Morgunblaðið - 21.06.2002, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Vædder-
en og Columbus og út
fara Kiel, Columbus og
Baldvin.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag fara út Markus J og
Polar Princess.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, kl 14 bingó.
Árskógar 4. Kl. Kl. 9-12
opin handavinnustofa,
kl. 13–16.30 opin smíða-
stofan. Bingó er 2 og 4
hvern föstudag. Pútt-
völlurinn er opin kl. 10–
16 alla daga. Allar upp-
lýsingar í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Verslunarferð annan
hvern föstudag kl. 10–
11.30.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9 opin handa-
vinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 10–
12 verslunin opin, kl. 13.
„Opið hús“ spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Sund-
leikfimin hjá Lovísu í
Sundlaug Garðabæjar
byrjar 25. júní kl. 16.00
og verður á þriðjud. og
fimmtud í 3 vikur. Allir
velkomnir.
Golfnámskeiðið hjá
Sturlu verður á þriðjud.
og miðvikud. kl. 13.00
næstu 3 vikur í GKG í
Vetrarmýrinni.
Fótaaðgerðarstofar
tímapantanir eftir sam-
komulagi s. 899 4223
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Kl. 13.30
frjáls spilamennska,
pútt á Hrafnistuvelli kl.
14-16. Á morgun, laug-
ardag, morgungangan
kl. 10 frá Hraunseli.
Rúta frá Firðinum kl.
9.50.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Sunnu-
dagur: Dansleikur kl.
20.00 Caprí-tríó leikur
fyrir dansi.
Söguferð í Dali 25.júní
dagsferð, Eiríksstaðir-
Höskuldsstaðir-
Hjarðarholt-Búð-
ardalur-Laugar-
Hvammur. Léttur há-
degisverður að Laugum
í Sælingsdal. Kaffihlað-
borð í Munaðarnesi
Leiðsögumaður Sig-
urður Kristinsson. Vin-
samlegast sækið far-
miðann fyrir helgi.
Þórsmörk – Langidalur
4. júlí, Kaffihlaðborð á
Hvolsvelli. Leiðsögn
Þórunn Lárusdóttir.
Skráning hafin.
Hálendisferð 8.-14. júlí
ekið norður Sprengi-
sand og til baka um
Kjöl, eigum örfá sæti
laus. Silfurlínan er opin
á mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
í s. 588 2111. Skrifstofa
félagsins er flutt í Faxa-
fen 12, sama símanúmer
og áður. Félagsstarfið
er áfram í Ásgarði
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
opin vinnustofa m.a.
myndlist og rósamálun
á tré, kl. 9–17 hár-
greiðsla, kl. 9.30 göngu-
hópur, kl. 14 brids.
Gerðuberg. Í dag
vinnustofur opnar kl. 9-
16.30. Kl. 9.30 sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug. Frá hádegi
spilasalur opinn. Mynd-
listarsýning Huga Jó-
hannessonar stendur
yfir. Fim. 27. júní:
Ferðalag um Suðurnes.
M.a. ekið um Hafn-
arfjörð, Kapelluhraun,
og Vatnsleysu-
ströndina. Stansað á
Grímshól á Vogastapa.
Ekið út í Leiru, kaffi-
hlaðborð í Golfskál-
anum. Ekið um Garð-
skagann o.fl. Skráning
hafin og allar uppl. um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki. Vorvaka
eldra fólks í Kópavog
verður í Gjábakka,
Fannborg 8 sunnudags-
kvöldið 23. júní. Á dag-
skránni sem hefst kl. 22
verður m.a. spiluð fé-
lagsvist, harmonikku-
leikur, samsöngur undir
slætti Guðrúnar á gít-
arstrengi. Einnig verð-
ur lesið úr óútkominni
ljóðabók. Kaffiveitingar
á vægu verði.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 9 handa-
vinna, bútasaumur, kl.
11 spurt og spjallað.
Bingó kl. 14. Kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla. Allir vel-
komnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, postulín, kl.
12.30 postulín. Fótaað-
gerð, hársnyrting. Allir
velkomnir.
Sumarferð á vegum Fé-
lagsþjónustunnar í
Hvassaleiti, Hæð-
argarði og Sléttuvegi
verður farin næsta mið-
vikudag 26. júní n.k. og
lagt af stað kl. 10:30.
Ekið um Þrengsli að
Eyrarbakka og Stokks-
eyri og ekið austur með
ströndinni að Þjórsá.
Þaðan verður stefnan
tekin á Skálholt. Máls-
verður í Réttinni við
Úthlíð. Leiðsögumaður
verður Kristrún Hreið-
arsdóttir. Verð kr.
3,100,- Skráning fer
fram á skrifstofum
staðanna og í símum:
588 9335 og 568 3132 og
568 2586.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15 handa-
vinna, kl. 10 kántrý
dans, kl. 11 stepp, kl.
14.30 kaffi og dansað í
aðalsal.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan,
kl. 9.30 bókband og
morgunstund, kl. 10
leikfimi, kl. 13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laug-
ardögum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt Húsið býður
ungum foreldrum (ca.
16 - 25 ára) að mæta
með börnin sín á laug-
ard. kl.15–17 á Geysir,
Kakóbar, Aðalstræti 2
(Gengið inn Vest-
urgötumegin). Opið hús
og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Félag eldri borgara
Selfossi. Dagsferð á
Njáluslóðir. Farið verð-
ur á söguslóðir Njálu
þri. 25. júní. Leið-
sögumaður verður Ósk-
ar H. Ólafsson. Lagt af
stað frá Mörkinni
(Grænumörk 5) kl. 10
og komið við í Horninu.
Ferðaáætlun: Sögusetr-
ið á Hvolsvelli skoðað,
farið að Bergþórshvoli
og síðan að Vík í Mýrdal
en þar verður léttur há-
degisverður. Síðan farið
í Kerlingadal og til baka
upp Markarfljótsaura í
leit að Gunnarshólma.
(Sumir segja að Rang-
æingar séu búnir að
týna honum). Þaðan er
farið að Hlíðarenda.
Kaffiveitingar í Lang-
brók. Leiðin liggur
framhjá Þríhyrningi að
Keldum og svo heim um
Rangarvelli. Heimkoma
áætluð um kl. 18.
Kostnaður kr. 3.000–
3.500 á mann. Farpant-
anir og upplýsingar í
síma 482-4117 (Óskar)
eða 482-2938 (Böðvar).
Gjörið svo vel að panta
far ekki síðar en á
sunnudagskvöld. Allir
velkomnir.
Félagsstarf aldraðra í
Mosfellsbæ, Kjalarnesi
og Kjós. Jónsmessuferð
á Þingvöll, Selfoss og
Stokkseyri, mánudag-
innn 24. júní. Lagt af
stað kl. 15 frá Damos.
Uppl. og skráning hjá
Svanhildi í síma
586 8014 e.h.
Reykjavíkurdeild SÍBS
fer í sína árlegu jóns-
messuferð sunnudaginn
23. júní. Farið verður
um sögustaði Njálu í
Rangárþingi og leið-
sögumaður verður Jón
Böðvarsson. Skráning í
ferðina fer fram í síma
SÍBS 552 2150 á skrif-
stofutíma.
Ellimálaráð Reykjavík-
urprófastsdæma. Boðið
er upp á orlofsdvöl í
Skálholti í sumar. Í boði
er 1.-5. júlí. Skráning á
skrifstofu f.h. virka
daga í síma 557 1666.
Í dag er föstudagur 21. júní, 172.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Trúið á ljósið, meðan þér hafið ljós-
ið, svo að þér verðið börn ljóssins.
(Jóh. 12, 36.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 sveðja, 4 útlimur, 7
þáttur, 8 fnykur, 9 gylta,
11 harmur, 13 tölustafur,
14 smyrsl, 15 brott, 17
ávinna sér, 20 op, 22
ansa, 23 viðurkennir, 24
illa, 25 líkamshlutar.
LÓÐRÉTT:
1 óreglu, 2 kjáni, 3 laup-
ur, 4 í fjósi, 5 drekki, 6
úldin, 10 fiskinn, 12
gætni, 13 samtenging, 15
vesæll, 16 rógbar, 18
skjólur, 19 ræktuð lönd,
20 vegur, 21 skaði.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: - 1 hrokafull, 8 ræsta, 9 gætin, 10 ger, 11 koðna,
13 asnar, 15 hress, 18 hagur, 21 var, 22 sigra, 23 orfin, 24
gallalaus.
Lóðrétt: - 2 ræsið, 3 klaga, 4 fegra, 5 látin, 6 hrók, 7
snýr, 12 nes, 14 sóa, 15 hæsi, 16 eigra, 17 svall, 18 hroll,
19 giftu, 20 runa.
Læknadóp er lyf
Á FORSÍÐU blaðsins Séð
og heyrt var fyrirsögn um
konu sem losnaði undan
læknadópi.
Það er fáránlegt að nota
þetta orð því þetta svokall-
aða læknadóp eru lyf sem
fólk þarf að nota. Lyf sem
sumir misnota, aðrir ekki,
sumir verða háðir þeim,
aðrir ekki. Þeir sem fá þessi
lyf en þurfa ekki á þeim að
halda eru að segja læknin-
um ósatt. Þeir sem þurfa á
þessum lyfjum að halda fá
þessi lyf hjá sínum lækni í
takmörkuðu magni og í tak-
markaðan tíma. Finnst hall-
að á lækna í svona umfjöllun
og finnst það ekki sann-
gjarnt. Ég er einn af þeim
sem þarf á þessum lyfjum
að halda til að sinna vinnu
minni og daglegu lífi og hafa
þau reynst mér vel.
Sjúklingur.
Blaðberar í fríi
ÉG hef ekki fengið Frétta-
blaðið inn um blaðalúguna
mína í rúmlega viku. Þegar
ég hringdi og kannaði
ástæðuna þá voru svörin
þau að blaðberar væru í
sumarfríi og því kæmi blað-
ið ekki.
Ég er ekki viss um að
auglýsendur væru hressir
með þetta fyrirkomulag ef
þeir vissu af þessu. Þeir
kaupa auglýsingar í blaðið
og svo er það ekki að berast
fjölda lesenda þar sem blað-
berar eru í fríi.
Ég get ekki setið á mér
að deila þessari einkenni-
legu sögu. Þrátt fyrir að
Fréttablaðinu sé „dreift“
ókeypis til lesenda þá er
þetta orðinn hluti af dag-
legu lífi fólks þ.e. að lesa
Fréttablaðið yfir morgun-
matnum og ginnast af aug-
lýsingum í öllum regnbog-
ans litum.
J.H.
Íslenskt mál
getur verið erfitt
MIG langar til þess að vekja
athygli á því að á heimasíðu
Íslenskrar málstöðvar,
www.ismal.hi.is, má finna
ýmsar hagnýtar upplýsing-
ar um íslenskt mál, meðal
annars um heiti þjóða. Ís-
lenskt mál getur verið okk-
ur öllum erfitt en þarna er
að finna greinargóðar upp-
lýsingar fyrir alla.
Nýstúdent.
Tapað/fundið
Bolti í óskilum
BOLTI fannst í Höfðahlíð
merktur Andreu. Upplýs-
ingar í síma 462 1026.
Blár Adidas-
bakpoki týndist
BAKPOKI týndist á Lækj-
artorgi 17. júní sl. Í bakpok-
anum var kápa, GSM-sími,
gómur ofl. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma
565 4675 eða 822 7473.
Gasgrill týndist
GASGRILL týndist frá
Bakkaseli 25 aðfaranótt sl.
laugardags. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
557 1522.
Hjól í óskilum
GRÁTT hardrock-hjól er í
óskilum á Seltjarnarnesi.
Uppl. í síma 552 7271.
Gleraugu týndust
GLERAUGU, brún úr tít-
aníum, frekar lítil í grænu
hulstri, týndust um miðjan
maí. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 897 1703.
Dúkka týndist
DÚKKA í bangsímonkjól
með rautt hárband týndist
um miðjan maí. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
897 1703.
Dýrahald
Læður fást gefins
AF sérstökum ástæðum
fást tvær læður gefins. Önn-
ur er 2ja ára og hvít að lit og
hin er 1 árs, svört að lit. Þær
eru blíðar og góðar og vilja
komast á góð heimili. Upp-
lýsingar í síma 587 2621 og
865 2420.
Snúð vantar heimili
SNÚÐUR, sem er rúmlega
fjögurra mánaða kisu-
strákur, fæst gefins á að-
eins gott heimili. Snúður er
yndislega barngóður og kel-
inn. Ef þú gætir hugsað þér
að eignast Snúð þá endilega
hringdu í síma 564 1975 eða
897 9907.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
SKRIFARA blöskrar oft þegarhann sér reikninga frá iðnaðar-
mönnum, hvort sem um er að ræða
viðgerðir á bíl eða húsi. Og þótt
hann sé ekkert sérstaklega hand-
laginn heimilisfaðir lætur hann sig
hafa það að annast sjálfur, og með
dyggri aðstoð annarra úr fjölskyld-
unni, mest allt viðhald innanhúss,
svo sem að leggja parket, gólfdúk
og flísar, setja upp skápa, ljós og
mála. Síðasta afrekið var að setja
upp nýja eldhúsinnréttingu, tæki og
gólfefni og mála.
Úr ýmsu var að velja þegar kom
að vali á innréttingu en verðmun-
urinn reyndist mikill. Það er hægt
að gera ýmislegt fyrir 200 þúsund
kall, hugsaði heimilisfaðirinn, og
taldi frúna á að velja prýðilega inn-
réttingu hjá IKEA. Og innréttingin
komst upp stórslysalaust. Vissulega
er hægt að finna að vinnubrögðum í
þessum heimilisiðnaði og hann tók
dálítið langan tíma en margborgaði
sig. Auk 200 þúsund kallsins var
hægt að spara kostnað við uppsetn-
ingu. Og heimilisfaðirinn ekki sér-
lega handlagni andvarpaði fegin-
samlega og hugsaði þá um eigin hag
þegar hann heyrði í vini sínum sem
keypti innréttingu hjá öðrum inn-
flytjanda og fékk atvinnumenn til
að setja upp og rífa út þá gömlu.
Þrír mánuðir eru liðnir frá því þeir
hófu verkið og eru búnir að rukka
300 þúsund kall án þess að hafa lok-
ið verkinu. Það liðu þó ekki nema
rúmar þrjár vikur frá innréttingin
var rifin á heimili Víkverja þangað
til ný var að mestu tilbúin. Og þótti
sá tími alveg nógu langur.
x x x
EKKI komst heimilisfaðirinn þóalveg hjá því að styrkja iðn-
aðarmenn við þessa framkvæmd,
hann taldi öruggara að fá rafvirkja
til að annast grunnvinnu við raf-
magnið og pípara til að færa til
leiðslur. Þótt þessir menn hafi veitt
ágæta þjónustu blöskraði heimilis-
fólkinu reikningsútgáfa þeirra, sér-
staklega annars sem virtist skrifa
ótæpilega tíma á undirbúning og
frágang. Hann var að minnsta kosti
ekki við vinnu í húsinu nema hluta
tímans. Við lestur þessa reiknings
varð húseigandinn enn staðráðnari
en fyrr í því að standa sig í stykkinu
þegar að næstu framkvæmd kæmi,
hver svo sem hún yrði.
ÞAÐ er kannski að bera í bakka-fullan lækinn að fjalla um
íþróttir í þessum dálki vegna mikils
áhuga á HM í fótbolta sem iðulega
kemur hér fram. Ekki er þó hægt
að láta ógetið þeirrar ágætu þjón-
ustu íþróttasjónvarpsins Sýnar að
sýna frá úrslitaleikjum ameríska
körfuboltans. Skrifari er einn þeirra
sem horfa á meðan vökustaurinn
leyfir en notar myndbandstækið til
að komast yfir þá leiki sem út af
standa. Hefði Víkverji viljað njóta
þessara leikja miklu lengur en get-
ur þó alveg sætt sig við fáa leiki þar
sem uppáhaldsliðið hans, Los Ang-
eles Lakers, átti sök á því með því
að vera miklu betra en öll önnur.
Þótt vert sé að hæla frammistöðu
Sýnar og körfuboltaþjálfaranna
sem lýstu úrslitaleikjunum verður
einnig að halda til skila því sem mið-
ur hefur farið. Í hópi „gamalmenna“
í körfubolta sem Víkverji leikur sér
stundum við í hádeginu voru uppi
háværar raddir snemma í vor um að
svipta ætti Sýn réttinum til að sýna
ameríska körfuboltann vegna þess
hversu fáir leikir væru sendir út
beint. Þessari kvörtun er hér með
komið á framfæri, þótt seint sé.
ÉG er að velta því fyrir
mér hverju þessir menn,
sem múlbundu sig með
svörtum klútum, voru að
mótmæla 17. júní. Var
ekki háttsetti Kínverjinn
farinn af landi brott? Af
hverju voru þeir að veitast
að fjallkonunni sem var að
sinna vinnu sinni fyrir
þjóðina? Varla hefur hún
framið mannréttindabrot í
Kína eða var það ekki
mergurinn málsins? Mér
finnst það sjálfsagt að
hleypa ekki hverjum sem
er athugasemdalaust inn í
landið núna á tímum
hryðjuverka.
Eldri borgari.
Hverju var mótmælt?