Morgunblaðið - 28.02.2003, Page 28

Morgunblaðið - 28.02.2003, Page 28
LANDIÐ 28 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍBÚUM Fljótsdalshéraðs þykir veðrið heldur leika við sig um þessar mundir. Þó er ekki laust við að mönnum hrjósi hugur við því þegar og ef vetur konungur setur undir sig hausinn á nýjan leik, því gróður er farinn að taka við sér. Eiríkur Elísson, flokksstjóri hjá Áhaldahúsi Austur-Héraðs, er kominn í vorverkin og setur nú upp hámarkshraðaskilti í íbúð- argötum Egilsstaða. Bergur Óla- son rabbar við hann í morgunblíð- unni. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Komnir í vorverkin Egilsstaðir MIKLAR umræður fara fram um at- vinnumál í Stykkishólmi eftir að ljóst er orðið að skelveiðar munu bregð- ast næstu árin. Fólk veit að um ýmsa möguleika er að ræða til að bjarga sér þegar að þrengir og miklu máli skiptir að slökkva ekki á bjartsýn- inni heldur leita nýrra leiða til að byggja upp atvinnulífið að nýju. Atvinnuráðgjöf Vesturlands hefur gert úttekt á því hvaða áhrif það hef- ur fyrir atvinnulífið í Stykkishólmi ef skelveiðar stoppa. Stofnunin stóð fyrir fundi um atvinnumál þriðju- daginn 25. febrúar. Þar voru flutt þrjú erindi um hugsanlega nýsköpun í atvinnumálum Hólmara. Erla Björg Guðrúnardóttir, fram- kvæmdastjóri Heilsueflingar Stykk- ishólms ehf, kynnti hvað framundan er hjá því fyrirtæki. Til stendur að halda 4 námskeið í Stykkishólmi í vor undir nafninu „Dýrðardagar í Stykkishólmi“. Á námskeiðunum er lögð áhersla á hvíld og jákvæða upp- byggingu mannsins. Námskeiðin höfða einkum til þeirra sem starfa undir miklu álagi. Boðið verður upp á góða fyrirlestra, hreyfingu, menn- ingu og sælkeramat. Með þessu á að gera manninn hæf- ari til að takast á við lífið og verk- efnin framundan. Ef vel tekst til með verkefnin verður haldið áfram að bjóða upp á heilsutengda þjónustu og því fylgja aukin störf. Róbert Arnar Stefánsson, for- stöðumaður Náttúrustofu Vestur- lands í Stykkishólmi, sagði að stofn- un hans hefði mörg tækifæri til rannsóknar og atvinnusköpunar á Snæfellsnesi. Hér væri hægt að stunda margskonar rannsóknir, bæði grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir. Stofnunin væri ung, en verkefni sem hún gæti tekið að sér væru mjög fjölbreytt. Verið er að vinna að því að afla aukinna tekna fyrir stofuna, með það í huga að efla hana og styrkja. Hann nefndi fjöldamörg dæmi um verkefni sem Náttúrustofa Vestur- lands gæti sinnt, vegna nálægðar við sérstöðu Snæfellsness og Breiða- fjarðar. Hjá Náttúrustofu er komin mjög góð rannsóknarstofa sem er undirstaða aukinna rannsókna. Breyttar aðstæður Guðrún Þórarinsdóttir, sérfræð- ingur hjá Hafrannsóknarstofnun, fjallaði um ræktun og eldi skeldýra við Ísland. Hún fór yfir þróun veiða á skeldýrum síðustu árin. Þar liggja mikil verðmæti í sjó. Hún fjallaði einkum um hörpudiskinn sem er kaldsjávarlífvera og nyrsti nýtanlegi hörpudiskstofninn. Ræktun hörpudisks var reynd í Breiðafirði fyrir 10 árum. Niður- staða var sú að hún var ekki arðsöm vegna lítils vaxtar, útbúnaður dýr og miklir straumar. Í dag eru eflaust breyttar forsendur. Möguleiki væri á að rækta ungviðið í landi og flytja það svo í hafið þegar það hefur náð ákveðinni stærð. Erindi hennar var fróðlegt og kom hún víða við. Góð mæting var á fundinn og urðu miklar umræðar milli framsögu- manna og fundargesta. Þarna komu fram hugmyndir sem geta leitt til nýsköpunar í atvinnumálum Hólm- ara, ef vel tekst til. Ýmsar leiðir færar í ný- sköpun þegar herðir að Stykkishólmur Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Framsögumenn á fundi um atvinnumál sem haldinn var í Stykkishólmi: Ró- bert Arnar Stefánsson, Guðrún Þórarinsdóttir, Erla Björg Guðrúnardóttir og Ólafur Sveinsson, forstöðumaður Atvinnuráðgjafar Vesturlands. SKÓLAHÚSIÐ í Holti á Mýrum fær nýtt hlutverk með samningi sem Anna Egilsdóttir hefur gert við Sveitarfélagið Hornafjörð. Samn- ingurinn var undirritaður á þriðju- dag. Anna veitir forstöðu einka- reknu sambýli fyrir fatlaða á Hólabrekku og verður skólahúsið nýtt undir vinnustofur fyrir íbúa sambýlisins. Að undanförnu hefur sambýlið haft eitt herbergi í Holti til umráða og þar hefur verið starfrækt vinnu- stofa í tilraunaskyni. Anna segir þá tilraun hafa gefist mjög vel og skil- að góðum árangri í meðferðarstarf- inu. Samningurinn geri henni kleift að efla það starf til muna og bæta þar með þjónustuna við íbúana og faglegt starf á sambýlinu. Þrátt fyrir nýja starfsemi í hús- inu verður hún með svipuðu sniði og á meðan skólinn starfaði. Engin breyting verður því á aðgengi ann- ara að húsinu, en það er notað til fundarhalda og annars félagsstarfs. Grunnskólinn í Holti var lagður niður vorið 2001 þar sem ljóst var að mjög fá börn yrðu í skólanum næsta vetur. Þeim er nú ekið í aðra skóla sveitarfélagsins. Skólahúsið hefur því ekki verið í daglegri notk- un síðan. Á sambýlinu eru sex íbúar, flestir frá Reykjavík, en einnig annars staðar af landinu. Vinnustofa fyrir fatlaða í Holti á Mýrum Skólahús fær nýtt hlutverk Morgunblaðið/Sigurður Mar Anna Egilsdóttir forstöðumaður og Albert Eymundsson, bæjarstjóri á Höfn, undirrituðu samning um leigu á gamla skólahúsinu í Holti á Mýrum. Hornafjörður SVALAN, fyrsti sérhannaði bátur- inn til vinnu við laxeldi, var sjósettur í Færeyjum á þriðjudag. Báturinn var byggður fyrir Sæsilfur í Mjóa- firði, af fyrirtækinu Hydro Tech á Eiði í Færeyjum. Hann er sérhannaður vinnubátur fyrir laxeldið í Mjóafirði og er útbú- inn til fóðurgjafar. Svalan er 16 tonna tvíbytta með tveimur aðalvél- um, 12 metrar á lengd og 6 metra breið. Morgunblaðið/Albert Kemp Sérhannað- ur bátur til fóðurgjafar Mjóifjörður NÝLEGA var tekin í notkun lyfta við sundlaugina á Blönduósi til að bæta aðgengi fatlaðra. Lyftan er vökvastýrð og einföld í notkun. Nem- endur í 5. bekk Grunnskólans á Blönduósi voru í sundi á dögunum og kom lyftan sér þá vel fyrir Rúnar Þór Njálsson, einn nemanda í bekknum en hann er hreyfihamlaður. Þessi lyfta við sundlaugina á Blönduósi en laugin er sam- byggð skólanum er enn ein skrautfjöðrin í hatt skólans hvað varðar aðgengi fatlaðra, en stórátak hefur verið unnið í þeim málum á undanförnum árum. Lyfta fyrir hreyfi- hamlaða Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Rúnar Þór í lyftunni góðu, umkringdur bráðhressum bekkjarsystkinum. Blönduós

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.