Morgunblaðið - 21.06.2002, Side 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 47
15% afsláttur
af kaststöngum
og kasthjólum
V e i › i t i l b o › v i k u n n a r
Glæsibæ
Simi 545 1500 og www.utilif.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
79
92
06
/2
00
2
...í fyrsta kasti!
ÞAÐ eru hægt skánandi fréttir og
tölur sem berast nú af bökkum sumra
laxveiðiánna, en seint mun hægt að
þóknast öllum, fyrst var of heitt í
veðri, en nú er of kalt. En árnar opna
nú hver af annarri og í Grímsá veiddi
fyrsta hollið 12 laxa á átta stangir á
tveimur dögum sem verður að teljast
bærilegt miðað við hægaganginn í
göngum og veiði það sem af er.
Guðni Eðvarðsson, veiðivörður við
Grímsá, sagði að laxarnir tólf hefðu
allir veiðst á neðstu veiðistöðum og
enginn ofar en í Smáfossum, sem eru
í kvísl samhliða Laxfossi. „Þetta voru
fallegir laxar og bæði smáir og stórir.
Sá stærsti var 12 punda og einnig
veiddust 10,6 og 10 punda laxar,“
sagði Guðni.
Óformleg opnun
Haffjarðarár
Tveir laxar veiddust á miðvikudag
og aðrir tveir sluppu er tvö óvön
bandarísk ungmenni voru leidd fram
á bakkann og leyft að taka forskot á
sæluna. Þetta voru vænir fiskar. Í
gær var svo formleg opnun, en menn
fóru seint út og um miðjan dag voru
engar aflafréttir komnar í loftið. Að
sögn Einars Sigfússonar, eins eig-
anda árinnar, var kalt á Snæfellsnes-
inu og grátt niður í miðjar hlíðar.
Veiðimenn voru einnig að tygja sig
til veiða síðdegis í Straumfjarðará.
16 punda í Kjósinni
Enn er veiðin róleg í Laxá í Kjós og
aðeins um 20 laxar komnir á land. Þar
veiddist fyrir skemmstu 16 punda lax
og 13 ára drengur, Brynjar Þor-
björnsson, veiddi sinn fyrsta flugu-
lax, sem var jafnframt fyrsti flugulax
sumarsins.
Hér og þar…
Fyrsti laxinn veiddist í Straumun-
um um helgina, fjögurra punda lax,
og hefur verið svolítið líf þar síðustu
daga, en lítið að sjá og hafa fram að
því. Veiði er byrjuð í Korpu, hófst þar
í gærmorgun og veiddist strax lax í
Sjávarfossi og annar lak af önglinum í
löndun. Menn sáu nokkra fiska og
voru ánægðir með byrjunina. Enn
hefur ekki frést af laxi í Soginu, en
nokkur góð bleikjuskot hafa glatt
veiðimenn.
Fyrsti laxinn
Nú hefur það spurst að fyrsti lax
sumarsins hafi alls ekki verið lax
varaformanns SVFR Gylfa Gauts í
Norðurá 1. júní sl. heldur hafi sil-
ungsveiðimaður veitt fallegan ný-
genginn 6 punda lax á flugu í Brúará
nokkrum dögum áður. Það hefur svo
sem gerst áður að laxar hafa veiðst
utan hinna hefðbundnu stórveiði-
staða í upphafi vertíðar. Silungsveiði-
menn hafa náð löxum í gegnum tíðina
í Straumunum og Brennunni í Borg-
arfirði, í Hlíðarvatni í Selvogi og ef-
laust víðar.
Morgunblaðið/Arnaldur
Veiðimennirnir Kristinn Halldórsson og ungur sonur hans, Gunnar,
með fallegan 10 punda flugulax úr Kvíslafossi í Laxá í Kjós.
Tólf úr Grímsá
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
FJALLVEGIR landsins eru smám
saman að opnast þessar vikurnar og
má sjá á meðfylgjandi korti hvar þeg-
ar hefur verið opnað. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Vegagerðinni verður
skoðað eftir næstu helgi hvort unnt
verður að opna Fjallabaksleið syðri á
næstunni og sömuleiðis um Þjófadali
en mikill vatnsgangur og aurbleyta
hefur verið á þessum slóðum. Varla er
búist við að opnað verði um Sprengi-
sand fyrr en eftir mánaðamót.
Fjallvegir óð-
um að opnast
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Austur-
bakka:
Í apríl síðastliðnum fóru á markað
ranglega merktar SMA GOLD ung-
barnablöndur. Mistökin uppgötvuð-
ust innan örfárra daga og hóf Aust-
urbakki þegar innköllunaraðgerðir
sem gerði það að verkum, að það náð-
ist að innkalla langflestar vörurnar.
Einungis var um að ræða ranglega
merktar ungbarnablöndur, sem eru
ætlaðar börnum yngri en 6 mánaða.
Hugsanlegt er að ekki hafi náðst að
innkalla allar SMA GOLD ranglega
merktar dósir. Af þeim sökum vill
Austurbakki vinsamlegast biðja þá
sem keypt hafa SMA GOLD ung-
barnablöndur á tímabilinu 15. til 19.
apríl, um að yfirfara íslenskar álímd-
ar merkingar á um-
búðum vörunnar
og hafa samband
við Austurbakka ef
áletranir vörunnar
eru ekki í samræmi
við neðangreinda
merkingu:
Rétt merking á SMA Gold ung-
barnablöndu: (ætluð börnum undir 6
mánaða aldri). Sjá töflu.
Austurbakki biður viðskiptavini
sína velvirðingar á þessum mistök-
um.
Þyngd Aldur Skeiðar Vatn
Mált. á
sólarhr.
3 kg Nýfætt 3 85 ml 6
4 kg 2 vikna 4 115 ml 6
5 kg 2 mán. 6 170 ml 5
6,5 kg 4 mán. 7 200 ml 5
7,5 kg 6 mán. 8 225 ml 4
Yfirlýsing frá Austurbakka hf.