Morgunblaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2002 13 HEIMILI og skóli, landssamtök foreldra, eiga tíu ára afmæli nú í september. Samtökin héldu af því tilefni blaðamannafund á fimmtudag og gerðu þar grein fyrir helstu áherslum í starfsemi sinni og kynntu jafnframt fræðslu- og upplýs- ingaefni sem þau gefa út um þessar mundir. Að sögn Jónínu Bjartmarz, formanns Heimilis og skóla, var samstarfssamningur undirritaður nú í vor á milli Heimilis og skóla og mennta- málaráðuneytisins. Hún sagði að ráðuneytið greiddi samtökunum 1,7 milljónir króna á ári til þriggja ára. Með því ætti þeim að vera betur kleift að sinna símaþjónustu, sem er mikilvægur þáttur í starfsemi samtakanna, auk þess sem Heimili og skóli skuldbinda sig til að efla starf foreldraráðanna í grunnskólunum og loks að standa að útgáfustarfi. „Varðandi útgáfustarfið höfum við lagt mesta áherslu á gagnvart ráðu- neytinu stuðning þess um útgáfu alls konar efnis um stjórnsýslu skóla, réttarstöðu foreldra, réttindi og skyldur innan kerfisins og hvernig foreldrar eiga að bera sig að,“ sagði Jónína og benti á að nú væri meðal annars verið að kynna bækling sem ber heitið Meðferð skólastarfs- manna á trúnaðarupplýsingum. Þar fást almenn- ar upplýsingar sem eiga að vera til gagns bæði fyrir foreldra og ekki síður fyrir kennara og skólanefndarmenn. Hvatning til foreldra til að lesa upphátt fyrir börnin Heimili og skóli kynntu einnig nýjan bækling sem kallast Korter á dag, hefur þú tíma til þess? og er hann hugsaður sem hvatning til foreldra til að lesa upphátt fyrir börnin sín og að sinna því að börnin lesi sjálf upphátt. Með þessari útgáfu eru Heimili og skóli að bregðast við niðurstöðum Pisa-rannsóknar OECD. Samtökin hafa ráðist í að gefa út Foreldra- samning fyrir foreldra yngri barna og er það efni ætlað foreldrum barna í fyrstu bekkjum grunnskólans, 6–11 ára. Foreldrasamningurinn er ákveðið forvarnarefni sem hefur verið gefið út undanfarin ár fyrir foreldra eldri barna. Þá kynntu Heimili og skóli Rotterdam-yfirlýs- inguna um börn og fjölmiðla sem samþykkt var á aðalfundi Evrópusamtaka foreldra í fyrra. Loks kynntu samtökin bæklinginn SUSI – örugg net- notkun en þar er hægt að finna ráð og upplýs- ingar fyrir foreldra og kennara um öryggi á Net- inu. Jónína lagði áherslu á að um árabil hefðu sam- tökin rekið símaþjónustu, þar sem leitast væri við að svara spurningum sem brenna á for- eldrum og veita upplýsingar og ýmiss konar ráð- gjöf. Hún undirstrikaði að þjónustan væri vel nýtt. Jónína sagði að af gefnu tilefni þætti Heimili og skóla rétt að taka það fram að samtökin stuðl- uðu eftir öllum ráðum að bættum uppeldis- og menntunarskilyrðum barna. Hún lagði áherslu á að þau hefðu orðið vör við þann algenga mis- skilning að Heimili og skóli væru stofnun, rekin af einhverju stjórnvaldi. „En í sannleika sagt þá eru það okkar félagsmenn, sem við reynum að halda ekki færri en 8.000, sem standa alfarið undir okkar rekstri. Ástæða þess að ég tek þetta fram er sú að við þurfum að fara árlega í fé- lagaöflun og leitum þá til foreldra barnanna sem eru að byrja í skóla því um leið og börnin hætta í grunnskólanum ganga foreldrarnir út,“ hélt hún áfram. Hún sagði að nú væri engin ástæða til þess því samtökin væru nú einnig samtök for- eldra í barna framhaldsskólum og bætti hún við að þörfin fyrir þessa breytingu hefði verið mikil eftir hækkun sjálfræðisaldursins. Tíu ára afmæli Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra Samstarfssamningur gerður við menntamálaráðuneytið Morgunblaðið/Þorkell Jónína Bjartmarz formaður kynnir helstu áherslur í starfsemi Heimilis og skóla. Á FUNDI Heimilis og skóla kom fram að símtöl sem ber- ast til símaþjónustu samtak- anna hefðu verið tölvuskráð í nokkur ár. Efni þeirra er af- ar misjafnt og sagði Jónína Bjartmarz að bæði síðastliðið vor og nú í haust hefði mjög mikið verið hringt vegna lengingar skólaársins og væru foreldrar ákaflega óánægðir með þá tilhögun. „Við verðum líka vör við að fólk hringi út af lestr- arerfiðleikum, þá eru það bæði foreldrar barna sem eiga við lestrarerfiðleika að etja og svo fullorðið fólk sem er að hringja út af þessu sama og spyrja hvar úrlausn- ir sé að fá. Það er einnig mikið hringt út af skólaakstri, einelti og fleira. Allt er þetta hefð- bundið fyrir utan fjölgun sím- tala út af lestrarerfiðleikum og út af lengingu skólaárs- ins,“ benti hún á. Símaþjónusta Heimilis og skóla Lenging skólaárs og lestr- arerfið- leikar full- orðinna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.