Morgunblaðið - 21.06.2002, Side 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 35
EXTRAVAGANT
HÁRNÁKVÆMUR MASKARI SEM
MARGFALDAR AUGNHÁRIN.
MÖGNUÐ AUGNHÁR, ÞÉTT, LÖNG OG AÐSKILIN.
Helena Rubinstein er sérfræðingur í augnháralitum.
Nú er kominn nýr magnaður maskari á markaðinn.
Útsölustaðir: Ársól Grímsbæ, Gullbrá Nóatúni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hygea Kringlunni,
Hygea Laugavegi 23, Libia Mjódd, Mist Spönginni, Sara Bankastræti 8, Sigurboginn Laugavegi 80,
Andorra Strandgötu Hafnarfirði, Bylgjan Hamraborg Kópavogi, Hygea Smáralind, Fína Háholti Mosfellsbæ.
Landið: Hjá Maríu Hafnarstræti Akureyri, Bjarg Stillholti 14 Akranesi, Hilma Garðarsbraut 18 Húsavík,
Konur og Menn Hafnarstræti 9 Ísafirði, Myrra Austurvegi 4 Selfossi, Miðbær Miðstræði 14 Vestmannaeyjum.
w
w
w
.h
el
en
ar
ub
in
st
ei
n.
co
m
GIMLI GIMLI
FASTEIGNASALAN GIMLI, GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - 570 4810
Björt og afar rúmgóð 3ja
herb. íbúð á 2. hæð í vel
viðhöldnu fjölbýli (4 íbúðir
í stigagangi). Íbúðin er um
80 fm. Í kjallara er
aukaherbergi og sér-
geymsla. Stigagangur
nýlega málaður. Sjarm-
erandi íbúð á spennandi
stað. Verð 11,9 millj.
Áhv. 0,7 millj.
ÆGISGATA - LAUS STRAX
ÞESSI pistill er svar
við grein eftir Hjörleif
Þórarinsson lyfjafræð-
ing sem birtist nýlega
undir nafninu „Hinn
hættulegi gamanleikur
Panódíl fyrir tvo“ í tíma-
ritinu Lyfjatíðindi.
Lyfjatíðindum er dreift
til lækna, lyfjafræðinga
og nokkurra annarra
heilbrigðisstarfsstétta.
Ábyrgðarmaður þessa
tímarits er blaðamaður
en ritstjórnin er fólk
sem starfar hjá lyfjafyr-
irtækjum. Hjörleifur
skrifar þessa grein sem
formaður Lyfjahóps
Samtaka verslunarinnar – FÍS (Fé-
lag íslenskra stórkaupmanna).
Í þessari grein er vegið að starfs-
heiðri undirritaðs og á ýmsan hátt
hallað réttu máli og finn ég mig þess
vegna knúinn til að leiðrétta og út-
skýra það sem Hjörleifur segir.
Forsaga málsins er að ég hef árum
saman haft áhyggjur af samskiptum
lækna og lyfjaframleiðenda og þeim
aðferðum sem beitt er til að hafa áhrif
á lyfjaval lækna. Ég hef oft skýrt frá
þessu í fjölmiðlum og vona að það hafi
borið einhvern árangur. Ég skrifaði
grein í Læknablaðið í apríl sl. þar
sem komið var inn á þessi mál og í
framhaldi af því boðaði áður nefndur
Lyfjahópur til málfundar undir yfir-
skriftinni „Mútur eða miðlun upplýs-
inga“ og í framhaldi af fundinum var
nokkur umfjöllun um málið í fjölmiðl-
um, einkum sjónvarpi. Í þessari um-
ræðu lýsti ég enn áhyggjum mínum
af samskiptum lækna og lyfjafram-
leiðenda og því hvernig sumir lyfja-
framleiðendur reyna með óeðlilegum
hætti að hafa áhrif á lyfjaval lækna, á
lyfjarannsóknir og ekki síst á það
hvaða rannsóknaniðurstöður eru
birtar og hverjar ekki. Allt eru þetta
vel þekktar staðreyndir, bæði erlend-
is og hérlendis, og eru nýleg dæmi
um að slík samskipti hafi leitt til op-
inberra rannsókna og réttarhalda yf-
ir læknum og lyfjafyrirtækjum, m.a. í
Hollandi, Þýskalandi og Bandaríkj-
unum. Um allt þetta er talsvert skrif-
að erlendis, bæði í læknisfræðitíma-
rit, vikublöð og dagblöð. Nú er svo
komið að mörg virt fagtímarit og um-
sjónaraðilar erlendra læknaráð-
stefna gera þá kröfu að þeir sem
kynna rannsóknir sínar á þeim vett-
vangi verða að gera
grein fyrir fjárhags-
legum tengslum við
lyfjaframleiðendur.
Þetta er að sjálfsögðu
gert vegna tortryggni í
garð lyfjaiðnaðarins.
Að ég skuli benda á
þessar staðreyndir og
vonandi leggja þar
með eitthvað að mörk-
um í baráttu gegn
óeðlilegum samskipt-
um af þessu tagi af-
greiðir Hjörleifur og
Lyfjahópurinn sem
„ámælisverðar fullyrð-
ingar“ og „að skjóta
fyrst og spyrja svo“.
Annars er Hjörleifur frekar óhepp-
inn með nafnið á grein sinni og það
sem hann segir um afskipti Lyfja-
stofnunar af leikritinu „Panódíl fyrir
tvo“ vegna þess að þar fer hann með
rangt mál. Hann segir „Af þessum
sökum hefur Lyfjastofnun m.a. séð
sig knúna til að gera athugasemd við
aðstandendur leiksýningarinnar
Panódíl fyrir tvo. Þarna var augljós-
lega um ólöglega lyfjaauglýsingu að
ræða, þótt um sé að ræða beina þýð-
ingu á heiti leikrits sem byggir á einni
kvikmynda háðfuglsins Woody All-
ens“. Með þessari frásögn reynir
Hjörleifur að draga úr trúverðug-
leika Lyfjastofnunar en ekkert af því
sem hann segir um afskipti stofnun-
arinnar er rétt. Staðreyndir málsins
eru í stórum dráttum þessar: 1) aldrei
var gerð athugasemd við nafn leik-
ritsins enda hefði slíkt verið óeðlilegt,
2) engin athugasemd var send að-
standendum leiksýningarinnar, 3)
vörumerki (logo) lyfsins Panodil var
notað við auglýsingar á leikritinu og
var umboðsmanni lyfsins bent á að til
þess þyrfti hann leyfi ráðuneytisins,
4) sótt var um þetta leyfi sem var
veitt mjög fljótt.
Í greininni gerir Hjörleifur mér
upp skoðanir hvað eftir annað og
rangfærir ummæli mín. Hann segir
t.d. „ ... hefur hann ítrekað fullyrt að
lyfjafyrirtæki verji á bilinu 20 til 40%
af veltu sinni til að hafa áhrif á lyfja-
ávísanir lækna“. Þetta hef ég aldrei
sagt. Það sem ég hef sagt er að lyfja-
fyrirtæki verji 20–40% af veltu sinni
til auglýsinga og kynninga og því hef-
ur Hjörleifur ekki mótmælt enda eru
það tölur sem almennt er miðað við.
Ég hef jafnframt sagt að flestar lyfja-
auglýsingar séu eðlilegar og í lagi en
að gerðar séu hér á landi athuga-
semdir við u.þ.b. 50 auglýsingar á ári.
Margir vita að lyfjaframleiðendur
styrkja vísindaráðstefnur, útgáfu
fagtímarita og fleira í þeim dúr og er
það þeim til sóma og hið besta mál.
Hitt er líka alkunna að stundum fara
þeir yfir strikið í viðleitni sinni til að
fá lækna til að ávísa sínum lyfjum og
það er þetta sem ég hef verið að
gagnrýna. Hjörleifur segir að ég
„...sé með ásakanir á stóran hluta
heilbrigðiskerfisins um saknæmt at-
hæfi eða a.m.k. siðferðilega rangt at-
hæfi“. Ég hef aldrei haldið því fram
að stór hluti lækna og annarra heil-
brigðisstarfsmanna hafi rangt við
þannig að hér fer Hjörleifur ekki með
rétt mál. Á öðrum stað segir hann að
ég vilji herða eftirlitshlutverk og
refsiúrræði Lyfjastofnunar gagnvart
lyfjafyrirtækjum og fá til þess aukin
fjárframlög. Aftur veit ég ekki hvað
manninum gengur til, ég hef ekki
haldið slíku fram. Í augum Hjörleifs
er ég mjög fordómafullur og í um-
ræddri grein notar hann það orð
fimm sinnum. Samkvæmt orðabók-
um hefur fordómar sömu merkingu
og hleypidómar og eru þetta ákaflega
ljót orð og þeir sem eru haldnir slíku
eru ekki hátt skrifaðir. Auðvitað má
Hjörleifur hafa þetta álit á mér en í
greininni færir hann ekki fyrir því
haldbær rök enda hef ég ekki gert
annað en að skýra frá staðreyndum
sem eru vel þekktar hérlendis og er-
lendis. Ég stend í baráttu við meintan
siðferðisbrest og átti aldrei von á að
það skapaði mér vinsældir, en skrif
eins og þau sem formaður Lyfjahóps-
ins hefur viðhaft auka ekki bjartsýni
á að hann eða hópurinn hafi áhuga á
að bæta ástandið.
Magnús
Jóhannsson
Höfundur er læknir, prófessor við
Háskóla Íslands og starfar hjá Lyfja-
stofnun.
Starfsheiður
Hjörleifur gerir mér
upp skoðanir hvað
eftir annað, segir
Magnús Jóhannsson, og
rangfærir ummæli mín.
„Panódíl fyrir alla“
eða samskipti lækna
og lyfjaframleiðenda
Malasia - BALI - Singapúr
Algjört heimsklassa - Tækifæri
Sími 56 20 400
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA
KARÍBAHAF - 12 d.
hálfvirði = 2 fyrir 1
Heimsklúbbur Ingólfs-PRÍMA