Morgunblaðið - 05.07.2002, Síða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 27
Verð frá
1.990.000 kr
.
ANNAR hluti Converter Project,
sem haldið er í Nýlistasafninu,
hófst í gærkvöldi. Að verkefninu
koma um 30 listamenn margra
Evrópulanda sem starfa ýmist í
Vínarborg eða á Íslandi, og er
um að ræða breiðan aldurshóp
ungra sem eldri listamanna.
Af þátttakendum má nefna
Finnboga Pétursson, Birgi Andr-
ésson, Kristján Guðmundsson,
Ingólf Arnarson, Gjörningaklúbb-
inn, Birgi Örn (Bibba), Darra
Lorenzen og Egil Sæbjörnsson,
sem og hljóðlistamanninn Hans
Joachims Roedelius, sem meðal
annars er heimsþekktur fyrir að-
komu sína að hljómsveitinni
Cluster, og Franz Graf.
Fyrir verkefninu standa, auk
Nýlistasafnsins, Myndlist-
arakademían í Vínarborg og
Stromstrasse Produkt, en fyrsti
hluti þess átti sér stað í Vín-
arborg í desember sl. Fyrirhugað
er að halda þriðja hlutann í
Aþenu snemma næsta árs.
Converter Project, sem hófst í
gærkvöldi og stendur fram á
sunnudagskvöld, býður upp á
mynd-, hljóð- og tónlistargjörn-
inga af ýmsu tagi. Franz Graf,
Sigurður Guðjónsson, Nikos Arv-
anitis og Magnús Árnason eru í
forsvari fyrir sýninguna, og hittu
þeir Magnús og Nikos blaðamann
að máli.
„Hugmyndina að baki verkefn-
inu má lesa úr heiti þess, Con-
verter Project,“ segja þeir Nikos
og Magnús, en samkvæmt íslensk-
enskri orðabók merkir enska orð-
ið convert breytingu úr einu í
annað. „Hér er saman kominn
hópur um 30 listamanna, þar af
tólf manna hópur frá Vín, sem
reyna að verða fyrir umbreytingu
við það að koma hingað til lands
og í Nýlistasafnið. Ísland er sér-
stakt land, ekki síst landslagið,
og það breytir okkur á vissan
hátt, sérstaklega okkur sem ekki
erum héðan.“
Magnús segir meginatriðið við
Converter Project vera að sýn-
ingin sé unnin inn í rýmið sem
fyrir er í Nýlistasafninu af þess-
um tilteknu listamönnum, en sýn-
ingin fer meðal annars fram í
hinu nýja sýningarrými safnsins.
„Verkin eru ekki fyrirfram unn-
in.
Við höfum þetta rými og þessa
listamenn, bæði Vínarhópinn og
þá íslensku, og sýningin er það
sem kemur útúr þeirri blöndu.
Það gerir sýninguna auðvitað
mjög lifandi,“ segir hann. „Hver
listamaður setur sinn stein í alla
uppbygginguna,“ bætir Nikos við.
Hljóð- og myndlist skipa stóran
sess í gjörningum Converter
Project. „Þetta er þó engan veg-
inn bara veggmyndir og tónlist,“
útskýrir Magnús. „Þetta eru inn-
setningar, hljóðskúlptúrar, gjörn-
ingar, myndir, ljósmyndir, mynd-
bönd, bara allur geirinn sem
hægt er að setja innan ramma
myndlistar. Áhorfandinn er inni í
öllum þessum pakka, og ég held
að sýningin muni toga aðeins í
þann sem skoðar hana.“
Sýningin verður opin föstudag,
laugardag og sunnudag frá kl.
14. Sömu kvöld mun svo hefjast
dagskrá kl. 20 og standa fram á
nótt.
Aðgangur að Converter Project
er ókeypis.
Morgunblaðið/Þorkell
Myndlistarmennirnir Magnús Árnason og Nikos Arvanitis eru í forsvari
fyrir Converter Project, sem fer fram í Nýlistasafninu um helgina.
Umbreytast í rýminu
ÖNNUR helgi Sumartónleika í Skál-
holtskirkju gengur í garð á morgun.
Er Þorkell Sigurbjörnsson staðar-
tónskáld að þessu sinni og mun
kammerkórinn Hljómeyki frum-
flytja verk eftir hann er nefnist Ég
vil vegsama þig, ó, Guð, ásamt því að
flytja eldri verk hans. Á síðari tón-
leikunum mun danski blokkflautu-
kvartettinn Sirena koma fram og
meðal annars frumflytja verk eftir
Elínu Gunnlaugsdóttur.
Helgin hefst kl. 14 á erindi Þorkels
Sigurbjörnssonar um verk sín í Skál-
holtsskóla. Kl. 15 verða flutt þrjú
trúarleg verk eftir Þorkel í kirkj-
unni, Koma, Missa Brevis, auk frum-
flutnings á hinu nýja verki Ég vil
vegsama þig, ó, Guð. Hljómeyki flyt-
ur undir stjórn Bernharðar Wilkin-
son. Kl. 17 flytur danski blokkflautu-
kvartettinn Sirena barokk- og
nútímaverk eftir innlenda og erlenda
höfunda, þar á meðal verður frum-
flutt nýtt verk eftir Elínu Gunn-
laugsdóttur, er nefnist Fyrir líknar
kraptinn þinn.
Morgunblaðið/Jim Smart
Flutt verða verk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson í Skálholti.
Kór og blokk-
flautukvartett
í Skálholti
SÝNINGIN Tríó verður opnuð í
Úmbruglugganum, sýningarrými á
Lindargötu 14, í dag kl. 17. Tríó er
samsýning þriggja listakvenna sem
þekktar eru fyrir verk sín unnin í
leir, þeirra Koggu, Kristínar Sigfríð-
ar Garðarsdóttur og Guðnýjar
Magnúsdóttur.
Listakonurnar þrjár hafa töluvert
ólíka nálgun að verkefnum sínum, þó
allar vinni þær í leir og hver og ein
þeirra hefur mótað með sér sterkan
persónulegan stíl.
Sýningin Tríó er samspil verka
þeirra þriggja, flöskur Koggu,
diskar Kristínar og hankar og snag-
ar Guðnýjar. Persónulegir sjálfstæð-
ir nytjahlutir sem standa sterkt sam-
an, þótt ólíkir séu í formi, „funksjón“
eða lit og leitast listakonurnar við að
ná fram spennandi samhljóm með
samstillingu þessara verka sinna.
Sýningin stendur fram í ágúst og
er Stúdíó Úmbra opin miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl. 13–17
og eftir samkomulagi.
Verk listakvennanna þriggja í
gluggagalleríinu Úmbru.
Tríó í
Úmbru-
glugganum