Morgunblaðið - 31.08.2002, Síða 54

Morgunblaðið - 31.08.2002, Síða 54
fjórði maðurinn bættist svo í hópinn fóru Paparnir sífellt meira að láta í sér heyra á Rauða ljóninu, sem var þá, að sögn Páls, „mjög heitur stað- ur“. „Árið 1992 fengum við svo til liðs við okkur ameríska fiðluleikarann Dan Cassidy og James Olsen trommuleikara frá Færeyjum,“ seg- ir Páll. „Það var í fyrsta sinn sem við höfðum trommuleikara en fram að því höfðum við eingöngu stuðst við trommuheila og vorum því fram að EFTIR að hafa starfað saman í ein 11 ár hafa hinir síkátu Papar aldrei verið vinsælli. Ástæðan er platan Riggarobb sem verið hefur ein sölu- hæsta plata sumarsins en á henni er að finna safn kunnustu vísna, sem Jónas Árnason samdi við erlend þjóðlög, í flutningi Papanna og ann- arra landsfrægra söngvara. Með þessar grunnuplýsingar í farteskinu ætti öllum að vera óhætt að leyfa Páli Eyjólfssyni, einum stofnend- anna, að rekja feril stórhljómsveit- arinnar Papanna sem skartar allt að 12 liðsmönnum. Undir eðlilegum kringumstæðum eru Paparnir skipaðir, auk Páls, þeim Dan Cassidy fiðluleikara, Ey- steini Eysteinssyni trommuleikara, Georg Ólafssyni bassaleikara, Matthíasi Matthíassyni söngvara og Vigni Ólafssyni gítar- og banjóleik- ara. „Hljómsveitin var stofnuð árið 1986 og við höfum alls haft þrjá trommuleikara og fjóra söngvara. Það eru nú ekki mjög miklar manna- breytingar á öllum þessum árum,“ byrjar Páll. „Paparnir eru byggðir upp á svolítið skemmtilegan hátt. Allir þeir sem hafa einhvern tíma verið í hljómsveitinni tilheyra henni ennþá. Þeir eru bara ekki virkir. Við köllum allan hópinn saman reglu- lega en í honum eru alls 12 manns núna.“ Paparnir litu dagsins ljós í Vest- mannaeyjum og þá sem tríó. Eftir tveggja ára spilamennsku var ferð- inni heitið upp á meginlandið. „Markaðurinn er náttúrlega eng- inn þarna, við vorum búnir að kemba þar sem hægt var að kemba,“ segir Páll um Vestmannaeyjar. Fyrstu árin léku þeir hvað mest á A. Hansen í Hafnarfirðinum. Þegar því svolítið skemmtaraband. Það gekk vel en eftir að þessi mannskap- ur kom til sögunnar komumst við meira á kortið og Paparnir urðu að eiginlegri hljómsveit.“ Ömurlegasta rokkband á Íslandi Páll segir Papana eiginlega alltaf hafa verið trúa þeirri írsku stefnu sem þeir eru þekktir fyrir í tónlist sinni. Það er þó alltaf undantekning frá regluni ekki satt? „Við gerðum eina tilraun um 1990. Þá gerðumst við rokkband en það var ömurlegt,“ viðurkennir Páll. „Við vorum ömurlegasta rokkband á Íslandi og fengum ekkert að gera!“ Páll segir þennan rokktíma Pap- anna þó hafa haft sína kosti fyrir sveitina. „Þessi tími sagði okkur hvað við stóðum í raun og veru fyrir og það hefur margborgað sig að vera trúir þeirri stefnu allt fram á þennan dag,“ segir hann. Nýja plata Papanna, tileinkuð Jónasi Árnasyni, er ein allra vinsælasta plata sumarsins „Ja, þvílíkt og annað eins Riggarobb.“ Paparnir á góðri stundu. Færum Jónas næstu kynslóð Páll Eyjólfsson er hljómborðsleikari hljóm- sveitarinnar Papanna. Birta Björnsdóttir hitti hann og fékk að fræðast un Riggarobb, Jónas Árnason og ömurlegan rokkferil sveitarinnar, svo fátt eitt sé nefnt. 54 LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 10. B. i. 14. Framleiðandi Tom Hanks Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 2, 3, 4 og 5. 1/2Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6, 8 og 10.  Radíó X Frumsýning miðaverð aðeins 350 kr! Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT „Besta mynd ársins til þessa“ 1/2HÖJ Kvikmyndir.com „Ein besta mynd þessa árs. Fullkomlega ómissandi.“  SV Mbl  HK DV  Radíó X Sýnd kl. 8 og 10. Yfir 25.000 MANNS „meistaraverk sem lengi mun lifa“  ÓHT Rás 2 i l i li EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS mikeMYERS beyoncé KNOWLES and michaelCAINE Sýnd kl. 8, 10 og 11. B. i. 14. Sýnd kl. 2, 2.30, 3, 3.30, 4, 4.30, 5.30 og 6.30. kl. 5.30, 8 og 10.15. Sýnd kl. 8. B.i. 10 ára  Radíó X Sýnd kl. 2, 4 og 6 með íslensku tali. Sýnd kl. 6 með ensku tali. Yfir 15.000 MANNS Frumsýning 1/2Kvikmyndir.is miðaverð aðeins 350 kr! Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15. STUTTMYND  HL Mbl  HJ Mbl  ÓHT Rás 2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.