Morgunblaðið - 21.06.2002, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
alpaS M J Ö R Íslensk afurð – evrópsk hefð
Frábært
á brauð,
í matargerð
og bakstur
UM 50 ær á bæ í Skagafirði hafa
drepist af völdum salmonellusýking-
ar. Sýkillinn hefur greinst bæði í
hræjum og drykkjarvatni kindanna.
Þetta er í fyrsta sinn svo vitað sé að
salmonellusýking greinist á þennan
hátt í sauðfénaði.
Að sögn Ólafs Valssonar, héraðs-
dýralæknis í Skagafjarðar- og Eyja-
fjarðarumdæmi, virðist sýkingin,
sem er af völdum sýkils að nafni
Salmonella Typhimurium, vera
bundin við eitt beitarhólf á umrædd-
um bæ þar sem ærnar sem drápust
voru. Beinist grunurinn að drykkjar-
vatni ánna en sýkillinn greindist í
vatni í skurði sem beitarhólfið liggur
að. Aðspurður segir Ólafur drykkjar-
vatn fólksins á bænum koma annars
staðar frá.
Auk kindanna 50 fannst dautt
hross frá næsta bæ í skurðinum og er
verið að kanna hugsanleg tengsl milli
þessa. Að sögn Ólafs hefur salmon-
ellan ekki greinst í hrosshræinu.
„Samkvæmt þeim upplýsingum sem
ég fékk í dag [í gær] er ekkert sem
bendir til þess að hrossið sé orsaka-
valdurinn í sjálfu sér,“ segir hann.
Bæirnir tveir í farbanni
Landbúnaðarráðuneytið hefur sett
bæina tvo, sem hrossið og ærnar
koma frá, í farbann að tillögu yfir-
dýralæknis. Í fréttatilkynningu frá
honum segir að engar afurðir hafi
farið frá þessum bæjum að undan-
förnu og að með farbanninu séu gerð-
ar ráðstafanir til þess að koma í veg
fyrir að smit dreifist víðar, t.d. með
flutningi dýra. Ólafur segir sýni hafa
verið tekin frá öðrum bæjum í kring
en niðurstöður þeirra rannsókna liggi
ekki fyrir fyrr en eftir helgi.
Aðspurður segir Ólafur afar sjald-
gæft að salmonella greinist í sauðfé.
„Þetta hefur fundist einstaka sinnum
í sviðahausum í gegnum árin og þá
hefur það verið önnur tegund salm-
onellu. En svona sýking er mjög
óvenjuleg þar sem kindurnar drepast
af völdum sýkingarinnar.“ Hann seg-
ist ekki vita til þess að salmonella hafi
greinst áður á þennan hátt í sauðfén-
aði. „Að minnsta kosti ekki mörg
undanfarin ár og ég held bara yfir-
leitt ekki. Þetta er í fyrsta skipti á
þessu svæði sem þetta greinist í
sauðfé. Þessi tegund af salmonellu
hefur ekki heldur greinst hér áður.“
Er það þá misskilningur, sem
margir hafa talið, að óþarfi sé að full-
steikja kindakjöt áður en þess er
neytt? „Nei það held ég ekki, þetta
virðist vera einstakt tilfelli eins og
staðan er í dag,“ segir Ólafur.
Um 50 ær hafa drepist
af völdum salmonellu
NEFND á vegum dómsmálaráð-
herra leggur til að almennum hegn-
ingarlögum verði breytt þannig að
ekki verði lengur refsivert að stunda
vændi í framfærsluskyni en að jafn-
framt verði tryggt að í löggjöfinni
verði ákvæði sem kveði á um að sekt-
ir liggi við því að bjóða sölu á kynlífs-
þjónustu á almannafæri.
Nefndinni var falið að gera tillög-
ur um úrbætur vegna kláms og
vændis og var skýrsla hennar kynnt
á blaðamannafundi í gær. Meðal
annarra tillagna var lagt til að það
skyldi varða allt að 12 ára fangelsi ef
einstaklingur eldri en 18 ára hefur
mök við barn yngra en 15 ára og að
bann við dreifingu og birtingu á
klámi „af vægara tagi“ yrði aflétt en
gróft klámefni yrði áfram bannað.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra segir tillögur nefndarinnar
athyglisverðar, en ljóst sé að um
ýmsar þeirra geti verið skiptar skoð-
anir. Þær tillögur sem beinist að
dómsmálaráðuneytinu verði teknar
til frekari skoðunar hjá ráðuneytinu
og hjá refsiréttarnefnd en hún býst
við að sumar tillagna nefndarinnar
komi fram í lagafrumvarpi sem lagt
verður fram á haustþingi.
Í skýrslu nefndarinnar segir að Ís-
land sé eina ríkið á Norðurlöndunum
þar sem refsivert er að stunda vændi
í framfærsluskyni. Telur nefndin að
þeir sem veita kynlífsþjónustu gegn
gjaldi séu í flestum tilvikum einhvers
konar fórnarlömb, s.s. fíkniefna eða
kynferðislegrar misnotkunar, og
þurfi því á hjálp að halda og þurfi að
eiga þess kost að leita hjálpar án
þess að eiga refsingu yfir höfði sér.
Skýrt er tekið fram að ekki sé verið
að lögleiða vændi og leggur nefndin
áherslu á að kapp verði lagt á að
koma lögum yfir þá sem gera sér
neyð viðkomandi einstaklinga að fé-
þúfu, vændismiðlarana, eins og þeir
eru nefndir í skýrslunni.
Vændi til framfærslu
verði ekki refsivert
Brýnt að/31
SELIRNIR í Hindisvík á Vatns-
nesi höfðu það náðugt í gær og
vörðust sólskininu. Þeir þurfa
sjálfsagt að halda því áfram í dag
þegar sumarsólstöður eru og
lengstur sólargangur.
Morgunblaðið/RAX
Selir í sólbaði
HELDUR óvenjulegt mál kom
inn á borð lögreglunnar í Reykja-
vík í gær þegar borgarar hringdu
til hennar eftir að hafa hlýtt á við-
tal í útvarpsþætti. Viðtalið var við
mann sem staðhæfði að hafa verið
nýlega í veislu þar sem kóbra-
slanga hefði sloppið út.
Að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík mun maðurinn hafa greint frá
því í viðtalinu að hann hefði verið í
veislu síðastliðið mánudagskvöld í
húsi í Borgahverfi í Grafarvogi
þar sem eiturslöngur hefðu verið í
búri. Ein þeirra, einhvers konar
kóbraslanga, hefði síðan sloppið
út. Var fólki bent á að vara sig ef
það sæi eitthvað mjótt og langt á
jörðinni og vara sig á að beygja
sig niður að því.
Í kjölfar viðtalsins hafði nokkur
fjöldi fólks samband við lögregl-
una til þess að forvitnast um málið
og þær fyrirspurnir leiddu til þess
að lögreglan setti sig í samband
við stjórnanda þáttarins þar sem
viðtalið var tekið. Við eftir-
grennslan kom í ljós að þátta-
stjórnandinn vissi ekki nafn við-
mælanda síns og segir lögregla að
á því hafi rannsókn málsins
strandað. Viðkomandi hafi ekki
gefið sig fram þrátt fyrir að lýst
hafi verið eftir honum á sömu út-
varpsstöð.
Að sögn lögreglu er ekki vitað
hvort um gabb var að ræða en
hins vegar þótti stjórnanda þátt-
arins maðurinn trúverðugur.
Haldið verður áfram við að kanna
sannleiksgildi frásagnarinnar, að
sögn lögreglu.
Sagði eitur-
slöngu hafa
sloppið úr húsi
Leitað viðmælanda úr útvarpsþætti
Fundu
fíkniefni við
leit að þýfi
LÖGREGLAN í Árnessýslu og
Reykjavík lagði hald á ýmiskonar
fíkniefni sem fundust við húsleit í
íbúðarhúsi á Eyrarbakka síðdegis í
fyrradag. Við leitina fannst amfeta-
mín, e-pillur, maríjúana og hass.
Að sögn lögreglunnar í Árnes-
sýslu var um talsvert magn fíkniefna
að ræða en það voru lögreglumenn
frá auðgunarbrotadeild lögreglunn-
ar í Reykjavík ásamt lögreglunni í
Árnessýslu sem gerðu húsleitina.
Ástæða leitarinnar var sú að grunur
lék á að í húsinu væri geymt þýfi úr
innbroti í Reykjavík. Í húsinu var
gestur sem lögreglan í Reykjavík
hafði verið að leita að í tengslum við
innbrot og var hann handtekinn.
Að sögn lögreglu hafði ekki verið
leitað lengi þegar talsvert af fíkni-
efnum fannst en fíkniefnaleitarhund-
ur lögreglunnar í Árnessýslu var
notaður við leitina. Húsráðandi, sem
ekki var heima þegar lögreglan kom,
var handtekinn nokkru síðar. Menn-
irnir voru færðir í fangageymslu og
hefur gestur húsráðanda gengist við
að eiga fíkniefnin.
Leggja til breytingar á almennum hegningarlögum