Morgunblaðið - 10.07.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 10.07.2002, Blaðsíða 9
Slæmur um- gangur gæsa- veiðimanna Veiðimennirnir hafa skotið tugi gæsa og aðeins hirt úr þeim bringu- vöðvann, annað höfðu þeir grafið grunnt í tveimur holum undir mold- arbarði í Syðra-Dragi innaf Glúm- staðadal sem gengur inn og vestur ÞAÐ var ófögur aðkoma Sveins Pálssonar, grenjaskyttu á Aðalbóli í Hrafnkelsdal, þar sem gæsaveiði- menn höfðu huslað úrgang af tugum gæsa sem þeir hafa skotið á síðasta hausti. úr Hrafnkelsdal. Vegna þess að úr- gangurinn var einungis grafinn í mold og ekki dysjaður með grjóti hafði tófa og annar vargur grafið úr- ganginn upp og dreift gæsaræflun- um allt í kringum holurnar. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson. Sveinn Pálsson, grenjaskytta á Aðalbóli, hugar að gæsaræflunum sem dreifðir voru allt í kring um holurnar sem þeir voru grafnir í á síðasta hausti. Minni myndin sýnir að aðeins voru hirtir bringuvöðvarnir úr gæsunum, annað grafið með haus og hala ásamt lærunum. Norður-Héraði. Morgunblaðið. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 9 Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. Allar dragtir á útsölu           !" #!  ! $% ! & '( ) !                                       !    "#$ %  &'' *+,$ ( (       ! ) *   +      *    , -  )- . !/*   ) -,,      ( .$( '  (  % ('  %  (! Íslandi gerð skil í Washington Post ÍSLANDI eru gerð ítarleg skil í ferðaútgáfu bandaríska dagblaðsins The Washington Post síðastliðinn sunnudag. Í greininni kemur fram að íslensk náttúra sé helsta aðdrátt- araflið fyrir ferðamenn sem hyggja á ferð til Íslands og er landinu lýst sem ósnortnu og leyndardómsfullu. Höfundur greinarinnar mælir með því að ferðamenn sem einungis ætli að staldra hér við í tvo daga eyði öðr- um deginum úti á landsbyggðinni. Hinum fjölmörgu opnu svæðum í Reykjavík er hrósað, sem og úti- sundlaugunum sem opnar séu allt árið. Hið reykvíska næturlíf vekur ekki jafn mikla lukku greinarhöf- undar sem undrast það hversu lítil miðborgin er miðað við að 80% landsmanna búi á höfuðborgarsvæð- inu. Þá er höfundur ekki á því að verslunarmöguleikar séu miklir í borginni, nema fólk hafi hugsað sér að festa kaup á íslenskri lopapeysu eða selskinni. Höfundur hrósar gististöðum hér á landi en mælir með því að fólk leiti ráðlegginga áður en haldið sé á mat- sölustaði og að ferðamenn ættu ekki að koma til Íslands með það að markmiði að borða góðan mat. Í greininni er dáðst að þrautseigju landsmanna sem hafi búið sér líf á hrjóstrugu og köldu landi þar sem fjórir fimmtu hlutar lands séu óbyggilegir. Er lof borið á félags- og heilbrigðiskerfi landsins og því líkt við Svíþjóð, en tekið fram að skatta- hlutfall hér sé nær því sem gerist í Bandaríkjunum. Keikó á slóðum háhyrninga TILRAUNIR til að háhyrningurinn Keikó aðlagist lífinu í villtri nátt- úrunni standa enn yfir, en hann er nú á slóðum háhyrninga við Vestmanna- eyjar. Að sögn Halls Hallssonar, tals- manns Ocean Future-samtakanna, er mikið af háhyrningum í kringum Vestmannaeyjar og hefur Keikó verið skammt frá vöðum frá því um helgina. Hallur segir að menn hafi merkt mikl- ar framfarir, sérstaklega í ágúst í fyrra, þegar Keikó hafi farið frá þjálf- ara sínum og synt á meðal annarra háhyrninga. Hann hafi sýnt þeim augljós og greinileg merki um áhuga en hafi samt ekki aðlagast vöðum og orðið eftir. Nú bindi menn hins vegar vonir við að hann nái að skapa tengsl og aðlagast háhyrningavöðum. Hallur segir að fylgst sé með öllum ferðum Keikós sem fyrr. Áhugi Bandaríkjamannanna, sem standi að verkefninu, sé jafn einbeittur og áður og vilji þeirra til að halda verkefninu áfram sé óbreyttur. Þetta sé vísinda- verkefni, menn séu að reyna hluti sem aldrei hafi verið gerðir áður og hafi séð talsverðar framfarir, en talið sé að möguleikinn á aðlögun sé til staðar. Hins vegar liggi fyrir að ekki sé um einfalt verkefni að ræða. Biskupsstofa skoðar mál sóknarprests EKKI er afráðið hvað gert verður vegna máls Jón Ísleifssonar, sóknar- prests í Árnesprestakalli á Ströndum, en Biskupsstofu hefur borist undir- skriftalisti frá sóknarbörnum hans þar sem þess er farið á leit að hann verði leystur frá störfum í sókninni. Að sögn Ragnhildar Benedikts- dóttur, skrifstofustjóra á Biskups- stofu, skrifuðu 39 manns undir listann. Alls eru 49 manns 16 ára og eldri í prestakallinu en í því er aðeins ein sókn, Árnessókn. Íbúar presta- kallsins eru alls 59. „Biskupsstofa er að vinna í málinu núna og það eru nokkrir möguleikar í stöðunni sem við erum að skoða ásamt séra Jóni,“ segir Ragnhildur. Nýir starfs- menn ASÍ TVEIR nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til Alþýðusambands Íslands. Ingvar Sverrisson, héraðs- dómslögmaður, hefur verið ráð- inn lögfræðingur í lögfræðideild ASÍ og hóf hann störf 1. júlí síð- astliðinn. Þá hefur Ólafur Darri Andrason verið ráðinn deildar- stjóri hagdeildar ASÍ og mun hann hefja störf 1. september næstkomandi. Á heimasíðu ASÍ kemur fram að Ingvar hafi áður starfað sem lögfræðingur hjá Vinnumála- stofnun, en hann lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands vorið 1991 og stundaði síðar nám í Evrópu- rétti í Amsterdam. Þá segir að Ólafur hafi starfað undanfarið sem fjárreiðustjóri Reykjavíkurborgar, en hann hefur mikla reynslu af gerð og túlkun kjarasamninga. Ólafur lauk hagfræðiprófi frá Háskóla Íslands og hefur hann starfað í fjárhagsdeild menntamálaráðu- neytisins og sem fjármálastjóri Fræðslumiðstöðvar Reykjavík- ur. ÁR á Vesturlandi eru vatnslitlar vegna mikilla þurrka og segir Ás- geir Heiðar, fulltrúi leigutaka í Laxá í Kjós, að miklir þurrkar hafi sett stórt strik í reikninginn og vatnsleysið hafi farið illa með veiðimenn, en ekki hafi rignt í tvo mánuði. Hins vegar séu góðar laxagöngur, eins árs fiskurinn sé mjög vænn og allir fái fisk þó veiðin mætti vera meiri, en í gær mátti sjá væna fiska stökkva í fossinum ofan við brú í Laxá í Kjós. Ljósmynd/Sigurður Árni Góðar laxagöngur þrátt fyrir vatnsleysi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.