Morgunblaðið - 05.07.2002, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 05.07.2002, Blaðsíða 62
FÓLK Í FRÉTTUM 62 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ TOYOTABLAÐIÐ ER KOMIÐ ÚT. Kíktu á nýjan vef Toyota, www.toyota.is, og náðu þér í eintak. Ef þú vilt fá blaðið sent til þín getur þú haft samband við þjónustuver Toyota í síma 570 5000. www.toyota.is ÍSLE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 18 25 6 0 7/ 20 02 NÁÐU ÞÉR Í EINTAK… BT OPNAR Í SMÁRALIND LAUGARDAG KL. 11:00 EKKI MISSA AF ÞESSU! Snobbhænsn (Stiff Upper Lips) Gamanmynd Bretland 1998. Skífan VHS. (91 mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn Gary Sinyor. Aðalhlutverk Prunella Scales, Peter Ustinov, Georgina Cates. ÞAÐ hlaut að koma að því að gert yrði gys að búningamyndum Merchant og Ivory, Maurice, A Room With a View, Howard’s End, Remains of the Day, og hvað þær nú heita allar myndirnar um ástir og afbrýði á blómatímabili há- stéttarinnar bresku. Enda liggja þessar myndir nú ekkert lítið vel við höggi. Kosið er að taka Zucker-Abra- ham-Zucker pólinn í hæðina, dæla bara nógu fjandi mörgum brönd- urum, svona til að ekki fari á milli mála að um gamanmynd sé að ræða. Og útkoman er bara nokkuð vel við unandi því Stiff Upper Lips er í það heila fyndin mynd, í það minnsta alltaf brosleg. Brandar- arnir reyndar misfyndnir eins og gengur, sumir alveg lamaðir á meðan aðrir hitta beint í mark. En það var kominn tími til að henda gaman að öllu snobbinu, bælda þjóninum, kynóðu jómfrúnni, skápahommanum sem telur sig verða að giftast henni og jú reynd- ar líka hinum óheflaða en heillandi lágstéttarsjarmör sem tekur per- sónu DiCaprios í Titanic eins mik- ið í bakaríið og þær sem finna má í búningamyndunum. Skemmtilega uppskrúfað.  Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Skemmti- lega upp- skrúfað Að skapa skrímsli (How to make a monster) Hrollvekja Bandaríkin 2001. Skífan VHS. (91 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Georg Huang. Aðalhlutverk Clea Duvall, Steve Culp. HÓPI tölvuforritara er safnað saman undir dularfullum kringum- stæðum til að skapa metsöluleik á mettíma fyrir fyr- irtæki sem virðist hafa eitthvað óhreint í poka- horninu. Þegar nýja leikjagerðin kemst í gang virð- ast ill öfl losna úr læðingi sem tengj- ast leiknum á ein- hvern allt að því óskiljanlegan máta. Smám saman, eins og hefð er fyrir í hryllings- myndum, byrja síðan tölvunördin að týna tölunni. Myndin á við tvö alvarleg vanda- mál að stríða. Fyrra er viðvanings- háttur allra sem nálægt henni koma en seinna, sem reynist öllu fyndn- ara, er að tölvuleikurinn sem er rót vandræðanna er svo hlægilega illa gerður (líkist einna helst frumstæðri útgáfu af Doom) að ómögulegt er að taka hann, eða hrakfarir þeirra sem lenda í klónum á leiknum, öðruvísi en sem einum stórum brandara. Sem vafalaust var ekki ætlunin. ½ Heiða Jóhannsdóttir Léleg sýnd- arskrímsl AÐALFUNDUR Öldungaráðs Fé- lags fyrrverandi starfsmanna Landhelgisgæslunnar var haldinn á dögunum á Hótel Loftleiðum. Öld- ungaráðið var stofnað 1996 og í því eru alls 20 manns sem samanlagt hafa þjónað Landhelgisgæslu Ís- lands í 500 ár! Ráðið kemur saman 8 mánuði ársins á reglulegum hádegisverð- arfundum þar sem mikið er skrafað og þá gjarnan rifjaðar upp gamlar og góðar stundir. Hér gefur að líta stjórn Öldungaráðsins, sitjandi aðalfund. F.v.: Gísli Ólafsson meðstjórnandi, Helgi Hallvarðsson meðstjórnandi, Ólafur Val- ur Sigurðsson varaformaður, Jón Magnússon formaður, Guðjón Jóns- son meðstjórnandi og loks Valdimar Jónsson endurskoðandi. 500 ár hjá Landhelg- isgæslunni ♦ ♦ ♦ Viltu léttast um 1-4 kíló á viku Símar 557 5446 og 891 8902 (Ásta)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.