Morgunblaðið - 21.06.2002, Qupperneq 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 49
Evrópumótsstemmning
í Sumarbrids 2002
Góð mæting var 18. júní í sum-
arbrids, 24 pör og var spilaður
Mitchell í tveimur riðlum. Ljóst er
að bridsstemmning er að myndast í
kringum EM sem haldið er í Sals-
omaggiore þessa dagana, enda er
hægt að fylgjast með því í beinni út-
sendingu á Netinu og í húsnæði BSÍ
alla daga. Þessi pör urðu annars
efst, meðalskor 216:
NS
Arnar Arngrímss. – Valdimar Elíass. 262
Jörundur Þórðarson – Chris Jarvis 240
Guðmundur Skúlas. – Torfi Ásgeirss. 231
Arnar Þorsteinss. – Sigurður Þorgeirss. 230
AV
Sverrir Krist. jr. – Björgvin M. Krist. 253
Soffía Daníelsd. – Óli Bj. Gunnarsson 243
Gróa Guðnad. – Eðvarð Hallgrímsson 230
Arngunnur Jónsd. – Hanna Friðriksd. 229
Miðvikudagskvöldið 19. júní var
spilaður Mitchell-tvímenningur þar
sem þessi pör urðu efst, meðalskor
216.
NS
María Haraldsd. – Þórður Sigfússon 261
Árni Hannesson – Bragi Bjarnason 246
Sveinn Þorvaldss. – Gísli Steingrímss. 234
Páll Valdimarss. – Daníel M. Sigurðss. 222
AV
Jörundur Þórðars. – Baldur Bjartmarss.
273
Guðm. Baldurss. – Hermann Friðrikss. 269
Hermann Láruss. – Vilhjálmur Sig. jr. 254
Ómar Olgeirsson – Kristinn Þórisson 228
Hermann aftur
orðinn stigahæstur
Í stigakeppni sumarsins hefur
Hermann Friðriksson aftur tekið
forystu, en aðrir spilarar hafa nú
örugglega hug á að blanda sér í bar-
áttuna.
Staðan er nú svona:
Hermann Friðriksson 210
Vilhjálmur Sigurðss jr. 206
Þorsteinn Joensen 171
Guðlaugur Sveinsson 149
Torfi Ásgeirsson 136
Ómar Olgeirsson 136
Baldur Bjartmarsson 133
Alfreð Kristjánsson 108
Sigurður Steingrímsson 106
Hermann Lárusson 104
Erla efst
hjá konunum
Erla Sigurjónsdóttir er enn efst í
kvennaflokki, en nokkrar konur eru
þó farnar að þjarma verulega að
henni.
Erla Sigurjónsdóttir 96
María Haraldsdóttir 86
Harpa Fold Ingólfsd 70
Ljósbrá Baldursdóttir 64
Birna Stefnisdóttir 55
Halldóra Magnúsdóttir 54
Jónína Pálsdóttir 47
Guðrún Jóhannesdóttir 44
Soffía Daníelsdóttir 43
Anna Guðlaug Nielsen 30
Í Sumarbrids 2002 er spilað alla
virka daga kl. 19.00 í Síðumúla 37.
Allir eru velkomnir og keppnisstjóri
aðstoðar við að mynda pör, mæti
spilarar stakir. Reynt er að taka vel
á móti byrjendum og óvönum spil-
urum.
Mætið því hress til leiks í afslöpp-
uðu andrúmslofti. Á föstudagskvöld-
um er auk þess spiluð stutt Monrad-
sveitakeppni að loknum tvímenn-
ingi. Nánari upplýsingar fást hjá
BSÍ (s. 587 9360) eða hjá Matthíasi
(s. 860 1003).
Einnig má senda tölvupóst til
sumarbridge@bridge.is.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
3 snið af bikiníhöldurum
Skálastærðir a-b/c-d/dd-e/f-ff
Stærð 10/12/14/16
Einnig toppar og sundbolir
3 snið af buxum
Þrír litir
undirfataverslun
Síðumúla 3,
sími 553 7355.
Opið mán.-fös. kl. 11-18,
laugard. kl. 11-15.
Veldu þína
eigin línu!
sundföt
an við Hegranes, en þetta eru vin-
sæl útivistarsvæði í Skagafirði.
Mikið af rusli var hreinsað úr
fjörunni og hlaðið í haug, sem
sveitarfélagið Skagafjörður sá um
að fjarlægja. „Hvort veðrinu var
um að kenna eða hreinlega áhuga
fólks á að hreinsa náttúruna í
kringum sig var erfitt fyrir fólk að
hætta á tilsettum tíma og var unn-
UMHVERFISSAMTÖK Skaga-
fjarðar og Náttúrustofa Norður-
lands vestra stóðu fyrir umhverf-
isátaksdegi á Sauðárkróki
laugardaginn 8. júní sl. Markmiðið
með deginum var að láta gott af
sér leiða og var ákveðið að þessu
sinni að hreinsa rusl úr fjörum í
nágrenni Sauðárkróks. Fyrir val-
inu urðu fjörurnar austan og vest-
ið mun lengur en áætlað var.
Þreyttur en virkilega sæll hópur
þáði að lokum grillmat sem boðið
var upp á fyrir utan húsakynni
Náttúrustofunnar og gafst áhuga-
sömum tækifæri á að kynna sér
starfsemi Náttúrustofu Norður-
lands vestra og Umhverfissamtaka
Skagafjarðar,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Rusl hreinsað úr fjörum við Hegranes
Fólk frá Náttúrustofu Norðurlands vestra og Umhverfissamtökum Skagafjarðar tók þátt í hreinsunarátakinu.
ÁHUGASAMIR Eyrbekkingar efna
enn og aftur til Jónsmessuhátíðar á
Eyrarbakka laugardaginn 22. júní í
fjórða sinn. Sveitarfélagið Árborg
styrkir hátíðarhöldin nú sem fyrr.
Allir sem vilja taka þátt í menn-
ingarlegri samveru á Bakkanum
eina kvöldstund, þegar dagur er
hvað lengstur, eru hvattir til þess að
taka þátt í hátíðinni. Dagskrá hátíð-
arinnar er að mótast fram á síðustu
stundu en meðal atriða má nefna að
handverksfólk í Sveitarfélaginu Ár-
borg og víðar verður með Jónsmess-
umarkað í samkomu- og íþróttahús-
inu Stað frá kl. 14 til 19.
Klukkan 20 verður gengið um
Mið-Bakkann með leiðsögn, þar sem
sögð verður saga húsa og sagt frá
mönnum og málefnum á fyrri tíð.
Gangan hefst við Eyrarbakkakirkju
og verður komið við í Óðinshúsi og
Sjóminjasafninu, en göngunni lýkur
við Húsið – Byggðasafn Árnesinga.
Kveikt verður í Jónsmessubrennu
um klukkan 22 vestan við bryggjuna
á Eyrarbakka. Þar verður almennur
söngur, dansað í kringum brennuna,
leikir og fleira meðan einhver endist.
Rithöfundurinn Sjón – Sigurjón Sig-
urðsson – ávarpar hátíðargesti.
Jónsmessuhátíð
á Eyrarbakka
SAMSTARFSVERKEFNIÐ mann-
rækt skógrækt hófst vorið 1999 á ári
aldraðra þegar fulltrúar Íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur, Félags
eldri borgara, Íslands án eiturlyfja,
Félagsþjónustunnar og fram-
kvæmdanefndar árs aldraðra hittust
til að ræða hugmyndir að verkefnum
tengdum árinu.
„Ákveðið var að reyna að auka
samstarf milli unglinga og eldri
borgara. Margar góðar hugmyndir
komu upp á fundinum sem urðu að
veruleika síðar á árinu.
Ein þessara hugmynda hefur náð
að verða að árlegum viðburði. Sum-
arið 1999 fór um 100 manna flokkur
ungmenna (fjörliðar úr Frostaskjóli
og Þróttheimum) og aldraðra (frá
Ásgarði, félagsmiðstöðinni Afla-
granda og fleiri félagsmiðstöðvum
aldraðra) upp í Hvammsvík í Hval-
firði í gróðursetningarferð. Skóg-
ræktarfélag Íslands úthlutaði hópn-
um landskika sem hlaut nafnið
Álfamörk. Þar voru gróðursettar um
1000 trjáplöntur í samstarfi við
Skógrækt Íslands sem sá hópnum
fyrir plöntum og áhöldum auk þess
að annast verkstjórn.
Mikið var lagt upp úr samvinnu
kynslóðanna við gróðursetninguna
og voru myndaðir 4 manna vinnu-
hópar, 2 úr hópi unglinga og 2 úr
hópi eldri borgara. Fleira var gert til
gamans, m.a. grillað og var Vina-
bandið fengið til að spila undir söng
og einhverjir tóku nokkur dansspor.
Þann 25. júní á enn og aftur að
bregða sér af bæ og skreppa í Hval-
fjörðinn. Að þessu sinni eru það
Frostaskjól, félagsmiðstöðin Afla-
granda og Vesturgarður sem munu
leiða ferðina með um 50 manna flokk
ungmenna og eldri borgara,“ segir
m.a. í fréttatilkynningu.
Ungir og gamlir vinna
saman að skógrækt
„TIL móts við söguna“ er yfirskrift
sögudagskrár á Hólum í Hjaltadal
um þessa helgi. Kristín Huld Sigurð-
ardóttir, forstöðumaður Fornleifa-
verndar ríkisins, flytur fyrirlestur
um Hólabríkina í Hóladómkirkju kl.
20.30 í kvöld. Kristín Huld byggir
fyrirlestur sinn á vinnu við forvörslu
bríkarinnar, en hún stóð að því verki
á sínum tíma. Klukkan 22 í kvöld
verður gengið til móts við Galdra-
Loft.
Kl. 11 í fyrramálið mun Þór
Hjaltalín, minjavörður Norðurlands
vestra, kynna fyrirhugaðar forn-
leifarannsóknir á Hólum og ganga
um svæðið með gestum. Kl. 14 ræðir
Valgeir Björnsson um sögu Hóla-
skóla sem er 120 ára á þessu starfs-
ári. Á sunnudag verður guðsþjón-
usta kl. 14, prestur verður sr. Gísli
Kolbeins á Hofsósi og organisti Jó-
hann Bjarnason.
Í dag, eins og aðra föstudaga,
verður keppt í bleikjuveiði milli
klukkan 13–17. Þá er Vatnalífssýn-
ingin á Hólum opin um helgina, að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Til móts við sög-
una á Hólum
LAUGARDAGINN 22. júní nk.
munu niðjar Andrésar Péturs Jóns-
sonar og eiginkvenna hans, Bene-
diktu Pálínu Jónsdóttur og Svein-
bjargar Sveinsdóttur, koma saman á
Laugum í Sælingsdal. Andrés Pétur
fæddist að Saurlátri (Sellátri) á
Breiðafirði 20. ágúst 1875.
„Andrés Pétur eignaðist 12 börn
með sínum konum og komust 9
þeirra á legg. Fyrri konu sína, Bene-
diktu Pálínu, missti hann úr berklum
árið 1913 en þau bjuggu lengst af í
Bárarplássi í Eyrarsveit sem þau
kölluðu Bakka. Með seinni konu
sinni bjó Andrés Pétur á Sæbóli við
Keflavíkurvör á Sandi.
Niðjar Andrésar Péturs og eigin-
kvenna, sem nú telja á fjórða hundr-
að manns, koma nú saman á Laugum
í Sælingsdal og heiðra minningu
þeirra ásamt því að finna til sam-
kenndar með fólki sem ekki fyrir svo
löngu aflaði sér lifibrauðs með út-
róðrum á opnum árabátum á Breiða-
firði,“ segir í fréttatilkynningu.
Niðjamót
Andrésar Pét-
urs Jónssonar
FYRSTA bogfimimót sem haldið er
utandyra á Íslandi fór fram á Val-
bjarnarvelli föstudaginn 14. júní.
Mótið hófst kl. 20.00 og lauk kl.
00.30. Alls tóku 20 þátttakendur
þátt í mótinu frá Íslandi og Þýska-
landi.
„Með þessu móti var brotið blað í
sögu bogfimiíþróttarinnar því þetta
var fyrsta bogfimimótið sem stend-
ur fram yfir miðnætti. Ekki er vitað
til þess að áður hafi verið haldið
bogfimimót við slíkar aðstæður.
Stigahæsti keppandinn var Rosita
Zuther frá MTV Dannenberg með
644 stig en hún keppir með Comp-
ound boga. Stigahæsti Íslendingur-
inn var Guðmundur Þormóðsson,
ÍFR, með 536 stig,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Fyrsta miðnæt-
urbogfimimótið