Morgunblaðið - 05.07.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Festi hf.
hefur fengið frest þar til á hádegi á
mánudag til að koma með áætlun um
hvernig staðið verði að hreinsun
flaks Guðrúnar Gísladóttur KE-15
sem sökk við strendur Lofoten í
N-Noregi 19. júní síðastliðinn. Kaf-
arar hafa að undanförnu rannsakað
skipið þar sem það liggur á 40 metra
dýpi. Tryggingamiðstöðin, sem er
tryggingafélag útgerðarinnar, hefur
enn ekki fengið skýrslu um ástand
skipsins en ákvörðun um hvort skip-
inu verði lyft að hafsbotni eða olíunni
dælt úr því, verður væntanlega
byggð á niðurstöðum skýrslunnar.
Trond Eilertsen, lögmaður út-
gerðarinnar, segir að skipið liggi á
sandöldu á stjórnborðshliðinni. Tals-
verðar skemmdir séu á skipinu eftir
strandið, en það virðist ekki hafa
laskast mikið þegar það lenti á
sjávarbotni. Umfang skemmdanna
eigi eftir að skýrast betur þegar ljós-
myndir af flakinu berast.
Skipatækni gerði kostnaðaráætl-
un fyrir Tryggingamiðstöðina um
hvað það myndi kosta að gera við
skipið, yrði því lyft upp og það fært
til hafnar. Sá kostnaður fékkst ekki
nákvæmlega upp gefinn en mun
hann nema fleiri hundruðum millj-
óna króna.
Gunnar Felixsson, forstjóri
Tryggingamiðstöðvarinnar, segir að
ekki sé hægt að segja til um það á
þessari stundu hvort það borgi sig að
lyfta skipinu upp og gera við það.
Hann segir að einnig hafi komið
fram sú hugmynd að selja skipið
hæstbjóðanda, en um borð í skipinu
er mikið af verðmætum tækjum og
búnaði.
Ottar Lungva, vaktstjóri hjá
Mengunarvörnum norska ríkisins
(SFT), segir að farið verði yfir áætl-
un útgerðarinnar um leið og hún ber-
ist á hádegi á mánudag. Telji SFT að
áætlunin sé ófullnægjandi muni
áfram verða rætt við útgerðina og
séð hvort tilefni sé til frekari skil-
yrða eða tilskipana af hálfu SFT. Að-
spurður hvort óþolinmæði sé farið að
gæta hjá stofnuninni viðurkennir
Lungva að Norðmönnum finnist
þetta allt taka svolítið langan tíma.
Þar sem allra veðra er von við
Lofoten, þar sem skipið sökk, hefur
verið óskað eftir því að framkvæmd-
um verði lokið fyrir sumarlok.
Hefur frest til
mánudags til
að skila að-
gerðaáætlun
Útgerð Guðrúnar
Gísladóttur KE-15
Reykjavík í samræmi við gildandi
deiliskipulag. Byggingin verður alls
um 4.800 fermetrar á fjórum hæðum
ásamt tveggja hæða bílakjallara.
Davíð greindi frá því að í ársbyrj-
un hefði verið ákveðið að efna til
samkeppni um hönnun nýju bygg-
ingarinnar en samkeppnin var haldin
í samstarfi við Arkitektafélag Ís-
lands. Samkeppnin var auglýst í lok
mars sl. Hún var öllum opin og aug-
lýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Tillögum skyldi skila hinn 19. júní sl.
Alls bárust 25 tillögur í samkeppn-
ina. Auk tillögunnar sem lenti í
fyrsta sæti var valin tillaga í annað
sæti, þriðja sæti og í sérstakt auka-
sæti. Formaður dómnefndar var
Skarphéðinn Steinarsson, viðskipta-
fræðingur.
Kynntar á Netinu
Önnur verðlaun hlutu Arkís ehf.,
þ.e. Aðalsteinn Snorrason, arkitekt,
Björn Guðbrandsson, arkitekt, Birg-
ir Teitsson, arkitekt, Gísli Gíslason,
arkitekt, Guðrún Ingvarsdóttir arki-
tekt og Halldór Jón Karlsson bygg-
ingarfræðingur. Nam verðlaunaféð 2
milljónum kr.
Þriðju verðlaun hlutu Erik W.
FORSÆTISRÁÐHERRA, Davíð
Oddsson, kynnti í gær niðurstöður
dómnefndar í hönnunarsamkeppni
um nýja ráðuneytisbyggingu á
stjórnarráðsreitnum við Sölvhóls-
götu í Reykjavík. Fyrstu verðlaun
hlutu arkitektar frá Franken Archi-
tekten GmbH., þ.e. Bernhard Fran-
ken, Carsten Troja og Kirstin Fried.
Í niðurstöðu dómnefndar segir m.a.
að tillagan sé vel af hendi leyst bæði
hvað varðar útlit og innra fyrirkomu-
lag. „Útlit byggingarinnar er metn-
aðarfullt og efnisval utan og innan er
áhugavert. Framsetning tillögunnar
er auðlesin og góð. Hugmyndafræði
tillögunnar er spennandi og heil-
steypt. Sameiginleg svæði og rými
ráðuneytanna er vel fyrir komið.“
Verðlaunaféð var 2,5 milljónir kr.
Davíð Oddsson skýrði frá því áður
en niðurstöður dómnefndar voru
kynntar að á árinu 2000 hefði verið
ákveðið að reisa nýja skrifstofu-
byggingu fyrir dóms- og kirkju-
málaráðuneytið, umhverfisráðuneyt-
ið og heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið. „Brýnt þótti að leysa úr
húsnæðisvanda þessara ráðuneyta,“
sagði hann. Byggingunni var valinn
staður við Sölvhólsgötu 9–11 í
Nielsen, Arnar Þór Jónsson og Hall-
grímur Þór Sigurðsson.
Þá hlaut tillaga Sigrúnar
Birgisdóttur, AAdip, Cherie Yeo,
RIBA, Michele Ragozzino, RIBA,
Simon Molesworth, RIBA, Marie-
Pierre Vandeputte, Penny Tand,
Marie Sundberg, Christopher
Hartshorne og Kalle Soderman
sérstaka viðurkenningu. Nam
verðlaunaféð 600 þúsund krónum.
Sýning á innsendum tillögum
verður opin almenningi í Kennara-
háskóla Íslands dagana 8. til 12. júlí
nk. kl. 13 til 16. Þá verða verðlauna-
tillögur og tillögur sem vöktu sér-
staka athygli dómnefndar ásamt
greinargerð dómnefndar aðgengi-
legar á Netinu en slóðin er:
www.forsaetisraduneyti.is.
Úrslit í hönnunarsamkeppni um nýja ráðuneytisbyggingu
Fyrstu verðlaun hlutu arkitekt-
ar frá Franken Architekten
Morgunblaðið/Arnaldur
Arkitektar frá Franken Architekten GmbH. unnu samkeppnina. Bern-
hard Franken flytur hér þakkarræðu. Fyrir aftan hann stendur Davíð
Oddsson forsætisráðherra og við hlið hans er verðlaunahópurinn.
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða
dæmdi í gær karlmann á fertugs-
aldri í fimm mánaða fangelsi fyrir
kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum
og brot gegn barnaverndarlögum.
Þá var hann dæmdur til að greiða
hvorri stúlkunni um sig 250 þúsund
krónur í miskabætur. Maðurinn var
íþróttaþjálfari og íþróttakennari
stúlknanna sem voru 13 og 14 ára
gamlar þegar brotin voru framin.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að
hafa í nokkur skipti á heimili sínu
strokið stúlkunum innan og utan
klæða undir því yfirskini að um væri
að ræða íþrótta- og slökunarnudd.
Þetta gerðist síðla árs 2000 og í
byrjun ársins 2001. Þá var hann
sakfelldur fyrir að hafa í apríl árið
2001 tælt aðra stúlkuna, þá 14 ára
gamla, til annarra kynferðismaka en
samræðis með því að nýta sér yf-
irburðastöðu sína vegna aldurs- og
þroskamunar. Loks var hann fund-
inn sekur fyrir brot gegn barna-
verndarlögum með því að sýna
stúlkunum ruddalegt athæfi og
særa þær en hann sendi annarri
stúlkunni SMS-skilaboð, þess efnis
meðal annars að hann væri að hug-
leiða sjálfsvíg, og hinni tölvupóst
þar sem hann fjallaði meðal annars
um sjálfsvígstilraun sína og tengdi
hana sakargiftum stúlknanna á
hendur honum.
Alvarlegt trúnaðarbrot
Í niðurstöðu Héraðsdóms Vest-
fjarða segir, að fyrir liggi vottorð
um að maðurinn hafi átt við geð-
hvörf og þunglyndi að stríða, en
dómurinn telji engan vafa leika á
sakhæfi hans. Með háttsemi sinni
hafi hann framið alvarlegt trúnaðar-
brot gagnvart stúlkunum með því að
misnota sterkt trúnaðartraust
þeirra og hrifningu, sem hann hafði
öðlast í krafti stöðu sinnar sem
kennari þeirra og þjálfari en þær
lýstu því m.a. að maðurinn hefði ver-
ið besti vinur þeirra. Þá segir í
dómnum að háttsemi mannsins með
því að senda stúlkunum SMS-skila-
boð og tölvupóst hafi verið gróf og
særandi í garð þeirra og til þess fall-
in að vekja með þeim samviskubit að
ósekju. Maðurinn hafi ekki sýnt
merki þess að hann iðrist háttsemi
sinnar, hafi síðast angrað aðra
stúlkuna með SMS-skilaboðum sím-
leiðis í febrúar sl. Segir dómurinn að
þetta horfi allt til refsiþyngingar og
ekki þyki sérstakar málsbætur fel-
ast í því að hann missti starfa sinn
sem íþróttakennari og -þjálfari eftir
að rannsókn lögreglu byrjaði.
Í skýrslum sálfræðings um líðan
stúlknanna segir m.a. að önnur
stúlkan hafi verið kvíðin og hrædd.
Hún sé döpur og grátgjarnari en
fyrr. Hin stúlkan hafi m.a. átt við
svefnörðugleika og vægt þunglyndi
að stríða. Réttargæslumenn stúlkn-
anna, þau Sif Konráðsdóttir hrl. og
Sveinn Andri Sveinsson hrl., gerðu
kröfu um annarsvegar 400.000 krón-
ur í miskabætur og hins vegar
1.000.000 krónur í miskabætur.
Maðurinn var dæmdur til að greiða
hvorri um sig 250.000 krónur.
Þá var manninum gert að greiða
Birni Jóhannessyni hdl. 250.000 kr.
auk annars sakarkostnaðar.
Héraðsdómararnir Erlingur Sig-
tryggsson og Gunnar Aðalsteinsson
kváðu upp dóminn ásamt Þórkötlu
Aðalsteinsdóttur sálfræðingi.
Íþróttakennari og -þjálfari
dæmdur fyrir kynferðisbrot
„ÞETTA ER alveg geggjað sport,
eitthvað sem maður getur hrein-
lega ekki fengið leið á,“ sögðu
krossararnir Sverrir og Ingólfur
þar sem þeir voru að undirbúa hjól-
in og kannski sjálfa sig líka í góða
veðrinu í vikunni.
Markmiðið? Jú, að tæta og trylla
á krossurunum á Hellisheiðinni –
en þó af nærgætni við náttúruna:
„við hjólum eftir slóðum hérna í
heiðinni og pössum sérstaklega að
hjóla ekki út í mosann.“
Sverrir og Ingólfur eru engir ný-
græðingar, þeir hafa stundað
krossið í um áratug og segjast aldr-
ei fá nóg. Þeir neita því ekki að
þetta sé dálítil útgerð, hjólin sjálf
séu í raun keppnisgræjur þótt þeir
keppi ekki sjálfir og séu því ekki
beinlínis ókeypis. Auk þess þurfi
svo kerru til að koma hjólunum á
staðinn, galla og hlífar o.fl. Og ný
afturdekk nokkuð reglulega. En
þetta er hverrar krónu virði, taka
þeir fram.
„Í svona góðu veðri tökum við
nærri því allan daginn í þetta, reyn-
um að hjóla að minnsta kosti í fjóra
fimm tíma. En þetta tekur gletti-
lega vel í og betra að vera í góðu
formi.“
„Jú, þetta er súmm, bensín með
olíu,“ segja félagarnir. „Það eru
tvígengisvélar í þessum hjólum.
Tankurinn tekur níu lítra og það
gengur fljótt á þetta því þessi hjól
eru keyrð á miklum snúningi. Við
komum aftur hingað til þess að
fylla á tankana og borða.“
Bilanir! Nei, nei. „Það kviknaði
að vísu í mínu hjóli í síðasta túr,“
viðurkennir Ingólfur. „Bremsu-
klossarnir að aftan festust og við
það myndaðist gífurlegur hiti sem
varð til þess að það kviknaði í plast-
hlíf yfir bremsudiskinum. Þannig
að græjan logaði bara öll hjá mér.
En hvernig er það, viltu ekki
bara taka í?“
Fákarnir og frelsið
Morgunblaðið/Jim Smart