Morgunblaðið - 21.06.2002, Page 29
Erna Guðrún Agnarsdóttir er
forstöðumaður við námsbraut í
geislafræði. Nám í geislafræði
tekur 4 ár og lýkur með BSc-
gráðu. Námið er bóklegt og
verklegt og fer kennsla fram í
Tækniháskóla Íslands, en verk-
nám fer fram á Landspítala há-
skólasjúkrahúsi Fossvogi og
Hringbraut, hjá Lækn-
isfræðilegri Myndgreiningu og
víðar.
Nýtt heiti á námsbraut: Á
árinu breyttist starfsheiti rönt-
gentækna í geislafræðing sam-
kvæmt reglugerð heilbrigðis-
og tryggingarmálaráðuneytis
nr. 185/2001. Þetta starfsheiti
þykir lýsa starfi og námi mun
betur. Um leið breyttist heiti
námsbrautarinnar í geislafræði
í stað röntgentækni.
Hlutverk námsbrautar í
geislafræði er :
Að miðla sérhæfðri, fræðilegri
þekkingu og verklegri þjálfun í
læknisfræðilegri myndgerð,
þannig að nemendur geti tekist
á við krefjandi störf á sviði
myndgerðarfræða og við
umönnun skjólstæðinga sinna.
Að veita grunnmenntun sem
gerir nemendum kleift að
stunda framhaldsnám og rann-
sóknir. Að vera í fararbroddi
við að miðla nýjungum í mynd-
gerðarfræðum og innleiða þær í
námið á hverjum tíma.
Að stuðla að öflugum tengslum
milli námsbrautar og atvinnulífs
með hagnýtum verkefnum,
rannsóknum og þróunarstarfi
og framboði á símenntun.
Að námi loknu á sá sem
brautskráist frá námsbrautinni:
Að sýna víðtæka þekkingu og
fagmennsku sem gerir hann
hæfan til að takast á við krefj-
andi störf geislafræðings.
Að sýna frumkvæði, sjálfstæði
og samskiptahæfni við marg-
víslegar kringumstæður sem
upp kunna að koma í störfum
geislafræðings.
Að sýna frumkvæði og faglegar
starfsaðferðir m.a. með því að
stunda rannsóknir og símennt-
un í faginu og leitast sífellt við
að auka hæfni sína.
Að sýna fagmennsku og frum-
kvæði með því að stuðla sífellt
að bættri þjónustu, bættu
starfsumhverfi og árangurs-
ríkum samskiptum við skjól-
stæðinga og samstarfsfólk.
Námsbraut í geislafræði við Tækniháskólann
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 29
NÝ LÖG um TækniháskólaÍslands tóku gildi 1. júnísíðastliðinn og markaþau tímamót í starfi
Tækniskóla Íslands, sem hóf starf-
semi árið 1964. Skólinn var stofnaður
í því skyni að auka verkmenntun í
landinu, með því að veita iðnaðar-
mönnum vettvang hérlendis til að
stunda nám við sitt hæfi á háskóla-
stigi, þ.e. tæknifræðinám. Á þessum
38 árum sem liðin eru hefur náms-
framboð skólans aukist jafnt og þétt
með meinatækni, iðnfræði, útgerðar-
tækni sem var undanfari iðnrekstr-
arfræði, alþjóðamarkaðsfræði, vöru-
stjórnun, geislafræði, iðnaðartækni-
fræði og tölvu- og upplýsingatækni-
fræði.
Auk bóknáms hefur frá upphafi
verið krafist verklegrar kunnáttu og
a.m.k. 6–24 mánaða starfsreynslu til
inngöngu í sérgreinadeildir skólans.
Framan af sóttu skólann aðallega
iðnaðarmenn í byggingum, vélum og
rafmagni. Fyrstu árin voru bygg-
ingamenn í meirihluta en smám sam-
an tóku rafmagnsmenn forystu. Með
tilkomu iðnrekstrarfræði urðu inn-
gönguskilyrði almennari. Á undan-
förnum árum hefur sókn nýnema
verið langmest í rekstrarnám. Til
inngöngu í frumgreinadeild hafa gilt
sömu skilyrði og í sérgreinadeildir
hvað verkleg inntökuskilyrði varðar.
Meinatækni og geislafræði hafa haft
þá sérstöðu að svo til alla tíð hefur
verið gerð krafa um stúdentspróf til
inngöngu.
Náin tengsl við atvinnulífið
Skólinn hefur jafnan lagt áherslu á
að kennarar hans séu í nánum
tengslum við atvinnulífið á viðeig-
andi fagsviði. Fastráðnir kennarar
hafa verið um þriðjungur af kennara-
liði og reyndar er það hlutfall miklu
lægra ef með er talinn allur fjöldi
sérfræðinga sem kemur að kennslu í
einstökum deildum. Kennarar sér-
greinadeilda kenna einnig í aðfarar-
náminu, frumgreinadeild, og þykja
þannig tryggja markvissari undir-
búning fyrir sérnámið.
Frá því að rammalöggjöf um há-
skóla var sett (nr. 136/1997) hafa
ýmsir hagsmunaaðilar togast á um
stöðu skólans innan menntakerfisins
og oft á tíðum mikil óvissa ríkt um
framtíð hans. Með hinum nýju lögum
um Tækniháskóla Íslands er þeirri
óvissu nú eytt og framtíðaruppbygg-
ingu skólans tryggt brautargengi.
Kennsla
Oddný Árnadóttir, forstöðumaður
alþjóðaskrifstofu og kynningar-
fulltrúi skólans, segir að meginmark-
mið kennslunnar sé að mæta þörfum
atvinnulífsins hverju sinni og bjóða
upp á námsgreinar þar sem fléttað er
saman kennslu og verkefnabundnum
rannsóknum á einstökum sviðum á
þann hátt að það nýtist atvinnulífinu
sem best. „Það er stefna skólans að
vera í fararbroddi á þessu sviði með
fjölbreytileika náms og gæði kennslu
að leiðarljósi,“ segir hún og bætir því
við að gæðakannanir hafi verið gerð-
ar um nokkurra ára skeið og stöðugt
sé unnið að endurbótum á þeim en
jafnframt er verið að hanna þjón-
ustukönnun sem verður notuð í
framtíðinni og á að gefa gleggri
mynd af heildarupplifun nemenda.
Axla ábyrgð
„Til þess að nemendur geti öðlast
þann þroska sem þarf til þess að geta
aflað sér þekkingar og sinnt upplýs-
ingaleit á sjálfstæðan og gagnrýninn
hátt, er gert ráð fyrir því að þeir axli
ábyrgð á námi sínu,“ segir Oddný.
„Einnig verður kennslufyrirkomu-
lag með þeim hætti að gert er ráð
fyrir virkri þátttöku nemenda, ásamt
fjölbreyttum kennsluaðferðum og
námsmati.“ Auk þess er þeim gert
kleift að taka hluta af námi sínu á er-
lendri grundu og geta þeir fengið
styrki til þess. Oddný nefnir að
Tækniháskólinn taki þátt í Socrates,
Leonardo og Nordplus verkefnun-
um. „Mikill vöxtur hefur verið í al-
þjóðlegu samstarfi síðustu ár og
markmiðið að auka það enn frekar
með innleiðingu alþjóðadaga í daga-
tal skólaársins,“ segir hún.
Innan deilda skólans verður stöð-
ugt unnið að endurskoðun og lagfær-
ingum á markmiðum kennslunnar og
markmið hvers áfanga rýmd m.t.t.
þess. Starfandi verða faghópar sem
hafa með höndum skipulagningu og
aðlögun námsefnis að þörfum ein-
stakra deilda og námsbrauta. Settar
verða leiðbeiningar um kennslu og
kennsluhætti, fyrirkomulag fyrir-
lestra, verkefna- og heimavinnu
nemenda, æfingar, umræðutíma,
verkþjálfun, framkvæmd prófa og
fyrirkomulag námsmats eða símats.
Einnig æskilega stærð nemenda-
hópa og kennslurýmis.
„Þá er unnið að því að koma á fót
meistaranámi í einstökum greinum, í
samstarfi við innlendar sem erlendar
menntastofnanir,“ segir hún. Enn
fremur sé símenntun og endur-
menntun þeirra sem lokið hafa námi
frá THÍ sífellt að verða mikilvægari
og unnið verði að þessum þætti innan
viðkomandi sviða skólans, í sam-
vinnu við hagsmunaðila.
Komið hefur verið á faglegu sam-
starfi við kennslusvið / Kennslumið-
stöð Háskóla Íslands og aðrar há-
skólastofnanir varðandi þróun
kennsluaðferða og kennslutækni
sem og um gæðamat á kennslu.
Námsframboð
Sérstaða skólans felst í þeim nem-
endum sem þar stunda nám, starfs-
anda og þeirri samkennd sem ríkir
meðal nemenda og starfsmanna.
Námsframboð hefur alltaf miðast við
að uppfylla kröfur atvinnulífsins og
jafnframt snúist um þarfir nemenda.
„Margir af nemendum skólans koma
beint úr atvinnulífinu með margvís-
lega reynslu og þekkingu, til áfram-
haldandi náms á þeim sviðum sem
þjóðfélagið þarfnast mest,“ segir
Oddný og að gerðar séu margvísleg-
ar ráðstafanir til þess að auðvelda
nemendum að byrja í námi á nýjan
leik, en það á við um stóran hluta ný-
nema við Tæknisháskólann að vera
ekki að koma beint úr öðru námi. Öll-
um nýnemum býðst að taka nám-
skeið í nýjum og bættum vinnu-
brögðum við upphaf náms þeim að
kostnaðarlausu, auk annarra nám-
skeiða á námstímanum.
Sjö kennsludeildir
Kennsludeildir skólans nú eru sjö:
frumgreinadeild, byggingadeild, raf-
magnsdeild, véladeild, rekstrardeild,
iðnaðartæknifræði og heilbrigðis-
deild.
Frumgreinadeildin er fjögurra
anna nám á framhaldsskólastigi.
Deildinni er fyrst og fremst ætlað að
tryggja verkmenntuðu fólki viðhlít-
andi undirbúning að námi í sér-
greinadeildum skólans. Frá og með
hausti 2002 gefst þeim, sem lokið
hafa prófi úr iðnskóla eða sambæri-
legu prófi, kostur á því að fara beint
inn á 2. önn og ljúka þessu námi á
þremur önnum í stað fjögurra. Í
frumgreinadeild gefst stúdentum
jafnframt kostur á að rifja upp eða
bæta við sig í stærðfræði og raun-
greinum á einni til þremur önnum
með hliðsjón af fyrra námi þeirra.
Eftir 2. önn í frumgreinadeild geta
nemendur farið í bygginga-, raf-
magns- og véliðnfræði, sem m.a. gef-
ur þeim meistararéttindi. Jafnframt
geta þeir nemendur sem eru 25 ára
eða eldri farið í iðnrekstrarfræði að
lokinni 2. önn hafi þeir góða starfs-
reynslu að auki. Námi í frumgreina-
deild lýkur með raungreinadeildar-
prófi. Þetta próf veitir rétt til að
hefja nám í öllum deildum Tæknihá-
skólans, þ.e. í tæknifræðideildum,
rekstrardeild og heilbrigðisdeild auk
náms í öðrum háskólum, innlendum
sem erlendum.
Diplomanám og
tæknifræði
Diplomanám í iðnfræði er í boði í
byggingadeild, rafmagnsdeild og
véladeild og iðnfræðingar geta tekið
framhaldsnám. Tæknifræðinám til
BSc-gráðu er nú í boði í bygginga-
deild, rafmagnsdeild, véladeild og
iðnaðartæknifræði. Iðnrekstrar-
fræði er fjögurra anna nám í rekstr-
ardeild og útskrifast nemendur af
rekstrar- eða markaðssviði. Einnig
er í boði framhaldsnám til BSc-gráðu
fyrir rekstrarfræðinga annars vegar
í vörustjórnun og hins vegar í al-
þjóðamarkaðsfræði. Í heilbrigðis-
deild eru tvær námsbrautir, meina-
tækni og geislafræði. Um er að ræða
4 ára nám sem lýkur með BSc-gráðu.
Tækniháskóli Íslands/ Tímamót urðu um liðin mánaðamót í Tækniskóla Íslands, því þá tóku ný lög gildi um hann. Skólinn á sér 38
ára sögu. Gunnar Hersveinn spurði Oddnýju Árnadóttur kynningarfulltrúa um kennslu og framboð Tækniháskólans. Skólinn
hefur jafnan lagt áherslu á að kennarar hans séu í nánum tengslum við atvinnulífið á viðeigandi fagsviði.
Öflugur
tækni-
háskóli
Unnið að því að koma á fót meist-
aranámi í einstökum greinum
Mikill vöxtur hefur verið í alþjóð-
legu samstarfi síðustu ár.
Morgunblaðið/Golli
Jóhanna Þ. Jónsdóttir, Elísabet Grétarsdóttir og S. Rósa Viggósdóttir, nemendur í Tækniháskóla Íslands fengu ný-
lega viðurkenningu fyrir framúrskarandi verkefni í Evrópukeppni samstarfsnets tækniskóla, Prime Networking.
TENGLAR
.....................................................
www.ti.is
guhe@mbl.is
Námsbraut í geislafræði við THÍ hefur fengið viðurkenningu bresku
Röntgentæknisamtakanna. Hér eru nokkrir þáverandi nemendur
(2000) í geislafræði með kennurum á röntgendeild Landspítalans.