Morgunblaðið - 10.07.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.07.2002, Blaðsíða 13
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 13 www.bilanaust.is Sími 535 9000 sem gera sumarið skemmtilegra Bílasápa m/bóni 575 ml. Kr. 150,- APA þvottakústar og sköft. -25% -25% afsláttur Farangursbox Kr. 12.873,- Speglar m/framlengingu fyrir fellihýsi, hjólhýsi o.fl. Verð áður: 3.290,- Kr. 2.490,- Kr. 45.354,- Verðdæmi: Verð áður: Kr. 34.016,- Verð nú: 350 lítrar. Lengd 150 sm. Breidd 90 sm. Hæð 32 sm. Hægri opnun. Tilboðin gilda frá 10. júlí til og með 3. ágúst eða á meðan birgðir endast. BOSCH þurrkublöð Töfrasproti (rafhlöðufræsari) Tilboðsverð: Góðar græjur Borgartúni, Reykjavík. Bíldshöfða, Reykjavík. Smiðjuvegi, Kópavogi. Bæjarhrauni, Hafnarfirði. Hrísmýri, Selfossi. Dalbraut, Akureyri. Grófinni, Keflavík. Lyngási, Egilsstöðum. Álaugarvegi, Hornafirði. SÆPLAST hf. hefur lokið samningum um sölu á kerum, lokum og fleiru til stórrar og fullkom- innar síldarflökunarverksmiðju í Þýskalandi. Uppbygging verksmiðjunnar hefur staðið frá árinu 2000 og er ætlunin að taka hana í notkun í febrúar næstkomandi. Fyrir þann tíma mun Sæplast afhenda 1.000 ker en ljóst er að um töluvert meiri keraframleiðslu verður að ræða í tengslum við þetta verkefni. Arnar Snorrason, forstöðumaður Sæplasts Holland B.V., hefur annast samningsgerðina og segir hann tvímælalaust um mjög mikilvæg- an samning að ræða fyrir Sæplast. Í frétta- tilkynningu er haft eftir honum að tvö ár séu síðan viðræður hófust við hollenska fyrirtækið sem stendur að verksmiðjunni og segir hann ánægjulegt fyrir Sæplast að fyrirtækið hafi verið valið eftir ítarlegan samanburð á kera- framleiðendum. „Skoðun hollenska fyrirtækisins snerist ekki aðeins um verðsamanburð heldur vó þungt sú þjónusta og tækniþekking sem Sæplast hefur í samanburði við önnur sambærileg fyrirtæki. Slíkt er mikil viðurkenning fyrir Sæplast. Hér er um stórt verkefni að ræða í framleiðslu Sæ- plasts á næstu mánuðum en til viðbótar horfum við mjög til þess að margfeldisáhrif í verkefn- inu verða mikil þar sem ljóst er að eigendur verksmiðjunnar munu í framtíðinni nota kerin til að efla starfsemina utan hennar, þ.e. til flutnings á hráefni og afurðum til og frá við- skiptavinum. Á þann hátt reiknum við með að samningurinn nú sé aðeins fyrsta skrefið í stærri viðskiptum,“ segir Arnar Snorrason, forstöðumaður Sæplasts Holland B.V. Ein sú fullkomnasta í Evrópu Verksmiðjan verður meðal þeirra fullkomn- ustu á þessu sviði í Evrópu og er mikið lagt upp úr sjálfvirkni, afkastagetu og vöruvöndun í hví- vetna. Sérstakt félag var stofnað um uppbygg- ingu og rekstur verksmiðjunnar en móður- fyrirtæki þess er hollenska útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Parlevliet & Van der Plas. Það fyrirtæki er mjög þekkt út um allan heim og gerir út 11 risatogara, rekur þrjár síldarflökunarverksmiðjur í Hollandi, tvær í Þýskalandi og stundar veiðar á uppsjávar- og botnfiski víða í Norðursjó, Atlantshafi, í Biscayaflóa og við Afríkustrendur. Nýja síldarflökunarverksmiðjan er í Sass- nitz á eyjunni Rugen í nyrsta hluta Þýska- lands. Fyrirtækið, sem hana rekur, nefnist Euro Baltic Fischbearbeitungs GmbH og mun verksmiðjan vinna hráefni frá hollenska fyr- irtækinu, sem og öðrum útgerðaraðilum. Stærð verksmiðjunnar er um 17 þúsund fer- metrar og byggist tæknin innanhúss á sjálf- virkum róbótum, færiböndum og öllum nýjasta búnaði til fiskvinnslu. Sæplast selur ker til nýrrar og fullkominnar síldarflökunarverksmiðju í Þýskalandi Fyrsta skrefið í stærri viðskiptum SKRÍN ehf. á Akureyri og eMax ehf. í Kópavogi hafa undirritað samstarfssamning um uppbygg- ingu á þráðlausri netþjónustu. Horfa forsvarsmenn fyrirtækjanna til þess að bjóða slíka lausn í dreifð- ari byggðum landsins þar sem ADSL-tölvutengingar eru ekki í boði en þráðlausa tæknin býður upp á sambærilegan hraða. Einn af kostum loftnetskerfisins er sá hversu fljótlegt er að tengja notendur og bæta þeim inn á kerfið. Þá fylgir því enginn uppgröftur á strengjum í götum. Þeir sem tengj- ast kerfinu munu leigja móttöku- búnað frá eMax en starfsmenn Skríns annast uppsetningu á bún- aðinum. Fyrsta verkefni í samstarfi Skríns og eMax hefur þegar verið hrint í framkvæmd en það er upp- setning á sendibúnaði í Hrafnagils- skóla í Eyjafjarðarsveit. Notendum í fjögurra kílómetra radíus býðst nú að tengjast inn á loftnetskerfið en ADSL-tenging er ekki í boði í sveitarfélaginu. Nokkrir notendur hafa tengst kerfinu og hefur það gengið að óskum. Skrín og eMax í samstarfi Eggert Skúlason, framkvæmdastjóri eMax, og Rögnvaldur Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Skríns, handsala samstarf fyrirtækjanna tveggja. Byggja upp loftnets- kerfi fyrir nettengingar ATVINNUÞRÓUNARFÉLAG Eyjafjarðar hefur opnað umræðu- kerfi á vef félagsins, sem ætlað er að vera vettvangur skoðanaskipta um allt sem skiptir máli. Á heima- síðu félagsins kemur fram að um- ræðukerfi sem þessi eru víða á veraldarvefnum og að oft verða þar áhugaverð skoðanaskipti. Einnig má nota þennan vettvang til að koma hugrenningum sínum á framfæri, eins og starfsmenn AFE hafa þegar gert. Hægt er að svara þeim þráðum sem þegar eru komnir eða stofna nýja. AFE mun ekki ritskoða þennan vettvang svo hver sem er getur sett hvað sem er þarna inn. Að sama skapi er ekki gert ráð fyrir að umræðan endurspegli stefnu félagsins. For- svarsmenn félagsins gera sér vonir um að sem flestir noti sér þennan vettvang. Magnús Þór Ásgeirsson, starfs- maður AFE, skrifar um stóriðju í Eyjafirði í umræðukerfinu en það mál er á verkefnaskrá félagsins. Magnús Þór segir ljóst að ekkert eitt verkefni í atvinnumálum gæti haft eins viðtæk áhrif og uppbygg- ing stóriðju. Slík uppbygging myndi skipta mjög miklu máli í at- vinnu- og byggðaþróun á Norður- landi öllu. Álver eða sambærilegur iðnaður í Eyjafirði myndi auka hagvöxt og leiða til fjölbreytni at- vinnulífs með beinum eða óbeinum hætti og leiða til hærri atvinnu- tekna og aukinna viðskipta á öllu Norðurlandi. Magnús Þór segir jafnframt að álframleiðsla yrði ný atvinnugrein á svæðinu sem hefði jákvæð áhrif á margar aðrar greinar sem myndu selja vörur og þjónustu til álversins og starfs- fólks þess. Efling svæðisins í efna- hagslegu tilliti muni auka einka- neyslu og spurn eftir afþreyingu og þjónustu. Í þessu veigamikla máli fari saman undirstöður að jákvæðri íbúaþróun og öflugu atvinnulífi. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar Nýtt umræðukerfi á vef félagsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.