Morgunblaðið - 05.07.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 05.07.2002, Síða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Jóni Stein- ari Gunnlaugssyni, lögmanni fimm stofnfjáreigenda í SPRON: „Í 8. gr. samþykkta fyrir Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis segir með- al annars svo: „Færð skal skrá yfir stofnfjáreigendur sparisjóðsins. Í skránni skal tilgreina nafn stofnfjár- eiganda, heimilisfang og kennitölu, ásamt stofnfjáreign hans. ... Skrána skal ætíð geyma í skrifstofu spari- sjóðsins og eiga allir stofnfjáreigend- ur aðgang að henni.“ Í deilumálum undanfarinna daga hafa umbjóðendur mínir óskað eftir að fá skrána með hinum tilgreindu upplýsingum í hendur. Þeir hafa bent á hið augljósa, að tilgangur ákvæð- isins um rétt þeirra til aðgangs að skránni hljóti að felast í því að auð- velda stofnfjáreigendum að ná hver til annars um málefni sparisjóðsins, ekki síst til að undirbúa sig fyrir fundi stofnfjáreigenda. Það sér hver maður að þeim tilgangi verður ekki náð með því að leyfa stofnfjáreiganda að koma á skrifstofu sparisjóðsins og renna þar augum yfir nafnaröð með 1.100 nöfnum. Ákvæðið um að skráin skuli varðveitt á skrifstofu sparisjóðsins þýðir ekki annað og meira en orðin kveða á um. Þar á að vera unnt að ganga að henni vísri. Stjórn SPRON hefur neitað um- bjóðendum mínum um þetta. Virðist stjórnin með þessu vilja koma í veg fyrir að þeir eigi þess raunverulegan kost að ná til annarra stofnfjáreig- enda til að kynna þeim ágreinings- efnin og leita samstöðu þeirra. Með þessu má telja ljóst, að stjórnin mis- beitir yfirráðum sínum yfir skránni. Tekin hefur verið ákvörðun um að óska eftir beinni aðfarargerð til að fá aðgang að henni. Þrátt fyrir fyrirstöðu stjórnenda SPRON í þessu efni hefur umbjóð- endum mínum tekist að skrá niður nöfn fjölda stofnfjáreigenda. Hafa þeir undanfarna daga fengið nokkur bréf frá umbjóðendum mínum varð- andi málið. Bréfin hafa fengið mikil og góð viðbrögð hjá miklum meiri- hluta stofnfjáreigendanna. Þetta lík- ar stjórn SPRON sýnilega illa. Nú hefur hún gripið til þess ráðs, að senda erindi til Persónuverndar og Samkeppnisstofnunar af þessu til- efni. Vill þá ekki betur til en svo, að stjórnin beinir kvörtunum sínum um meðferð listanna að viðsemjanda um- bjóðenda minna, Búnaðarbankanum. Sá banki hefur engin bréf sent til stofnfjáreigenda í SPRON. Það hafa bara stofnfjáreigendurnir fimm gert. Erindi stjórnarinnar að þessu leyti er því út í hött. Hún telur sýnilega heppilegra áróðurslega gagnvart al- menningi, að gera Búnaðarbankann að höfuðandstæðingi sínum fremur en þá fimm stofnfjáreigendur í SPRON, sem nú leitast við að ná vopnum sínum gegn hinni valda- gírugu stjórn. Stjórnin sú virðist einskis svífast í viðleitni sinni til að koma í veg fyrir að fimmmenningarn- ir fái notið þess réttar að tala við aðra stofnfjáreigendur í því skyni að knýja á um að fundur stofnfjáreigenda verði haldinn um ágreiningsefnin. Erindi stjórnar SPRON til þessara tveggja stofnana lýtur einnig að því, að Búnaðarbankinn hafi brotið rétt á sparisjóðnum með því að senda starfsmönnum hans bréf til að út- skýra fyrir þeim, að ekki stæði til að skerða starfsstöðu þeirra og öryggi við hugsanlega yfirtöku Búnaðar- bankans á starfsemi SPRON. Bún- aðarbankinn mun hafa fengið upplýs- ingar um nöfn starfsmannanna á heimasíðu SPRON á Internetinu og fundið svo með uppflettingu í síma- skrá og á annan hátt heimilisföng þeirra. Það er kostulegt af stjórninni að kvarta undan þessu. Enn vill hún freista þess að koma í veg fyrir að menn, sem málið varðar, fái réttar upplýsingar um efni þeirra ágrein- ingsmála sem uppi hafa verið. Hún vill sýnilega geta ótruflað haldið því ranglega að starfsmönnum sínum, að starfsöryggi þeirra sé ógnað gangi fyrirætlanir umbjóðenda minna eftir. Það er auðvitað ekki nema sjálfsagt, að Búnaðarbankinn, sem samið hefur við umbjóðendur mína um að kaupa af þeim stofnfjárhlutina, útskýri bréflega fyrir starfsmönnum SPRON þessa þætti málsins og frá- leitt að með þessu teljist Búnaðar- bankinn hafa brotið einhvern rétt á stjórn SPRON eða starfsmönnunum. Enn hefur mönnum ekki verið bann- að að senda samborgurum sínum bréf. Það er rík ástæða til að beina því enn til stjórnar SPRON að láta nú af valdbeitingu þeirri sem hún beitir í því skyni, að koma í veg fyrir að fund- ur stofnfjáreigenda í sparisjóðnum verði kallaður saman til að segja henni fyrir verkum. Stjórnarmenn ættu að muna, að þeir eru þjónar stofnfjáreigendanna en ekki herrar.“ Yfirlýsing lögmanns fimm stofnfjáreigenda í SPRON ERINDI lögmanns Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) til Samkeppnisstofnunar og Persónu- verndar, þar sem farið er fram á að vinnsla Búnaðarbanka Íslands með skrá yfir stofnfjáreigendur verði stöðvuð, hafði ekki borist Samkeppn- isstofnun þegar Morgunblaðið leitaði þar viðbragða í gær en Persónuvernd barst bréfið um hádegisbilið. Guðmundur Sigurðsson hjá Sam- keppnisstofnun segir að þegar um hitamál sé að ræða komi það oft fyrir að slík erindi berist til fjölmiðla fyrst. Hann segir erindið verða tekið til hefðbundinnar skoðunar hjá Sam- keppnisstofnun en að það sé síðan venjan að senda það þeim sem það beinist gegn þannig að sá aðili geti komið að sínum sjónarmiðum. „Síðan fer það eftir svörunum hvert næsta stig verður þannig að það er erfitt að segja til um hversu langan tíma tekur að afgreiða erindið.“ Í 20. grein sam- keppnislaga, sem lögmaður SPRON vísar til, segir: „Óheimilt er að hafast nokkuð það að sem brýtur í bága við góða viðskiptahætti í atvinnustarf- semi eins og þeir eru tíðkaðir eða eitt- hvað það sem óhæfilegt er gagnvart hagsmunum neytenda.“ Aðspurður tekur Guðmundur und- ir að 20. grein samkeppnislaganna sé mjög vítt lagaákvæði og mikið velti því á túlkun þess. Svipuð svör fengust hjá Persónuvernd, þ.e. að Oddur Ingimarsson, einn úr hópi stofnfjár- eigenda, og Búnaðarbankinn fengju tækifæri á að svara fyrir sig. Hörður Helgason, yfirlögfræðing- ur Persónuverndar, segir að sig reki þó ekki minni til þess að erindi af slíku tagi hafi áður borist stofnuninni. Í er- indinu er vísað sérstaklega til fyrstu málsgreinar 7. greinar persónuvernd- arlaga en þar segir að við meðferð persónuupplýsinga skuli gætt að því „að þær séu fengnar í yfirlýstum, skýrum, málefnalegum tilgangi og ekki unnar frekar í öðrum og ósam- rýmanlegum tilgangi“. Leita andsvara hjá Bún- aðarbankanum og Oddi MORGUNBLAÐIÐ birtir hér í heild yfirlýsingu frá stjórn Starfs- mannafélags SPRON: „Samkvæmt frétt í Morgun- blaðinu í dag (3. júlí 2002), hafa bankastjórar Búnaðarbanka Ís- lands sent starfsmönnum SPRON bréf. Þetta bréf hefur ekki borist starfsmönnum, heldur eingöngu stofnfjáreigendum sem afrit. Við teljum að tilgangurinn með birtingu þessa bréfs í fjölmiðlum sé að slá ryki í augu stofnfjáreigenda og almennings og fegra ímynd Búnaðarbankans í þessu máli. Okkur þykir þetta bréf í hæsta máta óeðlileg afskipti af fé- lagsmönnum okkar og endurspegla óþolandi yfirgang. Við leggjum ekki trúnað á yf- irlýsingar bankastjóra Búnaðar- banka Íslands um starfsöryggi starfsmanna SPRON ef af óvin- veittri yfirtöku verður. Yfirtökutilraun Búnaðarbankans er ekki sambærileg við sameiningu og kaup Búnaðarbankans á öðrum fjármálafyrirtækjum. Stjórn Starfsmannafélags SPRON lýsir andstöðu sinni við óvinveitta yfirtökutilraun Búnaðar- banka Íslands. Við lýsum yfir fullum stuðningi við störf Guðmundar Haukssonar sparisjóðsstjóra og stjórn SPRON.“ Yfirlýsing frá stjórn Starfsmannafélags SPRON MORGUNBLAÐIÐ birtir hér í heild bréf sem Jón G. Tómasson, stjórnar- formaður SPRON, ritar fyrir hönd stjórnarinnar og sent var bankaráði Búnaðarbanka Íslands 3. júlí sl.: „Bankastjórar Búnaðarbankans hafa 2. þ.m. sent öllum starfsmönnum SPRON bréf vegna ætlaðrar yfirtöku bankans á sparisjóðnum. Það er áreiðanlega einsdæmi, a.m.k. hér á landi, að forstjórar fyr- irtækis, sem stendur að óvinveittri yf- irtöku, sendi starfsmönnum þess fyr- irtækis bréf – fyrirtækis sem er í samkeppnisrekstri við yfirtökuaðil- ann og með því leitast við að snúa starfsmönnum gegn yfirmönnum þeirra og stjórn. Er þetta framferði ekki í samræmi við góða og viður- kennda viðskiptahætti og hefur það þegar verið fordæmt af stjórn Starfs- mannafélags SPRON. Þess er vænst, að bankaráð Bún- aðarbankans hafi hemil á bankastjór- unum í atgangi þeirra við að ná yf- irráðum yfir SPRON og atlögu að sparisjóðastarfsemi í landinu.“ Bréf stjórnar SPRON til bankaráðs BÍ ORRI Vigfússon, for- maður Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF), var í síðustu viku útnefndur heiðurs- sendiherra yfirvalda á Jótlandi í Danmörku, en þar er nú hafið mikið endurreisnarstarf villtra laxastofna. Michael Aastrup Jen- sen, borgarstjóri í Randers, veitti Orra viðurkenninguna að viðstöddum ýmsum fyrirmönnum, þar á meðal hans hátign prins Richard af Berleburg, Uffe Elleman-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Dana, Casper Moltke greifa, auk ráða- manna veiðistofnana, verndarsam- taka og stangaveiðimanna. Borgaryfirvöld í Randers eiga við sömu vandamál að stríða og Reykja- víkurborg varðandi raforkufram- leiðslu Elliðaánna. Rennslisbreytingar, töpuð búsvæði, stíflur og minnkandi bitmýs- framleiðsla hafa smám saman útrýmt villta laxastofninum í heima- ánum, Gudenaaen og Elliðaánum. Við athöfnina flutti Niels Due Jensen, for- stjóri Grundfos-verk- smiðjanna og formaður Danmarks Vildlaks- center, erindi um end- urreisnarstarfið á Jót- landi sem þegar er farið að skila árangri. Hann hvatti til þess að raforkufram- leiðslunni yrði hætt hið fyrsta, bú- svæðin endurnýjuð svo ekki yrðu frekari tafir á endurreisninni og að virkja mætti hagsmunaaðila, einka- framtakið og hið opinbera til góðra verka. Randers er vinabær Akureyrar. Orri Vigfússon Orri Vigfússon Útnefndur heiðurs- sendiherra yfir- valda á Jótlandi LEITIN að „fyrirmyndarökumann- inum“ hefst með formlegum hætti í dag en um er að ræða samvinnu- verkefni Sjóvár-Almennra, Plús- ferða, Olís og Rásar 2. Fyrirmyndarökumaðurinn verð- ur valinn í beinni útsendingu á Rás 2 en skilyrði fyrir útnefningunni er að hann virði umferðarreglur og sé með „fyrirmyndarlímmiða“ í aftur- rúðunni. Að launum hlýtur sá hinn sami Evrópuferð ásamt bílaleigubíl í viku fyrir tvo. Leitinni verður fram haldið alla föstudaga í júlí og lýkur föstudag- inn fyrir verslunarmannahelgi. Í tilefni þess að átakið hefst í dag verður grillað fyrir ökumenn við Olísstöðina í Álfheimum og hefst veislan kl. 16. Ljósmynd/Sjóvá-Almennar Helena M. Eyjólfsdóttir frá Akureyri á að baki 36 ára tjónlausan akstur. Hún er ein þeirra sem valdir voru fyrirmyndarökumenn sl. sumar. Leitinni fram haldið alla föstudaga í júlí Leitin að „fyrirmyndar- ökumanninum“ hefst í dag EMBÆTTI ríkissaksóknara hefur vísað frá kæru Landssambands kúa- bænda fyrir hönd þriggja bænda á þeirri ákvörðun efnahagsbrotadeild- ar ríkislögreglustjóra að hafna beiðni um opinbera rannsókn á sam- runa Borgarneskjötvara ehf., Brák- areyjar ehf., sláturhússins Þríhyrn- ings hf. annars vegar og Kaupfélags Héraðsbúa og Norðvesturbanda- lagsins hins vegar í Kjötumboðið, áð- ur Goða. Bændurnir óskuðu eftir opinberri rannsókn þar sem þeir töldu m.a. að ekki hefði verið farið eftir hluta- félagalögum í samrunaferlinu. Snorri Sigurðsson, formaður Lands- sambands kúabænda, segir að unað verði við niðurstöðu ríkissaksóknara og ekki verði frekar aðhafst í málinu. Ríkissaksóknari vís- ar kæru bænda frá Kjötumboðið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.