Morgunblaðið - 21.06.2002, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 51
DAGBÓK
ÞEGAR makker passar nið-
ur opnunardobl á einum í lit
er hann lýsa því yfir að hann
eigi MARGA slagi á tromp –
ekki minna en þrjá og helst
fleiri. Hann er til í að spila
þennan lit á móti einspili eða
eyðu:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ 52
♥ 109432
♦ 8652
♣65
Vestur Austur
♠ 7 ♠ KG1098
♥ KG86 ♥ Á5
♦ ÁKG4 ♦ D107
♣K983 ♣D102
Suður
♠ ÁD643
♥ D7
♦ 93
♣ÁG74
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
Dobl Pass PASS Pass
Þetta dæmi er úr bók
Lawrence um útspil – Open-
ing leads (1996). Lawrence
segir réttilega að eftir slíkar
sagnir sé alltaf rétt að
trompa út. Hann skýrir mál
sitt á skemmtilegan máta
með því að snúa sjónarhorn-
inu við og spyrja: Hvernig
ætti að spila fjóra spaða á
hendur AV með tígulníu út?
Blindur
♠ 7
♥ KG86
♦ ÁKG4
♣K983
Sagnhafi
♠ KG1098
♥ Á5
♦ D107
♣D102
Auðvitað kemur ekkert
annað til greina en að taka á
tígulás og trompa út. Vestur
fær slaginn og spilar aftur
tígli, sem sagnhafi tekur og
spilar enn trompi. Og gefur
aðeins þrjá slagi – tvo á
tromp og einn á lauf.
Það þætti ekki falleg
spilamennska að byrja á því
að spila tígli þrisvar og leyfa
vörninni að stinga með
smátrompi og hugsanlega
byggja upp annan slag á
laufstungu. Hið sama á við í
vörn þegar vitað er að
makker á mjög gott tromp –
þá á að aftrompa sagnhafa
og koma í veg fyrir að hann
fái slagi á smátrompin sín.
Ef við lítum aftur á fyrri
stöðumyndina sést að sú
vörn að spila ÁK og þriðja
tíglinum gefur sagnhafa tvo
aukaslagi á spaða – einn
heima og annan með lauf-
stungu í borði.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 21. júní,
er áttræður Gísli Gunnars-
son, fyrrverandi verkstjóri
hjá Vegagerð ríkisins, til
heimilis á Heilbrigðisstofn-
un Sauðárkróks. Hann
dvelur á heimili dóttur sinn-
ar og tengdasonar, Hvanna-
hlíð 8, Sauðarkróki, laugar-
daginn 22. júní.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 21. júní,
á sólstöðum, er sextugur
Bjarni E. Guðleifsson, nátt-
úrufræðingur á Möðruvöll-
um í Hörgárdal. Á þessum
tímamótum verður hann í
tjaldferðalagi við rætur
Hraundranga í Öxnadal
ásamt konu sinni, Pálínu Jó-
hannesdóttur.
1. d4 f5 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7
4. c3 c6 5. Rf3 Rf6 6. Db3
Db6 7. Dc2 O-O 8. O-O d6
9. Rbd2 Kh8 10. b3 Dc7 11.
Bb2 e5 12. dxe5 dxe5 13. e4
f4 14. Rc4 Rh5
Staðan kom upp á Stiga-
móti Hellis sem lauk fyrir
skömmu. Kristján Eð-
varðsson
(2230) hafði
hvítt gegn
Ingvari Jó-
hannessyni
(2293). 15.
Rcxe5! g5
15...Bxe5 gekk
ekki upp vegna
16. Rxe5 Dxe5
17. c4 og svarta
drottningin
fellur í valin.
Framhaldið
tefldist: 16. g4
Rf6 17. h3 Be6
18. c4 Rbd7 19.
Rxd7 Dxd7 20.
Had1 De7 21. Rxg5 f3 22.
Rxf3 Rxg4 23. hxg4 Bxg4
24. Hd3 Hf7 25. Rh2 Bh5
26. Hg3 Hg8 27. Kh1 Be5
28. Bxe5+ Dxe5 29. Dd3
Hf6 30. Hxg8+ Kxg8 31.
Dg3+ Dxg3 32. fxg3 Hd6
33. Bf3 Bg6 34. Kg2 a5 35.
Rg4 a4 36. Re5 Be8 37.
Hd1 Hxd1 38. Bxd1 axb3
39. axb3 Kg7 40. Bg4 Kf6
41. Rd3 b5 42. c5 Bf7 43.
Bd1 Be6 44. Kf3 h5 45. Kf4
og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
Á RAUÐSGILI
Enn ég um Fellaflóann geng,
finn eins og titring í gömlum streng,
hugann grunar hjá grassins rót
gamalt spor eftir lítinn fót.
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.
Löngum í æsku ég undi við
angandi hvamminn og gilsins nið,
ómur af fossum og flugastraum
fléttaðist síðan við hvern minn draum.
– – –
Jón Helgason
Hlutavelta
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 1.416 kr. til styrktar
Styrktarsjóði hjartveikra barna. Þær heita Margrét Ás-
dís Björnsdóttir og Bryndís Þórsdóttir.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert rómantísk og við-
kvæm persóna með frjótt
ímyndunarafl. Þú sérð
möguleika alls staðar og leit-
ar ávallt að nýjum verk-
efnum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ekki er vanþörf á að bæta þá
aðstöðu sem er fyrir hendi á
heimilinu, hvort sem það er í
eldhúsi eða í svefnherbergi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert óvenjulega hreinskil-
in/n í samskiptum við aðra í
dag. Komdu skilaboðum þín-
um einfaldlega á framfæri
því engin þörf er á því að
sannfæra aðra um kosti hug-
mynda þinna.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú ert einstaklega snjall
þegar læra þarf nýja hluti.
Nýir möguleikar eru fyrir
hendi sem þú ættir að reyna
að nýta þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sólin, Mars og Júpiter eru í
stjörnumerki þínu í dag, en
slík staða felur í sér að þú
þurfir á líkamlegri æfingu að
halda.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Andleg málefni höfða til þín,
en þrátt fyrir hraða í sam-
félaginu skiptir vinsemd í
garð annarra miklu máli.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Njóttu dagsins í hópi góðra
vina og reyndu að komast að
því hverjar séu vonir þeirra
og draumar í framtíðinni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þér virðist ætíð takast að
vekja hrifingu annarra. Ekki
er úr vegi að nýta sér með-
byrinn og ná þeim markmið-
um sem þú hefur sett þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gerðu eitthvað sem er
óvenjulegt og ólíkt því sem
þú hefur áður tekið þér fyrir
hendur. Nauðsynlegt er að
kynnast nýju fólki og öðrum
skoðunum en þú ert vanur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert rómantískur í hugsun
og það kemur þér í raun á
óvart hversu tilfinningar þín-
ar eru djúpar í garð annarra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Erfiðleikar í samskiptum við
náinn vin þinn valda erfið-
leikum en þú ert tilbúin/n að
standa það af þér og horfa
fram á veginn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ekki er loku fyrir það skotið
að þú kynnist persónu sem
þú munt eiga náin samskipti
við í framtíðinni. Reyndu að
hugsa um þá kosti sem þú
býrð yfir og útilokaðu galla
þína.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er ætíð mikilvægt að
rækta samskiptin við fjöl-
skylduna, en þau eru fólki
dýrmæt þegar upp er staðið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
KIRKJUSTARF
Háteigskirkja. Samverustund eldri borg-
ara kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustu-
fulltrúa.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11–12.30.
Lofgjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla. Barna- og unglingadeildir á
laugardögum. Létt hressing eftir sam-
komuna. Allir velkomnir. Biblíufræðsla
alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM
105,5.
Fíladelfía. Í kvöld, föstudagskvöldið 21.
júní, kl. 23 verður kyrrðarstund á sum-
arsólstöðum í Fíladelfíu þar sem Óskar
Einarsson mun leika af fingrum fram á
flygil. Aðgangseyrir verður kr. 500 og
mun innkoman renna til kaupa á nýju pí-
anói fyrir kirkjuna.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Unglinga-
samkoma í kvöld kl. 21.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Samkomur á laugardögum:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Bænastundir á hverju kvöldi kl. 20–22 í
hliðarsal kirkjunnar. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut
2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15.
Guðsþjónusta kl. 11. Umsjón: Ungt fólk
úr Reykjavík og Hafnarfirði.
Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður Gavin
Anthony.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Einar
Valgeir Arason.
Samlestrar og bænastund í safnaðar-
heimilinu á fimmtudögum kl. 17.30. Allir
hjartanlega velkomnir.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11.
Ræðumaður: Styrmir Ólafsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarstarf