Morgunblaðið - 10.07.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.07.2002, Blaðsíða 30
UMRÆÐAN 30 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ J æja, það hlaut að koma að því. Ég er nefnilega komin á þann aldur að eitt það helsta sem menn telja sig geta sagt mér til hróss er það að ég líti út fyrir að vera ung. „Mikið lítur þú vel út,“ heyri ég stundum sagt við mig þessa dagana, sennilega vegna þess að ég er nýkomin úr sumarfríi; úthvíld og afslöppuð. Og hégóminn er ekki langt undan. Við hrósyrðið lyftist ég upp – allt- af gaman að heyra að maður líti bærilega út – en síðan er þessari setningu bætt við: „Já, þú ert svo ungleg.“ Í einni svipan er ég dreg- in aftur niður á jörðina. All- harkalega. Ég átta mig á því að ég er ekki lengur „ung“ samkvæmt einhverjum óskiljanlegum við- horfum. Heldur er ég „gömul“. Jú, annars væri varla ástæða til að segja mér frá því að ég væri bara „nokkuð ungleg.“ Ég þurfi með öðrum orðum ekki að hafa áhyggj- ur af aldrinum því útlitið segi ann- að – að minnsta kosti þegar ég er nýkomin úr sumarfríi. Auðvitað er þetta „komment“ vel meint, það veit ég vel, og sjálf veit ég varla hvort ég á að hlæja eða gráta. Þó kemst ég ekki hjá því að velta því fyrir mér hvort skilaboðin séu kannski í raun og veru þessi: Það er eftirsóknarvert að vera ungur! Einnig spyr ég mig að því hve- nær maður er ungur og hvenær maður er gamall? Jú, sennilega getum við öll samsinnt því að ald- urinn sé afskaplega afstæður, þegar allt kemur til alls. Ég verð t.d. að játa að mér finnst ég, þrátt fyrir allt, vera bara nokkuð „ung“, svona nýskriðin á fertugsaldurinn – eða því sem næst. Öðrum finnst það sennilega … jú, greinilega ekki. Ég verð líka að viðurkenna að sjálfri fannst mér fólk á fertugs- aldrinum ekkert sérstaklega „ungt“, fyrir tíu árum eða svo, og þegar ég var barn hugsaði ég til þess með hryllingi hvað ég yrði gömul um aldamótin. Mér fannst að ég hlyti þá að vera orðin lúin og þreytuleg kona, búin að skila ævi- starfinu og vel það og komin með annan fótinn langleiðina í gröfina. Ég væri með öðrum orðum orðin hundgömul og ætti ekki einu sinni von á setningum á borð við: Þú lít- ur bara nokkuð unglega út! En svona fór þetta nú ekki, sem betur er, því lífið er rétt að byrja. Já, sennilega geta flestir tekið undir kenninguna um að aldur sé afstæður, eins og ég vék að áðan. En um leið er eins og það sé betra á einhvern hátt að vera ungur en gamall. Og ef ekki ungur, þá að minnsta kosti unglegur eða í ver- sta falli ungur í anda. Ofuráhersla er að minnsta kosti lögð á æsk- una; æskudýrkunin er mikil. Það kemur t.d. fram í frösum eins og: „Ég er þrátt fyrir háan aldur ung- ur í anda.“ Eða hvernig stendur á því að ég hef enn ekki heyrt frasa á borð við: „Ég er eins og aldurinn gefur til kynna gamall í anda“? Æskudýrkunin kemur fram í margs konar myndum. Hún kem- ur t.d. fram í því að svo virðist sem erfiðara sé fyrir eldra fólk en það yngra að fá vinnu. Aukinheldur sér maður sjaldan „gamalt fólk“ í svokölluðum framlínustörfum fyr- irtækja, þ.e. í móttökum, í stór- mörkuðum eða í fataverslunum svo dæmi séu nefnd. Æskudýrkunin kemur líka m.a. fram í öllum þessum hrukkukrem- um sem í boði eru á markaðnum og í megrunarduftunum því allir eiga að líta svo „unglega út,“ eins og ég hef áþreifanlega orðið vör við. Ennfremur kemur hún fram í bíómyndum, sem snúast ótrúlega margar um ungt fólk, í tískublöð- um, þar sem fyrirsæturnar eru varla eldri en tvítugar og svona gæti ég lengi haldið áfram. Í ís- lenska sjónvarpinu t.d. sér maður varla manneskju sem er komin yf- ir sextugt; hvorki í fréttum, í bíó- myndum eða öðrum dag- skrárliðum. Og innlend dagskrárgerð, sérstaklega á Skjá einum (ég hef nú reyndar ekki að- gang að Stöð 2), er gerð af „ungu fólki“ fyrir „ungt fólk.“ Og stund- um finnst mér reyndar eins og það sé yfir höfuð tabú að tala um gam- alt fólk. Hvað þá að nefna það að einhver sé gamall. Mér er reyndar minnisstæður einn Kastljósþáttur í Sjónvarpinu í vetur þar sem var viðtal við nokkra einstaklinga í kringum áttrætt. Ég man vel eftir þessum þætti því ég hafði aldrei séð svona margt „gamalt fólk“ saman komið í einum umræðuþætti áður. Það dró mig hins vegar að þættinum og ég fór að fylgjast með. Og ekki varð ég fyrir vonbrigðum; þátt- urinn var afskaplega fróðlegur og skemmtilegur og undarlegt að maður skyldi ekki sjá þessa kyn- slóð oftar á öldum ljósvakans. Eða á öðrum vettvangi. Hún hefur að minnsta kosti frá mörgu að segja og innlegg hennar inn í þjóð- félagsumræðuna hlýtur að vera mikilvægt fyrir okkur hin sem yngri erum. Já, æskudýrkunin er mikil. Og ég játa fúslega að ég tek virkan þátt í þeirri dýrkun. Af ein- hverjum ástæðum hef ég alltaf kviðið því að verða gömul þótt ég vilji samt ekkert fremur en að fá að njóta þeirrar gæfu að verða gömul. Eða eins og einhver sagði: Að vera gamall er það sem allir vilja verða en enginn vill vera. Miðað við þessa æskudýrkun er ekki að undra þótt menn telji það vera hrós að minnast á það hve ég sé, þrátt fyrir allt, ungleg. Og ekki að undra að mér skuli bregða við – því slíkt hrós er merki um það að ég sé ekki lengur „ung“ í ein- hverjum skilningi. En um leið ætti ég náttúrlega að fagna því að vera ungleg þrátt fyrir að vera orðin „gömul“! Eða hvað? Er ekki þessi æskudýrkun bara komin út í öfg- ar? Hvað er að því að vera gamall? Fá grá hár og hrukkur sem bera lífinu vitni? Verða reynslunni rík- ari og geta miðlað henni til hinna sem yngri eru? Geta sest sátt nið- ur að loknu dagsverki. Jú, kannski ég hlakki bara til gráu háranna! Æsku- dýrkun og gráu hárin „Ég man vel eftir þessum þætti því ég hafði aldrei séð svona margt „gamalt fólk“ saman komið í einum umræðu- þætti áður. En það var tími til kominn.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is HÖFUNDUR þessa pistils hefur í hálft ár leitt að því líkur á op- inberum vettvangi, að skýringu á minnkaðri arðsemi þorskstofnsins á undanförnum áratug- um sé m.a. að finna í breytingum á erfðum í honum, en hann hefur verið nýttur að mestum hluta með stærðarvelj- andi netveiðarfærum, þ.e. stærsti fiskurinn er veiddur „ofan af“ og lítill skilinn eftir; af- leiðingarnar hafi síðan orðið þær, að fiskurinn vaxi að meðaltali smám saman hægar en áður og verði fyrr kynþroska, en hvort tveggja leiðir til rýrnunar á arðsemi miðanna og stofnsins, annars vegar með minnk- aðri ætisnýtingu vegna hægvaxtar og hins vegar með auknum náttúru- legum dauða. Lélegur smáfiskur verður nú kynþroska allt of snemma án þess að vera „nokkur fiskur“ til þess og getur drepist af eymd í hrygningu eða að henni aflokinni. Til þessa hefur engin sönnun legið fyrir, en mjög sterkar vísbendingar eru margar og hafa verið tíundaðar í mörgum blaðagreinum að undan- förnu. Það hefur lengi verið opinber nýtingarstefna að veiða stóra fiskinn en hindra veiðar á smáfiski til þess að hann geti vaxið og borið uppi veiðar síðar meir. Nú hefur fengist staðfesting og sönnun fyrir því, að einstakir fiskstofnar, eða einstak- lingar, eignast afkvæmi sem hafa mjög mismunandi vaxtareiginleika hver fyrir sig og með því að velja stóra einstaklinga úr og láta þá minni lifa og æxlast, breytist vaxt- arhraði og afurðasemi til hins verra með hverri kynslóð til þeirrar næstu. Með þessu er ljóst að opinber nýtingarstefna, sem tekur ekki mið af þessu, er í uppnámi og hefur átt drjúgan þátt í því að veiðistofn þorsks hefur rýrnað niður í um þriðjung af því sem áð- ur var. Engin er báran stök Vísindamennirnir David O. Conover og Stephan B. Munch (State University of New York í Stony Brook, Science Magaz- ine, 297. 5.7.02) hafa gert eldistilraunir með smáfiskinn silfurær- ingja (Menida menida) í gegn um fjórar kyn- slóðir. Þeir söfnuðu 700 fullvöxnum og kynþroska einstak- lingum og skiptu þeim upp í þrjá hópa. 10% af þeim stærstu í einum hópnum voru látnir hrygna og af- komendur aldir í 190 daga til kyn- þroska. 10% af þeim minnstu í öðr- um hópnum voru látnir hrygna á sama hátt og afkomendur aldir. Í þriðja hópnum voru fiskar slembi- valdir. Eftir að hafa gert hið sama í fjórar kynslóðir var meðalþungi í þeim hópi sem var valinn úr þeim stærstu orðinn að meðaltali 6,47g en 1,05g úr hópi hinna minnstu, en 3,17g í þeim sem hafði verið slembi- valinn. Með þessu er sannað, að ein- stakar fisktegundir (stofnar) hafa einstaklinga sem búa yfir mismun- andi vaxtareiginleikum, sem erfast frá foreldrum til afkvæma. Þar sem allur fiskurinn var alinn á gnægð æt- is (ofgnótt, ad libitum) og einstak- lingar í hverjum hópi líkir að stærð (nema í slembihópnum), er ljóst að mismunandi vöxtur tilraunahópanna getur ekki hafa skapast af öðru en mismunandi erfðaeiginleikum. Þar sem umræddir eiginleikar eiga við um eina fisktegund eru allar líkur á því að þeir eigi einnig við um aðrar eins og þorsk og aðra botn- fiska. Í tilrauninni náðist sexfaldur vaxtarmunur með vali í aðeins fjórar kynslóðir, en stærðarval í nátt- úrunni með netveiðarfærum nær bara til hluta af heildarstofnunum á hverju ári. Eins getur verið að arf- gengi á vaxtareiginleikum sé eitt- hvað mismunandi á milli tegunda og kynslóða, en varla þarf nú lengur að deila um það hvort þetta fyrirbæri eigi sér stað eða ekki. Spurningin er bara sú hversu hratt erfðavalið ger- ist með veiðum hverju sinni og hversu stór hluti nýliða hvers ár- gangs er af „góðum ættum“. Það dæmi er mjög flókið og gusur af seiðum með góða eiginleika geta komið þrátt fyrir að heildarstofnar séu orðnir erfðafræðilega lélegir að meðaltali. En ljóst er að undirstofn- ar þorsks hér við land eru fjölda- margir í samræmi við þær niður- stöður og vísbendingar sem þegar hafa fengist, og hver þeirra verður að fá að þróast þannig, að bestu vaxtareiginleikar fái notið sín til há- mörkunar á arði af hverju hafsvæði fyrir sig. Náttúran skapar erfðabreidd en aðstæður velja úr Ofannefndir vísindamenn segja að „útgerðastjórar“ hafi sætt sig við stöðugt minnkandi einstaklinga í veiðum vegna þeirrar skoðunar, að þeir vaxi hratt og nýti vel aðstæður til góðrar heildararðsemi veiðislóða Vaxtargeta ein- stakra fiska erfist Jónas Bjarnason Vaxtarhraði Með krókaveiðum, segir Jónas Bjarnason, má þyrma stórum og hrað- vaxandi fiski og stuðla að klaki góðra afkom- enda. EINS og fram hefur komið í fjölmiðlum er verið að breyta bygg- ingarreglugerð þannig, að hægt verði að nota hinu nýju Evrópu- staðla. Evrópustaðl- arnir eru samstarfs- verkefni Evrópuþjóða til að koma á sameig- inlegum byggingar- markaði. Evrópustaðl- arnir taka m.a. til hönnunar mannvirkja og þess álags, sem þau þurfa að þola. Varð- andi náttúruálag svo sem snjó, vind og jarð- skjálfta verður hvert land að skilgreina stærð þess í svo- kölluðum þjóðarskjölum. Starfshópur umhverfisráðuneytis Til þess að gera hönnuðum kleift að nota hina nýju Evrópustaðla fól umhverfisráðuneytið starfshópi að semja viðkomandi þjóðarskjöl. Hóp- urinn klofnaði um niðurstöðuna, og skilaði Jónas Elíasson, prófessor, séráliti. Deilan snýst einkum um jarðskjálftaálag. Jónas bendir á, að það álag sé sett alltof hátt í Reykja- vík og nágrenni, en sennilega of lágt innan jarðskjálftasvæðanna á Suð- urlandi. Þessu hefur ráðuneytið svarað með því, að reglurnar verði endurskoðaðar og jafnframt gefið í skyn, að sérfræðingar Háskólans hafi staðið að þeim. Því miður komu eng- ir aðrir sérfræðingar Háskólans en Jónas Elíasson að ákvörðun um álagsforsendur þjóðarskjalanna. Ekki er annað hægt en taka undir gagnrýni hans þegar hann bendir á, að hinar nýju reglur um jarðskjálftaálag muni virka mjög íþyngjandi fyrir bygg- ingaraðila á höfuðborg- arsvæðinu, algerlega að óþörfu. Jarðskjálfta- rannsóknir Undirritaður hefur rannsakað áhrif jarðskjálfta á Íslandi um 35 ára skeið og birt margar greinar og skýrslur um jarðskjálftaáhættu. Ragnar Sigbjörnsson, prófessor og samstarfsmenn hans, hafa rannsak- að ítarlega eiginleika íslenzkra jarð- skjálfta. Rannsóknir Jarðskjálfta- miðstöðvarinnar á Selfossi á Suðurlandsskjálftum 2000 hafa skil- að mjög mikilvægum niðurstöðum varðandi íslenzka jarðskjálfta, sem nota má til að skilgreina betur jarð- skjálftaáhættu á Reykjavíkursvæð- inu. Þá má nefna samstarf Ragnars Sigbjörnssonar og N.N. Ambraseys, prófessors við Imperial College í London, sem er meðal þekktustu sérfræðinga heims í jarðskjálfta- fræðum. Þeir hafa safnað saman ít- arlegum upplýsingum um jarð- skjálfta, sem gætu haft áhrif á Reykjavíkursvæðinu, og gefið út myndarlegt rit þar að lútandi. Pró- fessorarnir Júlíus Sólnes, Ragnar Sigbjörnsson og Jónas Elíasson hafa reiknað jarðskjálftaáhættu á höfuð- borgarsvæðinu. Verða niðurstöður þeirra, sem eru byggðar á nýjustu og beztu fræðilegum upplýsingum, m.a. á áhrifum Suðurlandsskjálfta 2000, birtar á Evrópuráðstefnu jarð- skjálftaverkfræðinga í London í september. Þessar niðurstöður hafa legið fyrir um alllangt skeið, en hvorki ráðuneytisnefndin né við- komandi byggingaryfirvöld virðast hafa haft áhuga á að kynna sér þau gögn. Samkvæmt þeim er ljóst, að jarðskjálftaálag á höfuðborgarsvæð- inu er gróflega ofmetið í þjóðar- skjalinu. Sums staðar verður jarð- skjálftaálagið helmingi meira en Jarðskjálftaálag í Reykjavík Júlíus Sólnes Jarðskjálftar Það kann ekki góðri lukku að stýra, segir Júlíus Sólnes, að ganga fram hjá þeim, sem helzt búa yfir þeirri þekkingu, sem þörf er fyrir, en taka heldur lægsta tilboðinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.