá
7.350,- stgr
Háskólabíó, Sambíóin í Reykjavík,
Keflavík og Borgarbíó á Akureyri
frumsýna About a Boy með Hugh
Grant, Nicholas Hoult, Rachel Weisz
og Toni Collette.
ABOUT a Boy eða Saga um
strák er nýjasta myndin frá fram-
leiðendum „Bridget Jones’s
Diary“ og „Meet the Parents“. Í
aðalhlutverkinu er Hugh Grant,
sem leikur Will, glaumgosa á fer-
tugsaldri sem lifir í allsnægtum og
nýtur kvenhylli. Tíminn hans fer í
að leika sér því hann þarf hvorki
að vinna né bera ábyrgð á einu eða
neinu. Til þess að sýna það og
sanna fyrir sjálfum sér og öðrum
að hann geti axlað ábyrgð í lífinu
ákveður hann að taka að sér 12
ára strák, en margt fer öðruvísi en
ætlað er enda er sjálfur Will hálf-
gert barn í fullorðnum líkama.
Til þess að ganga í augun á enn
fleiri konum spinnur Will upp
lygavef um að hann eigi barn og
útvegar sér meira að segja barna-
bílstól til að hafa í bílnum svo að
saga hans verði enn meira sann-
færandi. En dag einn breytist til-
veran. Will kynnist Markúsi, 12
ára dreng sem býr við kröpp kjör
hjá einstæðri móður. Markús,
sem leikinn er af hinum unga
Nicholas Hoult, á enga vini og er
lagður í einelti í skólanum. Móðir
hans er orðin lífsleið og reynir að
fyrirfara sér. Í kjölfarið verða
Will og Markús miklir mátar enda
geta þeir miðlað heilmiklu um lífs-
ins leyndardóma til hvors annars.
Hugh Grant er sagður hafa falast
sjálfur eftir hlutverkinu eftir að
hafa heillast af sögunni.
Leikstjórar eru bræðurnir
Chris og Paul Weitz, sem gerðu
einnig American Pie myndirnar.
Þeir skrifuðu jafnframt kvik-
myndahandritið ásamt Peter
Hedges sem byggt er á bók Nick
Hornby, sem einnig er höfundur
Fever Pitch og High Fidelity.
Framleiðendur myndarinnar, sem
kemur frá Universal Pictures, eru
Jane Rosenthal, Eric Fellner, Tim
Bevan, Brad Epstein og hinn
kunni leikari Robert De Niro, sem
keypti kvikmyndarétt sögunnar
og lagði fyrirtæki hans og Jane
Rosenthal, Tribeca, peninga í
framleiðsluna. About a Boy er
þriðja bók rithöfundarins Nick
Hornby. Sagan kom út árið 1998
og voru framleiðendur myndar-
innar búnir að tryggja sér kvik-
myndaréttinn áður en bókin kom
út.
Leikarar: Hugh Grant (Notting Hill,
Extreme Measures, Mickey Blue
Eyes); Nicholas Hoult (Intimate Re-
lations); Rachel Weisz (The Mummy,
Enemy at the Gates, Beautiful Creat-
ures); Toni Collette (Muriel’s Wedd-
ing, The Sixth Sense, Shaft). Leik-
stjórar: Chris og Paul Weitz.
Toni Collette, Hugh Grant og Nicholas Hoult í About a Boy.
Saga um
tvo stráka
Laugarásbíó frumsýnir My Big Fat Greek
Wedding með Nia Vardalos, John Corb-
ett, Michael Constantine, Lainie Kazan,
Andrea Martin og Joey Fatone.
NIA Vardalos fer með aðalhlut-
verkið í grínmyndinni My Big Fat
Greek Wedding sem frumsýnd verð-
ur í dag. Myndin fjallar um ungu kon-
una Toulu og síðast en ekki síst sein-
heppni hennar í karlamálum.
Leikstjóri er Joel Zwick, en framleið-
endur eru Tom Hanks, Rita Wilson
og Gary Goetzman.
Toula er grísk-bandarísk einhleyp
kona á þrítugsaldri og það lítur ekki
út fyrir að breyting verði þar á í bráð.
Þetta veldur henni nokkrum áhyggj-
um en þær eru ekkert í líkingu við
það hugarangur, sem plagar foreldra
hennar vegna þessa mikla fjölskyldu-
vanda. Foreldrarnir stinga upp á því
að gott ráð sé að senda dóttur sína til
Grikklands þar sem þau vonast til að
hún kynnist góðum manni í gamla
landinu. En Toula sýnir lítinn áhuga á
þessu og hefur ekki hug á því að yf-
irgefa Bandaríkin í bráð, en þar sem
hún starfar í fjölskyldufyrirtækinu
Dancing Zorba, sem er grískt veit-
ingahús í Chicago, verður hún að taka
tillit til skoðana foreldra sinna. Dag
einn, eftir að hafa afgreitt myndar-
legan mann og ekki þorað að tala við
hann, ákveður Toula að gera róttækar
breytingar á lífi sínu. Þrátt fyrir mót-
mæli föður síns fer hún að læra á tölv-
ur í kvöldskóla, tekur niður gleraugun
og setur upp linsur, fær sér nýtt starf
á ferðaskrifstofu og gerir stórtækar
breytingar á útliti sínu og framkomu.
Henni til mikillar ánægju hittir hún
aftur myndarlega manninn úr veit-
ingahúsinu og hann býður henni út.
Kennarinn Ian Miller (John Corb-
ett) er nokkurn veginn fullkominn.
Hann er hávaxinn, myndarlegur, gáf-
aður, góðhjartaður og alveg að falla
fyrir Toulu. En það eru samt tvö smá-
atriði sem standa í veginum fyrir
hamingju þeirra. Ian er hvorki Grikki
né grænmetisæta. Þegar Ian ber loks
upp bónorðið verður Toula að standa
sem sáttaraðili milli snobbaðra yfir-
stéttarforeldra Ians og grískra verka-
mannaforeldra sinna. Ekki má svo
gleyma brúðkaupsveislunni, sem
móðir brúðarinnar vill halda undir
formerkjunum: „Því meira, því
betra“.
Leikarar: Nia Vardalos (Men Seeking
Women, Meet Prince Charming); John
Corbett (Flight of the Intruder, Volcano,
My Dinner); Michael Constantine (The
Juror, My Life, Deadfall); Lainie Kazan
(Lust in the Dust, St. Elsewhere, The
Paper Chase); Andrea Martin (Wag the
Dog, All I Want for Christmas); Joey Fat-
one (On the Line, The Bros). Leikstjóri:
Joel Zwick.
Ástin nær en
fjölskyldan fjær
Nia Vardalos og John Corbett í
hlutverkum sínum í myndinni
My Big Fat Greek Wedding.
Smárabíó og Regnboginn frumsýna
Hart’s War með Bruce Willis, Colin
Farrell, Terrence Howard, Cole Haus-
er, Marcel Iures og Linus Roache.
BRUCE Willis fer með aðalhlut-
verkið í stríðsmyndinni Hart’s
War, sem Gregory Hoblit leikstýr-
ir, en hann hefur m.a. áður sent frá
sér myndirnar Primal Fear, Fallen
og Frequency. Framleiðendur
myndarinnar, sem kemur frá
Metro-Goldwyn-Mayer, eru auk
leikstjórans Arnold Rifkin, David
Ladd og David Foster. Handrit
skrifuðu Billy Ray og Terry
George upp úr sögu John Katzen-
bach, sem byggð er að hluta til á
reynslu föður hans, Nicholas Kat-
zenbach. Hann lifði af fangavist
Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni
og þjónaði m.a. síðar sem æðsti lög-
fræðilegur ráðunautur í forsetatíð
Lyndon Johnson.
„Eftir því sem árin liðu varð mér
ljóst að lítið sem ekkert hafði verið
talað á heimilinu um þetta tímabil í
lífi föður míns svo að ég fór sem rit-
höfundur að spyrja föður minn
spurninga um þessa reynslu hans.
Fljótlega sá ég fyrir mér að saga
hans gæti þróast í áhugaverða og
leyndardómsfulla spennufrásögn.
Ég settist því niður og hóf að skrifa
fyrstu línurnar í Hart’s War,“ segir
bókarhöfundurinn John Katzen-
bach.
Bandaríski ofurstinn William
McNamara, sem leikinn er af Will-
is, er handtekinn og fangelsaður í
hrikalegum fangabúðum Þjóðverja
í seinni heimsstyrjöldinni, en sögu-
sviðið er veturinn 1944. Hann neit-
ar að gefast upp, en bíður átekta
eftir rétta tækifærinu til að berjast
gegn óvininum. Morð í fangabúð-
unum gefur honum svo þetta rétta
tækifæri, en afleiðingarnar gætu
orðið honum og hans mönnum afar
dýrkeyptar. Hann leggur samt á
ráðin með aðstoð undirforingjans
Thomas W. Hart, sem handsamað-
ur hafði verið af Þjóðverjum í Belg-
íu og fluttur í sömu fangabúðir.
Þegar svo tveir þeldökkir flugmenn
eru sendir í sömu herfangabúðir
verður uppi fótur og fit og fljótlega
fer að bera á kynþáttahatri innan
veggja fangelsisins. Svo virðist sem
rétta tækifærið skapist til að flýja
örlögin þegar hvítur maður finnst
myrtur, en annar svartur er helst
grunaður um verknaðinn.
Leikarar: Bruce Willis (Die Hard, The
Sixth Sense, Unbreakable); Colin
Farrell (Tigerland, American Outlaws,
Ordinary Decent Criminal); Terrence
Howard (The Best Man, Angel Eyes,
Glitter); Cole Hauser (Man of War,
Tigerland, A Shot at Glory); Marcel
Iures (The Peacemaker, Mission:
Impossible, Interview with the Vamp-
ire); Linus Roache (Pandemonium,
Siam Sunset, The Venice Project).
Leikstjóri: Gregory Hoblit.
Stríð í fangabúðum
Bruce Willis lætur ekki bugast.
Úr myndinni Hart’s War.