Morgunblaðið - 12.07.2002, Side 50

Morgunblaðið - 12.07.2002, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                      !     "#  !  #       $ "%        %%    BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. UMRÆÐAN um Sólheima í Gríms- nesi snertir mig djúpt. Í 15 ár hef ég fylgst með glæsilegri uppbyggingu, ótrúlegri þrautseigju og stöðugri baráttu þeirra sem vilja veg Sólheima sem mestan og skilja að hagsmunir þroskaheftra eru hagsmunir okkar allra. Sólheimar hafa endurtekið öll þessi ár lent í andstöðu við þau við- mið sem félagasamtök er starfa í þágu þroskaheftra sem og stjórnvöld hafa haft að leiðarljósi. Þetta er ekki auðvelt að skilja í ljósi þess að Sólheimar hafa allan þennan tíma og frá upphafi verið merkisberi og frumkvöðull þeirrar stefnu að þroskaheftir eigi rétt á að njóta sömu mannréttinda og aðrir þjóðfélagsþegnar. Sú umræða sem er í gangi vekur furðu. Enn einu sinni er ráðist á Sólheima, nú undir merkjum þess hvort að „fjöldi stöðu- gilda er í samræmi við gerðan þjón- ustusamning“. Ekki er tekið tillit til þess hve vel hefur tekist til um upp- byggingu og endurskipulagningu starfseminnar í þágu þeirra sem þar dvelja. Heldur ekki þess að starf- semin er sem lítið þorp þar sem allir hafa sína möguleika að þroskast og dafna við meiri lífsgæði en ella. Ég þori að fullyrða að Sólheimar eru nú sem fyrr merkisberi þess sem best er gert fyrir og með þroskaheft- um. Ég hvet aðila málsins til að slíðra sverðin og finna farsæla lausn sem tryggir áfram þróttmikla starfsemi á Sólheimum og stuðning við það brautryðjendastarf sem þar er unn- ið. GUÐJÓN MAGNÚSSON, læknir, dr. med. Sólheimar – heimur fyrir sig Frá Guðjóni Magnússyni: Við vinnu á vefstofunni á Sólheimum. Morgunblaðið/Golli UNDANFARIÐ hefur maður verið að sjá hlýlegar sjónvarpsauglýsing- ar frá Póstinum – með kveðju. Það var þá kveðjan! Nú eru að berast þær kveðjur að flytja eigi póststof- una okkar Vesturbæinga „hreppa- flutningi“ yfir í annað sveitarfélag! Og hvert þá? Af Holfsvallagötunni vestur á Seltjarnarnes. Verða kannski póststofurnar í Grafarvogi og Breiðholti sendar upp í Mosfellsbæ sú fyrri, en hin í Kópavoginn? Þetta liggur svo ósköp vel við, er það ekki? Var þetta ætl- unin þegar Alþingi samþykkti að einkavæða Póstinn? Eða var þetta slys af hálfu hins opinbera? Yfirleitt reyni ég að taka mótlæti með brosi á vör og reyni að sjá spaugilega hlið á flestum málum. Nú getur mér ekki annað en gramist yfir þessari afturför í þjónustu Póstsins og lýst yfir minni megnustu skömm á þeirri stjórn sem þessu ræður. Þessi einkavæðing var ekki til heilla fyrir okkur Vesturbæinga. Starfsfólki póststofunnar við Hofsvallagötu sendi ég innilegar kveðjur með hjartans þökkum fyrir hlýlegt viðmót og góða þjónustu á liðnum árum. Fleiri en ég munu sakna þessa góða fólks. GUÐMUNDUR JÓNSSON, söngvari. Pósturinn – með kaldri kveðju Frá Guðmundi Jónssyni:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.