Morgunblaðið - 21.06.2002, Side 36
UMRÆÐAN
36 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„EKKERT vitni er
óttalegra né neinn
ákærandi voldugri en
samviskan í brjósti
voru,“ segir í máltæki.
Eins má segja að eng-
in lög né rök geta yf-
irunnið réttlætis-
kenndina sem við
berum í brjósti.
Í framhaldi af þeim
umræðum sem spunn-
ist hafa vegna heim-
sóknar eins af „mik-
ilmennum“ nútímans,
forseta Kína, öðlast
þessi orð gildi. Því
hversu mjög sem
stjórnvöld og embætt-
ismenn hafa keppst við að réttlæta
þá ákvörðun að meina ákveðnum
hópi mótmælenda inngöngu í land-
ið fær það í engu breytt almenn-
ingsálitinu sem lítur á þessa
ákvörðun sem „löglega en sið-
lausa“ svo vitnað sé í orð baráttu-
manns gegn spillingu í íslensku
stjórnkerfi. Það er engum vafa
undirorpið í huga flestra að þessar
hömlur voru settar vegna þrýst-
ings frá kínverskum stjórnvöldum
en ekki til að tryggja öryggi for-
setans.
Mig langar til að leggja fram
eftirfarandi spurningar:
1. Hefði fylgismönnum baráttu-
konunnar Aung San Sun Kyi, sem
hefur setið í stofufangelsi í Búrma
árum saman vegna andstöðu sinn-
ar við ríkjandi einræðisstjórn, ver-
ið neitað um inngöngu í landið ef
forseti þess ríkis hefði verið í op-
inberri heimsókn? Hún hefur m.a.
hlotið friðarverðlaun Nóbels fyrir
ódrepandi baráttu sína fyrir lýð-
ræði í heimalandi sínu.
2. Sama spurning varðandi fylg-
ismenn Jose Ramos-Horta frels-
ishetju A-Tímor hefði forseti Indó-
nesíu verið hér í sömu erinda-
gjörðum? Hann hefur einnig feng-
ið friðarverðlaun Nóbels.
3. Væri hægt að meina meðlim-
um alþjóðasamtakanna Amnesty
International inngöngu í landið til
að mótmæla vegna heimsóknar al-
ræmds einræðisherra
sem hefði á samvisk-
unni líf hundraða eða
þúsunda manna?
Einhverjum kann
að virðast sem þau
samtök sem hér eru
upptalin séu ekki
sambærileg við leik-
fimi- og hugleiðslu-
samtökin Falun Gong
eins og þau hafa verið
nefnd hér á landi. Þó
hefur upphafsmaður
þeirra, Li Hongzhi,
verið tilnefndur til
friðarverðlauna Nób-
els. Og hvers konar
samtök eru þetta?
Eru þetta hryðjuverka- eða öfga-
samtök sem berjast fyrir því að
bylta stjórnvöldum í Kína? Eru
þetta samtök sem hafa á sinni
könnu markmið sem eru and-
félagsleg, ósiðleg eða hvetjandi til
sjálfstortímingar? Ekki hef ég séð
neitt sem bendir í þá átt ef undan
er skilin yfirlýsing talsmanns
Kínastjórnar sem birt var í Morg-
unblaðinu nýlega og getur nú hver
svarað fyrir sig hversu hlutlaus sú
skoðun er. Rauði þráðurinn í starf-
semi Falun Gong er mannrækt
byggð á aldagömlum austurlensk-
um fræðum í ætt við fræði
Búddha. Til þessa stunda meðlim-
irnir æfingar sem minna á við-
urkennd austurlensk hugræktar-
kerfi svo sem yoga og kínverska
leikfimi sem stunduð eru m.a. hér
á landi og njóta mikillar virðingar.
Hættan
úr austri
Egill
Einarsson
Mannréttindi
Stundum heyrast þær
raddir, segir Egill
Einarsson, að ekki sé
rétt að láta menn gjalda
endalaust fyrir mis-
gjörðir sínar.
ÞAÐ er sennilega að
bera í bakkafullan læk-
inn að fjalla frekar um
heimsókn forseta Kína,
Jiang Zemins, á dögun-
um og afleidd tíðindi
sem af henni sköpuð-
ust. Hins vegar tel ég
nauðsynlegt að halda
nokkrum grundvallar-
atriðum til haga, en
umræðan hefur farið
um víðan völl og verið
sumpart ruglingsleg.
Það var eðlileg og
sjálfsögð ákvörðun að
bjóða forseta Kína vel-
kominn til heimsóknar
hingað til lands. Og
okkur bar að taka vel á móti honum í
alla staði. Við erum í góðum
tengslum við Kínverja og eigum að
vera það. Þróun mála í Kína hefur
verið í rétta átt á síðustu árum; land-
ið er að opnast og stóraukin sam-
skipti Kína við lýðræðisþjóðir víða
um heim hafa haft sín jákvæðu áhrif
þótt enn sé verk að vinna. Tæpast
eru margir þeirrar skoðunar að vilja
reyna að einangra Kína, með sínar
1.200 milljónir íbúa úr samfélagi
þjóðanna. Löng reynsla er af því að
bein og hreinskilin samskipti þjóða í
millum leiða til jákvæðrar þróunar í
heimsmálunum. Þess vegna er Kína-
forseti aufúsugestur.
Hins vegar er jafnljóst að fulltrúar
vinaþjóða ræða af
hreinskilni þau mál
sem uppi eru hverju
sinni. Því var sjálfsagt
að mannréttindamál
sem og önnur mikilvæg
málefni yrðu tekin upp
í viðræðum fulltrúa
þjóðanna, nú sem fyrr.
Aftur á móti var með
öllu óskiljanleg sú
ákvörðun íslenskra
stjórnvalda að reyna að
koma í veg fyrir rétt al-
mennings til að lýsa
viðhorfum sínum til
kínverskra málefna. Og
einu gildir hvort sá al-
menningur var íslensk-
ur, eða um var að ræða erlenda gesti.
Stjórnarskrárvarinn réttur fólks hér
á landi er varðar mál- og skoðana-
frelsi er skýr og afdráttarlaus. Þau
réttindi eru ekki og eiga aldrei að
vera háð mati stjórnvalda hverju
sinni.
Hvort um var að ræða málefni
Falun Gong og meintar ofsóknir
gegn þeim hópum í Kína, eða önnur
álitamál, er ekki aðalatriðið. En að
setja upp „svarta lista“ með fólki,
sem hugsanlega hefði „óæskilegar“
skoðanir og hefta ferðafrelsi þess, er
engu skárra en aðgerðir Sovét-
kommúnismans forðum daga. Engin
hætta var á hryðjuverkum. Aðeins
var um það að ræða, að þetta fólk
Lýðræði er
ekki skiptimynt
Guðmundur
Árni Stefánsson
HVERS vegna að
ganga gegn fíkn? Ég
viðurkenni að sú
spurning var mér ekk-
ert sérstaklega hug-
leikin þegar ég missti
af síðasta Breiðholts-
vagninum í fyrravetur
og þurfti að ganga alla
leið heim. Rúmlega ári
síðar fagna ég þátt-
töku allra þeirra sem
fylgja mér og Götu-
smiðjunni í þessa
fyrstu göngu gegn fíkn
– sem nú er beint gegn
sjálfri vímuefnafíkn-
inni.
Í þetta sinn er stefnt
að því að ganga frá Þingvöllum til
Reykjavíkur og safna áheitum á
leiðinni til styrktar Götusmiðjunni
undir yfirskriftinni Króna á kíló-
metra, sem hver liðsmaður þarf að
leggja að velli. Eftirfarandi síma-
númer tekur sjálfkrafa við áheitum:
908 2111. Heitið verður á 20 göngu-
menn að ganga 50 kílómetra leið
svo upphæð áheitsins nemur alls
1000 krónum.
Fíknirnar eru trúlega jafn marg-
ar og mennirnir. Flestir, ef ekki all-
ir, kannast við fleiri en eina fíkn úr
eigin lífi. Samkvæmt skilgreiningu
orðabókar getur fíkn verið bæði
áköf löngun, ástríða og óstjórnleg
þörf. Þær fíknir sem mér eru efst í
huga eru: áfengis– og eiturlyfjafíkn
(öðru nafni vímuefnafíkn), tóbaks-
fíkn, spilafíkn, átfíkn, kynlífsfíkn og
vinnufíkn. Allar eiga þó þessar ólíku
fíknir það sammerkt að eiga sér rót
í öfgum af ýmsu tagi. Og ein fíkn
orkar hvetjandi á aðra, vinnufíknin
æsir t.d. upp drykkjufíknina o.s.frv.
Þeir sem hafa lent í arnarklóm
fíkninnar sjálfir, vinir eða aðstand-
endur þekkja þó einir hinar hræði-
legu afleiðingar þess að ánetjast
jafn afgerandi niðurrifsöflum af eig-
in raun. Trúlega er vímuefnafíknin
ein hættulegasta fíknin, að minnsta
kosti sú sem vinnur einna hraðast
gegn ónæmiskerfinu. Æ stærri hóp-
ur fólks, ekki síst ungs fólks, lætur
glepjast af þeirri
gervifullnægju sem úr
fíkniefnum fást. Um
leið er það fólk óneit-
anlega öðrum í þjóð-
félaginu víti til varn-
aðar. Böl eins verður
þó ævinlega annars
kvöl. Flestir Íslending-
ar lifa við töluverð efn-
isleg gæði. Samt er fá-
tækt orðin efnahagsleg
staðreynd og aðrir
sýnilegir meinbugir á
frelsi okkar og ham-
ingju verða æ sýni-
legri. Skyldi það vera
óhagganleg staðreynd
að jafn margir falli fyr-
ir vímugjafanum og raun ber vitni?
Ég tel svo alls ekki vera. Sjálfur
þekki ég brögð fíkninnar. En sú til-
finning að vera fangi í eigin líkama
og huga hefur blessunarlega haldið
mér frá henni í vissri fjarlægð.
Sá sem fullnægður er að líkama
og sál hlýtur að vera mun ónæmari
fyrir freistingum vímuefna. Hann
veit hvað veitir honum sanna og
ómælda gleði og lífsfyllingu. Hefur
lært að stilla sig inn á rétta bylgju-
lengd og sætta sig við eigið hlut-
skipti, svo hann þarf ekki á neinum
gervigjafa að halda.
Getur verið að í ógnarhraða
neyslukapphlaupsins höfum við
gleymt því sem skiptir okkur sann-
arlega mestu máli þegar á hólminn
er komið? Höfum við borgað fyrir
það sem við köllum efnisleg lífsgæði
of hátt tilfinningalegt verð? Kann
að vera að við höfum ruglast í rím-
inu við val okkar og hlutskipti í líf-
inu?
Vímuefnavandinn í þjóðfélaginu
er því miður meiri en margur áttar
sig á. Til marks um það leituðu
rúmlega hundrað ungmenni á náðir
meðferðarheimilis Götusmiðjunnar
að Árvöllum í fyrra. Flest yngri en
átján ára. Og biðlistar þeirra sem
leita eftir meðferð lengjast. Á Ár-
völlum hefur í æ ríkari mæli verið
leitast við að bjóða upp á fjölbreytt-
ari dagskrá, einkum til handa þeim
sem lokið hafa grunnmeðferð og
þurfa á frekari fylgd og tækifæri að
halda til að geta tekist betur á við
lífið framvegis.
Með því að heita á þessa fyrstu
göngu gegn fíkn getum við sam-
einað krafta okkar gegn vímuefna-
vandanum. Að ganga gegn fíkn fel-
ur þannig í sér vissa áskorun
gagnvart lífinu. Áskorun sem best
er að svara með samhentu liði.
Vil ég nota tækifærið og þakka
kærlega fyrir allan þann stuðning
sem ófá fyrirtæki og félagasamtök
hafa sýnt göngu þessari og samleið-
ina með Götusmiðjunni. Sérstaklega
þakka ég samstarfsmanni mínum,
Jóni K. Guðbergssyni fjölskylduráð-
gjafa, fyrir lærdómsríka og ánægju-
lega samvinnu og Mumma fyrir
gagnlegar ábendingar og uppbyggi-
leg skoðanaskipti.
Fjölmennum öll í gönguna gegn
vímuefnafíkn föstudagskvöldið 21.
júní klukkan 22.00 fyrir framan
Stjórnarráðið. Rútur flytja göngu-
menn frítt til Þingvalla, þar sem
gangan hefst. Boðið verður upp á
spennandi veitingar á leiðinni. Mos-
fellingar halda hátíð með ýmiss
konar uppákomum handa börnum
og unglingum frá kl. 11.00–13.00
morguninn eftir. Tónleikar og stuð
verða á Ingólfstorgi upp úr kl. 16.00
laugardaginn 22. júní þar sem gang-
an endar. Öllum er frjálst að taka
þátt í göngunni að kostnaðarlausu
og ganga að vild.
Að ganga gegn fíkn
Benedikt S.
Lafleur
Forvarnir
Með því að heita á þessa
fyrstu göngu gegn fíkn,
segir Benedikt S.
Lafleur, getum við sam-
einað krafta okkar gegn
vímuefnavandanum.
Höfundur er myndlistarmaður og
rithöfundur.
„MAMMA! hver er
munurinn á brauði og
flatbrauði?“ spurði
dóttir mín í síðustu
viku.
Af hverju spyrðu? –
Vinkona mín var að
byrja í líkamsrækt og
þar var henni sagt að
borða ekki brauð en
hún mætti borða flat-
brauð.
Þessi „fróðleikur“
hefur gengið manna á
meðal í þjóðfélaginu
undanfarna mánuði.
Það hefur ekki verið
hægt að komast hjá
því að svara þessari
spurningu oft, sem fagmanneskja.
Kannski er svarið komið við „of-
fitu“ þjóðarinnar. Eru það kannski
ákveðnar líkamsræktarstöðvar
sem eiga stóran þátt í röngu mat-
aræði fólks. Það eru alla vega
ákveðnar líkamsræktarstöðvar
sem eru með kennslu í mataræði
og vita lítið eða ekkert um hvað
málið snýst.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
ráðleggingar heyrast frá ákveðn-
um líkamsræktarstöð-
um um mataræði sem
eru algjörlega út úr
kortinu.
Það er ekki þar
með sagt þó svo að þú
kunnir að hreyfa þig
og getir kennt það
öðrum, sem virðist
vera stór uppistaða
kennara á mörgum
líkamsræktarstöðum,
að þú hafir lært neitt í
næringarfræði.
Því miður vill það
alltof oft brenna við
að verið sé að fræða
fólk á líkamsræktar-
stöðvunum um mat-
aræði. Þar er sjaldnast fagfólk á
næringarsviðinu að verki og
ástæða er til að benda þessum
stöðvum á að leita sér faglegrar
ráðleggingar, ef varanlegur árang-
ur á að nást.
Kannski er það markmið líkams-
ræktarstöðva að viðhalda offitunni,
eða eins og oftast gerist láta fituna
koma og fara, til að halda stöðv-
unum gangandi. Miðað við allar
þær líkamsræktarstöðvar sem til
eru á höfuðborgarsvæðinu er það
„merkilegt“ hvað þjóðin þenst út,
þrátt fyrir alla þá peninga sem
notaðir eru í líkamsrækt.
En hver er munurinn á brauði
og flatbrauði?
Meginuppistaðan í flatbrauði er
rúgmjöl, vatn og salt en megin-
uppistaðan í brauði er hveiti, heil-
hveiti, klíð, rúgmjöl eða haframjöl,
vatn, salt og ger. (Fer eftir tegund
brauðs).
Er þá einhver munur? Megin-
uppistaðan í hvorutveggja er korn.
Kornvörur eru æskilegar í fæði
mannsins, hvort „brauðið“ er
brauð eða flatbrauð hefur ekkert
að segja um það hvort þú grennist
eða ekki. Ekki hef ég kunnáttu til
að segja hvort þú verðir fallegri
eða stinnari af flatbrauði eða
brauði, það læt ég aðra um.
Kæru landsmenn! Það er mik-
ilvægt að sá fróðleikur sem þú nýt-
ir þér sé réttur og ekki rifinn úr
samhengi við það sem rétt er.
Borðum meira brauð
Guðrún Þóra
Hjaltadóttir
Næring
Það er mikilvægt
að sá fróðleikur sem þú
nýtir þér, segir
Guðrún Þóra Hjalta-
dóttir, sé réttur og ekki
rifinn úr samhengi
við það sem rétt er.
Höfundur er löggiltur næring-
arráðgjafi.
Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir
Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar
Vertu í góðum höndum!
Eitt númer - 511 1707
www.handlaginn.is
handlaginn@handlaginn.is