Morgunblaðið - 12.07.2002, Page 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 19
S MATAR!
KOSTAR MINNA
12-19
ALLA DAGA
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Mikið úrval
ljósum
sumardrögtum
af fallegum
10
96
/
T
A
K
T
ÍK
1
3.
7´
02
499
Nauta
Rib Aye - gæðasteik
pr.
kg.1 499
Nauta
piparsteik
pr.
kg.1
2899
Nautalundir
pr.
kg. 099
Nautasnitsel
pr.
kg.1
Nú er gott verð
á nýju nautakjöti
KRAFTUR, þor og frumkvæði er
það sem situr eftir þegar konurnar í
sendinefnd íslenskra viðskipta-
kvenna í Barcelona hafa kynnt fyr-
irtæki sín fyrir spænskum aðilum nú
í vikunni. Tilefnið var að hita upp
fyrir alþjóðlegu kvennaráðstefnuna
„Global Summit of Women 2002“
sem hófst í gær og stendur til 13. júlí
í nýju viðskiptahverfi borgarinnar
en þar munu athafnakonur hvaðan-
æva úr heiminum koma saman.
Hugmyndin að því að stofna þessa
sérstöku viðskiptanefnd kvenna
kviknaði þegar Jónína Bjartmars al-
þingiskona hitti skipuleggjendur
ráðstefnunnar í Hong Kong í fyrra
og í maí var hafist handa við undir-
búning og skipulagningu. Tilgang-
urinn er göfugur; að koma íslensk-
um athafnakonum á framfæri og
leita að viðskiptatækifærum erlend-
is.
Sjaldan hefur komið saman jafn-
áhugaverð blanda fyrirtækja og
framtaks. Sem dæmi má nefna út-
flutning á hárkollum og höfuðfötum,
náttúrulega unnum hundamat, ís-
lensku kryddi, tónlistarmönnum og
hönnun. Einnig voru íslensku kon-
urnar að leita að erlendum birgjum
til þess að renna fleiri stoðum undir
starfsemi sína á Íslandi.
Að loknum fyrirlestri um efna-
hagsástand Barcelonaborgar og er-
indi Sigríðar Snævarr, sendiherra
fyrir Spán, um efnahagsumhverfi Ís-
lands, kynntu konurnar sig stuttlega
og buðu svo áhugasömum að koma
að borðinu sínu og fá frekari upplýs-
ingar. Aðspurðar virtust þær flestar
ánægðar með árangurinn eða eins
og ein orðaði það: „Það er nóg að
koma hingað þótt það sé ekki nema
fyrir það að finna fyrir meðbyr.“
Eins og ein þessara kraftmiklu at-
hafnakvenna benti réttilega á eru
þær fáar konurnar sem fæðast með
silfurskeið í munni og því er nauð-
synlegt að leita réttra leiða til þess
að drífa verk sín og hugmyndir
áfram og efla viðskiptatengsl sín,
ekki bara við samlanda heldur einn-
ig á alþjóðlegum vettvangi. Aðalat-
riðið er að bera sig eftir björginni og
búa sér til sína eigin silfurskeið.
Íslenskar konur kynna fyrirtæki sín í Barcelona
Að bera sig eftir björginni
Morgunblaðið/Gréta Hlöðversdóttir
Sigríður Snævarr, sendiherra Íslands, Helga Jóhannesdóttir hjá Leirverk-
stæðinu Álafossi og Þóra Guðmundsdóttir hjá flugfélaginu Atlanta.
Barcelona. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Gréta Hlöðversdóttir
Íslensku athafnakonurnar samankomnar í Barcelóna.
VINNSLUSTÖÐIN hf. hefur selt
línubátinn Gandí VE-171 til Færeyja,
en hann hefur verið til sölu í eitt og
hálft ár. Skrifað var undir kaupsamn-
ing þessa efnis í gær og verður skipið
afhent í næstu viku. Sölutap á skipa-
sölunni er tæpar 90 milljónir króna.
Nýlega gekk útgerðarfélagið Únd-
ína ehf., sem gerir út togskipið
Björgu VE, inn í Vinnslustöðina. Út-
hlutaðar aflaheimildir þess eru tæp-
lega 500 þorskígildistonn. Eftir söl-
una á línubátnum á Vinnslustöðin sjö
skip. Það eru Drangavík, Brynjólfur,
Kap, Sighvatur, Jón Vídalín, netabát-
urinn Gandí og Björg. Uppi eru hug-
myndir um að selja Björgu líka og að
heimildir hennar verði nýttar af öðr-
um skipum félagsins. Vinnslustöðin
hefur á þessu fiskveiðiári til ráðstöf-
unar ígildi 11.000 tonna af þorski auk
1.850 þorskígildistonna í eigu Jóns
Erlingssonar í Sandgerði og afla-
heimildanna sem fylgdu Björgu.
Vinnslustöðin selur Gandí til Færeyja
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111