Morgunblaðið - 31.08.2002, Síða 2

Morgunblaðið - 31.08.2002, Síða 2
FRÉTTIR 2 LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isReynir Sandgerði kærir Leikni Fáskrúðsfirði / B1 Bjarni Guðjónsson var til reynslu hjá Duisburg / B1 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Sérblöð í dag Á LAUGARDÖGUM Morgunblaðinu í dag fylgir þekk- ingarrit frá IMG um stjórnun og starfsmannamál. Blaðinu verður dreift á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. SEIÐAVÍSITALA ýsu er nú mun hærri en nokkru sinni síðan mæl- ingar hófust og vísitala þorskseiða er sú næsthæsta sem mælzt hefur. Þetta er sjötta góða seiðaárið í röð, en seiðaárgangar næstu ellefu ára þar á undan voru mjög lélegir. Vísi- talan hefur aðeins verið hærri árið 1999. Jóhann Sigurjónsson, for- stjóri Hafrannsóknastofnunar, segir þetta ánægjuleg tíðindi. Þarna sé kominn efniviður í sterka árganga en framtíðin ein skeri úr um það hver niðurstaðan verði. Nýlokið er 19 daga árlegum rannsóknum á fjölda og útbreiðslu fiskseiða. Seiðarannsóknirnar voru gerðar á rs. Bjarna Sæmundssyni og einskorðuðust við hafsvæðið umhverfis Ísland. Auk ofan- greindra rannsókna fóru fram hita- og seltumælingar sjávar, mælingar á koltvísýringi og næringarsöltum í sjó og lagning straummælinga- bauja. Leiðangursstjóri var Sveinn Sveinbjörnsson. Veður var hag- stætt allan rannsóknatímann og hafís var ekki til trafala. Niðurstöður um sjávarástand og fjölda og útbreiðslu seiða liggja nú fyrir í stórum dráttum en ekki er búið að vinna að fullu úr gögn- unum. Mikið var af þorskseiðum og var vísitalan sú næsthæsta sem mælst hefur frá því seiðarannsóknirnar hófust árið 1970. Aðeins árið 1999 hafa þorskseiði mælst fleiri en nú. Útbreiðsla þorskseiða var mikil og fundust seiði á landgrunninu úti fyrir Suðvestur- og Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og suður með Austfjörðum og Suðaustur- landi. Stærð seiðanna var rétt yfir meðallagi. „Ljóst er að þarna er á ferðinni efniviður í sterkan þorskárgang en afkoma seiðanna fyrsta veturinn mun þó mestu ráða nú sem endra- nær um hvernig úr rætist. Áreið- anlegra mat á styrk þessa árgangs mun fást í stofnmælingu botnfiska í mars nk. Þetta er sjötta góða seiðaárið í röð, en seiðaárgangar næstu ellefu ára þar á undan voru mjög lélegir. Miðað við afkomu stórra seiðaárganga undanfarin ár má gera ráð fyrir að þessi árgang- ur verði af meðalstærð,“ segir Jóhann Sigurjónsson. Hann segir ennfremur að þessi staða og ástand sjávar almennt bendi til þess að við séum að ganga inn í hlýsjávarskeið eins og ríkti á árunum fyrir haf- ísárin. Stærð yfir meðallagi Seiðavísitala ýsu var sú lang- hæsta síðan mælingar hófust. Stærð seiðanna var nokkuð yfir meðallagi. Fyrstu vísbendingar um stærð ýsuárgangsins 2002 benda því til þess að hann verði vel yfir meðallagi eða stór. Seiðavísitala loðnu var mjög lág. Stærð loðnuseiðanna var hins vegar aðeins yfir langtímameðal- tali. Ekki er búið að vinna gögn um aðrar tegundir. Sjórinn hlýr og selturíkur Sunnan og vestan Íslands var sjór hlýr og selturíkur og upphitun yfirborðslaga talsverð. Flæði hlýsjávar vestur og norður fyrir land var verulegt og náði austur að Langanesi. Hinn kaldi Austur-Íslandsstraumur fyrir Norðaustur- og Austurlandi var heldur nær landi en verið hefur á þessum árstíma síðustu ár. Upp- hitun yfirborðslaga var allnokkur yfir landgrunninu úti fyrir Norð- austur- og Austurlandi en sjávar- hiti á þessu svæði var þó heldur undir meðallagi síðustu ára. Mikið af seiðum þorsks og ýsu samkvæmt rannsóknum Hafrannsóknastofnunar                                                                   Efniviður í sterka árganga Í NÆSTU viku verða lagðar fram tillögur um viðgerðir og viðhald á þeim listaverkum í eigu Listasafns Reykjavíkur, sem skemmdust í brunanum mikla í Fákafeni 7. ágúst sl. Svo heppilega vildi til að for- vörður frá danska Þjóðminjasafn- inu er að vinna fyrir Þjóðminjasafn Íslands og var hann lánaður til Listasafns Reykjavíkur til að meta verkin úr brunanum. Í kjölfar skýrslu hans verður unnt að leggja fram kostnaðaráætlun og taka ákvörðun um hvernig verkum verð- ur deilt niður á forverði og staðið að viðgerðum að öðru leyti. Kemur til greina að leita til listamannanna sjálfra varðandi viðgerðir þar sem því verður við komið. Eiríkur Þorláksson, for- stöðumaður Listasafns Reykja- víkur, segir að kostnaðaráætlunin verði lögð fram við Reykjavíkur- borg með beiðni um fjármagn til að mæta tjóninu og væntir hann góðra viðbragða úr borgarkerfinu. Hann segir að 1–2 verk séu alfar- ið ónýt eftir eldsvoðann, þ.e. pappa- massaverk eftir Svövu Björns- dóttur, sem drógu í sig bleytu og hrundu saman. Hann segir hugsan- legt að listakonan geti endurgert munina ef mótin af þeim finnast. Málmverk sem geymd voru í kjallaranum voru sum hver máluð og segir Eiríkur að þau þurfi að hreinsa og mála á ný. „Málmurinn var ber á öðrum verkum og þau þarf hugsanlega að pússa alveg upp og bera olíur og annað á þau,“ segir Eiríkur. „Tréskúlptúrarnir eftir Ásmund Sveinsson fengu í sig nokkra vætu og þurfa að þorna hægt og rólega áður en þeir verða þrifnir og borið á þá.“ Verkin sem björguðust út úr geymslunni eru nú komin í geymslu á Gylfaflöt í Grafarvogi og í Borgartúni. Forvörður frá Danmörku aðstoðar vegna listaverka sem skemmdust í Fákafeni Tillögur að viðgerð- um vænt- anlegar í næstu viku Morgunblaðið/Jim Smart Sérfræðingar hafa verið að meta skemmdir á listaverkum eftir brunann. F.v.: Þorbjörg Gunnarsdóttir, deild- arstjóri hjá Listasafni Reykjavíkur, og forverðirnir Jennie Ebsen, Mikala Bagger og Helgi Örn Pétursson. GRÆNLENSKA sveitarstjórnar- sambandið heldur ársfund sinn á Ís- landi dagana 3.–6. september næst- komandi. Unnar Stefánsson, ritstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, segir að allt frá árinu 1995 hafi verið samstarf milli hins íslenska sveitar- félagasambands og þess grænlenska. Grænlendingarnir hafi komið hingað með hópa í kynnisferðir öðru hvoru og ætli nú í fyrsta sinn að halda árs- fund sinn hér á landi. Unnar segir að þau skipti sem Grænlendingarnir hafa komið hingað hafi þeir kynnt sér atvinnu- og byggðamál og nú vilji þeir kynna sér þau til þrautar þar sem þeir eigi í vanda með þessi mál í heimalandi sínu og vilji læra af okkur. „Þeir munu heimsækja sveitar- félög, til dæmis Árborg, og auk þess munu sveitarstjórnarmenn koma á fund þeirra sem haldinn verður á Hótel Örk í Hveragerði og ræða við þá. Fulltrúar vinabæja þeirra munu einnig mæta á fund Grænlending- anna og ræða við þá um hvernig vina- bæirnir hér geta orðið þeim að liði,“ segir Unnar. Auk þess að heimsækja sveitarfélög gefst Grænlendingunum tækifæri til að skoða allmörg fyrir- tæki á Suðurlandsundirlendinu og höfuðborgarsvæðinu. Unnar segir að á fundinum verði einnig rætt um skipan sveitar- stjórnarmála almennt og sérstaklega hvaða heimildir sveitarfélög hérna hafa til þess að taka þátt í atvinnu- málum eða blanda sér í atvinnu- rekstur því að takmörk eru fyrir því hvað þau mega gera. Grænlending- arnir vilji fræðast um reynslu ís- lenskra sveitarfélaga í þessum efnum. Grænlensk- ir sveitar- stjórnar- menn funda á Íslandi SANDEL, Adríel, Addi, Demus, Garri og Engla voru meðal nafna sem mannanafnanefnd tók til greina á síðasta fundi sínum og verða þau færð á mannanafnaskrá. Nefndin hafn- aði á hinn bóginn beiðni um eig- innafnið Annamaría og Dyljá. Taldi nefndin að nafnið Anna- maría væri ekki myndað í sam- ræmi við almennar nafnamynd- unarreglur íslensks máls og bryti í bága við íslenskt málkerfi. Þá hefði nafnið ekki unnið sér sess í íslensku máli líkt og kveðið er á um í lögum um mannanöfn frá 1996. Dyljá var ekki talið rit- að í samræmi við almennar rit- reglur íslensks máls. Önnur nöfn sem nefndin féllst á voru Nikol- as, Höfðdal (millinafn), Fía, Stef- an, Adela og Torheiður. Nöfnin Addi, Garri og Engla viðurkennd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.