Morgunblaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2002 47 SUNNUDAGINN 1. september verður fjölbreytt dagskrá í Árbæj- arsafni. Hinn árlegi haustmarkaður hefst klukkan 13. Þar verður til sölu grænmeti úr matjurtagörðum safns- ins; hvítkál, blómkál og grænkál ásamt kartöflum. Í húsinu Lækjargötu 4 verður handavinnusýning. Leiðsögumenn safnsins hafa prjónað og heklað milli þess sem þeir hafa frætt gesti um húsin í safninu og haft gætur á safn- gripum. Klukkan 14 hefst síðan messa í safnkirkjunni frá Silfrastöðum í Skagafirði. Prestur er séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson en organisti Sig- rún Steingrímsdóttir. Klukkan 14:00 hefst einnig dag- skráin Spekúlerað á stórum skala í húsinu Lækjargötu 4. Þar býður Þorlákur Ó. Johnson upp á skemmt- un í anda liðins tíma og veitir gestum innsýn í reykvískt mannlíf og menn- ingu á ofanverðri 19. öld. Þetta er síðasta sýning sumarsins. Í Árbænum verða bakaðar lumm- ur og Snæbjörg mun sitja á bað- stofuloftinu og sauma roðskó. Í Dill- onshúsi er boðið upp á ljúffengar veitingar. Karl Jónatansson mun spila á harmóníku við Árbæ og Dill- onshús eftir hádegi, segir í frétta- tilkynningu. Haustmarkaður og messa í Árbæ LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að ákeyrslu á mannlausa og kyrrstæða bifreið á bifreiðastæði við Laugardalslaug hinn 29. ágúst sl. á milli kl. 8 og 10. Ekið var á bifreið- ina NT-516, sem er grá Mazda 626- fólksbfreið. Tjónvaldurinn fór af vettvangi án þess að tilkynna tjónið til hlutaðeig- anda eða lögreglu. Því er hann eða aðrir sem geta gefið frekari upp- lýsingar beðnir að snúa sér til um- ferðardeildar lögreglunnar í Reykja- vík. Lýst eftir vitnum NÝLEGA var opnuð ræðisskrif- stofa í Teheran, höfuðborg Íran, en þar hefur ekki verið starfrækt ræð- isskrifstofa um árabil. Mehdi Moattar var skipaður kjörræðis- maður með ræðisstigi hinn 6. ágúst sl., en hann er forstjóri fyrirtæk- isins Nibana Techno Trade B.V., sem hefur aðalstöðvar sínar í Teheran en er jafnframt með starf- semi í Þýskalandi, Hollandi, Frakk- landi og Sviss. Heimilisfang ræðisskrifstofunnar er: c/o Nibana Techno Trade B.V. 34/1 Haghani Exp. Way 1st and 2nd floor 1518858311 Tehran, Iran. Sími: +98 (21) 888 4303 og 4304. Telefax: +98 (21) 877 7820 Netfang: n.t.t@neda.net, segir í fréttatil- kynningu frá utanríkisráðuneytinu. Ræðisskrifstofa opnuð í Teheran MÁNUDAGINN 2. september nk. hefjast dansnámskeið dansdeildar ÍR í ÍR-heimilinu við Skógarsel 12, Reykjavík. Hjá ÍR eru kenndir al- mennir samkvæmisdansar, gömlu dansarnir, línudansar og allir nýj- ustu tískudansarnir. Boðið er upp á kennslu fyrir alla aldursflokka frá þriggja ára aldri. Sérstök námskeið fyrir unglinga verða á fimmtudögum kl. 17:10, en þar verða kenndir dansar við öll nýj- ustu lögin á topp-10 listanum. Einnig er boðið upp á þjálfun keppnispara, segir í fréttatilkynningu. Námskeið dans- deildar ÍR byrja HINN 20. ágúst síðastliðinn lauk sumarstarfi KFUM og KFUK í Kaldárseli sunnan Hafnarfjarðar. Þá höfðu um 330 börn dvalist þar í 12 dvalarflokkum sem hófust 10. júní. Starfsmenn voru að jafnaði sjö í hverjum flokki. Kaffisala Kaldæinga verður á morgun, sunnudaginn 1. sept- ember, en hún er mikilvægur hlekkur í fjáröflun sumarbúðanna og hefur verið árlega um áratuga skeið. Hefst hún kl. 14.00 með sam- verustund þar sem starfsmenn munu aðallega sjá um dagskrá. Að henni lokinni verða kökur og aðrar kræsingar bornar á borð og kaffi hellt í bolla fram til kl. 18.00. Ágóða af kaffisölunni verður var- ið til að hanna og teikna viðbygg- ingu við „gamla skálann“ en mjög aðkallandi er að stækka matsal og eldhús til að bæta aðstæður dval- argesta og starfsfólks. Vonast er til að hægt verði að ljúka hönnun og fjáröflun sem fyrst svo hægt verði að hefja framkvæmdir, segir í fréttatilkynningu. Sú venja hefur skapast að boðið sé upp á skoðunarferðir um ná- grenni Kaldársels á kaffisöludeg- inum og verður ekki breyting þar á í ár. Að lokinni helgistundinni um kl. 15.00 verður farið í um klukku- stundar göngu undir leiðsögn Pét- urs Ásgeirssonar og m.a. skoðaður hellir. Gott er þá fyrir þá sem ætla með í gönguna að hafa vasaljós meðferðis. Pokasjóður úthlutaði Kaldæing- um góðum styrk í vor til kaupa á þrem sérsmíðuðum kassabílum. Voru þeir tilbúnir í júnímánuði og komu að góðum notum enda mikið til þeirra vandað. Hönnun þeirra og smíði er verk Þóris Sigurðssonar sem hefur árum saman starfað í sumarbúðunum í Vatnaskógi og reynt bíla sína þar við hinar ýmsu aðstæður. Eru þeir sérhannaðir til nota við aðstæður eins og eru í Kaldárseli með vandaðan stýris- og fjöðrunarbúnað. Kaffisalan hefst kl. 14.00 og stendur fram til kl. 18.00. Fjöl- skyldur barna, sem sóttu flokka í Kaldárseli í sumar, eru sérstaklega velkomnar. Einn kassabílanna sem Pokasjóður úthlutaði Kaldæingum. Kaffisala í Kaldárseli Í DAG, laugardaginn 31. ágúst, klukkan 10 árdegis verður boðið upp á leiðsögn um trjásýnilundinn, sem Skógræktarfélag Hafnar- fjarðar hefur komið upp í Höfða- skógi. Í lundinum er vel á annað hundr- að ólíkra tegunda (kvæmi/yrki) af trjákenndum gróðri en lundurinn var formlega opnaður á fimmtíu ára afmæli félagsins 1996. Hefur Búnað- arbanki Íslands styrkt verkefnið frá upphafi. Reiknað er með, að gangan um trjásýnilundinn taki um eina klukku- stund og er mæting í Höfða, bæki- stöðvum Skógræktarfélagsins í Höfðaskógi við Kaldárselsveg. Fyrir ókunnuga er rétt að taka fram, að ekið er fram hjá Hestamiðstöð Ís- hesta og síðan beygt til hægri að Höfða. Í göngunni gefst gott tæki- færi til að kynna sér hvað hér má rækta með góðum árangri og rétt er nefna fyrir þá, sem hafa yndi af úti- vist og göngu, að víða um skóginn liggja stígar, sem gaman er að fara um, segir í fréttatilkynningu. Trjásýni- lundurinn skoðaður AGLOW Reykjavík, kristileg sam- tök kvenna, halda sinn mánaðarlega fund mánudaginn 2. september. kl. 20 í Templarasalnum að Stangarhyl 4 í Reykjavík. Sigrún Ásta Kristinsdóttir for- maður Aglow Reykjavík mun tala. Stúlkur úr Kefas munu sjá um lof- gjörðina. Þátttökugjald er 600 kr. Allar konur eru hjartanlega vel- komnar, segir í fréttatilkynningu. Fundur hjá Aglow Reykjavík FÉLAG húsbílaeigenda fer í sína ár- legu berjaferð nú um helgina, farið verður í Húsafell og gist þar. Berjaferð húsbílaeigenda SUNNUDAGINN 1. september nk. stendur Golfklúbburinn á Bifröst fyrir 18 holu golfmóti á Hamarsvelli í Borgarnesi. Mótið er ætlað öllum þeim sem stundað hafa nám eða starfað hafa á Bifröst frá upphafi. Mun þetta vera í fyrsta sinn í 85 ára sögu skólans sem fyrrverandi og nú- verandi Bifrestingar koma saman til íþróttaiðkunar svo vitað sé. Ræst verður út milli kl. 9.00 og 11.00 að morgni sunnudagsins og fer skráning fram hjá Golfklúbbi Borg- arness. Bifrastarmót í golfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.