Morgunblaðið - 21.06.2002, Side 54
FÓLK Í FRÉTTUM
54 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
S u n d f ö t f y r i r a l l a r k o n u r
Sumar 2002
Njóttu
sumarsins
me›
SEAFOLLY
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
SEAFOLLY bikiníin eru seld í
stöku. Þannig er hægt að velja
sér topp og buxur í sitt hvoru
númerinu. Buxur eru bæði til
háar og lágar.
SEAFOLLY bikiní fást í
mörgum stærðum og litum.
Sundbolur - 4.990
Bikini toppur - 3.990
Buxur - 2.590
Toppur - 3.990
Taska - 1.890
Skór - 2.690
Bikiní - 6.690
Buxur - 2.490
Toppur - 3.990
Pils - 3.890
VEFRITIÐ tikin.is var formlega
sett á laggirnar á kvennadaginn,
19. júní, en þar er á ferð vefrit
sem hefur einsett sér að halda á
lofti virkri og lifandi stjórnmála-
umræðu.
Allnokkur slík vefrit eru nú
þegar fyrir hendi en sérstaða
Tíkarinnar er sú að aðstandend-
urnir og helstu pennar eru ungar
konur. Vegur kvenna á íslenskum
vefritum hefur hingað til þótt
heldur rýr og sjónarmið ungra
kvenna á hægri vængnum hafa
ekki farið hátt. Er það von að-
standenda að Tíkinni takist að
ráða þar bót á og verði vett-
vangur þar sem ungar hægrikon-
ur geta kynnt skoðanir sínar og
tjáð sig um málefni sem eru í
brennidepli hverju sinni.
Í tilefni af tilkomu Tíkarinnar
var haldið opnunarhóf á Thor-
valdsen-bar á kvennadaginn að
viðstöddum góðum hópi hægri-
kvenna, þ.á.m. Sólveigu Péturs-
dóttur dómsmálaráðherra og
Katrínu Gunnarsdóttur alþing-
ismanni Sjálfstæðisflokksins, sem
ávarpaði gesti og fagnaði tilkomu
Tíkarinnar.
Morgunblaðið/Arnaldur
Ritstjórnarfulltrúar á tíkinni.is f.v.: Helga Árnadóttir, Guðríður Sigurð-
ardóttir, Brynhildur Einarsdóttir og Ingibjörg Lind Karlsdóttir.
Tíkin tekur til máls
Nýtt vefrit opnað á kvennadaginn
TENGLAR
.....................................................
www.tikin.is
FYRIR einu ári, upp á dag, héldu
Páll Óskar og Monika Abendroth
sína fyrstu tónleika saman í grasa-
garðinum í Laugardal, á lengsta degi
ársins. Nú, ári síðar, þykir þeim til-
valið að endurtaka leikinn á sama
stað og hann hófst í gróðurhúsinu
sem hýsir Café Flóruna í Grasagarð-
inum í Laugardal.
„Þetta samstarf er búið að vera
lygasögu líkast, það er búið að vera
svo farsælt,“ segir Páll Óskar og
neitar því að hafa búist við að sam-
starfið yrði eins langlíft og raun bar
vitni.
„Það sem vakti ekki síst áhuga
okkar á samstarfinu í upphafi voru
lögin sem Heiðar Ingi tónskáld
samdi fyrir okkur. Það ríkir svo mik-
ið jafnvægi á milli raddar minnar og
hörpusláttar hennar,“ segir Páll
Óskar og bætir við: „Þessi tónlist er
svo berskjölduð, hún hefur svo bein
áhrif á þann sem hlustar að hann
verður að hafa einhverja skoðun á
henni. Það er ekki auðvelt að flytja
þessa tónlist, maður þarf að vera í
mjög góðu andlegu jafnvægi til
þess.“
Nótt og dagur
Þau Páll Óskar og Monika gáfu út
plötuna Ef ég sofna ekki í nótt fyrir
síðustu jól og er önnur plata í bígerð.
„Platan er væntanleg fyrir jólin,
við ætlum að vera aftur með í jóla-
pakkanum,“ segir Páll Óskar.
„Lögin eru að trítla inn. Heiðar
Ingi er alltaf að semja en svo eru líka
fleiri lagahöfundar sem hafa sýnt
þessu áhuga því þeir vita núna að
hverju þeir ganga.“
Aðspurður um hvort afurðin vænt-
anlega líkist forvera sínum svarar
Páll Óskar: „Síðasta plata var mikil
„næturplata“, það var mikill tregi og
mikil sorg í henni. Það gefur því
augaleið að næsta plata verður and-
stæða hennar. Plata lífsgleðinnar,
plata sjálfstrausts og ánægju, svona
„dagsplata“. Maður nennir ekki að
vera dramatískur á hverjum degi.“
Á tónleikunum í kvöld flytja Páll
Óskar og Monika efni af eldri plöt-
unni og gefa sýnishorn af því sem
koma skal á þeirri næstu auk þess
sem þau taka lög sem þekkt eru í
flutningi Páls Óskars.
Sætafjöldi er takmarkaður og því
verða tónleikarnir tvennir: þeir fyrri
klukkan 22 og hinir síðari á miðnætti.
Miðaverð er 1500 kr. Miðasala er op-
in í Café Flórunni í dag milli kl. 14 og
17 og einnig verða seldir miðar við
innganginn, ef einhverjir eru eftir.
Árlegir sól-
stöðutónleikar
Morgunblaðið/Jim Smart
Páll Óskar og Monica spila á
tvennum tónleikum í Grasa-
garðinum á lengsta degi ársins.
Páll Óskar og Monika Abendroth
halda tónleika í Grasagarðinum