Morgunblaðið - 12.07.2002, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2002 53
DAGBÓK
Árnað heilla
90 ÁRA afmæli. Nk.þriðjudag 17. júlí er
níræð Hulda Sigurbjörg
Hansdóttir, Laufvangi 16,
Hafnarfirði. Af því tilefni
tekur hún á móti gestum
laugardaginn 13. júlí frá kl.
15 í Haukahúsinu að Ásvöll-
um, Hafnarfirði.
70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 12. júlí,
er sjötugur Ríkarður Páls-
son, tannlæknir og forseti
Landssamtaka eldri kylf-
inga. Hann tekur á móti
gestum í samkomusal Áburð-
arverksmiðjunnar í Gufunesi
kl. 18 á afmælisdaginn.
LJÓÐABROT
KVEÐJA
Reisubræður rýma hlað,
rústa böndum heftir;
hér eg líka brýt í blað,
bleikan stíg á hófaglað
og heyri sigað hundum loks á eftir …
Bólu-Hjálmar
ÞAÐ reyndist mörgum
pörum um megn að ná
fjórum spöðum á spil NS
eftir opnun vesturs á
þremur laufum í þriðju
hendi. Spilið kom upp í
sjöundu umferð Evrópu-
mótsins:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁKD
♥ D108642
♦ ÁD8
♣3
Vestur Austur
♠ 765 ♠ 109
♥ G75 ♥ K93
♦ 3 ♦ K1074
♣ÁKG754 ♣D982
Suður
♠ G9432
♥ Á
♦ G9652
♣106
Eftir pass austurs og
suðurs í byrjun er freist-
andi að vekja á þremur
laufum í vestur. Þeir sem
höfðu kjark til þess upp-
skáru margir vel, því víð-
ast hvar kom norður inn á
þremur hjörtum og var
skilinn þar eftir. En í leik
Ítala og Hollendinga tókst
báðum NS-pörum að leysa
sagnvandann og ná fjórum
spöðum. Á öðru borðinu
vakti vestur á einu laufi,
sem gaf NS meira svigrúm
til samtals, en á hinu borð-
inu vakti vestur á þremur
laufum og norður valdi að
dobla til úttektar.
En þótt fjórir spaðar sé
augljóslega fallegt geim er
það síður en svo borðleggj-
andi. Á báðum borðum
kom út einspilið í tígli. Ef
sagnhafi lætur lítinn tígul
úr borði getur vörnin
hnekkt samningnum strax
í byrjun: Austur lætur
makker trompa tígul, fær
smátt lauf til baka yfir á
drottningu og gefur makk-
er aðra tígulstungu. Þessi
vörn er reyndar alls ekki
einföld, því vestur þarf að
spila undan ÁK í laufi til
að koma makker aftur inn.
Hins vegar reyndi ekki á
varnarsnilldina, því báðir
sagnhafar tóku útspilið
með tígulás. Tóku svo ÁK í
trompi og spiluðu laufi.
Vörnin má nú taka eina
tígulstungu, en betra er þó
að vestur noti innkomuna
til að trompa aftur út. Og
það var gert. En bæði Ítal-
inn Duboin og Hollending-
urinn Jansma áttu rétta
svarið: þeir spiluðu tíg-
uláttu úr borði og svínuðu.
Vörnin fékk þannig aðeins
einn slag á tígul og tvo á
lauf.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú tekur hlutina alvarlega
þótt þú bregðir stundum yfir
þig skikkju léttleikans. Þú
býrð yfir athyglisgáfu. Þér
er nauðsyn á að mennta þig
til að öðlast hugarró.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þótt þú hafir tilhneigingu til
að vantreysta hugmyndum
þínum um fjármál og eyðslu
eru þær mun raunsærri en þú
kannt að halda.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ekki hika við að verja fé í
fasteignir eða annað sem
tengist fjölskyldunni. Hug-
boð þitt um að þessi útgjöld
séu nauðsynleg er rétt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Alvarlegt samtal við ættingja
eða nágranna mun skila raun-
hæfum niðurstöðum. Segðu
öðrum frá áformum þínum
því viðbrögð þeirra geta
reynst þér nýtileg.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Leitaðu til stjórnvalda eða
stórra stofnana eftir stuðn-
ingi í dag. Ekki hvika frá
settu marki því þú kannt að fá
vilja þínum framgengt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gamall vinur gefur þér góð
ráð í dag. Hlustaðu á hann
þrátt fyrir að viðhorf hans
kunni að vekja upp fordóma
sem þú býrð yfir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hlustaðu á það sem yfirmað-
ur þinn eða eldri og reyndari
vinur segir þér í dag. Þótt orð
þeirra kunni að vera óþægi-
leg eru þau byggð á reynslu
og þekkingu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Metnaður þinn og heppni
kunna að leiða til frama í
starfi. Þá munu fréttir frá
öðru landi eða einhverjum
þér eldri sem býr langt í
burtu hjálpa þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Í dag er gott að ganga frá
lausum endum í tengslum við
tryggingar, fasteignir, erfða-
skrár eða skuldir. Athygli þín
er skörp og ekkert fer fram
hjá þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Fréttir um útgáfu eða fram-
haldsnám kunna að hafa áhrif
á samband þitt við einhvern
og gætu leitt til þess að þetta
samband rofnar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú getur afkastað miklu í
dag. Þú getur tekist á við leið-
inlegu vanaverkin í dag því
þú veist að það kann að bera
ávöxt á morgun.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er líklegt að saklaust
daður kunni að hafa skyndi-
legar afleiðingar og þróast í
raunverulegt samband.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu að afkasta miklu á
heimilinu í dag því það sem
þú gerir í dag mun hafa áhrif í
framtíðinni. Það gæti jafnvel
haft bætandi áhrif á heilsuna.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
50 ÁRA afmæli. Nk.sunnudag, 14. júlí, er
fimmtug Erna Magnúsdóttir
Espersen, Danmörku. Í til-
efni tímamótanna er hún
stödd hér á landi ásamt fjöl-
skyldu sinni og tekur á móti
gestum á morgun, laugar-
dag, eftir kl. 18, á heimili
systur sinnar í Viðarrima 62,
Reykjavík. Þætti henni gam-
an að sjá gamla vini á ný.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 12. júlí,
er sextugur Árni Óli Sam-
úelsson, forstjóri, Starra-
hólum 5, Reykjavík. Eigin-
kona hans er Guðný Ásberg
Björnsdóttir. Þau taka í dag
á móti gestum í Perlunni frá
kl. 17-19.
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 12. júlí,
er fimmtugur Sigþór Magn-
ússon, skólastjóri, Búa-
grund 13, Reykjavík. Eigin-
kona hans er Valdís Ósk
Jónasdóttir. Þau eru að
heiman í dag.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 e5 5. Rb5 d6 6. R1c3
a6 7. Ra3 b5 8. Rd5 Rge7 9.
c4 Rxd5 10. cxd5 Re7 11.
Rc2 Bd7 12. Bd3 g6 13. 0–0
Bg7 14. Be3 0–0 15. Hc1 f5
16. f3 f4 17. Bf2
g5 18. Rb4 Rg6
19. Be2 h5 20.
Kh1 Hf7 21. a4
bxa4 22. Rxa6 Rf8
Staðan kom
upp á öðru bikar-
móti FIDE sem
lauk fyrir
skömmu í
Moskvu. Sigur-
vegari mótsins,
Garry Kasparov
(2.838), hafði
hvítt gegn Joel
Lautier (2.675).
23. Hc6! Þiggi
svartur skipta-
muninn fer allur broddur úr
sókn hans á meðan hvítu
reitirnir í stöðu hans verða
sem opið sár. Framhaldið
varð: 23. … Hf6 24. Dxa4
Hg6 25. Db4 Df6 26. Rb8
Hxb8 27. Dxb8 g4 28. Hc7
gxf3 29. Bxf3 Bg4 30. De8
Dg5 31. Hg1 h4 32. h3 Bh5
33. Df7+ Kh8 34. Hc8 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag-
inn 13. júlí, verður fimmtug,
Steinunn Steinþórsdóttir,
Ránarbraut 1, Skaga-
strönd. Hún og eiginmaður
hennar, Karl Rósinbergs-
son, taka á móti gestum á
heimili sínu frá kl. 18 til 21
síðdegis á afmælisdaginn.
Uppskrift
að góðri helgi
1 haus kínakál
2 msk. sojasósa
2 msk. sæt chilisósa
ólífuolía til steikingar
Skerið kínakálið í tvennt (þversum). Efri helminginn
notið þið í ferskt sumarsalat en neðri helminginn
skerið þið niður í 5 - 6 sm langa strimla. Hitið
pönnuna vel, setjið á hana ólífuolíu og steikið
kálið í 1 mín. Hellið sojasósunni og sætu chilisós-
unni yfir og berið strax fram.
Kínakál kemur að öllu leyti í staðinn fyrir t.d.
„bok choy“ og aðrar beiskar káltegundir.
Kínakál - heitt og kalt
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
G
R
A
1
80
33
07
/2
00
2
- alltaf 1/3
Hafðu hollustuna með
Íslenskt grænmeti