Morgunblaðið - 05.07.2002, Side 43

Morgunblaðið - 05.07.2002, Side 43
Þegar að því kom að undirritaður baslaði við að koma sér upp búi á æskuslóðunum í Helludal var gott að eiga Steina að. Hann vann að upp- byggingunni með mér öllum stund- um. Þegar að því kom að mínar að- stæður til búskapar urðu erfiðar sýndi hann mér skilning sem ég met mikils. Steini var af þeirri kynslóð sem hefur upplifað slíkar breytingar að með ólíkindum getur talist. Þegar hann var ungur var nánast ekkert til sem kallast gat tækni og allt var unn- ið með handafli. Hann þurfti að vinna baki brotnu fram yfir miðjan aldur, líkami hans bar þess merki þegar hann tók að eldast. Steini var einstak- lega ósérhlífinn og trúr sínu starfi. Umhyggjan fyrir skepnunum gekk fyrir öllu öðru. Hann minnti mjög á góða hirðinn í biblíusögunum. Ekki var að tala um annað en vaka heilu og hálfu næturnar um sauðburð, ekkert mátti fara úrskeiðis. Ef það kom fyrir að hann missti lamb um sauðburð átti hann mjög erfitt með að sætta sig við það, ekki það að hann væri að hugsa um fjárhagslegt tjón heldur fann hann til með þeirri á sem í hlut átti. Búskap sinn rak Steini ekki með gróðasjónarmiði heldur var þar fyrst og fremst um lífstíl að ræða. Skepn- urnar voru hans vinir og félagar, það lá við að þær nytu fullra mannrétt- inda, slík var umhyggjan og natnin. Steini hafði sterka trú, það duldist engum sem til hans þekktu. Hann hélt fast við þá skoðun sína að annað líf tæki við að þessu loknu og hann var nokkuð viss að það líf yrði enn betra en þetta. Hann hafði gaman af vanga- veltum um trúmál við samferðafólk sitt. Honum líkaði það miður ef fólk lét það í ljós að það væri trúlaust. ,,Það hafa allir sína trú, sama hvað hver segir,“ sagði hann oft af mikilli sannfæringu. Nú er hann kominn til nýrra heimkynna. Það var kært með þeim systkinun- um frá Helludal. Tómas faðir minn horfir nú á eftir sínu síðasta systkini. Þeir voru nánir bræðurnir og var líf þeirra býsna samtvinnað í gegnum árin. Honum er efst í huga þakklæti og hlýja fyrir samfylgdina með Steina. Nú skilja okkar leiðir Steini minn, ég hlakka til endurfunda við þig þó síðar verði. Ég veit að þú yfirgafst heiminn sáttur við allt og alla. Þú skil- aðir merku lífsstarfi en þér fannst erfitt að vera orðinn svo lasburða síð- ustu misserin. Nú hefur þinn lúni lík- ami lokið sínu hlutverki hér á jörð. Ég er viss um að við tekur betra líf hjá heilbrigðri sál í hraustum líkama. Hafðu mínar allra bestu þakkir fyr- ir allar okkar góðu stundir og fyrir alla þá velvild sem þú sýndir mér. Þú verður mér ávallt ofarlega í huga. Vandaðri maður en þú er vandfund- inn. Föður mínum og öllum vinum og vandamönnum Steina vottum við Sig- rún samúð okkar. Blessuð sé minning þín, Steini minn. Þinn frændi og vinur, Kristófer Tómasson. Ég vil minnast gamals vinar míns og nágranna Steinars Tómassonar frá Helludal. Hann bjó alla ævi í Helludal ásamt bróður sínum Tómasi. Höfðu þeir upphaflega blandaðan bú- skap, en síðar eingöngu fjárbúskap. Gegndi Steinar þá fé í fimm fjárhús- um, en Tómas bróðir hans vann oft utan heimilis. Steinar var afar góður fjármaður. Hann var góður nágranni, en best kynntist ég honum þegar við fórum í mörg ár, vor og haust, ásamt Jóni eldri frá Laug, að kvíslinni sem var á leiðinni uppfrá skálanum að Hagavatni. Var það okkar hlutverk að setja göngubrú yfir kvíslina á vor- in, en á haustin tókum við hana niður og fergðum. Hafði Jón eldri umsjón með verkinu enda var hann í Ferða- félaginu sem sá um brúna. Þessar ferðir eru mér afar minnisstæðar og kom þá ljúfmennska og hjálpsemi Steinars vel í ljós. Það kom að veru- legu leyti í hans hlut að annast móður sína í veikindum síðustu ár hennar. Ég minnist þessa vinar míns með söknuði og sendi ég Tómasi, sem lifir bróður sinn, og Kristóferi syni hans mínar innilegustu samúðarkveðjur. Þinn vinur Jón S. Kristbergsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 43 ✝ Elín Frímanns-dóttir fæddist í Reykjavík, hinn 26. nóvember 1935. Hún lést á líknardeild Landakotsspítala hinn 29. júní síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Frí- mann Einarsson frá Þingskálum á Rang- árvöllum, f. 21. mars 1890, d. 16. desember 1976, og Kristín Ólafsdóttir frá Vind- ási í Kjós, f. 19. apríl 1895, d. 9. maí 1987. Systkini Elínar eru Jóhannes, f. 1919, d. 1997, Guðbjörn, f. 1921, Guðrún Dagbjört f. 1923, Ingi- björg, f. 1924, d. 1994, Bára, f. 1926, d. 1929, Marvin, f. 1928, d. 1991, Ólafur, f. 1929, Helga, f. 1931, Einar, f. 1932, María Bára, f. 1933, d. 1982, og Kristín, f. 1941. Sonur Elínar frá fyrri sambúð er Hallgrímur Georg Guðbjörnsson, f. 16. desember 1953, d. 1976. Hinn 28. desember 1957 gekk hún að eiga Grím Sigurgrímsson frá Holti í Stokkseyrarhreppi, f. 16. ágúst 1935. Börn þeirra eru: 1) Frímann, f. 20. desember 1958, maki Margrét Á. Hrafnsdóttir, f. 29. ágúst 1960. Börn þeirra eru; Guðni Þór, f. 1981 og Elín, f. 1988. 2) Jón, f. 8. desember 1959, maki Sigríður Guð- mundsdóttir, f. 4. mars 1958. Börn þeirra eru; Grímur, f. 1986, Una Björg, f. 1989 og Guðmundur Ingi, 1996. 3) Hrafn- hildur, f. 13. febrúar 1961, maki Þorgeir Sæberg, f. 4. ágúst 1961. Börn þeirra eru; Linda Sæberg, f. 1982 og Agnes Björk f. 1991. 4) Ingibjörg f. 8. nóvember 1964, maki Gísli Haraldsson f. 9. júní 1955, börn þeirra eru Kristín Guð- björg f. 1993 og Júlía f. 1995. Son- ur Ingibjargar er Róbert Már Stefánsson f. 1983. Elín ólst upp hjá foreldrum sín- um á Selfossi og lauk sinni skóla- göngu við unglingaskólann á Sel- fossi. Hún vann við verslunar- og þjónustustörf á Selfossi, ásamt heimilisstörfum. Síðan vann Elín sem matráðskona við leikskóla Kópavogs og Reykjavíkurborgar frá 1979 þar til hún veiktist. Útför Elínar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Það er sorglegt að eins ung og hraust kona og Ella tengdamóðir mín var fái ekki að njóta fleiri bjartra sumarnótta, en minningin um hana verður alltaf björt. Ella var ákaflega dugleg og gest- risin og hafði góða nærveru, hún var börnum mínum góð amma og alltaf tilbúin að dekra ungviðið og hafði einstakan skilning á unglinga (vanda)málum innan og utan fjöl- skyldunnar, ég held að unglingurinn í henni hafi alltaf verið til staðar. Á sumrin naut Ella þess að ferðast, innanlands og utan, tjald- vagninn var nánast annað heimili þeirra hjóna á sumrin, en aldrei var staldrað lengi við á sama stað en þar réð flökkueðlið ríkjum. Þrátt fyrir illvígan sjúkdóm og annan til sem gerði það að verkum að hún varð nánast bjargarlaus síð- ustu mánuðina tók hún því með miklu æðruleysi og alltaf tilbúin að takast á í baráttunni. Að gefast upp var ekki til í hennar huga enda hafði hún orðið fyrir því áfalli í lífinu að lifa barn sitt. Þrautseigjan og eljan var henni í blóð borin. Ég kveð tengdamóður mína með þeim óskum að næsti áfangastaður verði henni góður. Minning hennar lifir. Sigríður Guðmundsdóttir Nú er þessi erfiða barátta hjá Ellu ömmu búin og nú er hún farin á betri stað þar sem henni líður betur. Alltaf þegar við komum til ömmu Ellu fengum við aldrei að fara svöng út. Við gátum alltaf stólað á að amma ætti kæfuna sína og ísblóm. Á hverju ári var tekinn einn dagur fyr- ir jól þar sem barnabörnin komu til ömmu og afa og bjuggu til pipar- kökuhús og eftir þessum degi biðu barnabörnin mjög spennt. Síðan hvern jóladag kom svo öll fjölskyld- an saman og átti yndislega kvöld- stund saman hjá ömmu og afa. Öll sumur voru amma og afi aldrei í borginni þegar þau áttu frí. Þau fóru í útilegu út á land og að veiða og eiga öll barnabörnin minningar úr útilegunum með þeim þar sem sofið var með þykka dúnsæng og brúna teppið yfir sér. Amma Ella var alltaf vel til höfð hvort sem hún var í vinnu eða heima og hélt því eftir að hún varð veik, bæði þegar hún lá heima eða á sjúkrahúsinu og heyrðist ósjaldan: „Settu nú á mig smá varalit.“ Amma Ella var alltaf mjög glaðlynd og mjög sanngjörn. Hún vildi allt fyrir okkur gera og barnabörnin voru allt- af velkomin til hennar. Hún var þessi fullkomna amma, hún var svo ung í anda og var inni í öllu sem var að gerast hjá okkur og var hægt að tala við hana um alla hluti. Hjá henni voru unglingavandamál ekki til held- ur voru það foreldravandamál. Gestrisnari manneskju var varla hægt að finna og meira að segja eftir að hún varð veik og gat varla bjarg- að sér sjálf, var hún samt alltaf að hugsa um hvort okkur vanhagaði um eitthvað. Elsku afi við óskum þess öll að finna maka í framtíðinni sem er eins og þú. Þvílík ást og umhyggja sem þú sýndir ömmu alltaf og ekki síst í veikindunum. Við viljum kveðja þig elsku Ella amma okkar með þessum orðum og við munum aldrei gleyma þér: Þú ert amman sem allir þrá, alltaf mun ég elska þig og dá, heppin ég er að eiga þig, lífið þú gerir betra fyrir mig. Barnabörnin. Ég er stödd í Dalbæ á Snæfjalla- strönd við Ísafjarðardjúp. Komin aftur í samband við umheiminn eftir fimm daga gönguferð um Jökulfirði. Opna talhólfið í símanum og hlusta á skilaboð, fréttirnar eru ekki góðar. Þó gleði og glaumur ríki í göngu- hópnum mínum, er ég með hugann annars staðar. Ég rifja upp fyrstu kynni mín af Elínu. Var leikskóla- stjóri í leikskólanum Kópasteini í Kópavogi. Man það líkt og það hefði gerst í gær: „Jóhanna... það er ein- hver að spyrja um þig...“ Í símanum er kona, sem spyr umbúðalaust og með ákveðni í röddinni: „Voruð þið að auglýsa eftir matráðskonu?“ Ég jánka því. Konan kynnir sig og gengur hreint til verks: Hún spyr um umfang starfsins, vinnutímann og launin. Þetta er kona sem veit hvað hún vill. Eftir að hafa svarað spurningum hennar kemur nokkur þögn. Gerir athugasemd við launin, það eru svo sem engar vellystingar í boði. Nei, það var svo sem satt. En áhugi minn á þessari konu er vakinn. Hér er greinilega mætt til leiks kona sem kann til verka. Ég tek til við að mæra kosti þess að vinna í leikskóla, góður vinnutími, sumarlokun á besta orlofstíma. Eldhúsið allt endurnýjað og gott skipulag á því. Og þó launin væru að sönnu ekki há, þá væru þau þó alltént greidd út umyrðalaust og á réttum tíma. O sei, sei... konan kannaðist nú við það. Hafði nú svo sem áður starfað sem matráðskona hjá Kópavogsbæ. Ég fyllist forvitni. Hvar vannstu hjá Kópavogsbæ, spyr ég. Hún segir mér það. Ég vil ekki sleppa henni úr símanum nema fá hana að minnsta kosti til að kíkja á aðstæður. Ég mátti til með að hitta þessa vasklegu og mjög svo ákveðnu konu. Þetta var í byrjun tíunda áratug- arins. Þá voru ekki svo margir leik- skólar í Kópavogi og við leikskóla- stjórarnir í bænum þekktum margt af starfsfólki hvers annars. Ég reyndi ákaft að koma þessari konu fyrir mig. Hver var þessi skörulega kona í símanum? Ég hringdi í leikskólastjórann sem hún hafði áður starfað hjá. „Hún Ella! Þú ert nú ekki svikin af henni...“ Ég ein- hvern veginn vissi það! Meðmælin styrktu mig enn í þeirri trú að þetta væri einmitt konan sem ég væri að leita að. Og góðu heilli, þá varð mér að ósk minni, Elín þáði starfið. Þannig minnist ég fyrstu við- kynna okkar Elínar Frímannsdótt- ur. Elín var sannarlega starfinu vaxin og vel það. Hún reyndist mér alla tíð bæði mjög hollur og traustur starfs- maður. Gekk ævinlega rösklega til verks, vel skipulögð, létt í spori. Hún var létt í lund og hafði ríka réttlæt- iskennd. Var hrein og bein í öllum samskiptum, kom ævinlega til dyr- anna eins og hún var klædd. Henni var einkar lagið að virkja fólk í kringum sig til samstarfs. Stundum var ég beðin fyrir unglinga í starfsþjálfun í eldhúsi. Þegar eftir slíku var leitað tók Elín því vel. Veitti góða leiðsögn og hvatti krakk- ana til dáða, hrósaði fyrir það sem vel var gert og gekk eftir því að unn- ið væri samkvæmt fyrirmælum. Það var leikskólanum Kópasteini mikið lán að fá hana til starfa. Hún var líka góður vinnufélagi. Ég áttaði mig fljótlega á því að hér var mikil útivistarkona á ferð og veð- ursæl með afbrigðum. Iðulega mætti hún endurnærð til vinnu á mánu- dagsmorgnum og lét falla orð um dásamlega helgi... sól og hita, ekki ský á himni... Við hin á kaffistofunni horfðum á þessa fjörmiklu og frísku konu. Hvaðan var hún eiginlega að koma? Þá var kannski búið að rigna eldi og brennisteini yfir okkur hér á höfuðborgarsvæðinu. Virðing mín fyrir þessari konu jókst. Mér hafði alltaf vaxið óend- anlega mikið í augum að pakka mér í tjald. Sá fyrir mér endalaust vesen við örðugar aðstæður, kulda og vondan svefn á harðri jörð með til- heyrandi stirðleika og verkjum um allan skrokk að morgni. Ella var nú ekki sammála því. Þetta var ekkert mál! Hjá þeim Grími var hver hlutur á sínum stað, bara raðað í bílinn og ekið af stað. Jú, vissulega þyrfti að hafa réttu græjurnar... og svo seldi hún mér gamla tjaldið sitt. Ég setti það sem skilyrði fyrir kaupunum að þau Grímur tækju okkur Hilmar með í fyrstu útileguna til að kenna okkur útilegulistina. Sem og varð. Svo sló Ella í pönnukökur og hellti upp á kaffið með gamla laginu úti í Guðs grænni náttúrunni, rétt eins og ekkert í heiminum væri eðlilegra. Ég, sem hafði hingað til flokkast undir það að vera „stofustáss“, kona sem nennti ekki að bjástra við mat- seld, þrif og hreinlæti í útilegu- mannastíl, var allt í einu orðin ákaf- ur unnandi tjaldferða. Ég horfi yfir Djúpið... Sólin skín og fjallahringurinn speglast í speg- ilsléttu Ísafjarðardjúpinu. Fjalla- fólkið er sólbrunnið eftir erfiða en hreint frábæra ferð. Það skyldi nú ekki vera að hún Ella ætti nokkurn þátt í þeim persónulega áfanga mín- um að leggja yfirleitt í slíkt ferðalag og komast alla leið? Hér skiljast okkar leiðir, farsælu ævistarfi er lokið. Það ríkir friður og sátt, því eitt sinn skal hver deyja. Ég er þakklát fyrir yndislegar samvistir við skemmtilega, gefandi og heilsteypta konu. Þakklát fyrir að hafa eignast hana að vini. Þakklát fyrir þau ár sem leiðir okkar lágu saman. Kæri Grímur og fjölskylda, við Hilmar, Júlía og Kallý vottum ykkur öllum dýpstu samúð okkar. Megi al- góður Guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Jóhanna Thorsteinson. Það var fyrir nokkrum árum að ég las sögu um lítinn dreng, sem var að missa móður sína, sem hafði verið veik lengi. Faðir hans sagði honum að nú liði mömmu vel. Hún væri hjá Guði og henni væri alveg batnað. Sá litli hugsaði um stund, leit svo á föð- ur sinn með tárin í augunum og sagði: En pabbi ef mömmu líður vel núna, af hverju finn ég þá svona mikið til í hjartanu. Hann var svo lít- ill, hann hafði ekki gert sér grein fyrir að þetta var sorg. „söknuður.“ Það voru margir sem fundu til í hjartanu núna þegar Ella Frímanns, eins og hún var ævinlega kölluð af vinum, kvaddi, og fór í sína hinstu för. Ella var vel gerð, fríð kona, glað- lynd og alltaf gott að vera í návist hennar, það var engin lognmolla, hún hreif alla með sér í gott skap. Hún var dugleg í vinnu og sterk. Hún hafði yndi af gönguferðum og útilegu og öllu sem því tilheyrir. Þær eru ófáar ferðirnar sem farið var með tjaldvagninn um helgar og verið úti í náttúrunni. Hún skildi ekkert í þeim sem áttu sumarbústað og voru alltaf á sama stað, það hentaði ekki Ellu. Við kynntumst á Selfossi í kring- um 1960. Það var um nóg að hugsa þá, staðið í barneignum og húsbygg- ingum. Ærinn starfi. En við Ella fundum oft stund til að setjast niður og spjalla. Það var yndislegt að eiga svo góðan vin, sem hún var. Leiðir skildi um tíma er Grímur og hún fluttu til Keflavíkur og síðan til Sví- þjóðar, en aldrei slitnaði sambandið alveg og eftir að þau komu heim endurnýjaðist það. Ella var fagur- keri, hún og Grímur áttu fallegt heimili, hún hafði yndi af fallegum munum og vissi alveg hvar þeir áttu að vera til að þeir nytu sín sem best. En það var ekki allt dans á rósum. Ella hafði kynnst sorginni, misst báða foreldra sína, son sinn og fjög- ur systkini, hún hefur oft fundið þennan verk í hjartanu sem við nefn- um sorg. En tíminn læknar öll sár, segir gamalt máltæki. Ég er ekki viss um það, það hylmar yfir sárin, en það má lítið við þau koma að þau rifni ekki upp. Góðar minningar hjálpa, það er það dýrmætasta sem við eigum og enginn tekur frá okkur. Ella skilur eftir mikið af þeim og fyr- ir þær vil ég þakka, þær eiga eftir að lina þennan verk í hjartanu um ókomin ár. Það eru ekki margir mánuðir síðan Ella fann fyrir þess- um vágesti sem heltók hana. Að sjá Ellu hjálparvana í rúminu, það var mikil raun, en hún átti stoð, þar sem Grímur var, öllum stundum var hann hjá henni og hjálpaði eins og hann gat. Kannski bara með nær- veru sinni gerði hann svo mikið. Ást sést best þegar eitthvað bjátar á, hún sást vel hjá Grími á þessum síð- ustu vikum. Ég og maðurinn minn, Sigurður, viljum þakka Ellu fyrir öll árin sem við áttum saman. Við biðj- um að góður Guð verði með Grími og börnum og fjölskyldum þeirra og hjálpi þeim í gegnum erfiðan tíma. Mig langar að kveðja Ellu með vísu- korni sem ég kann: Ég minnist þín er sé ég sjóinn glitra við sólarhvel. Og þegar mánans mildu geislar titra ég man þig vel. (Höf. óþ.) Guð blessi þig, Ella mín. Þín vinkona, Svava Sigurðar. ELÍN FRÍMANNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.