Morgunblaðið - 21.06.2002, Page 52
FÓLK Í FRÉTTUM
52 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!"#$#% &
Hunang
í kvöld
FRANSKI píanóleikarinn
Jacques Loussier er væntan-
legur hingað til lands þann
20. september næstkomandi
til að gleðja tóneyru lands-
manna.
Tónleikarnir fara fram í
Háskólabíói og þótt tæpir þrír
mánuðir séu til stefnu er
miðasala þegar hafin og hafa
miðarnir rokið út eins og heit-
ar lummur.
Alls komast að 900 manns
til að sjá hinn fingrafima
Loussier leika listir sínar og
þegar þetta er ritað hafa rúm-
lega 500 miðar verið rifnir út.
Áhugasamir ættu því að fara
að hugsa sér til hreyfings vilji
þeir ekki missa af Loussier.
Miðasala fer fram í hljóm-
plötuversluninni 12 Tónum á
Skólavörðustíg.
Tónleikar Jacques
Íslandsvinurinn tilvonandi
Jacques Loussier.
Loussier
Meira en
helming-
ur miða
seldur
ÍSLENSKUR læknir, Kristján
Tómas Ragnarsson, var heiðraður
á dögunum, fyrir starf sitt í þágu
sjúklinga með mænuskemmdir
(Lifetime Achievement Award) og
voru það Samtök bandarískra
lækna sem vinna með fólk með
mænuskemmdir (American Spinal
Injury Association) sem veittu
þessa viðurkenningu. Að sögn
Kristjáns voru verðlaunin veitt á
árlegu sameiginlegu þingi samtak-
anna og samskonar alþjóðlegra
læknasamtaka (International Spin-
al Court Society). Hann segist
vera þrettándi maðurinn sem hlýt-
ur þessi verðlaun og er að vonum
ánægður, enda mikill heiður þegar
eigin starfsfélagar veita slíka við-
urkenningu, auk þess sem fyrri
verðlaunahafar hafa
allir staðið mjög
framarlega í grein-
inni. „Það er gaman
að komast í þeirra
hóp,“ segir hann.
Kristján hefur
verið búsettur í New
York í yfir þrjá ára-
tugi, ásamt konu
sinni Hrafnhildi
Ágústsdóttur gler-
listakonu og fjórum
dætrum. Hann er
þekktur í sinni
starfsgrein en er
hógvær þegar hann
er spurður út í afrek sín á þeim
vettvangi. Hann komst töluvert í
fjölmiðlana vestra fyrir nokkrum
árum þegar hann annaðist ruðn-
ingshetjuna Dennis Byrd, sem
hálsbrotnaði í beinni sjónvarpsút-
sendingu og fékk síðar ótrúlegan
bata. Síðar var gerð kvikmynd um
þetta. „Ég komst bara í blöðin
vegna þess að fjölmiðlarnir fylgj-
ast svo vel með slíkum köppum.
En það tókst vel með hann og hon-
um líður enn vel. Sem betur fer
náði hann sér að mestu leyti þó að
hann hafi upphaflega verið mjög
lamaður,“ lýsir hann.
Prófessor við
Mount Sinai-læknaskólann
Kristján segir verðlaunin litlu
breyta, hann haldi áfram vinnu
sinni á Mount Sinai-sjúkrahúsinu í
New York, þar sem hann sinni
sjúklingum með mænuskemmdir
og aðrar bæklanir, auk þess að
stjórna stórri endurhæfingardeild,
sem hann byggði upp næstum frá
grunni. Kristján er einnig prófess-
or við Mount Sinai-læknaskólann,
þar sem hann kennir og stundar
rannsóknir. „Ég er búinn að vera í
Bandaríkjunum í rúm þrjátíu ár og
hef verið yfirmaður á þessari deild
síðan 1986, en starfaði áður á
Rusk-stofnuninni, sem er hluti af
New York-háskóla.“
Hann segir, aðspurður hvað hafi
orðið til þess að hann fluttist bú-
ferlum til Bandaríkjanna, að það
hafi verið líkt og með aðra lækna,
hann hafi farið út í sérnám 1970 og
ílengst. „Ég lauk námi 1975 og
flutti þá heim, alfarinn með alla
fjölskylduna. Ég hafði
verið að vinna hér að
rannsóknum og þeir
báðu mig um að koma
aftur tilbaka. Það átti
nú ekki að vera nema
þrjú ár en ég er hér
enn,“ heldur Kristján
áfram.
Athvarf á
Snæfellsnesi
Kristján hefur enn
sterk tengsl við Ísland
og kemur hingað til
lands nokkrum sinnum
á ári. Þau hjón hafa
komið sér upp athvarfi á Snæfells-
nesi, þar sem þau dvelja í fríum.
Hann segir þau hafa verið einkar
heppin að geta notið þess besta
sem bæði löndin hafa upp á að
bjóða.
Kristján er stjórnarformaður
American-Scandinavian Found-
ation og að hans sögn er stofnunin
mjög virk, til að mynda lét hún
reisa hús á Manhattan fyrir um
tveimur árum, sem meðal annars
hýsir Halldór Laxness-bókasafn.
„Ég hef verið í sambandi við Ís-
land á svo margan hátt, ekki bara í
gegnum American-Scandinavian
Foundation. Ég er í stjórn Öss-
urar hf., sem hæfir mjög vel úr því
ég er í endurhæfingarlækningum.
Tengslin við landið hafa alltaf ver-
ið sterk og hafa ekki minnkað síð-
ustu árin,“ lýsir Kristján.
Til marks um þjóðrækni Krist-
jáns má nefna að þegar hann hlaut
viðurkenninguna á dögunum þurfti
hann að sýna ljósmyndir úr eigin
lífi og sýndi hann meðal annars
ljósmynd af hvalskurði í Hvalfirði,
þar sem hann vann ein sex sumur
á unglingsárunum. „Ameríkanarn-
ir kipptu sér ekki upp við þessa
mynd, þeir hafa sjálfsagt búist við
öllu frá mér og kannski fannst
þeim þetta svolítið spaugilegt.“
Í gegnum tíðina hefur Kristján
hlotið fjölmargar viðurkenningar
fyrir störf sín og var honum meðal
annars veitt fálkaorðan fyrir
nokkrum árum. „Það var að ein-
hverju leyti út af læknisstörfum og
einnig út af félagsstörfum. Það var
mjög mikill heiður, líklega mesti
heiðurinn,“ segir hann að lokum.
Meðal þeirra fremstu
Bandarísk læknasamtök heiðra Kristján Tómas Ragnarsson
APÓTEKIÐ Brasilíski söngvarinn og
gítaristinn Ife Tolentino leikur
ásamt Óskari Guðjónssyni róm-
antískar og hjartnæmar bossa nova-
perlur.
BÚÐARKLETTUR Dj Skugga-
Baldur.
CAFÉ AMSTERDAM Safaríkt Buff.
CAFÉ CATALÍNA Trúbadorinn
Kjartan Hlöðversson.
CAFÉ FLÓRA, Grasagarðinum Sól-
stöðutónleikar með Páli Óskari og
Moniku.
CLUB 22 Dj Krummi.
GAUKUR Á STÖNG Land og synir.
GRUNNSKÓLINN VESTMANNA-
EYJUM Jóhann Örn Ólafsson með
línudanskennslu. Hefst kl. 20. 1000
kr.
GULLÖLD Ásgeir Páls.
HÓPIÐ, Tálknafirði Sixties.
KRINGLUKRÁIN Hljómsveit Rúnars
Júlíussonar.
LOFTKASTALINN El Prumpos Piss-
os, uppistand með Sigurjóni Kjart-
anssyni og Þorsteini Guðmundssyni.
O’BRIENS Lísa Pálsdóttir og hljóm-
sveit.
PAKKHÚSIÐ, Selfossi Hljóm-
sveitin Smack.
PLAYERS-SPORT BAR Papar.
SKVÍSUSUND, Vestmannaeyjum Í
svörtum fötum.
STÚDENTAKJALLARINN Djass-
tríóið Flís, skipað þeim Davíð Þór
Jónssyni, Helga Svavari Helgasyni
og Valdimari Kolbeini Sigurjóns-
syni.
ÚTLAGINN, Flúðum Stefán Hilm-
arsson og Eyjólfur Kristjánsson.
VÍDALÍN Rokkslæðurnar og Dj
Andrea Jónsdóttir.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Ife Tolentino og Óskar Guðjónsson
bjóða upp á alvöru bossa nova-seið
á Apótekinu í kvöld.
BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn
Billy Joel er kominn í áfengis- og
geðmeðferð vegna „persónulegra
vandamála sinna“, að því er hljóm-
plötuútgefandi Joels greindi frá í
dag. Joel, sem er 53 ára, skráði
sig inn á Silver Hill-sjúkrastofn-
unina í New Canaan í Connecticut.
Meðferðin mun taka tíu daga.
Meðal frægustu laga Joels eru
„Piano Man,“ „Just the Way You
Are,“ „Only the Good Die Young“
og „Uptown Girl.“
Til stóð að Joel færi í tónleika-
ferðalag með Elton John í mars sl.
en ferðinni var frestað sakir
heilsuleysis Joels. Ákveðið er að
tónleikaferðalagið hefjist í sept-
ember.
Í grein í dagblaðinu New York
Times, sem birt var skömmu áður
en ferðalaginu var frestað, var
Joel lýst á tónleikum sem röflandi
og öskrandi og augljóst hefði ver-
ið að hann væri búinn að fá sér
eitthvað sterkara en hóstasaft.
Reuters
Billy Joel (t.h.) í banastuði ásamt Elton John.
Píanómaðurinn í
persónulegum vanda