Morgunblaðið - 05.07.2002, Blaðsíða 60
JULIA Roberts giftist kvik-
myndatökumanninum Daniel
Moder snemma í gærmorgun á
setri sínu skammt fyrir utan Taos
í Nýju-Mexíkó. Þetta er í annað
skiptið sem Roberts gengur í
hnapphelduna en hún var gift
sveitasöngvaranum Lyle Lovett í
21 mánuð. Athöfnin hófst
skömmu eftir miðnætti og fór
fram með leynd. Fjölskyldur
þeirra og vinir voru viðstödd.
Blaðafulltrúi Roberts vildi ekki
gefa upplýsingar um hvernig
brúðarkjóllinn leit út eða hvernig
athöfnin og veislan fóru fram.
Í fyrrakvöld sást stórt hvítt
tjald á landareign Roberts og
fjöldi ljósmyndara og frétta-
manna gisti fyrir utan hliðið á
landareigninni. Blaðamenn fengu
veður af brúðkaupinu þegar
breska dagblaðið Daily Mail
greindi frá því að 50 gestir hefðu
flogið frá Los Angeles til Nýju-
Mexíkó til að taka þátt í einhvers
konar fagnaði. Gestirnir voru
hvattir til að koma í hvítum fötum
og mun leikarinn George Clooney
hafa verið meðal gesta.
Roberts
giftist í
annað sinn
Reuters
Juliu Roberts hefur tekist
vel upp við að halda nýja
eiginmanninum úr fjöl-
miðlum og hafa því fæstir
séð hvernig hann lítur út.
FÓLK Í FRÉTTUM
60 FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Lúdó
og Stefán
í kvöld og
laugardagskvöld
Mulholland Dr.
Þessi draumlógíska og
seiðandi noir-saga skip-
ast tvímælalaust í flokk
bestu mynda David
Lynch. Óræð en þó býr yf-
ir leyndu merkingarsam-
hengi. (H.J.) About a Boy
Bæði bráðfyndin, háðsk
og hlýleg um þroskasögu
ólíklegustu einstaklinga
sem örlögin leiða saman
í Lundúnum. Hugh Grant
fer fyrir einstökum leik-
hóp og myndin undur vel
gerð og skrifuð. Frábær
skemmtun. (S.V.)
Háskólabíó, Sambíóin.
Amores Perros
Fersk og sterk örlagasaga frá mexíkóska leik-
stjóranum Alejandro González Inárritu. Form-
ið er sótt til tarantínóismans en myndin fer
síðan lengra en dýpra inn í tilfinningalíf og til-
vist. (H.J.) Sambíóin.
Curse of the Jade Scorpion
Allen er góður í nýjustu mynd sinni sem er
sambland af gríni og glæpum, þó í raun róm-
antísk ástarmynd með sálfræðilegum und-
irtóni. Dávaldar, gimsteinar, rannsóknarlögg-
ur og bæld ást. Gaman gaman. (H.L.) Háskólabíó.
Jimmy Neutron
Virkilega vel til fundin og flott teiknimynd. Þar
segir frá snillingnum Jimmy og félögum hans
sem leggja í spennandi leiðangur til annarrar
plánetu til að bjarga foreldrum sínum.
Skemmtun fyrir alla í fjölskyldunni.
(H.L.) Sambíóin, Laugarásbíó.
Skrímsli HF
Raddsett teiknimyynd. Tölvuteiknuð barna-
og fjölskyldumynd um skrímslin í skápnum.
Sem reynast jafnvel hræddari við börn en
börn við þau. Létt og skemmtileg fyrir alla
fjölskylduna. (S.V.) Sambíóin.
Star Wars: Episode II – Att-
ack of the Clones/Árás klón-
anna
Næstsíðasti kafli Stjörnustríðsins er skref í
rétta átt, hreinræktað ævintýri og þrjúbíó þó
nokkuð vanti upp á seið fyrstu myndanna.
(S.V.) Smárabíó, Regnboginn, Sambíóin.
Ali G Indahouse
Sjónvarpstrúðurinn Ali G fer mikinn í satíru að
hætti hússins um rotið kerfi og gjörspillta
stjórnmálamenn og eigið ágæti í mynd sem
sveiflast á milli allt að því snilligáfu og leið-
indastagls. Fyrir unglinga. (S.V.) Sambíóin.
Panic Room
Vel gerður og lengst af spennandi tryllir um
mæðgur í höggi við innbrotsþjófa. Leikstjór-
inn Fincher og hans fólk gera allt vel en Fost-
er er ótrúverðug og myndin verður langdregin
og dettur niður í klisjukenndan lokasprett
(S.V.) Smárabíó, Regnboginn.
Köngulóarmaðurinn
Ný og flott mynd um Köngulóarmanninn í
gamaldags hasarblaðastíl, í bland við
straumlínulagað tölvugrafíkútlit. Frábær
framan af en slappast þegar á reynir. (H.J.)
Smárabíó, Regnboginn.
My Big Fat Greek Wedding
Bara býsna skemmtileg og vel gerð rómantísk
gamanmynd. En alltof ófrumleg og fyrirsjáan-
leg. (H.L.) Laugarásbíó.
Pétur Pan 2:
Aftur til Hvergilands
Bandarísk teiknimynd með íslenskri og
bandaríksri talsetningu. Pétur Pan berst enn
við Kaftein krók og nú með hjálp Jónu dóttur
hennar. Vönduð, ósköp sæt mynd en heldur
tíðindalítil og ófrumleg. (H.J.) Sambíóin.
Pilturinn í plastbelgnum
Óvenjuleg aulabrandaramynd þar sem sögu-
hetjan er ástfanginn ungur maður með ónýtt
ónæmiskerfi og býri í plastkúlu. Heldur út á
þjóðveginn í leit að ástinni sinni. Á sína góðu
og slæmu kafla, rétt einsog vegurinn. (S.V.)
Sambíóin.
Hart’s War
Skilgetið afkvæmi gæðabylgjunnar í stríðs-
myndabransanum. Þar er gerð tilraun til að
koma með dálítið ferskt sjónarhorn á heims-
styrjöldina síðari, en þjóðernisremban tekur
fljótlega yfir. (H.J.) Regnboginn.
High Crimes
Meinsæristryllir um skuggalega fortíð fyrrum
hermanns og liðhlaupa með Morgan Freem-
an og Ashley Judd, fer alltof troðnar slóðir.
Góður leikhópur og útlit en ferskleikann bráð-
vantar. (S.V.) Regnboginn.
40 Days and 40 Nights
Stöðluð rómantísk gamanmynd fyrir ungt fólk
og unglinga, sem einkennist af miklu ofhlæði
alls þess sem best þykir í bandarískum ung-
lingabíóheimi. Alvarleg rökvilla er í handrit-
inu, þar sem aðalpersónunni er nauðgað án
þess að hún taki eftir því. (H.J.) Laugarásbíó.
Black Knight
Þunnildi með einum brandara: Martin Law-
rence lendir í tímagati og rankar við sér á
miðöldum. Hefði betur aldrei snúið til baka.
(S.V.) Sambíóin.
Dragonfly
Þetta sálræna draugadrama minnir mann
óþægilega á þann firrta og forheimskandi
hugsunarhátt sem ráðið getur ríkjum í Holly-
woodmyndum. (H.J.)
Háskólabíó.
D-Tox
Sylvester Stallone í döprum slag við fjölda-
morðingja og Bakkus konung. (S.V.)
Háskólabíó.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Jimmy Neutron er að viti Hildar Loftsdóttur
„virkilega vel til fundin og flott teiknimynd ...
fyrir alla fjölskylduna.“
ARI Í ÖGRI Arnar Þór Viðarsson
sigurvegari Söngkeppni framhalds-
skólanna 2001 og Þór Óskar Fitzger-
ald gítarleikari spila og syngja.
BÖGGVER, Dalvík Skugga-Baldur.
CAFÉ CATALÍNA Trúbadorinn
Sváfnir Sigurðarson.
CAFÉ RIIS, Hólmavík Rúnar Þór og
hljómsveit.
CHAMPIONS CAFÉ Diskótek Sig-
valda Búa.
DEIGLAN, Akureyri Velska þjóð-
lagasöngkonan
Julie Murphy
verður með tón-
leika ásamt
hljómsveit. Á
laugardaginn
spilar hún svo á
Þjóðlagahátíðinni
á Siglufirði og á
mánudaginn á
Gauki á Stöng.
CLUB 22 Dj. Rallycross.
GAUKUR Á STÖNG Í svörtum föt-
um.
GRAND ROKK Bandaríska harð-
kjarnasveitin Darkest Hour leikur
ásamt Mínus kl. 22.
GULLÖLDIN Svensen og Hallfunkel.
HVERFISBARINN Dj. Le Chef.
INGÓLFSTORG Rímnamínstón-
leikar kl. 16 til 18. Tónleikar í tilefni
af útkomu safnplötunnar Rímna-
míns. Fram koma Diplomatics, Vivid
Brain, Bæjarins bestu, Afkvæmi
guðanna, Bent & 7berg, Móri og
Mezzías MC, Sesar A (& Sækópah)
og XXX Rottweiler.
KAFFI RÓM, Hveragerði Smack.
KAFFI STRÆTÓ Íris Jóns og Siggi
Már spila.
KRINGLUKRÁIN Stuðbandalagið.
O’BRIENS Moggadon.
ODD-VITINN, Akureyri Skemmti-
kvöld. Ýmsir söngvarar taka lög
Abba, Bítla, Elvis o.fl. ásamt Dj Bo.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópavogi
Spútnik.
RÁIN, Reykjanesbæ Hljómsveitin
Hafrót.
SJALLINN, Akureyri Írafár og Pap-
ar. Frelsisball með Írafári fyrir 12–
16 ára til kl. 23. Papar taka svo við á
hefðbundnu balli þar sem frítt er inn
til kl. 2 vegna eigendaskipta.
SPOTLIGHT Dj. Cesar kl. 21 til 6.
500 kr. inn.
VIÐ POLLINN, Akureyri Ruth Reg-
inalds.
VÍDALÍN VIÐ INGÓLFSTORG Buff.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Þjóðlagasöngkon-
an Julie Murphy
heldur þrenna tón-
leika hérlendis.
BANDARÍSKA sveitin Darkest
Hour er komin hingað til lands og
mun halda tvenna tónleika í kvöld
og á morgun ásamt Mínus og sér-
stökum gestum.
Darkest Hour spila þungt rokk
af allra þyngstu gerð; alvöru „me-
tal“ eins og innvígðir kalla það.
Í samtali við Mike Schleibaum
gítarleikara kom fram að sveitin
var stofnuð árið 1995, þó hann telji
sveitina í raun ekki hafa „byrjað“,
fyrr en 1998.
„Fyrst var þetta bara svona
menntaskólaband – meira svona
grín. Við gáfum t.d. út hræðilega
stuttskífu sem hljómar allt öðru-
vísi en það sem við erum að gera í
dag.“
Eftir „alvöru“ bandið liggja
tvær breiðskífur, The Mark Of
The Judas (2000) og So Sedated,
So Secure (2001).
„Í raun hefðum við átt að breyta
nafninu á sveitinni árið 1998,“ álít-
ur Mike. Hann segir sveitina vera
undir sterkum áhrifum frá sænsk-
um dauðarokksveitum eins og At
the Gates og In Flames, sem til-
heyra hinni svokölluðu „Gauta-
borgarstefnu“.
„Ég myndi segja að þetta væri
svona bandarísk nálgun við Gauta-
borgarhljóminn. Við erum ekki
með gítarsóló eða neitt slíkt og
rekum bandið í sönnum harð-
kjarnaanda – túrum út um allt,
spilum á litlum stöðum og lifum
fyrir tónlistina.“
Og er það markmiðið að lifa af
tónlistinni?
„Við reynum að vinna að því
myndi ég segja. Nú höfum við ver-
ið á hljómleikaferðalagi í ár og er-
um allir heimilislausir! Auðvitað
væri frábært að geta lifað sæmi-
lega af þessu. Fugazi (frá Wash-
ington) eru skýrt dæmi um sveit
sem byggir tekjur sínar á tónlist,
án þess að gefa nokkuð eftir af
listrænni sannfæringu. Það finnst
okkur vera til eftirbreytni.“
Fyrri tónleikarnir fara fram í
kvöld á Grand Rokk kl. 22.00 og er
aldurstakmark 20 ára. Seinni tón-
leikarnir verða í Vesturportinu á
morgun og er aldurstakmark ekk-
ert. Miðaverð er 800 kr. á hvora
tónleika.
Það er ekki alltaf dimmt hjá Darkest Hour.
Það dimmir
um stund
Harðkjarnasveitin Darkest
arnart@mbl.is
Hour með tvenna tónleika