Morgunblaðið - 05.07.2002, Qupperneq 23
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 23
Í TÖFLU með spá fjármálafyrir-
tækja um afkomu félaga í Úrvals-
vísitölu Kauphallar Íslands fyrstu
sex mánuði ársins, sem birt var hér
í blaðinu í gær, voru tvær villur.
Báðar villurnar eru vegna spár
Kaupþings um Skeljung, annars
vegar um hagnað fyrir afskriftir og
hins vegar um hagnað. Rétt er að
Kaupþing spáir því að afkoma
Skeljungs fyrir afskriftir verði 675
milljónir króna á fyrri hluta ársins
og að hagnaður verði 450 milljónir
króna.
150 þúsund tonn,
ekki 90 þúsund tonn
Í Innherja sem birtist í viðskipta-
blaði Morgunblaðsins í gær var
ranglega sagt að fyrirhuguð stækk-
un Norðuráls um 90 þúsund tonn
myndi kosta 50 milljarða króna.
Hið rétta er að stækkun um 150
þúsund tonn myndi kosta 50 millj-
arða króna.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Leiðrétting
Afkomuspár
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
hefur úthlutað aflaheimildum í þorski
vegna tilrauna við föngun fisks til
áframeldis og framkvæmd þess. Sam-
tals hefur 385 tonn um verið úthlutað
til þorskeldisins.
Eftirfarandi aðilar hlutu úthlutun:
Útgerðarfélag Akureyringa 90 tonn,
Hraðfrystihúsið Gunnvör, Hnífsdal,
90 tonn, Rostungur ehf., Ak. 20 tonn,
Síldarvinnslan Neskaupstað 50 tonn,
Matthías, Sigurjón og Kristján Ósk-
arssynir, Jóhann Halldórsson og
Sævar Sveinsson 40 tonn, Ósnes ehf.,
Djúpavogi, og Skútuklöpp ehf.,
Stöðvarfirði, 30 tonn, Þórsberg ehf.,
Tálknafirði, 35 tonn og Aquaco ehf.,
Bakka í Ölfusi, 30 tonn.
Nú liggja fyrir 12 umsóknir hjá
Fiskistofu til áframeldis á þorski sam-
kvæmt nýlegum lögum um slíka
starfsemi. Engin leyfi hafa verið gefin
út enn.
Þórður Ásgeirsson, fiskistofustjóri,
segir að verið sé að fara yfir umsókn-
irnar. Í lögunum sé bráðabirgða-
ákvæði þess efnis að þeir aðilar sem
hafi starfað við eldi eða hafi leyfi frá
heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til
slíkra starfa, megi halda áfram í eitt
ár frá því lögin tóku gildi. Þeir þurfi
því ekki að fá leyfi frá Fiskistofu fyrr
en að þeim tíma liðnum.
„Mér sýnist að 7 af þeim, sem hafa
sótt um, þurfi, samkvæmt þessu
ákvæði, ekki að fá leyfi hjá okkur fyrr
en að ári, svo fremi sem þeir hafi leyfi
frá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga
eða viðkomandi heilbrigðisnefnd eða
fái það. 5 umsóknir eru ófullnægjandi
vegna skorts á upplýsingum. Í þeim
hópi er einn þeirra sem fengu úthlut-
að þorskaflaheimildum til áframeldis.
Þetta mun því að mínu mati leysast
farsællega því við á Fiskistofu þurf-
um að íhuga það vel hvað við eigum að
setja í þessi leyfi þar sem þau eiga að
gilda til fimm ára. Við viljum því
vanda til útgáfu þeirra,“ segir Þórður
Ásgeirsson.
Hann segir að því ætti ekkert að
vera því til fyrirstöðu að þessir aðilar
geti byrjað eða haldið áfram að því til-
skildu að þeir þurfi að fá bréf frá sjáv-
arútvegsráðuneytinu um undanþágu
frá vigtunarreglum. Þeir þurfi að
vigta og mæla þorskinn sem fari í kví-
arnar eftir ákveðnum reglum sem
hafi verið í gildi undanfarin ár og
halda dagbækur, sem Fiskistofa láti
þeim í té. Þetta tvennt þurfi þeir að fá
og á því eigi engin vandkvæði að vera.
385 tonnum út-
hlutað í þorskeldi
NYPD eru einkennisstafir lögreglu-
sveitar New York-borgar (New
York Police Department). NYPD
var gert að skrásettu vörumerki í
eigu sveitarinnar fyrir nokkru en
fatnaður og aðrar vörur merktar
sveitinni hafa gengið kaupum og
sölum á svörtum markaði um ára-
bil. Í kjölfar árásanna 11. sept-
ember síðastliðinn hefur sala
NYPD-varnings stóraukist þótt
minnstur hluti fjárins renni til lög-
reglusveitarinnar. Með því að skrá-
setja vörumerkið NYPD og fá
einkarétt á dreifingu varnings
merktum NYPD vill lögreglusveitin
breyta þessu. Telur hún eðlilegt að
hagnaður af sölu varnings renni til
uppbyggingar lögreglustöðva og
þjálfunar liðsmanna í stað þess að
götusalar maki krókinn. Enn virð-
ast margir þó fara á bak við leyf-
ishafa því hagnaður af sölu varn-
ings merktum hinu löglega
skrásetta vörumerki nemur innan
við 1 milljón dollara enn sem komið
er. Talið er að heildarhagnaður af
sölu NYPD-varnings sé margföld
sú upphæð.
NYPD©