Morgunblaðið - 21.06.2002, Page 28
LISTIR
28 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Bandalag íslenskra skáta
Landsátak um „Íslenska fánann í öndvegi“
Útdráttur 17. júní 2002
VW Bjalla, sjálfskipt, frá Heklu hf.
kr. 2.140.000
15305 47408 109854
4926 14400 27797 47739 60252 67827 78769 89855 102980 111442
5049 14812 32123 53619 60439 68317 79200 91913 104153 115392
7236 15371 33711 54119 60942 68338 79458 93647 106502 115986
7783 15526 34037 54465 62142 70710 79709 95299 106599 116621
9167 16835 37078 55178 62559 71738 80071 96409 107914 117119
9392 18726 42684 56516 63070 72606 80186 98221 109524 118820
9880 20934 43186 57130 63961 73036 82886 101168 109546 120982
11473 20945 45331 57573 65107 73044 83632 102148 110331 124589
12250 22713 46881 59216 65652 74690 85437 102343 110880 124904
13856 27363 47449 59973 67599 78091 86875 102839 110985 126808
33 11924 27270 38006 49373 60903 75008 91219 104471 115851
582 11928 27501 38076 49623 61117 75212 91317 105374 116065
586 12371 27513 38428 49909 61373 75272 91329 105383 116932
818 12996 27884 38461 50424 61488 75591 91422 105477 117005
1079 13293 27906 38583 50428 61571 76749 92022 105493 117160
1133 13450 28287 38669 50445 61709 77197 92466 105652 117272
1186 13617 28477 38773 50458 61913 78447 92717 106194 117582
1235 13812 28609 38825 50816 62170 78802 92786 106424 118003
1344 14059 28932 39006 51491 62336 78897 92864 106665 118020
1415 14162 29100 39007 51824 62506 79089 93074 106983 118809
1571 14421 29617 39216 52065 62540 79135 93201 107047 118823
2991 14673 29756 39331 52561 62656 79239 93232 107119 119179
3253 15261 29843 39658 52631 62872 79450 93250 107120 119250
3434 15334 29898 40194 52854 63188 79552 93778 107382 119494
3450 15406 30158 40842 52938 63377 79686 93792 107857 119639
3451 16373 30170 41074 53081 63925 80036 94073 108065 119833
3581 17375 30674 41399 53234 64055 80254 94362 108167 119889
3612 17447 30762 41661 53306 64151 80440 94840 108207 119929
3893 17576 30857 41815 53648 64634 80701 95070 108343 120114
3909 17723 30953 41877 53741 64869 80731 95589 108470 120243
3932 18028 31009 41966 54091 65196 80978 96147 108548 120520
4170 18165 31012 42693 54103 65600 81109 96644 108622 120572
4310 18173 31576 42817 54107 65698 81369 96814 109221 120739
4341 18512 31636 42975 54675 66350 82302 97465 109567 121834
4440 18612 33328 43200 54931 66378 82362 97693 109598 121947
4609 18851 33411 43201 55852 66428 82419 97785 109601 121953
5241 19216 33538 43418 56227 67482 82659 98843 109763 121974
5372 19267 33578 43686 56402 69045 82816 98988 109817 122155
5464 20159 33900 43899 56510 69047 82999 99201 109889 122222
5480 20456 34029 43949 57229 69114 83024 99520 109938 122420
5738 20916 34097 44165 57534 69813 83634 99583 110075 122526
5870 21377 34151 44277 57635 70022 84179 99643 110415 122862
5875 22123 34790 44806 57994 70059 84509 99969 110764 122998
5888 22246 34889 45690 58377 70394 84639 100021 110775 123162
6171 22980 35233 45803 58449 70430 84787 100030 110998 123619
6351 23002 35238 45845 58658 70915 85100 100522 111534 123665
6734 23162 35434 45991 58820 71597 85737 100769 111620 123729
8976 23621 35645 46120 59083 71615 87102 100893 111768 123803
9021 23894 35680 46150 59099 71630 87272 101080 112126 124004
9121 23897 36206 46218 59287 72478 88007 101321 112130 125041
9243 24310 36223 46423 59734 73143 88746 101558 112257 125354
9377 24530 36534 46604 59874 73388 88823 101685 112562 125457
9527 24704 36706 46916 59892 73392 89996 101956 112563 125609
9604 25365 36755 46918 59914 73626 90066 102257 113449 125787
10372 25726 36868 46995 59970 73775 90344 102318 113469 126922
10493 25771 37050 47201 60117 74048 90366 102420 113734 126961
10755 25863 37314 47291 60294 74179 90398 102739 114423 126967
10996 25881 37634 47745 60302 74371 90693 102754 114609 127527
11077 25947 37831 48109 60345 74470 90909 102960 115249 127681
11633 26186 37937 49070 60729 74689 91170 103121 115525 127857
Reiðhjól og fylgibúnaður frá Erninum kr. 50.000
566 12807 22956 31910 45085 56370 70746 82924 99484 112283
1523 13245 23542 32244 45321 56959 71434 84219 99685 113603
1721 13246 23993 32265 45680 58150 72366 84697 100455 113682
1839 13553 24186 32970 46442 59400 73456 85836 101330 114197
2394 13809 24234 34043 46553 59762 74297 87184 101478 115081
2743 14110 24268 34124 46958 60245 74427 88298 102522 115084
3436 14248 24380 34706 47127 60472 74512 89028 103160 116296
3812 14366 24612 35070 47171 60613 74938 89607 103469 116672
4335 15053 25178 35737 47350 60717 75256 89702 103596 117650
4659 15675 25315 36966 48185 60840 75532 90531 104089 117795
4931 15861 25334 37936 49604 60973 76301 90540 104119 118015
5753 16031 25706 38485 49674 61620 76396 91093 104601 118390
5906 16091 25843 38541 49994 61854 77977 91439 104736 118903
6221 16786 26523 38677 50509 62840 78255 91566 105973 119017
6634 17620 28279 40070 50677 62948 78380 91647 106245 119206
8534 17990 28416 40246 51471 63062 79249 91814 106824 120149
8835 18384 28570 40379 52209 63109 79996 92044 108239 120618
8940 18765 28994 40687 53317 63228 80363 92388 108821 120642
9501 18786 29611 42811 53338 63978 80519 93377 109612 120856
9832 19044 29614 42874 53998 64452 80524 93711 109883 121735
10626 20326 29729 42908 54743 65896 80653 94048 110107 122227
11025 21049 29932 42921 55854 66669 81273 96018 110468 124857
11181 22747 30023 43134 55879 67880 81447 96979 110481 124890
11664 22859 31520 43248 55907 68867 81830 97467 111261 126659
11981 22916 31908 44883 56112 69867 82900 98829 111590 127017
Vöruúttekt í Kringlunni kr. 25.000
Sælkeramáltíð fyrir tvo frá Sigga Hall. kr. 11.800
Birt á ábyrgðar
Upplýsingar um vinninga í síma 550-9800 á skrifstofutíma.
Þökkum landsmönnum góðan stuðning. Gleðilegt sumar.
ÞRIÐJU og síðustu tónleikar
Bjartra sumarnótta fóru fram í
Hveragerðiskirkju á sunnudaginn
var við fjölmenni. Efstur á blaði
var yngsta tónskáldið í rómantísku
þrístirni Tékka sem hófst á Smet-
ana og Dvorák, Leos Janacek, sem
kannski er kunnast fyrir óperuna
Jenùfu. Eins og Gunnar Kvaran
kynnti brá Janacek, er fremst af
hafði verið undir áhrifum frá síð-
rómantík Dvoráks, stílvoðum til
nýrri vegar nokkru áður en loka-
gerð hins þríþætta ævintýrs hans
án orða, Pohádka (1910) fyrir selló
og píanó, kom til sögunnar árið
1923, enda vottaði þar bæði fyrir
impressjónískri litadýrð og ný-
klassískum efnistökum. Þetta fal-
lega ýmist draumkennda eða
spræka verk, með fjölda griplaðra
staða í sellói og m.a. kunnuglega
hljómandi lýdísku þjóð-
lagaferli, léku þau
Bryndís Halla og Peter
af mikilli en sveigjan-
legri tilfinningu; allt að
því „déchainé“ eins og
franskir segja. Hið eina
sem úr dró var tæpast
á þeirra valdi, því end-
urkast hins nýlega
teppasvipta steingólfs
átti til að ljá hljómi
slaghörpunnar óþarfa
hörku við sterkan
áslátt.
Íslenzku gullaldar-
sönglögin voru að því
loknu í fyrirrúmi hjá
Sólrúnu Bragadóttur og Miklos
Dalmay. Líkt og með Schubertlög-
in um föstudagskvöldið var nið-
urröðun breytt á síðustu stundu og
skal engum getum að leitt hvort
bent gæti til naums æfingartíma.
Þó að textaframburður mætti
stundum vera skýrari, var eins og
framlægu íslenzku samhljóðin
hleyptu meiri birtu í dimmleita
sópranröddina sem virtist aftur
leiða til hlutfallslega sveigjanlegri
tónbeitingar miðað við þýzku lögin
tveim dögum fyrr. Víðir eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson var
tignarlega sungið og Nafnið (Árni
Thorsteinsson) var túlkað af fág-
aðri depurð. Dáið er allt án
drauma (Jón Þórar-
insson) virtist manni
aðeins ofkeyrt í
styrk, en Við Gang-
es (Stefán Á. Krist-
jánsson) lumaði aft-
ur á móti á býsna
innlifaðri textatúlk-
un. Tvö lög voru þá
eftir, bæði úr smiðju
Atla Heimis Sveins-
sonar, þegar hið
fremur óvenjulega
gerðist að höfundur
steig á stokk til að
fylgja nýju lagi sínu,
Andvakan við ljóð
Ástu Sigurðardótt-
ur, úr hlaði.
Komst tónskáldið vel að orði og
var forkunnarvel tekið af áheyr-
endum. Að svo búnu var fyrst flutt
Álfaríma, dulúðugt lag og að mestu
á afar lágværum nótum, en síðan
frumflutt Andvakan, þar sem Atli
kvaðst hafa leitazt við að lýsa ör-
vinglun ljóðsins líkt og bældu „ópi“
norska málarans Edvards Munchs.
Miðað við módernískan stíl og
ágengan píanópart komst textinn
furðuvel til skila í andstæðuríkri
túlkun dúósins, og skipti þar ekki
minnstu að flestar söngstrófurnar
voru sungnar án undirleiks inn á
milli átakamikilla kafla þar sem
slagharpan byltist í öngum sínum
eins og helsært rándýr. Bætti þó
enn um betur fyrir textaviðtöku
hvað sönglínurnar voru óvenju-
sönghæft skrifaðar með eðlilegum
tónbilum, sérstaklega ef dæmi-
gerður risastökkvastíll margra nú-
tímatónhöfunda er hafður í huga.
Lagið var stutt (um 2:40) en e.t.v.
því áhrifameira fyrir vikið og bráð-
vel flutt af þeim Sólrúnu.
Kvöldinu og tónlistarhátíðinni
lauk með engu minna en stór-
brotnu meistaraverki í flutningi
Tríós Reykjavíkur, Sifjar Tulinius
og Guðmundar Kristmundssonar,
nefnilega Kvintetti Dmitris Sjost-
akovitsjar fyrir píanó og strengja-
kvartett Op. 57 sem saminn var ör-
lagaárið 1940. Verkið var fimm-
þætt og spannaði ótrúlega vítt
tilfinningasvið – allt frá barnslegri
viðkvæmni, sammannlegri depurð
og draumhuga dulúð yfir í grá-
lynda kerskni og miskunnarlausa
vígvélagrimmd. Eðlilega kviknuðu
hugsanir hlustandans um aðsteðj-
andi ógn stríðsins (ekki var þá enn
farið að syrta í álinn fyrir Rússum
að vestan) og nærtækari hrylling
höfundarins heima fyrir við harð-
stjórn ofsóknarbrjálaðs Kremlar-
bónda. Samanburður kynnisins á
þessum aðstæðum við heyrnar-
missi Beethovens – í báðum til-
vikum andlegt áfall sem engu að
síður náði að magna fram listræn-
an sigurvilja – hitti beint í mark og
kynti án efa gerr undir meðtöku
áheyrenda.
Víðfeðmur hugmyndaheimur
verksins og áhrifamiklar andstæð-
ur þess voru engu líkar. Eftir tig-
indapra hæggenga fúgu (II.) glotti
fyrirvaralaust gróteskur gaddgirt-
ur Hrunadans við stáltönn í III.
þætti („Scherzo“), og síðan kom
upphafið Intermezzo við hægt tif-
andi örlagaþrungna bassalínu rölt-
andi fetið undir niðri. Fínallinn
(V.) líkt og sameinaði undangengin
geðhrif, með ögurstundar kyrrð-
arpunkti í miðju og m.a. óborg-
anlegum gálgahúmor fólgnum í
smeðjulegri krómatík á einum
stað, líkt og þegar Högni hló forð-
um þá hjarta úr skáru kvikum
kumblasmið.
Hér var sannarlega komið við
andans kaunin og horfzt í augu við
örlögin af karlmennsku. Og þó að
spilamennskan væri kannski ekki
alltaf jafnlýtalaus og í bezt klipptu
hljóðritum, var mest um vert hvað
leikið var af lífi og sál svo öll iður
andans lágu úti. Enda fór vart
fram hjá neinum hlustanda þessa
eftirminnilegu kvöldstund að hann
hafði upplifað eitt áhrifamesta
kammerverk 20. aldar.
Horfzt í augu við örlögin
Ríkarður Ö. Pálsson
TÓNLIST
Hveragerðiskirkja
Janacék: Pohádka. Íslenzk sönglög eftir
Árna Thorsteinsson, Stefán Á. Krist-
jánsson, Jón Þórarinsson, Sveinbjörn
Sveinbjörnsson og Atla Heimi Sveinsson
(frumfl. Andvakan). Sjostakovitsj: Píanó-
kvintett Op. 57. Sólrún Bragadóttir sópr-
an, Tríó Reykjavíkur (Guðný Guðmunds-
dóttir, fiðla; Gunnar Kvaran, selló; Peter
Máté, píanó), Miklos Dalmay, píanó;
Guðmundur Kristmundsson, víóla; Bryn-
dís Halla Gylfadóttir, selló. Sunnudaginn
16. júní kl. 20:30.
KAMMERTÓNLEIKAR
Sólrún Bragadóttir
ÞÓTT Woody Allen sé eitt af mín-
um almestu uppáhöldum, þá get ég
ekki sagt að félagi Allen klikki aldrei.
Þessi seinustu misseri verður maður
bara að vona það besta þegar maður
sér nýtt verk snillingsins. Og nú er
gaman. Bölvun græna sporðdrekans
er skemmtileg og margslungin
mynd, sem sýnir að Allen veit alltaf
upp á hár hvað hann er að gera.
Honum hafa lengi verið hugleikin
hin ýmsu skemmtanaform amerískr-
ar alþýðu í gegnum tíðina. Hér notar
hann í bakgrunn myndarinnar dá-
leiðslu og dávalda sem tröllriðu öllu,
sérstaklega á austurströnd Banda-
ríkjanna, á fjórða áratug seinustu
aldar. Og myndin, sem gerist 1940,
er einmitt í anda þeirra léttu og
skemmtilegu grínmynda sem Kan-
inn var svo góður í á þeim tíma. Samt
glæpamynd svona í anda The Thin
Man, með kvennabaráttuanda
kannski dulítið líkt Adam’s Rib.
Jæja, hvað um það. C. W. Briggs
(Allen) og Betty Ann Fitzgerald
(Hunt) vinna saman hjá tryggingar-
rannsóknafyrirtæki. Hann sem sér-
lundaður en virtur rannsóknargæi,
en hún er nýkomin í fyrirtækið til að
endurskipuleggja, honum til mikillar
armæðu. Og þau þola ekki hvort ann-
að. Hann er ótrúleg karlremba með
hnyttnu tilsvörin á reiðum höndum,
og hún er ung kona að brjótast út úr
hinu viðgengna munstri og kann að
svara fyrir sig. Samtöl þeirra eru
dásamlegur kapítuli út af fyrir sig,
þótt karlremban fari alltaf yfir strik-
ið. En sem sagt, þau lenda í því að
vera dáleidd og fremja glæpi í
ástandinu, og þurfa sjálf að leysa
málið. Á meðan sitjum við og hlæjum
að þeim greyjunum. En þetta er ekki
bara grín og glæpir, heldur einnig
rómantísk gamanmynd og með svo-
litlum sálfræðiundirtóni, eins og All-
ens er von og vísa. Hann leyfir ekki
klassísku týpunum úr gömlu mynd-
unum að lifa óáreittum, hann verður
að gefa þeim smá dýpt.
Það er bara eitt sem angrar mig.
Hvernig tókst dávaldinum að skipu-
leggja þetta svona heppilega? Æi, á
maður nokkuð að vera að velta sér
upp úr þannig smámunum?
Glæpur, grín, ást
og undirtónar
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
Leikstjórn og handrit: Woody Allen. Kvik-
myndataka: Zhao Fei. Aðahlutverk:
Woody Allen, Helen Hunt, Dan Akroyd og
Charlize Theron. Þýs/USA 103 mín.
DreamWorks Dist. 2001.
THE CURSE OF THE JADE SCORPION
Hildur Loftsdóttir