Morgunblaðið - 28.02.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.02.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagði í framsögu sinni um utanríkismál á Alþingi í gær að þegar menn á borð við Saddam Hussein Íraksforseta væru annars vegar gögnuðust diplómatískar leiðir lítt, nema þeim fylgdi hótun um beitingu hervalds. „Við skulum hafa það hugfast að Sameinuðu þjóðirnar verða á engan hátt gerðar ábyrgar fyrir því ástandi sem nú ríkir í Írak. Ábyrgðin liggur hjá ógnarstjórn Saddam Hussein,“ sagði hann. „Það hefur sýnt sig að hann svífst einskis í kúgun sinni á eig- in þjóð. Alþjóðasamfélagið verður að sýna staðfestu sína og Sameinuðu þjóðirnar styrk sinn. Sameinuðu þjóð- irnar verða að halda á málum með þeim hætti að enginn efist um vald þeirra og getu til að fylgja eftir ákvörðunum sínum. Sameinuðu þjóð- irnar hafa grundvallarhlutverki að gegna og kemur engin stofnun í stað þeirra.“ Halldór dró afstöðu íslenskra stjórnvalda til Íraksmálsins saman með eftirfarandi hætti. Í fyrsta lagi hefðu Írakar brotið gegn ályktun ör- yggisráðsins nr. 1441 en í ályktuninni segir að það myndi hafa alvarlegar af- leiðingar í för með sér. Í öðru lagi gæti Saddam Hussein þó enn forðað þjóð sinni frá átökum með því að fara eftir því sem SÞ hefðu lagt fyrir Íraksstjórn. Í þriðja lagi ættu vopna- eftirlitsmenn að fá meiri tíma og í fjórða lagi styddi Ísland friðsamlega lausn og stríð væri neyðarúrræði. Líkt við Bush Utanríkismál einkenndu dagskrá Alþingis í gær og tóku fjölmargir þingmenn þátt í umræðunni. Eftir framsöguræðu Halldórs gagnrýndi Ögmundur Jónasson, formaður þing- flokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, ráðherra og sagði að ræða hans hefði verið ræða mikilla öfga en ekki hófsemi og rímað við málflutning Georges W. Bush Banda- ríkjaforseta og Bandaríkjastjórnar. Spurði Ögmundur Halldór hver sú ógn væri, sem heimsbyggðinni stafaði af Írak. Halldór ítrekaði að hann væri þeirrar skoðunar að ekki væri hægt að útiloka hernaðaraðgerðir en það ætti að forðast þær í lengstu lög. Margir þingmenn ræddu Írak í ræðum sínum en einnig var fjallað um marga aðra þætti sem tengjast utan- ríkismálum. Til dæmis komu margir þingmenn inn á Evrópusambandið og hugsanlega aðild Íslands að því. Sig- ríður Anna Þórðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sá ástæðu til að taka fram að stefna Sjálfstæðisflokks- ins í þessum málaflokki væri skýr. „Við teljum það ekki þjóna hagsmun- um þjóðarinnar að ganga þar inn og það er engin von til þess að kúvending verði af hálfu flokksins í þessu máli.“ Þingmenn Samfylkingarinnar lögðu hins vegar áherslu á að Sam- fylkingin hefði tekið þá afstöðu að það ætti að skilgreina samningsmarkmið og leita eftir aðildarviðræðum. „Og verði hugsanlegur samningur til við ESB verður hann lagður til þjóðarat- kvæðagreiðslu. Um það erum við Samfylkingarafólk sammála,“ sagði Rannveig Guðmundsdóttir, þingmað- ur flokksins. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur VG, var þó eins og áður ekki á því að Íslandi gangi í ESB. Hann kvað þó boðaða Evrópunefnd forsætisráð- herra, Davíðs Oddssonar, vera fagn- aðarefni. Sagði hann VG tilbúna til að tilnefna fulltrúa í þá nefnd. Nýtt skeið í alþjóðamálum Halldór sagði m.a. í ræðu sinni að ef til vill værum við að sjá fyrstu merki þess að nýtt skeið væri að renna upp í alþjóðamálum. „Bandaríkin, sem eina stórveldi heims, hafa að undanförnu tekið sér mun meira forystuhlutverk en fyrr. Sum ríki Evrópusambands- ins virðast ætla sér það hlutverk að vera þar mótvægi og í því ljósi ber að skoða þann skoðanaágreining sem uppi var í Atlantshafsbandalaginu,“ sagði ráðherra og vísaði þar til klofn- ingsins innan bandalagsins vegna Íraksmálsins. Ráðherra sagði þó að ekki yrði hjá því komist að Bandaríkin, í krafti stærðar sinnar og styrkleika, léki lyk- ilhlutverk á alþjóðavettvangi. „Áríð- andi er að hið nána samráð Evrópu og Bandaríkjanna um öryggismál sem fram hefur farið á vettvangi Atlants- hafsbandalagsins haldist og sömuleið- is sterk Atlantshafstengsl. Ísland hef- ur hlutverki að gegna innan banda- lagsins sem talsmaður sterkra tengsla yfir Atlantshafið, allt frá Tyrklandi í austri og vestur um haf til Bandaríkjanna og Kanada, því það eru grundvallarhagsmunir Íslands að órofa tengsl haldist milli Evrópu og Norður-Ameríku.“ Óvíst hvenær viðræðum lýkur Utanríkisráðherra fjallaði einnig um þær stækkunarviðræður sem nú ættu sér stað innan ESB. „Mögulegt er að samskipti EES/EFTA-ríkjanna við ESB verði þunglamalegri eftir stækkunina og ESB sýni EFTA-þjóð- unum minni skilning og sveigjanleika í framtíðinni. Reynsla síðustu ára gef- ur vísbendingu um að skilningur á sérstöðu okkar og sögulegum for- sendum EES-samningsins hafi farið þverrandi með árunum. ESB er allt annað nú en þegar samið var um EES-samninginn, á meðan EES stendur í stað. Kröfugerð um allt að þrítugföldun framlaga á sér enga stoð í EES-samningnum.“ Ráðherra sagði að allsendis væri óljóst hvenær viðræðum um stækkun EES lyki. „Utanríkisþjónustan mun að sjálfsögðu beita sér af alefli í sam- vinnu við önnur ráðuneyti sem að málinu koma til að ná viðunandi nið- urstöðu.“ Halldór Ásgrímsson um Írak í umræðum um utanríkismál á Alþingi í gær Diplómatískar leiðir gagnast lítt án hótunar Morgunblaðið/Kristinn Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra fylgist með umræðum um utanríkismál á Alþingi í gær. ÞINGMENN Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs gagnrýndu ríkisstjórnina á Alþingi í gær fyrir að veita þingmönnum og þjóðinni ekki upplýsingar um þau gögn sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefði óskað eftir að fá frá stjórn- völdum vegna opinberra styrkja og ívilnana ríkis og sveitarfélaga við álver Alcoa í Reyðarfirði. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur iðn- aðarráðuneytið unnið að því að undanförnu að senda umbeðin gögn til ESA. Í máli þingmanna VG í gær kom fram að þeir hefðu óskað eftir því að fá nánari upplýsingar um samskipti ESA og stjórnvalda, vegna álversins á Reyðarfirði, á fundi efnahags- og viðskiptanefnd- ar þingsins fyrr um morguninn. Ögmundur Jón- asson, formaður þingflokks VG, sagði að á fund- inum hefðu embættismenn borið nefndarmönnum þau boð frá ríkisstjórninni að umbeðnar upplýs- ingar væri aðeins hægt að fá ef þingmenn hétu því að segja engum frá þeim. Ögmundur sagði að rökstuðningur embættismannanna hefði verið sá að „viðræður væru á viðkvæmu stigi“ og að ESA væri nú að óska eftir nýjum gögnum frá íslensk- um stjórnvöldum. Ögmundur ítrekaði að sér fyndist það alvarlegt að þjóðin og þingið fengi ekki að vita hvað væri að gerast. Þá undraðist hann að verið væri að semja við ESA. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, svaraði því m.a. til að umfjöllun ESA vegna málsins væri ekki lokið. Á meðan þyrfti ekki að veita umbeðnar upplýsingar. Upplýsinga- lögin gerðu ráð fyrir því að hægt væri að hafna beiðni um slíkt. Miklir hagsmunir væru í húfi. Ef VG líkaði ekki þessi niðurstaða gætu þeir kært hana til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður VG og for- maður VG, Steingrímur J. Sigfússon, tóku undir gagnrýni Ögmundar. „Það er greinilegt að rík- isstuðningurinn, meðgjöfin til Alcoa, er svo um- fangsmikil að ESA þarf gögn og aftur gögn og enn þá meiri gögn til þess að meta það hvort þetta standist.“ Steingrímur sagði ennfremur að ekki væri hægt að bjóða Alþingi og þingmönnum upp á það að neita þeim um umræddar upplýs- ingar á sama tíma og verið væri að afgreiða frumvarp ráðherra um álverksmiðju í Reyðar- firði. Valgerður Sverrisdóttir, sagði VG gera of mik- ið úr málinu. „Þetta snýst um það að ESA, sem vissulega er dálítið mikið fyrir gögn, er að biðja um gögn til að geta metið það hvort þessi styrkur sem þarna er um að ræða, eða þessi opinberi stuðningur – sem ekki er bara veittur af hálfu ríkisins heldur líka af hálfu sveitarfélaga – sé inn- an þeirra marka sem þeir geta sætt sig við.“ Ítrekaði hún að þingmenn VG væru að gera meira úr málinu en efni stæðu til. „Þannig að núna eru háttvirtir þingmenn VG að reyna að halda í það hálmstrá að Brussel bjargi þeim út úr þessu vandamáli sem þeir eru komnir í.“ Vilja vita hvað fram fer milli ESA og stjórnvalda RÍKISSTJÓRNIN lagði fram á Alþingi í gær frumvarp þar sem lagt er til að iðnaðarráð- herra fái heimild til sölu alls hlutafjár ríkissjóðs í Sements- verksmiðjunni hf. „Ríkið á allt hlutafé verksmiðjunnar en hlutafélag var stofnað um rekstur Sementsverksmiðju ríkisins árið 1993,“ segir í at- hugasemdum frumvarpsins. „Fjárhagsstaða Sements- verksmiðjunnar hf. er nú afar erfið vegna minni sementssölu en áður og harðari samkeppni eftir að innflutningur var haf- inn á árinu 2000. Fyrir- sjáanlegt er að verksmiðjan geti ekki haldið áfram starf- semi við óbreyttar aðstæður. Verksmiðjan þarf á auknu rekstrarfé að halda til að geta nýtt þau tækifæri sem bjóðast á sementsmarkaði.“ Ennfremur segir í at- hugasemdum að með fyrirhug- aðri sölu sé leitast við að finna fjárfesta sem muni tryggja samkeppnisstöðu verksmiðj- unnar og tryggja samkeppni á sementsmarkaði. „Iðnaðar- ráðherra hyggst auglýsa eftir áhugasömum fjárfestum til að taka við rekstri Sementsverk- smiðjunnar hf. Ráðgert er að velja að því loknu einn eða fleiri fjárfesta til frekari við- ræðna um kaup á hlutafé verk- smiðjunnar.“ Auglýst eftir áhugasömum fjárfestum TEKIÐ er á móti um 300 nýjum tilvikum ár hvert á Barna- og unglingageðdeild Landspít- alans (BUGL), að því er fram kemur í svari Jóns Kristjáns- sonar heilbrigðisráðherra á Al- þingi við fyrirspurn Rann- veigar Guðmundsdóttur alþingismanns Samfylking- arinnar um geðheilbrigðisþjón- ustu við börn og unglinga. Þar er einnig upplýst að komur á göngudeild BUGL ár- ið 2002 voru nálægt 3000. Þingmaðurinn spurði m.a. hvert væri hlutfall stofn- anaþjónustu annars vegar og þjónustu utan sjúkrahúsa hins vegar á sviði heilbrigðisþjón- ustu við börn og unglinga. Í svarinu kemur fram að legu- rými á BUGL eru níu á ung- lingageðdeild, sex á fimm sól- arhringa barnadeild og fimm á Kleifarvegi sem ætluð eru minna veikum börnum. „Legur á deildunum þremur eru 156 samtals á ári og meðallegutími er um 33 dagar. Innlögnum hefur fjölgað um tugi prósenta á fáum árum, en legurnar eru nú almennt styttri en áður,“ segir í svarinu. Unglingar sem leggjast inn á BUGL eru með geðraskanir eða alvarleg geðræn einkenni, svo sem geðrof, kvíða, per- sónuleikaraskanir, alvarlegt þunglyndi, áfallastreitu, át- raskanir og sjálfsvígs- hugmyndir, að því er fram kemur í svari ráðherra. „Þeir sem eiga í vímuefnavanda eða glíma við félagsleg vandamál eða hegðunarvandamál leggj- ast inn á Stuðla eða á Vog. Bið- listi hefur verið á unglingageð- deildina nú í janúar og hafa 13 unglingar beðið, þar af þrír töluvert veikir í heimahúsum. Unglingar hafa í nokkrum til- vikum verið lagðir inn á geð- deildir fyrir fullorðið fólk þeg- ar svona ástand hefur skapast.“ 300 ný tilfelli á hverju ári á BUGL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.