Morgunblaðið - 05.07.2002, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.07.2002, Qupperneq 30
LISTIR 30 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ FRIÐRIK Vignir Stefánsson, org- anisti í Grundarfirði, heldur tón- leika í Reykholtskirkju á morgun, laugardag, kl. 16. Þeir eru aðrir í röð tónleika sem haldnir eru til styrktar orgeli kirkjunnar sem sett var upp í vetur og haldnir í samvinnu við Félag íslenskra org- anleikara. Friðrik hefur valið sér að leika verk eftir Dietrich Buxtehude, J.S. Bach, Pál Ísólfsson, Théodore Dubois og Léon Boëllmann. Friðrik Vignir er fæddur á Akranesi 1962. Hann hóf org- elnám hjá Hauki Guðlaugssyni og Fríðu Lárusdóttur við Tónlistar- skólann á Akranesi og lauk þaðan burtfararprófi 1983. Friðrik Vignir lauk einleikaraprófi á org- el við Tónskóla þjóðkirkjunnar og kantorsprófi vorið 1988. Friðrik Vignir var organisti í Hjallaprestakalli í Kópavogi 1987–1988, og frá því í september 1988 hefur hann starfað sem org- anisti við Grundarfjarðarkirkju auk þess að vera skólastjóri Tón- listarskóla Grundarfjarðar. Næstu tónleikar í tónleikaröð- inni verða laugardaginn 13. júlí nk. en þá leikur Guðný Ein- arsdóttir kantor á orgelið. Hinn 20. júlí mun Haukur Guðlaugsson fv. söngmálastjóri leika, og 3. ágúst leikur Marteinn H. Frið- riksson dómorganisti. 10. ágúst mun Kjartan Sig- urjónsson organisti Digra- neskirkju, formaður Félags ís- lenskra organleikara, ljúka tónleikaröðinni. Orgeltónleikar í Reykholtskirkju Friðrik Vignir Stefánsson organisti á æfingu fyrir tónleikana. SEINNI laugardagstónleikar Vocium Thules sönghópsins fyrstu sumartónleikahelgina í Skálholti voru bráðskemmtilegir. Skyggði að- eins eitt á, sem raunar hafði einnig háð tónleikahaldinu kl. 15, en það var sá plagsiður förumanna að streyma inn og út um kirkjuna með- an á flutningi stóð í fullkominni for- akt við skilti og tilmæli í tónleika- skrá, hvar af mátti þó skilja að hér væri um stundarsakir ekki galopið hverjum manni að vild líkt og í safni. Þó að lítið heyrðist í túrhest- um þessum, varð engu að síður af sjónrask sem vonandi tekst að hemja framvegis, ef ekki með öðru móti þá með skeleggum útköstur- um. Þegar fornritarar tala um „sæt- an“ hljóm af (kirkju)söng og hljóð- færaslætti er væntanlega, í nánara framhaldi af almennri merkingunni „ljúfan“ (og e.t.v. með aðstoð góðs hljómburðar), átt við hreinan, þ.e. ófalskan, tónflutning. Burtséð frá fagþjálfuðum ein- og kórsöng fékkst slíkur fyrrum helzt úr vel smíðuðum og vel stilltum hljóðfærum, sem í til- felli strengjaamboða var við hæfi jafnvel lítt þjálfaðra spilara þegar þverbandavætt „söngfæri“ eins og gittern eða sérstaklega lyklum búin hverfigígja eins og symfón (e. hurdy gurdy, þ. Drehleier) áttu í hlut. Slík- an „sætan“ slátt – ásamt jafnsætum en einnig þróttmiklum söng VT sextettsins – gat að heyra á seinni tónleikum laugardagsins í Skálholti, og studdi hann upplifun áheyrenda af niði aldanna mun sterkar en kristilegur a cappella söngur fyrri tónleikanna. Það var engu líkara en að flutningurinn magnaði, fyrir til- stilli e.k. hljómandi jarðsjár eða tímavélar, upp nýhafinn gröft forn- leifafræðinga rétt fyrir utan kirkj- una með endurhljómgun fyrri tíma dægradvalar klerka og skólapilta staðarins í tónum og texta. Látum svo vera ef flytjendur svindluðu lít- inn þann á kórréttum upphafleika með notkun nælonstrengja, sem vissulega voru ekki til fyrir daga Du Ponts Inc., en halda aftur á móti betur stillingu en girni úr búsmala- iðrum. Fleiri hljóðfæri komu við sögu. Yngst írsk tinflauta með skærrauðu plastmunnstykki, eldri stórar rammatrommur í líkingu við þar- lenda bodhrán bumbu sem e.t.v. kunna að hafa dunað hér fyrr á öld- um. En symfónið forneskjulega (að frátaldri strengjagerð), þanið sveif- hjóli og umlukt ferstrendum kassa í frumstæðri 12. aldar umgjörð, gaf e.t.v. sterkasta hugboð um hvað hljómaði í Skálholti á endurreisn- artímum ef ekki löngu fyrr. Veikur kliður symfónsins við stöðugan bordúnaseim minnti mann snöggv- ast á líkingamál Annarrar málfræði- ritgerðar frá ofanverðri 13. öld um rím og framburð: „Köllum vér það lykla sem þeir eru í fastir, og eru þeir hér svo settir hér sem i spac- ione sem lyklar í simphonie.“ Eða, svo vitnað sé til jólasöngsins Imm- anúel oss í nátt (úr lagasafninu Mel- odia frá 17. öld), „Vil eg mitt sálar simfóní / sett með beztu snilli, / leggja fram og leika því, / láta ei stund á milli“[...] Ekki niðuðu aldir síður úr hinu hljóðfæri gestaspil- arans Arngeirs Heiðars Hauksson- ar, „miðaldagígjunni“ gittern (eða cittern), sem mun gripluð útgáfa strokinnar perulaga fornaldargígju þeirrar er Mörður Valgarðsson á Rangárvöllum var hugsanlega kenndur við. Furðuómsterkt og sendivirkt hljóðfæri, enda bakið mun flatara en á lútu. Tónleikarnir voru í byrjun og enda skorðaðir tvírödduðum Tíða- söng hins heilaga Hallvarðs er Voc- es Thules fluttu á inn- og útgöngu, fyrra skiptið a cappella, seinna með hljóðfæraundirleik. Hallvarður var reyndar norskur og uppi á 10. öld en einnig dýrkaður hér í pápísku. Tvísöngurinn (AM 102) er prent- aður í þjóðlagasafni Bjarna Þor- steinssonar. Þaðan voru einnig fengin lögin sem sönghópurinn valdi undir draumkvæði og fyrirboða úr Sturl- ungu, og mun það hafa verið altítt á miðöldum og fram eftir. Þann praxís nefna fræðimenn almennt contra- facta og veraldleg lög sett við helgi- texta „paródíur“. Afurðir hins gagn- stæða nefnast hérlendis „druslur“. Sungið var ýmist með eða án und- irleiks og með for- og millispilum, og gekk sú blanda það vel upp að sómt hefði sér með ágætum á hljómdiski, sem vonandi gæti orðið úr með tíð og tíma. Útsetningarnar voru unnar og fluttar af mikili smekkvísi, og verður að segjast að tíminn, sem átti til að standa í stað í helgisöngvum fyrri tónleika laugar- dagsins, flaug nú fislétt sem spör- fugl væri. Þó að einstaka lag væri tæplega af íslenzkum rótum runnið – eins og Drømde mik en drøm i nat um silki ok ærlik pæl (úr Codex runicus, 13. ö.) og Eljakvæði (Ebbe Skammelsøn) – var engum blöðum um að fletta að þau féllu prýðilega að dramatísku textum Sturlunga- aldar í heillandi túlkun þeirra fé- laga. „Sem lyklar í simphonie“ TÓNLIST Skálholtskirkja „Sé ég eld yfir þér.“ Latneskir helgitextar úr íslenzkum handritum og íslenzk forn- kvæði við lög úr íslenzkum þjóðlögum Bjarna Þorsteinssonar í samsetningi Vocium Thules og Árna Heimis Ingólfs- sonar. Voces Thules sönghópurinn (Egg- ert Pálsson, Einar Jóhannesson, Eiríkur Hreinn Helgason, Guðlaugur Viktorsson, Sigurður Halldórsson og Sverrir Guð- jónsson), söngur og hljóðfærasláttur; Arngeir Heiðar Hauksson, symfón & gitt- ern. Laugardaginn 29. júní kl. 17. SUMARTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson SUMARTÓNLEIKAR 2002 í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar hóf- ust sl. þriðjudag og munu samkvæmt venju standa yfir júlí- og ágústmánuð. Koma þar fram margir flytjendur, m.a. sex söngvarar og tveir tugir hljóðfæraleikara er flytja tónlist frá ýmsum tímum. Frumflutt verður nýtt tónverk eftir Huga Guðmundsson og það sem einnig vekur sérstaka at- hygli er að flutt verða kínversk þjóð- lög og að einir tónleikar munu ætlaðir fyrir flutning á djasstónlist. Fyrstu tónleikar sumarsins voru kammertónleikar, þar sem flutt voru tónverk eftir Rossini og Dvorák. Tvö fyrstu verkin eru æskuverk eftir Gioachino Rossini (1792–1868), úr safni sex verka „sonate a quattro“ er hann mun hafa samið 1804. Til eru trúarleg verk sem talið er að Rossini hafi samið 1802. Rossini vakti snemma athygli fyrir tónsmíðar og fyrstu óperu sína samdi hann 18 ára. Óperurnar 16 samdi hann á árunum 1810 til 29 en snerti aldrei meir við því formi í nærri fjörutíu ár, frá 1929 til 1868, enda hafði síðasta ópera hans, Vilhjálmur Tell, verið honum erfið og telja margir sagnfræðingar, að bæði slæm líkamleg og andleg heilsa hans sé meginorsökin fyrir því að hann hafi verið búinn að fá nóg, auk þess sem um sama leyti áttu sér stað pólitísk átök á Ítalíu er m.a. leiddu til þess að Rossini fluttist til Frakklands. Strengjasónöturnar sex eru samd- ar fyrir tvær fiðlur, selló og kontra- bassa og á fyrstu tónleikum sumars- ins í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar sl. þriðjudag voru fluttar þær tvær fyrstu úr þessu safni. Flytjendur voru Hlíf Sigurjónsdóttir, Sigurlaug Eð- valdsdóttir, Örnólfur Kristjánsson og Þórir Jóhannsson. Bæð tónverkin eru létt og leikandi, heldur svona smá- gerð í formi og hljómskipan, nema fyrsti kaflinn í þeirri fyrstu (G-dúr), sem er töluvert viðamikil og metnað- arfull tónsmíð. Flutningur var í anda verkanna léttur og leikandi og á köfl- um vel mótaður, sérstaklega fyrsti kaflinn, sem þó var svolítið órólegur í upphafi. Lokaverk tónleikanna var Strengjakvintett op. 77, eftir Dvorák, sem eins og mörg verka hans, er merktur með mismunandi opusnúm- erum, vegna deilna við útgefanand- ann Simrock, sem einnig var útgef- andi að verkum Brahms. Þetta verk er samið fyrir strengjakvartett, að viðbættum kontrabassa og til leiks kom þá Herdís Jónsdóttir á lágfiðlu. Hljóðfæraskipanin er eins og þegar skrifað er fyrir strengjasveit og bar verkið þess merki, þótt skersóþáttur- inn sé líklega nær því að vera ekta kammertónlist en aðrir kaflar verks- ins, sem er góð og vel samin tónlist. Flutningurinn var nokkuð ójafn, einkum er varðaði „intónasjón“ er var sérstaklega áberandi í fyrsta kaflan- um, og einkum á þeim stöðum sem kalla mætti „tutti“ þar sem bæði styrkur og tónræn átök voru hvað mest. Það var einkum í hægum og hljómþýðum köflum, þar sem leikur- inn var oft fallega mótaður. Inntónun er sú tækni, að hver hljóðfæraleikari láti að mestu af persónulegri tón- myndun en leitist við að spila sig inn í tón samleikaranna. Þetta er í raun ekki það sama og að spila hreint og er sérlega mikilvægt í kammertónlist og næst aðeins á löngum tíma. Þrátt fyr- ir þetta var flutningurinn í heild kraftmikill og á köflum gæddur hraða og spennu. Hraði og spenna TÓNLIST Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Flutt voru verk eftir Rossini og Dvorák. Flytjendur voru Hlíf Sigurjónsdóttir, Sig- urlaug Eðvaldsdóttir, Herdís Jónsdóttir, Örnólfur Kristjánsson og Þórir Jóhanns- son. Þriðjudagurinn 2. júlí 2002. SUMARTÓNLEIKAR Jón Ásgeirsson NOKKRAR sýningar standa nú yfir í Norska húsinu í Stykkishólmi. Guðfinna Hjálmarsdóttir sýnir verk sem hún hefur unnið sérstaklega fyrir Norska húsið og vill hún með sýningunni heiðra minningu langalangafa síns, Árna Ólafs Thorlacius- ar. Myndirnar eru unnar á handgerðan pappír með image-on ætingum og fleiri grafíkaðferðum. Sýningin hefur yf- irskriftina Sis Felix. Árni Ólafur lét reisa Norska húsið árið 1832 en það var fyrsta tvílyfta íbúðarhús landsins og eitt af þremur stærstu íbúðarhúsum landsins á 19. öld. Guðfinna útskrifaðist árið 2001 með BA-gráðu í myndlist með sérgrein í graf- ík. Hún hefur haldið fjölda einka- og sam- sýninga. Vinnustofa hennar er á Skóla- vörðustíg 16 í Reykjavík. Snjólaug Guðmundsdóttir sýnir flóka- myndir, ljóðasteina og vefnað. Hún út- skrifaðist sem vefnaðarkennari frá Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands. Hún vinnur handverksmuni úr íslensku hráefni, vefur veggteppi, gólfmottur, borðrenninga, upphlutssvuntur o.fl. Einnig málar hún vatnslitamyndir og semur ljóð á kort og steina. Þá vinnur hún myndir í flóka, bjöllur, töskur skálar o.fl. Snjólaug starfrækir handverks- stofuna Sólu á Brúarlandi á Mýrum. Hún hefur haldið nokkrar einka- og samsýningar. Ólöf S. Davíðsdóttir og Davíð Þórðarson sýna glerlistaverk, skálar, matarföt, diska, grýlu- kerti o.fl. úr endurunnu gleri. Davíð er múr- arameistari frá Siglufirði, fæddur 1915. Hann lærði glerbræðslu hjá Ólöfu árið 1996. Ólöf er búsett í Fíflholtum á Mýrum. Hún vinnur eingöngu í gler sem aðrir hafa hent. Hún hefur haldið nokkrar einka- og samsýningar víða um landið. Sýningunum lýkur 7. ágúst. Á neðri hæð hússins eru þrjár sýningar. Í eldhúsinu sýnir Guðmundur Her- mannsson gamlar klukkur, úr, verkfæri og íkona. Dröfn Guðmundsdóttir mynd- höggvari leggur á borð fyrir tvo í bláa herberginu. Dröfn hefur verið að vinna glerverk og sýnir nú glermatarstell er ber nafnið „Perla“. Silja Sallé sýnir ljósmyndir af ferðum sínum um Ísland. Hún er alin upp í Frakklandi en á íslenska móður og býr móðurfjölskylda hennar á Hjarðarfelli í Eyja- og Miklaholtshreppi. Síðustu fimm sumur hefur hún starfað sem leið- sögumaður, mestmegnis á hálendi Íslands. Á annarri hæð er uppsett 19. aldar heldra heimili í þéttbýli er opnað var árið 2001. Þar er stuðst við allt það sem til er um innbú og heimilishætti Árna og Önnu Thorlacius. Norska húsið er opið daglega frá kl. 11–17 til 1. september og um helgar í september. Sýningin stendur til 7. ágúst 2002 og er opin daglega frá kl. 11–17. Fjölbreyttar sýningar í Norska húsinu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.