Morgunblaðið - 05.07.2002, Blaðsíða 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 17
Kefla-
valtarar
fiú sér› strax
Er v
inni
ngu
r í lo
kinu
?
Sími 525 3000 • www.husa.is
20-40%
Útimálning
á stein, þak og timbur
afsláttur í júlí
SEXTÁNDA starfsár Sumartón-
leika í Akureyrarkirkju hefst sunnu-
daginn 7. júlí, kl. 17 með tónleikum
danska kórsins Tritonus undir stjórn
John Höybye. Hann stofnaði Triton-
us-kórinn árið 1971 í Kaupmanna-
höfn og hefur kórinn um árabil verið
í flokki fremstu kóra Danmerkur.
Hann hefur tvisvar tekið þátt í evr-
ópskum kórakeppnum með frábær-
um árangri og hið sama má segja um
alþjóðlegar keppnir sem hann hefur
tekið þátt í.
Stjórnandinn John Höybye er vel
þekktur stjórnandi og eftirsóttur
kennari á kóramótum og námskeið-
um víða um heim. Hann starfar sem
aðstoðarprófessor í tónlist við Kaup-
mannahafnarháskóla. Hann hefur í
auknum mæli snúið sér að tónsmíð-
um og hafa verk hans hlotið viður-
kenningu jafnt innan sem utan
heimalandsins og verið gefin út á
Norðurlöndum, í Bretlandi og
Bandaríkjunum. John hefur hlotið
margvíslegar viðurkenningar fyrir
störf sín og tónsmíðar. Nefna má að
hann ásamt Peder Pedersen stóð að
útgáfu verksins Sacred Consert eftir
Duke Ellington fyrir blandaðan kór,
stórsveit og einsöngvara.
Á efnisskránni í Akureyrarkirkju
verður frumflutningur á verkum
sem styrkt voru sérstaklega af Nor-
ræna menningarsjóðnum í flokknum
Ný norræn kirkjutónlist, en það eru
Þakkargjörðarsálmar eftir höfund-
ana Kari Bæk frá Færeyjum,
Tryggva Baldvinsson frá Íslandi og
John Höybye frá Danmörku. Einnig
verða flutt verk eftir P.E. Lange-
Müller, Knut Nystedt, Mendelsohn-
Bartoldy, Carl Nielsen og Ernst
Toch.
Sumartónleikar í Akureyrar-
kirkju verða haldnir fimm sunnu-
daga í röð í júlí- og ágústmánuði og
er aðgangur að þeim ókeypis.
Sumartónleikar
í Akureyrarkirkju
Einn
fremsti
kór Dan-
merkur
syngur
LAUGARDAGINN 6. júlí kl. 16
verður opnuð myndlistarsýningin
Samhengi í Ketilhúsinu á Akur-
eyri. Það eru myndlistarmennirn-
ir Aðalsteinn Svanur Sigfússon og
Elli sem hengja nú saman sýningu
öðru sinni og velta fyrir sér sam-
hengi hlutanna.
Aðalsteinn Svanur sýnir nýjan
hluta af verkefninu Heimkynni
sem hann vinnur að um þessar
mundir og notar tölvuprentaðar
ljósmyndir og texta; fjallar að
þessu sinni um tímann og fortíð-
arþrána.
Elli sýnir ný málverk, þar sem
hann kannar m.a. hvaða áhrif það
hafi á verkin að hluta þau sundur
og jafnvel fjarlægja hluta þeirra.
Sýningin, sem er hluti af dag-
skrá Listasumars á Akureyri, er
opin alla daga nema mánudaga frá
kl. 14–18 og henni lýkur hinn 21.
júlí.
Auglýsingastofan Stíll og ÚA
styrkja sýninguna.
Sýningin Sam-
hengi í Ketilhúsinu
alltaf á föstudögum
LANDSMÓT Oddfellowa í golfi
verður haldið á golfvelli Golfklúbbs
Akureyrar, Jaðarsvelli, laugardag-
inn 13. júlí nk.
Mótið er 18 holu punktamót með
og án forgjafar og er hámarks vall-
arforgjöf 28 fyrir karla og 32 fyrir
konur. Þátttökurétt hafa allir Odd-
fellowar og makar þeirra.
Skráningu í mótið lýkur miðviku-
daginn 10. júlí kl. 22 en hún fer fram í
golfskálanum í Urriðavatnsdölum,
sími 565 9092 og á Jaðarsvelli sími
462 2974.
Landsmót
Oddfellowa
í golfi
♦ ♦ ♦