Morgunblaðið - 06.10.2002, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.10.2002, Blaðsíða 54
FÓLK Í FRÉTTUM 54 SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hafnarstræti 15, sími 551 3340 Restaurant Pizzeria Gallerí - Café ÁSKRIFTARKORT VERTU MEÐ Í VETUR 7 sýningar á 10.500 og ýmis fríðindi innifalin. 10 miða kort á 16.400. Frjáls notkun Nýja sviðið - Komið á kortið! 4 miðar á 6.000 Stóra svið HONK! LJÓTI ANDARUNGINN e. George Stiles og Anthony Drewe Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna Í dag kl 14 Fö 11/10 kl 20 - ath. kvöldsýning Su 13/10 kl 14 KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel Lau 12/10 kl 20 Lau 19/10 kl 20 MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Fi 24/10 kl 20 - Næst síðasta sýning Fi 31/10 kl 20 - Síðasta sýning GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt Fö 11/10 kl 20, Lau 12/10 kl 20 Sun 13/10 kl 20 Síðustu sýningar JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov frekar erótískt leikrit í þrem þáttum Fi 10/10 kl. 20, Fö 11/10 kl. 20 Fö 18/10 kl. 20, Lau 19/10 kl. 20 AND BJÖRK, OF COURSE .. e. Þorvald Þorsteinsson Í kvöld kl 20, Lau 12/10 kl 20 Síðustu sýningar 15:15 TÓNLEIKAR Ferðalög - Jean Francaix Lau 12/10 kl. 15:15 Nýja sviðið Litla svið Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Miðasala: 568 8000 eftir Þorvald Þorsteinsson sun. 6. okt. kl. 14 sun. 20. okt. kl. 14 SNUÐRA OG TUÐRA eftir Iðunni Steinsdóttur sun. 13. okt. kl. 14 lau. 26. okt. kl. 14 HEIÐARSNÆLDA Nýtt leikrit fyrir yngstu börnin Frumsýning lau. 19. okt. kl. 14 2. sýn. 25. okt. kl. 10.30 uppselt 3. sýn. 27. okt. kl. 14 4. sýn. 28. okt. kl. 11 uppselt Miðaverð kr. 1.100. Netfang: ml@islandia.is www.islandia.is/ml Í Loftkastalanum kl. 20 Miðasala: 552 3000  „Sprenghlægileg“ „drepfyndin“ „frábær skemmtun“ fim. 19fi . 3/fim. 10/10 örfá sæti laus sun.13/10 örfá sæti laus fös. 18/10 sýn. kl. 23, miðnætursýn. Lokasýning. Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 alla virka daga, miðapantanir í s. 562 9700 frá kl. 10 Ósóttar pantanir seldar 2 tíminn fyrir sýningar Sun 6/10 kl. 21 Örfá sæti Fim 10/10 kl. 21 Aukasýning Örfá sæti Fös 11/10 kl. 21 Uppselt Fös 11/10 kl. 23 Aukasýning Uppselt Lau 12/10 kl. 21 Uppselt Lau 12/10 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti Lau 19/10 kl. 21 Uppselt Lau 19/10 kl. 23 Aukasýning Örfá sæti Sun 20/10 kl. 21 Örfá sæti Mið 23/10 kl. 21 Aukasýning Örfá sæti Fim 24/10 kl. 21 Uppselt Sun 27/10 kl. 21 Uppselt Fös 1/11 kl. 21 Uppselt Fös 1/11 kl. 23 Laus sæti Lau 2/11 kl. 21 Uppselt Lau 2/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti Fös 8/11 kl. 21 Uppselt Fös 8/11 kl. 23 Laus sæti Lau 9/11 kl. 21 Örfá sæti Lau 9/11 kl. 23 Aukasýning Laus sæti Grettissaga saga Grettis frumsýnd 12. október Grettissaga saga Grettis leikrit eftir Hilmar Jónsson byggt á Grettissögu lau 12. okt kl. 20 frumsýning, uppselt sun 13. okt kl. 20 fös 18. okt kl. 20 lau 19. okt kl. 20 föst 25. okt kl. 20 lau 26. okt kl. 20 Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur sun 6. okt. uppselt, þri 8. okt, uppselt, fim 10. okt. uppselt, þri 15. okt. uppselt, mið 16, okt, uppselt, fim 17. okt. uppselt, sun 20 okt. uppselt, þri 22. okt. uppselt, mið 23. okt. uppselt, sun 27. okt. uppselt, þri 29. okt. nokkur sæti, mið 30. okt. örfá sæti, sun. 3. nóv. örfá sæti Rakarinn í Sevilla eftir Rossini laugardaginn 12. október kl. 19.00 sunnudaginn 13. október kl. 19.00 laugardaginn 19. október kl. 19.00 laugardaginn 26. október kl. 19.00 Enn eru fáein sæti laus á hátíðarsýning- arnar 29. og 30. nóv. —aðeins fyrir félagsmenn í Vinafélagi Íslensku óperunnar. Miðasalan opin kl. 15-19 alla daga nema sunnudaga og fram að sýningu sýningar- daga. Símasala kl. 10-19 virka daga. Sími miðasölu: 511 4200 Sunnud. 6. október kl. 20.00 TÍBRÁ: Píanótónleikar Jaromír Klepác leikur Ballöðu í g- moll eftir Chopin, Á ströndinni eftir Smetana, Sónötu 1.X.1905 eftir Janácek, Sónötu í a-moll eftir Mozart og Myndir á sýningu eftir Mussorgsky. Verð kr. 1.500/1.200. Fimmtud. 10. október kl. 21.00 Bubbi og Hera Bubbi Morthens og Hera eru að ljúka tónleikaferð um Ísland. Bubbi ætlar að leyfa íbúum höfuðborgarsvæðisins að heyra hvernig hann hljómar í Salnum. Verð kr. 1.500/1.200. Fö. 11. og lau. 12. okt. kl. 20.30 RÍÓ TRÍÓ: Skást af öllu Ágúst Atlason, Helgi Pétursson og Ólaf- ur Þórðarson á fornum slóðum í Kópav., ásamt Birni Thoroddssen og Gunnari Þórðarsyni, í tilefni af heildarútgáfu á hljóðritunum tríósins frá 1967 til 2002. Verð kr. 2.000. Sunnud. 13. október kl. 16.00 TÍBRÁ: Schumann KaSa hópurinn, að þessu sinni skipaður þeim Miklós Dalmay, Áshildi Haraldsd., Auði Hafsteinsd., Þórunni Marinósd. og Sigurði Bjarka Gunnars. leikur Þrjár Rómönsur og Píanókvartett í Es dúr ef- tir Schumann. John Speight sér um tónleikaspjall. Verð kr. 1500/1200. Omega Farma, strik.is, 12Tónar, Stafræna hljóðupptökufélagið. Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR Tónleikar í gulu röðinni í Háskólabíói fimmtudaginn 10. október kl. 19:30 föstudaginn 11. október kl. 19:30 Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson Einsöngvarar: Hulda Björk Garðarsdóttir Sesselja Kristjánsdóttir Gunnar Guðbjörnsson Tómas Tómasson Kór: Söngsveitin Fílharmónía W. A. Mozart: Sinfónía nr. 25, KV 183 W. A. Mozart: Requiem Requiem: eitt af umtöluðustu verkum tónlistarsögunnar, svana- söngur meistara, minnisvarði um snilling. Mozart M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Í KVÖLD hefur göngu sína í Rík- issjónvarpinu þáttaröð um flugsögu Íslands, og verður hún á dagskrá kl. 20 á sunnudagskvöldum í október. Um er að ræða fjóra heimildarþætti sem hver um sig er hálftími á lengd og er þar brugðið upp lifandi mynd af sögu flugs á Íslandi. Þannig er hin ævintýralega saga flugsins rakin í þáttunum, allt frá upphafi hennar árið 1919 fram til okkar daga. Á þriðja tug manna sem mótað hafa söguna á einn eða annan hátt koma fram í þáttaröðinni og þar birtist myndefni sem ekki hefur komið fyr- ir augu almennings áður. Saga film framleiðir þættina og eru þeir að sögn Önnu Dísar Ólafs- dóttur eins framleiðenda þáttanna einhver viðamesta og vandaðasta heimildarmyndaröð sem framleidd hefur verið hérlendis. „Það má segja að hugmyndin að gerð þátta- raðarinnar hafi verið til staðar hérna í fyrirtækinu um árabil, enda hefur flug og íslensk flugsaga verið nokkurs konar áhugasvið Saga film. Verkefnið fór af stað fyrir meira en þremur árum, eftir að fyrirtækið hlaut styrk úr Menningarsjóði út- varpsstöðva, síðan hefur þetta þróast og síðasta eina og hálfa árið settum við þetta alveg í fullan gang,“ segir Anna Dís. Hún segir alla sem að gerð þátt- anna komu hafa lagt sig alla fram um að gera þættina sem besta úr garði. „Dagskrárgerð þáttanna ann- aðist Sævar Guðmundsson og hefur hann lagt sig gífurlega fram um að vandað sé til allra þátta í þeirri heild sem þættirnir skapa. Hann hefur lagt áherslu á að gera efnið lifandi og aðgengilegt fyrir hinn al- menna áhorfanda,“ segir Anna Dís. „Handritsgerð og umsjón þátta- raðarinnar er í höndum Rafns Jóns- sonar en hann er flugstjóri hjá Flugleiðum og þekkir vel til efnisins af eigin raun. Hann aflaði sér mjög ítarlegra upplýsinga um efnið og hafði þar nokkra ráðgjafa sér til halds og trausts. Við efnisöflun var víða leitað fanga og höfum við notið einstakrar velvildar fjölda fólks hvað það varðar. Sjónvarpið hefur sýnt þessu verkefni mikinn áhuga og stuðning. Stór hluti myndefnisins kemur þaðan en einnig fundum við mikið efni hjá Kvikmyndasafni Ís- lands og í safni Flugleiða. Þá leit- uðum við til einstaklinga vítt og breitt um landið sem eiga myndefni í fórum sínum. Við höfum t.d. leitað fanga hjá flugmönnum sem hafa verið að taka myndir á 8mm filmur í gegnum árin. Sama er að segja um viðmælendur, en í þáttunum er t.d. rætt við menn af þeirri kynslóð sem muna upphaf flugsins á Íslandi, enda er þessi saga ekki lengri en sem nemur mannsaldri,“ segir Anna Dís. Hún bætir því við að mikið verk hafi verið unnið við hljóðsetningu myndarinnar, en þar hafi Nick Cathcart-Jones og Huldar Freyr Arnarsson lagt dag við nótt til að gæða myndefnið hljóði. „Um 90 pró- sent alls gamla efnisins voru hljóð- laus þegar við fengum það til úr- vinnslu. Þeir lögðu mikla vinnu í að finna réttu „hreyflahljóðin“ og um- hverfishljóð sem eiga við myndirn- ar. Þá samdi Máni Svavarsson tón- list sérstaklega við þættina og er óhætt að segja að sá hluti verkefn- isins hafi tekist ákaflega vel. Krist- ján Kristjánsson sá síðan um að klippa allt myndefnið saman ásamt Sævari,“ segir Anna Dís en hún annaðist framleiðslu þáttanna ásamt Jóni Þór Hannessyni hjá Saga film. „Verkefnið var mjög kostnaðarsamt og hefði aldrei orðið að veruleika hefði ekki notið við styrktaraðila og óeigingjarns vinnuframlags þeirra sem unnu að þáttunum,“ segir hún jafnframt. Frá draumi til veruleika Í þættinum sem hefst í kvöld verða upphafsárum flugs á Íslandi gerð skil, en yfirskrift þáttarins er Draumur sérhvers manns. Anna Dís segir að lögð hafi verið áhersla á að fjalla um helstu vendipunkta sög- unnar. „Fyrsti þátturinn fjallar um frumkvöðlana sem unnu að því af mikilli elju að gera flug að veruleika á Íslandi. Við reynum ekki síst að fanga hinn brennandi áhuga þessa fólks og þá framtíðarsýn sem teng- ist starfinu. Í öðrum þætti er fjallað um tímabilið eftir síðar heimsstyrj- öld allt til upphafs sjötta áratug- arins en á þeim tíma tóku menn að eygja möguleika á samfelldum flug- samgöngum innanlands og til út- landa. Síðan eru þættir í sögunni, s.s. flugrekstur Landhelgisgæslunn- ar og sjúkraflug, eitthvað sem við vildum gera skil og eru þeir kaflar afgreiddir í einstökum þáttum.“ Hún bætir við að sagan eigi sínar gleði- og sorgarstundir, og sé vikið að áföllum á borð við flugslysið sem varð í Sri Lanka árið 1978. Rætt er við Harald Snæhólm sem var einn af þeim sem komust lífs af úr slys- inu. „Í hverjum þætti eru einnig þjóðlífskaflar þar sem leitast er við að endurspegla það andrúmsloft og þá þróun sem lagði mark sitt á ís- lenskt samfélag á hverjum tíma,“ segir Anna Dís. „Þannig er leitast við að fjalla um flugsöguna út frá breiðum sjónarhóli og vonum við að þáttaröðin muni höfða til sem flestra. Þeir flugáhugamenn sem séð hafa þættina hafa einnig gefið okkur grænt ljós á þá, og er okkur mjög létt við það, enda metnaðar- mál að draga upp sem raunsannasta mynd af sögunni,“ segir Anna Dís að lokum. Þáttaröð um flugsögu Íslands hefur göngu sína í Sjónvarpinu í kvöld Saga sem spannar mannsaldur Sögu flugs á Íslandi frá árinu 1919 fram til okkar daga verða gerð skil í vönduðum heimildarþáttum sem sýndir verða í Sjónvarpinu í kvöld og næstu sunnudaga. Heiða Jóhannsdóttir ræddi við Önnu Dís Ólafsdóttur, einn framleiðenda þáttanna, um tilurð þeirra. Í heimildarþáttaröðinni um Flugsögu Íslands sem hefst í Sjónvarpinu kl. 20 í kvöld birtist mikið myndefni sem ekki hefur áður komið fólki fyrir sjónir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.